Morgunblaðið - 12.02.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982 2 3
Starfsfólk Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar ályktar:
Stórauka þarf fræðslu
um skaðsemi fíkniefna
A FRÆÐSLUDEGI starfsfólks
Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar, í fjölskyldudeild, úti-
deild og unglingaathvarfi, var
rætt um vímuefnaneyslu og áhrif
hennar. í tilefni af þessum fundi
gerir starfsfólk Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkurborgar, sem
vinnur að þessum málum, eftir
farandi ályktun:
„Neysla vímuefna af ýmsu
tagi hefur verið mjög almenn
meðal unglinga og virðist fara
vaxandi. Áfengisvenjur ungl-
inga, allt niður í 12 ára aldur,
líkjast nú æ meir siðum full-
orðinna. Unglingar drekka
reglubundið, skipuleggja
áfengiskaupin tímanlega með
dyggilegri aðstoð fullorðinna
og stór hópur þeirra „dettur
rækilega í það“ um hverja
helgi.
Fleiri efni eru komin til sög-
unnar, auk áfengis. Hafa lyf og
leysiefni bæst við og æ sterkari
ávanaefni ryðja sér nú greini-
lega til rúms. Þessi þróun þar
sem efni verða fleiri, útvegun
auðveldari og meira virðist á
Ringulreið við Vín:
160 bflar í
5 árekstrum
Vínarborg, 8. febrúar. Al*.
„ÞAÐ ER kraftaverk að ekki
skyldu slasast f1eiri,“ sagði lög-
reglumaður eftir að 160 bílar
höfðu lent í fimm aðskildum
árekstrum á tæpri klukkustund
á einni hraðbrautanna, sem
liggja út úr Vínarborg, snemma í
gærmorgun. Aðeins 23 slösuðust
og þykir sú tala með ólíkindum
lág miðað við aðstæður.
Árekstrarnir áttu sér stað á
mesta umferðaratíma morg-
unsins þegar fólk var á leið til
vinnu sinnar. Mikil þoka var
yfir hraðbrautinni og ísing
gerði ökumönnum lífið leitt.
Eldur kviknaði í þremur bíl-
anna, sem brunnu án þess að
nokkrum vörnum yrði við
komið. „Þetta virtist vera
endalaus ringulreið," sagði
vegfarandi, sem horfði á
ósköpin.
23 fórust með
herflugvél
Nýju Delhi, 7. fchrúar. Al’.
BANDARÍSK vöruflutningavél af
Fairchild-gerð fórst í dag við rætur
llimalaya-fjalla og með henni 23
menn. Vélin, sem var í venjulegum
birgðaflutningum á milli Pathnakot
og Ladakh Leh, hrapaði um 300 km
norðvcstur af höfuðborginni, Nýju
Delhi. Að sögn sjónarvotta kviknaði
í henni cr hún rakst utan í fjallshlíð-
ina.
Björgunarsveitir fóru þegar á
vettvang og fundu strax 13 lík-
anna, en urðu að skilja þau eftir
vegna erfiðra aðstæðna. Verða
þau sótt síðar með þyrlum. Leit að
hinum 10 líkunum var hætt vegna
myrkurs.
boðstólum, er alvarlegt
áhyggjuefni. Svo virðist sem
nokkuð stór markaður hafi nú
þegar myndast á þessu sviði.
Rannsóknir erlendis frá sýna
að slíkur markaður tengist
fleiri vandamálum, t.d. afbrot-
um og vændi, og bendir ýmis-
legt til að slík þróun muni
einnig eiga sér stað hérlendis.
Ekki er hægt að líta fram
hjá aðstöðuleysi unglinga þeg-
ar verið er að fjalla um þessi
mál. Sú staðreynd, að flestir
foreldrar verða að vinna lang-
an vinnudag utan heimilis, ger-
ir það að verkum að stór hópur
barna og unglinga eru á göt-
unni meira eða minna allan
daginn.
Sá fjöldi sem stundar
miðbæinn reglulega kvöld og
nætur um helgar, minnir á að
huga verður betur að eldri
unglingum og í skipulagningu á
tómstundastarfi verður að taka
mið af áfengisneyslu þeirra.
Ljóst er að aldur þeirra sem
neyta áfengis hefur færst neð-
ar og því verður ekki breytt
með því að færa félagslífið „á
götuna".
Undanfarin ár hefur ýmis-
legt verið gert í málefnum
reykvískra unglinga. Má þar
m.a. nefna uppbyggingu 5 fé-
lagsmiðstöðva í Reykjavík, á
vegum Æskulýðsráðs. Starf-
semi Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar er þríþætt,
þegar um er að ræða starf með-
al unglinga.
1. Fjölskyldudeild Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkur-
borgar aðstoðar einstakl-
inga og fjölskyldur sem eiga
í erfiðleikum og þangað geta
unglingar ieitað eftir aðstoð.
2. Útideild hefur verið starf-
andi undanfarin ár og held-
ur uppi reglulegu leitar-
starfi meðal barna og ungl-
inga í Reykjavík.
3. Eitt unglingaathvarf er rek-
ið fyrir 6 unglinga, sem eiga
við ýmsa félagslega erfið-
leika að etja.
Nýlega hefur verið opnuð
unglingaráðgjöf á vegum ríkis-
ins sem unglingar geta leitað
til vegna erfiðleika sinna.
Hvad er til úrbóta?
Ábyrgðin á þessum málum
dreifist á margar stofnanir, því
er mikilvægt að þeir aðilar er
málið varðar taki nú höndum
saman. Aðgerðir mega ekki
stjórnast af tilviljanakenndum
skyndiviðbrögðum, langtíma-
áætlun þarf að vinna að sam-
eiginlega af hálfu heilbrigðis-,
félags- og fræðsluyfirvalda.
Stórauka þarf fræðslu meðal
barna, unglinga og foreldra
þeirra um áhrif og skaðsemi
vímuefna í því skyndi að koma
í veg fyrir frekari neyslu og út-
breiðslu efna þessara.
Aðstöðu fyrir unglinga má
tvímælalaust bæta svo og alla
félagslega aðstoð við þennan
aldurshóp. Nefna má að engin
meðferðarstofnun er til fyrir
unga vímuefnaneytendur.
Fjölskyldudeild Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar
hefur við gerð fjárhagsáætlun-
ar á undanförnum árum gert
margar tillögur til úrbóta í
málefnum unglinga, m.a. hefur
verið farið fram á unglinga-
heimili fyrir heimilislausa
unglinga, fleiri unglingaat-
hvörf og aukinn mannafla í úti-
deild og er enn þörf.
En fyrir starfsmenn á sviði
barnaverndar blasir fyrst og
fremst við að rjúfa þurfi þann
vítahring þar sem erfiðar fé-
lagslegar aðstæður leiða af sér
margþættan félagslegan
vanda.
Hlutverk fjölmiðla er mikil-
vægt, en fjalla verður um málið
á víðari grundvelli í stað þess
að slá upp æsifréttum eins og
borið hefur við.
Miklu máli skiptir, hvernig
fræðsla og upplýsingar eru
settar fram, svo ekki sé hægt
að skilja slíkt sem leiðbeiningu
um notkun efnanna."
KréUalilkynning.
Stórkostleg verólækkun
á afgöngum og
gölluðum vörum
Buxur
Peysur
Úlpur
Jakkar
Kjólar
Blússur
Sokkar
o.fl., o.fl
kr. 65,00
kr. 50,00
kr. 265,00
kr. 35,00
kr. 75,00
kr. 50,00
kr. 10,00
o.fl.
Næg bflastæði
Verksmiðjuútsalan
Grensásvegi 22
(á bak við gamla Litavershúsið)
föstud kl. 10—22
og laugardag kl. 10—19