Morgunblaðið - 12.02.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
27
Guðmundur Vignir Jósefs-
son kjörinn formaður Lög-
fræðingafélags íslands
AÐALFIJNDUR Lögfræðingafé-
lags íslands var haldinn 17. des-
ember sl. Fráfarandi formaður fé-
lagsins, dr. Gunnar G. Schram,
prófessor, setti fundinn og flutti
skýrslu stjórnar um starfsemi fé-
lagsins á liðnu starfsári. í ræðu
formanns kom fram, að Lögfræð-
ingafélagið gekkst á síðastliðnu
starfsári fyrir allmörgum fundum
um lögfræðileg málefni og voru
Guðmundur Vignir Jósefsson hrl.
var kjörinn formaður Lögfræðinga-
félags íslands á aðalfundi þess ný-
lega.
fyrirlesarar á vegum félagsins
bæði innlendir og erlendir.
Fundir þeir, sem Lögfræð-
ingafélagið gekkst fyrir á síð-
astliðnu starfsári, eitt sér eða í
samvinnu við önnur félög, voru
yfirleitt mjög fjölsóttir og ligg-
ur nærri að samanlagður fjöldi
fundargesta á fundum félagsins
hafi verið um 600 manns.
í ræðu formanns kom fram,
að dagana 28.-29. október efndi
Lögfræðingafélag Islands til
námsstefnu í samvinnu við
Lögmannafélag Islands og Dóm-
arafélag Islands um breytingar
á einkamálalögunum, en eins og
kunnugt er tóku gildi um síð-
astiiðin áramót viðamiklar
breytingar á íslenskum lögum
um réttarfar í einkamálum.
Námsstefna þessi var hin fjöl-
mennasta sem félagið hefur
gengist fyrir og sóttu hana um
200 manns.
Fráfarandi formaður Lög-
fræðingafélagsins, dr. Gunnar
G. Schram, prófessor, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs, en
hann er nú á förum í rannsókn-
arleyfi til Berkeley háskóla í
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Voru dr. Gunnari færðar þakkir
fyrir frábært starf í þágu fé-
lagsins, en hann hefur verið
formaður þess síðastliðin tvö
kjörtímabil. í stað dr. Gunnars
var Guðmundur Vignir Jósefs-
son, hrl., gjaldheimtustjóri í
Reykjavík, kjörinn formaður fé-
lagsins. Varaformaður var kjör-
inn frú Guðrún Erlendsdóttir,
lektor. Meðstjórnendur voru
kjörnir Pétur Kr. Hafstein, hdl.,
stjórnarráðsfulltrúi, Baldur
Guðlaugsson, hdl., Ólöf Péturs-
dóttir, deildarstjóri í dómsmála-
ráðuneytinu, Logi Guðbrands-
son hrl., og Þorgeir Örlygsson,
fulltrúi yfirborgardómara.
Lögfræðingafélag Islands gef-
ur út Tímarit lögfræðinga, sem
út kemur 4 sinnum á ári. Birtast
þar greinar um lögfræðileg mál-
efni af ýmsu tagi. Ritstjóri Tím-
arits lögfræðinga er Þór Vil-
hjálmsson, hæstaréttardómari.
í dag, íöstudag, kynnum vlð íorrit íyrir
FJÁRHAGS-
BOKHALD
Fjárhagsbókhaldsforrit Tölvubúðarinnar hí. rœður við
umfangsmikið bókhald. Bókhaldsreikningar geta orðið
2.000. Fœrslur mega vera 10.000 á hverridiskettu.
Komist heíur verið hjá þeirri almennu takmörkun mikró-
tölva að reikningsaðgerðir séu aðeins íramkvœmdar með
9 tölustafa nákvœmni.
Forritið rœður við tölur allt að 999.999.999.999,99 kr.
Innskriít fœrslna er sérhönnuð til þess að komast megi hjá
villum. Fyrir þá sem vilja hafa allt 100% er boðið upp á
endurgötunarforrit, sem leyíir tvöfalda innskrift allra
fœrslna til að komast hjá villum. Eí villur slœðast samt inn
í bókhaldið, þarí ekki að bakíœra til að losna við villuna,
heldur aðeins að íá hina röngu íœrslu upp á skerminn og
leiðrétta hana þar.
Hreyíingalista má prenta í dagsetninga-, íylgiskjala- eða
reikningaröð. Forritið er mjög íljótvirkt. Það staríar sam-
tengt öðrum forritum í Viðskiptakeríi Tölvubúðarinnar hí.
Endurskoðendur - bókhaldarar - stjórnendur: Hér er íorrit,
sem er sérhannað fyrir ykkar þarfir.
Rétt lausn íelst í réttu íorriti.
Verið velkomin kl. 2-6 í dag og kynnið ykkur
íorrit okkar.
TDLVUBÚDIN HF
Laugavegl 20. Simi 25410
Atta íslensk
leikrit gefin út
í Skandinavíu
A vegum Norræna leiklistarsam-
bandsins er nú verið að undirbúa
útgáfu á safni leikrita eftir finnska
og íslenska höfunda á sænsku. Verð-
ur hér um að ræða tvær bækur og er
útgáfa þeirra styrkt af Norræna
menningarsjóðnum.
Flest íslensku verkanna, en þau
eru átta að tölu, hafa þegar verið
þýdd, en verið að ljúka þýðingu
sumra þeirra. Mun leikritasafn
þetta koma út á þessu ári. Fyrir
hönd íslenska leiklistarsambands-
ins hefur þriggja manna nefnd
annast val verka og undirbúning
útgáfunnar og skipa hana þau
Þorsteinn Gunnarsson, Sigrún
Valbergsdóttir og Þórhallur Sig-
urðsson. Að sögn Þorsteins hefði
nefndin kosið að geta haft fleiri
verk í þessu safni, en það reyndist
ekki unnt. Verkin átta sem verða í
safninu af íslands hálfu eru:
„Dúfnaveislan" eftir Halldór
Laxness. „Sjóleiðin til Bagdad"
eftir Jökul Jakobsson, „Skjald-
hamrar" eftir Jónas Árnasnr^ ™|u
tilbritrði éíur Odd Björnsson,
„Selurinn hefur mannsaugu" eftir
Birgi Sigurðsson, „Stalín er ekki
hér“ eftir Véstein Lúðvíksson,
„Jói“ eftir Kjartan Ragnarsson og
„Skilningstréð" eftir Guðmund
Steinsson.
% AFSLATTUR
af útsöluvörum og
öllum öðrum vörum í
verzluninnj þsssa viku
B4TNÆIUR A
ALLA FJÖLSKYLDUM4
Aústurstræti 10
sími: 27211