Morgunblaðið - 12.02.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
25
ar. Hér virðast hinsvegar engin
rök duga til, og Siglingamála-
stofnunin á sér enga þrýstihópa,
sem komið gætu að gagni til að
knýja á um fjárveitingar.
Að undanþágur séu gefnar ár
eftir ár án þess að úr sé bætt er
ekki rétt. Það geta þó t.d. verið
dældir í stálskipi, vegna bryggju-
skaða sem veittur er frestur á við-
gerð á fram yfir vertíð, ef tryggt
er að engin hætta er fyrir öryggi
skipsins eða áhafnar. Slik mál
geta verið vandasöm, en reynt er
að valda ekki tjóni að ástæðulausu
og verður þá að meta hverju sinni
hvort hægt er að veita frest á við-
gerð. Slík mál koma nú oft til
ákvörðunar hjá siglingamála-
stjóra, en myndu oftar verða í
höndum deildarstjóra eftirlits-
deildar, ef slíkur maður yrði ráð-
inn, eins og lagt hefur verið til um
árabil.
Þá kemur Árni inn á olíumeng-
un sjávar og átelur búnað olíu-
stöðva. Það er rangt hjá Árna að
um þetta séu ákvæði í 20 ára al-
þjóðasamþykkt um varnir gegn
olíumengun sjávar. Um þetta at-
riði hafa aðeins verið settar ís-
lenskar rammareglur. Fullkomn-
ari reglur hafa fyrir löngu verið
samdar af Siglingamálastofnun og
sendar samgönguráðuneyti en þar
eð olíufélögin féllust ekki á öll
ákvæði þeirra, þá hefur sam-
gönguráðherra ekki sett þessar
reglur. Þegar um nýjar olíubirgð-
astöðvar er að ræða hefur Sigl-
ingamálastofnunin þó haft hlið-
sjón af þessum tillögum um regl-
ur, og fengið þeim framfylgt í
ýmsum veigamiklum atriðum.
Furðuleg er sú skoðun Árna sem
hér kemur fram að stundum sé
eðlilegt að hliðrað sé til um
ákveðna þætti í búnaði skipa
vegna fjárskorts útgerðar, þótt
olíufélögin skuli gera það sem
þeim ber þar eð þau hafi aura.
Má spyrja Árna Johnsen, telur
hann þá líka eðlilegt að hliðrað sé
til um öryggisbúnað skipa og þá
líka Sigmunds-gálgann, ef útgerð-
armaður segist ekki hafa efni á
slíkum búnaði?
Þá spyr Árni hvar þeir menn fái
þjálfun, sem siglingamálastjóri
kalli sérfræðinga Siglingamála-
stofnunar. — Þetta veit Árni ef-
laust mæta vel. Flestir starfs-
menn Siglingamálastofnunar eru
annaðhvort tæknimenntaðir
(tæknifræðingar eða verkfræð-
ingar) eða skipstjórar, sem siglt
hafa á farmskipum eða á fiski-
skipum, eða vélstjórar, sem starf-
að hafa á sömu skipum. Starfs-
þjálfun þeirra er misjöfn eftir
verkefnum. Skoðunarmenn hafa
flestir fengið starfsþjálfun í starfi
hjá stofnuninni, en aðrir erlendis
t.d. við röntgenmyndun, örbylgju-
mælingar, skipamælingar, köfun
o.fl.
Þá víkur Árni að ákveðnu at-
viki, þar sem hann segir skipa-
skoðunarmann hafa tekið haffær-
isskírteini af nýbyggðum bát í
Reykjavík, en annar lét athuga-
semdalaust vélrita annað og fá
umráðamanni bátsins. — Þetta
atvik var kannað, og í ljós kom, að
áður en haffærisskírteinið var af-
hent aftur hafði verið bætt úr því,
sem ábótavant var.
Þá spyr Árni hversu margir
starfsmenn Siglingamálastofnun-
ar vinni hjá þeim aðilum, sem þeir
síðan eiga að hafa eftirlit með. Ef
Árni á við fasta starfsmenn, þá er
ekki kunnugt um að neinn starfs-
maður sé líka starfsmaður hjá
öðrum en Siglingamálastofnun
ríkisins. Ef átt er við lausráðna
starfsmenn, þ.e.a.s. þá sem ekki
eru á föstum launum, þá eru
nokkrir starfandi hjá skipasmíða-
stöð eða hjá útgerð, eins og getið
var að framan.
Árni spyr hvort eðlilegt sé að
starfsmenn Siglingamálastofnun-
ar teikni fyrir viðskiptavini og
samstarfsmenn þeirra skrifi undir
teikningarnar. Ekki skal lagður
dómur á það hvað er eðlilegt í
þessu efni, en hitt er víst að ekki
er vitað til þess að það sé bannað
með lögum og ekki er mér kunnugt
um neina misnotkun í því sam-
bandi. Oft er örðugt að fá gerðar
teikningar af ýmsum breytingum
og búnaði skipa, sem Siglinga-
málastofnunin krefst og þá hefur
komið fyrir að tæknimaður í
stofnuninni hefur hlaupið undir
bagga og leyst slíkan vanda.
Varðandi fyrirspurn Árna
Johnsen um Sjómannaalmanak
Fiskifélagsins, ög skipaskrá þess,
þá var fyrir meira en áratug rætt
um að óþarft væri og óhentugt að
tvær skipaskrár kæmu út á vegum
opinberra aðila með um mánaðar
millibili, önnur í Sjómannaalman-
aki, hin sem sérstök bók gefin út
samkvæmt lögum um Siglinga-
málastofnun ríkisins.
Fiskifélagi íslands var boðið að
Skipaskránni frá Siglingamála-
stofnun mætti dreifa með Sjó-
mannaalmanakinu, ef það kæmi
út í lok janúar hvers árs, og hefði
flóðtöflur og annað fyrir janúar og
febrúar næsta árs með. Af þessu
hefur þó ekki orðið ennþá, en ýms-
ir eru þeirrar skoðunar að slík
ráðstöfun myndi bera vott um
sparnaðarvilja í opinberum
rekstri.
Fundurinn með sjómönnum
í Vestmannaeyjum,
8. janúar 1981.
Það er rétt hjá Árna Johnsen í
grein hans, að fundur, sem Sigl-
ingamálastofnun ríkisins, Stýri-
mannaskólinn í Vestmannaeyjum
og Björgunarfélag Vestmannaeyja
boðuðu sameiginlega til í Vest-
mannaeyjum 8. janúar 1981 um
öryggismál sjómanna, var mjög
vel sóttur af sjómönnum og vel
heppnaður. Hafi það verið tilgang-
ur Árna að koma illu til leiðar á
fundinum með róggrein sinni, sem
birtist sama dag í Morgunblaðinu,
þá mistókst sú fyrirætlan. Eins og
fram kom á fundinum, þá var
hann ákveðinn fyrir áramót að til-
hlutan siglingamálastjóra. Þar
kom enginn þrýstingur til, en eðli-
legt var að farið yrði yfir einstök
atriði varðandi undirbúning að til-
lögum að reglum um losunar- og
sjósetningarbúnaö gúmmíbáta.
Þetta hafði verið boðað þegar í
júlíhefti ritsins Siglingamál 1981,
eins og að framan er getið.
Á fundinum voru gagnleg skoð-
anaskipti og umræður, og sýnd
var ný kennslukvikmynd Siglinga-
málastofnunar ríkisins um notkun
gúmmíbjörgunarbáta. Síðastur
tók til máls á fundinum Sigurgeir
Ólafsson skipstjóri, en hann hefur
nýlega í blaðagrein í Fylki í Vest-
mannaeyjum sagt að ef til vill
væri orðið tímabært að fela ann-
arri stofnun en Siglingamála-
stofnun öryggismál á sjó. — Sigl-
ingamálastjóri svaraði því til, að
skynsamlegra væri að hans mati
að endurskipuleggja núverandi
Siglingamálastofnun og veita
henni rekstrarfé svo að hún geti
uppfyllt skyldur sínar samkvæmt
gildandi lögum. Fjölgun stofnana,
sem yrðu í samkeppni um sömu
eða skyld verkefni, væri ekki
vænleg leið til að styrkja þau mál
sem varða öryggi á sjó, og án efa
kostnaðarsamari.
í fundarlok sýndu siglingamála-
stjóri og Páll Guðmundsson skipa-
skoðunarmaður fundarmönnum
uppblásinn gúmmíbjörgunarbát
og útskýrðu breytingar m.a. á inn-
gönguopi gúmmíbátanna, sem
Siglingamálastofnunin hefur
hannað á grundvelli prófana. Þá
var sýnd nýja gerðin af rekakker-
um sem Siglingamálastofnunin
hefir líka hannað, og eykur veru-
lega stöðugleika gúmmíbjörgun-
arbátanna.
En „dragbítur heitir
það „stjóri“ góður,“
segir Árni Johnsen. Hann hefur
valið Ólafi T. Sveinssyni skipa-
skoðunarstjóra þetta heiti, þótt
Árni hafi nú orðið að viðurkenna
sögufölsun sína um fyrstu gúmmi-
bátana, og „dragbítur" skal hann
líka heita „stjórinn", sem árið
1954 tók við starfi Ólafs T.
Sveinssonar. Ætli sá maður, sem
bráðlega tekur við af mér, verði
ekki líka „dragbítur" að ævistarfi í
augum Árna Johnsen, nema þá ef
hann tæki sjálfur við starfi sigl-
ingamálastjóra?
30. janúar 1982
Á fimmta þúsund
þreyttu samræmd próf
NYVERIÐ fóru fram svonefnd samræmd próf í níunda bekk grunnskólanna
í landinu. Mbl. sneri sér til Ólafs Proppé formanns Prófanefndar og fékk hjá
honum þær upplýsingar ad tæplega 4200 nemendur hefðu þreytt þessi próf,
en þau eru í fjórum námsgreinum, íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku.
Var öðrum bekkjardeildum gefið frí í skóla á meðan þessi próf fóru fram.
Ólafur sagði að samræmdu
prófin væru samkvæmt lögum og
reglugerðum svokölluð flokkun-
arpróf, til að skipta nemenda-
hópnum, fremur en að leggja mat
á getu hvers einstaklings sérstak-
lega. Sagði hann hverju prófi skipt
í hundrað atriði og gefið eitt stig
fyrir hvert rétt atriði, leitast væri
við að hafa í prófinu einhver atriði
sem allir ættu að geta svarað, en
einnig nokkur atriði sem fáir réðu
við.
Varðandi þá gagnrýni, sem
komið hefur fram á enskuprófið,
sagði Ólafur að átt hefðu sér stað
mistök i litlum hluta þess, þannig
að próftakar hefðu ekki haft næg-
an tima til að svara spurningum
sem fyrir þá voru lagðar á segul-
bandi. Kvað hann það nú til at- -
hugunar að breyta vægi þessa
prófþáttar, eða jafnvel að fella
hann alveg burt úr prófinu við út-
reikning einkunna.
Ólafur sagði að lokum að sam-
ræmdu prófin væru í raun arftaki
landsprófs, nema hvað nú gæfist
öllum árganginum tækifæri til að
þreyta prófið, sem aftur skæri úr
um það hvort viðkomandi kæmist
inn í framhaldsskóla, þannig væru
þessi próf að eðli til svipuð inn-
tökuprófum sem viðgengust við
framhaldsskóla fyrir daga lands-
prófsins.
Seyðisfjörður:
Sjálfstæðismenn
með prófkjör
SrvdÍNfirði. 10. Tebrúar.
SJÁLFSTÆÐISMENN hafa ákveðið prófkjör 20. febrúar fyrir skipan
framboðslista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum. Annar
af núverandi bæjarfulltrúum sjálfstæðismanna, Gunnþórunn Gunn-
laugsdóttir, kaupmaður, gefur ekki kost á sér, en hún hefur setið í
bæjarstjórn í tvö kjörtímabil.
Prófkjörið verður opið öllum
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokksins á Seyðisfirði, 18 ára og
eldri. Eiga þátttakendur að raða
minnst þremur frambjóðendum í
sæti og mest 5, auk þess sem þeim
er heimilt að bæta tveimur nöfn-
um við listann, ef þeir kjósa.
Þeir, sem gefa kost á sér í
prófkjörinu, eru: Bjarni B. Hall-
dórsson, verkstjóri, Davíð Gunn-
arsson, trésmiður, Guðrún And-
ersen, verzlunarmaður, Inga Sig-
urðardóttir, húsmóðir, Ólafur M.
Óskarsson, viðskiptafræðingur,
Ólafur Már Sigurðsson, kaupmað-
ur, og Theodór Blöndal, tækni-
fræðingur.
Sjálfstæðismenn eiga nú tvo
bæjarfulltrúa, Gunnþórunni og
Theodór Blöndal, en í siðustu
kosningum vantaði 3 atkvæði til
þess að sjálfstæðismenn fengju 3
bæjarfulltrúa. Sjálfstæðismenn
mynda meirihluta bæjarstjórnar
með framsóknarmönnum, sem
hafa 3 fulltrúa.
Gísli
svissneski plastmagasleöinn
Sleöi fyrir alla fjölskylduna, unga sem gamla.
Léttur og meðfærilegur en stöðugur og rennur sér
staklega vel.
NÝJUNG A ISLANDI
Lengd: 80 cm
Hæð: 20 cm
Þyngd: 2,5 kg
Geymsluhólf undir sæti
Einnig fáanlegur meö bremsum
Heildsölubirgðir:
HEIDRÚN SF.
Suöurlandsbraut 30, sími 35320
Útsölustadir:---------------------
Reykjavík:
Verslunin Markiö, Suöurlandsbraut 30
Hagkaup, Skeifunni 15
Livarpool, Laugavegi 18
Sportval, Laugavegi 116
Vesturröst, Laugavegi 178
Sportmarkaöurinn, Grensásvegi 50
Kópavogur:
Sportborg, Hamraborg 10
Stórmarkaöurinn, Skemmuvogi 4
Hafnarfjöróur:
Kaupfélag Hafnfiróinga, Mióvangi
Kaupfélag Hafnfiróinga, Strandgötu
Akranes:
Axel Sveinbjörnsson hf.
Borgarnes:
Kaupfélag Borgfiróinga
Stykkishólmur:
Kaupfélag Stykkishólms
Patreksfjöróur:
Kaupfélag V.-Baróstrendinga
Bolungarvík:
Versl. Einars Guófinnssonar
ísafjöróur:
Ljónió
Hvammstangi:
Kaupfélag V.-Húnvetninga
Blönduós:
Kaupfélag Húnvetninga
Sauóárkrókur:
Kaupfélag Skagfiróinga
Ólafsfjöróur:
Valberg hf. byggingavörudeild
Akureyri:
Amarao
Husavik:
Kaupfélag Þingeyinga
Vopnafjöróur:
Kaupfélag Vopnfiróinga
Egilsstaóir:
Kaupfélag Héraósbúa
Seyóisfjöróur:
Kaupfélag Héraósbúa
Neskaupstaóur:
Kaupfélagió Fram
Reyöarfjörður.
Kaupfélag Héraósbúa
Höfn Hornafirói:
Kaupfélag A.-Skaftfellinga
Hvolsvöllur:
Kaupfélag Rangasinga
Selfoss:
Kaupfélag Arnesinga, Vöruhús
Keflavík:
Kaupfélag Suóurnesja
V
J