Morgunblaðið - 12.02.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
29
In memoriam:
Svavar Arnason
ráðningarstjóri
Fæddur 29. aprfl 1934 og gekk í skóla. Lauk hann stúd-
Dáinn 3. febrúar 1982
I dag blaktir þjóðfáninn í
Straumsvík í hálfa stöng og
starfsmenn íslenzka álfélagsins
hf. eru hryggir í huga því að í dag
er einn af virtustu starfsmönnum
okkar lagður til hinztu hvíldar,
Svavar Arnason, ráðningastjóri,
sem andaðist 3. febrúar síðastlið-
inn.
Svavar fæddist 29. apríl 1934 í
Reykjavík, þar sem hann ólst upp
Lögbirtingablaðið:
Hækkun á
TILKYNNT hefur verið hækkun á
gjaldi fyrir auglýsingar og annað
sem birt er í Lögbirtingablaðinu, og
öðlast hin nýja gjaldskrá gildi hinn
15. febrúar næst komandi. Um leið
fellur síðasta gjaldskrá úr gildi, en
hún er frá því í nóvember síðast
liðnum. Gjaldskráin er í 13 eftirfar
andi liðum, en falli efni ekki undir
neinn þeirra skal greiða 34 krónur
fyrir hvern dálksentimetra fyrir birt-
ingu þess. Flokkarnir 13 eru þessir:
1. Fyrir tilkynningu um skrá-
setningu hlutafélaga og sam-
vinnufélaga kr. 800,00.
2. Fyrir tilkynningu um skrá-
setningu firma kr. 280,00.
3. Fyrir tilkynningu um veitingu
prókúruumboðs, breytingu eða
afturköllun á prókúruumboði
kr. 280,00.
4. Fyrir tilkynningu um breyt-
entsprófi frá Verzlunarskóla Is-
lands árið 1955. Frá þeim tíma og
til ársins 1968 starfaði hann sem
fulltrúi og skrifstofustjóri hjá
þrem fyrirtækjum á höfuðborg-
arsvæðinu. Þann 1. febrúar 1969
hóf hann störf hjá íslenzka álfé-
laginu hf. sem aðstoðarmaður
starfsmannastjóra og frá 1. júní
1973 sem ráðningastjóri. Þeirri
stöðu gegndi hann til dauðadags.
Gífurleg uppbygging hefur átt
sér stað á þessum árum og álverið
gjaldskrá
ingu á hlutafélögum,
samvinnufélögum og firmum
(breytingu á stjórn, sam-
þykktum, eigendaskipti o.fl.)
kr. 280,00.
5. Fyrir tiikynningu um að
hlutafélag eða firma sé hætt
störfum kr. 60,00.
6. Fyrir uppboðsauglýsingu,
þrjár birtingar kr. 365,00.
7. Fyrir fjármark kr. 70,00.
8. Fyrir auglýsingu um óskila-
fénað, fyrir hverja kind eða
hross kr. 40,00.
9. Fyrir innköllun kr. 365,00.
10. Fyrir auglýsingu um skipta-
fund kr. 145,00.
11. Fyrir ógildingarstefnu kr.
365,00.
12. Fyrir dómsbirtingu kr. 365,00.
13. Fyrir tilkynningu um útdrátt í
happdrætti allt að 7 dálksenti-
m. kr. 210,00.
aukið ársframleiðsluna um 33.000
tonn, í 85.000 tonn, og verið er að
ljúka uppsetningu þurrhreinsi-
kerfis af fullkomnustu gerð sem
völ er á, með tilheyrandi tækni-
breytingum og tölvuvæðingu. Til
þess þurfti ÍSAL að ráða menn af
ýmsu tagi, menntamenn, tækni-
menn, fagmenn og verkamenn.
Svavar var starfi sínu sem ráðn-
ingastjóri vel vaxinn og aldrei hef-
ur ÍSAL skort hæfa starfsmenn.
Launakerfi ISAL er tölvustýrt,
og telja fróðir menn að þetta kerfi
sé eitt það bezta hér á landi. Svav-
ar átti drjúgan þátt í uppbyggingu
þessa kerfis. Hann stundaði öll sín
störf af skyldurækni og var ætíð
fús að leysa vanda hvenær sem
var. Venjulegur vinnutími dugði
oft ekki til og var þá unnið fram-
eftir í deild hans, svo að laun til
starfsmanna kæmust til skila á
réttum tíma. Það hefur ekki
brugðist til þessa. Margir starfs-
menn standa í þakkarskuld við
hann og allir báru traust til hans
sem heiðarlegs, hreinskilins og
hjálpfúss mans.
Á þessum árum hjá ÍSAL hafa
myndast vináttusambönd milli
hans og margra samstarfsmanna.
í samkvæmum og frístundum
nutu menn félagsskapar hans og
gestrisni á heimili hans.
í 4. tölublaði ÍSAL-tíðinda 1981
birtist grein eftir hann undir
fyrirsögninni Veiðiförin (hinir
mögnuðu átta) og þótti afar
skemmtileg og fyndin. Grein þessa
var ætlað að verðlauna sem beztu
ritgerð ársins í blaðinu. í henni
endurspeglaðist ást Svavars á
náttúru Islands. Hann var sann-
færður um að ísland væri fegursta
land heimsins. Hann var mikill
útivistarmaður, og náttúrufegurð
landsins hefur veitt honum marg-
ar hamingjustundir.
Nú er hann farinn frá, og
hryggð í hugum okkar. í minning-
um okkar mun hann lengi lifa.
Vinahugur í Straumsvík fylgir
honum í dag til hinztu hvíldar.
Svavar lætur eftir sig eigin-
konu, Ingunni Ólafsdóttur, og
fjóra syni, Árna, Ólaf Björn, Svav-
ar og Gunnar. Hugur okkar bein-
ist ekki síður til þeirra en til hins
látna. Um leið og við sendum eig-
inkonu hans, sonum og öðrum ætt-
ingjum okkar innilegustu samúð-
arkveðjur, vonum við af öllu
hjarta, að tíminn dragi úr sárs-
auka þessarar stundar sem fyrst.
Um Svavar segjum við á kveðju-
stund: Hann var góður drengur.
Vinnufélagar
LJÓSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 1 78 SIMI 8581 1
Þú kemur meö filmurnar til okkar i dag
og sækir myndirnar kl. 16 á morgun.
Opið laugardaga kl. 9—12
Verslið h|á kati fagmanninum
F // A T
1
BILASÝNING Á AKUREYRI A MORGUN KL. 1—6.
hjá Vagninum sf., Furuvöllum 7.
Fiat Ritmo 65 CL
Fiat Ritmo eini innflutti bíllinn á Bandaríkjamarkaði sem
stóðst öryggisprófun neytendasamtakanna. Fiat Ritmo
hefur hlotiö viöurkenningu gagnrýnenda um heim allan.
Aksturseiginleikar og hönnun hans er talin ein sú full-
komnasta sem fram hefur komið í mörg ár. Sumir hafa
gengiö svo langt aö telja Ritmo bíl þessa áratugar.
Nýr Fiat 127 Special 3ja dyra
Fiat 127 hefur löngum sannaö ágæti sitt og veriö mest
seldi bíll í Evrópu í samfleytt 6 ár, ekki aö ástæöulausu.
Hér á íslandi hefur umboöiö til þessa ekki annaö eftirspurn
enda bíllinn skilaö einu hæsta endursöluveröi á markaðn-
um.
h
NÚ FÆRÐ l»Ú F/,'AJT' A FRABÆRU VERÐI
ÞU FÆRÐ RJÚK-
ANDI HEITT KAFFI
HJÁ OKKUR
Umboösmenn á Akureyri:
ninn
Furuvöllum 7,
sími 24467.
FIAT EINKAUMBOO A ÍSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSOfíl hf.
SMIOJUVEGI 4, KOPAVOGI. simi 77720.
1