Morgunblaðið - 12.02.1982, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Einvígi milli Ovett
og Coe á Spáni?
Af) SÖGN brezkra blaða standa yfir
vidræður í því augnamiði að koma í
kring keppni milli hlaupagarpanna
miklu, Steve Ovett og Sebastians
('oe, einhvers staðar á Spáni í sumar
meðan heimsmeistarakeppnin í
knattspyrnu stendur þar yfir. Mað-
urinn á bak við þessar tilraunir er
Juan Antonio Samaranch forseti Al-
þjóðaólympíunefndarinnar, sem er
góðkunningi ( oe.
Blöðin segja, að þeir Ovett og
Coe muni líkast til þéna um eitt-
Owett fagnar sigri yfir Coe
hundrað þúsund sterlingspund
hvor, eða tæpar tvær milljónir
króna, á þeim þremur keppnum
sem talið er að þeir muni heyja sín
á milli í sumar, en endanlega hef-
ur ekki verið gengið frá samning-
um um þær.
Ljóst er að þeir geta farið fram
á enn meiri skilding fyrir keppni á
Spáni í júní-lok eða júlí-byrjun,
því þangað liggja hugir hundruð
milljóna íþróttaunnenda meðan á
heimsmeistarakeppninni stendur,
og líklegt að fleiri komi til með að
fylgjast með viðureign þeirra í
beinni sjónvarpsútsendingu en
dæmi eru til um.
Ovett gekkst undir uppskurð
fyrr í vetur og hefur það sett veru-
legt strik í þjálfun hans og undir-
búning fyrir næsta keppnistíma-
bil, og af þeim sökum alls óvíst að
af keppni þessara miklu íþrótta-
manna geti orðið.
Það er athyglisvert, og til marks
um breytt viðhorf í frjálsíþrótta-
heiminum, að það er formaður Al-
þjóðaólympíunefndarinnar, Sam-
aranch, sem er á bak við tilraun-
irnar til að koma keppni Ovett og
Coe á Spáni í kring. Ljóst er, að
allar reglur um áhugamennsku
eru og verða þverbrotnar ef af
þessari keppni verður, þótt kapp-
arnir tveir muni að sjálfsögðu
áfram verða flokkaðir jafn miklir
áhugamenn og ef um íslenzka
Sebastian Coe margfaldur heims-
methafi
• Kenaldo Nehcmia setti heimsmet á innanhúsmóti í Texas fyrir skömmu,
er hann keppti í 60 metra grindahlaupi. Hljóp Nehemia spottann á 6,82
sekúndum. Nehemia hefur um árabil verið illsigranlegur í 50—150 metra
grindahlaupum, sannkallaður kóngur í ríki sínu. Kóngsi er síður en svo að
slá slöku við.
langhlaupara væri að ræða.
Keppnirnar þrjár, sem á döfinni
eru, fara fram í Englandi, Frakk-
landi og í Bandaríkjunum. Yrði
fengur að einvígi þessara snjöllu
hlaupara á Spáni, en tíminn verð-
ur að skera úr um hvort af því
verður.
Friðisar íbrðttir
Pólverjinn
kominn
til Fram
• Andrzjei Strejlau pólski knatt-
spyrnuþjálfarinn sem mun þjálfa 1.
dcildarlið Fram kom til landsins á
þriðjudag. Hann mun strax taka til
við að þjálfa meistaraflokk félagsins
sem fram að þessu hefur æft undir
stjórn Jóhannesar Atlasonar.
r
Einkunnagjöfín
V - KA: Lið KR: Lið HK:
Magnús Gauti Gautason 7 Gísli Felix Bjarnason 7 Einar Þorvarðarson 7
Magnús Birgisson 4 Brynjar Kvaran 6 Bergsveinn Þórarinsson 4
Sigurður Sigurðsson 5 Haukur Geirmundsson 7 Kagnar Olafsson 6
Erlingur Kristjánsson 6 Jóhannes Stefánsson 7 Gunnar Eiríksson 8
Kriðjón Jónsson 7 Alfreð Gíslason 8 Hörður Sigurðsson 8
Þorleifur Ananíasson 6 Gunnar Gíslason 6 Kristinn Olafsson 6
Jóhann Einarsson 4 Ragnar Hermannsson 8 Sigurbergur Sigsteinsson 5
Guðmundur Guðmundsson 4 Haukur Ottesen 6 Magnús Guðfinnsson 5
Jakob Jónsson 5 Björn Pétursson 5
Friðrik Þorbjörnsson 6
Lið Vals:
1‘róttur: Lið FH: Þorlákur Kjartansson 6
Sigurður Sveinsson 7 Haraldur Kagnarsson 8 Jón Gunnarsson 5
Páll Ólafsson 6 Kristján Arason 8 Þorbjörn Jensson 7
Gunnar Gunnarsson 6 I»orgils Óttar 8 Þorbjörn Guðmundsson 7
Olafur H. Jónsson 6 Sæmundur Stefánsson 7 Steindór Gunnarsson 5
Jens Jensson 5 Guðmundur Magnússon 5 Gunnar Lúðvíksson 6
Gísli Oskarsson 5 Hans Guðmundsson 5 Theodór Guðfinnsson 5
Jón Viðar Sigurðsson 4 Valgarð Valgarðsson 5 Brynjar Harðarson 5
Olafur BcnedikLsson 8 Pálmi Jónsson 7 Jón Pétur Jónsson 5
Sigurður Ragnarsson 4 Sveinn Bragason 5 Friðrik Jóhannsson 4
Bikarkeppni HSÍ:
Haukar sigruðu
ÍR með 10
marka mun
KINN leikur fór fram í bikarkeppni
HSÍ í fyrrakvöld. Haukar sigruðu lið
ÍR með 25 mörkum gegn 15. Staðan
í hálfieik var jöfn 7—7. Lið ÍR er því
fallið úr bikarkeppninni. En þessi
stóri sigur Hauka kom nokkuð á
óvart þar sem lið ÍR er í einu af
efstu sætum 2. deildar.
— ÞR.
Keppir Borg
ekki á
Wimbledon-
mótinu?
Sænski tenniskóngurinn Björn
Borg hefur lýst yfir að það sé með
öllu óvíst að hann keppi á Wimble-
don-mótinu á þessu ári. Borg tapaði í
úrslitaleik einliðaleiksins fyrir John
McEnroe í fyrrasumar, en hafði
fram að því einokað einliðaleikinn
árum saman. Það væri mikið fjár
hagslegt áfall fyrir Wimbledon ef
Borg tæki þann kostinn að vera ekki
með.
Borg er nýbyrjaður að æfa á ný
eftir þriggja mánaða hvíld. Hann
sagði fyrir skömmu: „Ég kom ekki
nálægt spöðum mínum í þrjá
mánuði og það er svolítið fram-
andi að handfjalla þá á ný. En
þetta hefur þó lagast jafnt og þétt
og ég reikna með því að vera kom-
inn í góða æfingu fyrir fyrsta mót-
ið sem ég keppi í á þessu keppnis-
tímabili, Monte Carlo Grand
Prix-keppnina. En það er langt í
Wimbledon-keppnina og á þessu
stigi er með öllu óvíst hvort ég
keppi þar eða ekki.“
Stórgott 600 stiku
hlaup hjá Oddi
„ÉG NÁÐI góðu hlaupi, sigraði og
bætti mig um tvær sekúndur frá
fyrri viku. Það var hörkukeppni í
hlaupinu, fór á síðustu metrunum
fram úr strák sem á 1:47 mín. í 800
metra hlaupi. í mótslok hljóp ég svo
fyrsta sprett fyrir skólann í 4x400
metra boðhlaupi og við sigruðum í
því,“ sagði Oddur Sigurðsson
spretthlaupari i spjalli við Morgun-
blaðið, en hann átti stórgott hlaup á
innanhúss frjálsíþróttamóti í Al-
buquerque um helgina, hljóp 600
stiku hlaup á 1:10,90 mínútum.
Helgina áður hljóp Oddur sömu
vcgalengd, sem mun vera um 548,5
metrar, á 1:12,9 mín., eins og skýrt
var frá í Mbl.
„Þetta var keppni fimm há-
skóla, Texas, E1 Paso, Arizona, I
Stanford og New Mexíkó-háskóla.
Okkar skóli, Texas, kom sterkur
út, sigraði í stigakeppninni, þótt
við værum t.d. án Óskars Jakobs-
sonar, sem tognaði í baki fyrir
tveimur vikum. Hann er að ná sér
og verður líklega með um næstu
helgi.
Mér finnst ég vera í góðu formi
og leggst keppnistímabilið vel í
mig,“ sagði Oddur Sigurðsson.
Hann sagði íslenzku frjálsíþrótta-
mennina sem eru við Texas-
háskóla æfa af miklum krafti, en
mót eru framundan hjá þeim
næstum því um hverja helgi fram
í lok maí-mánaðar. Fyrstu utan-
hússmótin hjá þeim hefjast í lok
febrúar, eða áður en innanhúss-
keppnistímabilinu lýkur.
Unglingameistaramót íslands í badminton:
Stærsta badmintonmót
sem haldið hefur verið
Dagana 12., 13. og 14. feb. nk. fer
fram Islandsmeistaramót unglinga í
badminton í hinu nýja og stórglæsi-
lega íþróttahúsi á Selfossi.
Keppnin hefst kl. 6.00 e.h. á
föstudag en kl. 10.00 á laugar-
dagsmorgun verður mótið sett.
Síðan verður keppt til kvölds. Á
sunnudag kl. 10.00 f.h. verða leikin
undanúrslit og úrslit kl. 1.00 e.h.
Keppt verður í öllum greinum
unglingafl. og eru keppendur alls
204 frá 12 félögum og er þetta
stærsta badmintonmót sem hefur
verið haldið.
Flestir keppendur koma frá
Akranesi og TBR, en auk þess eru
keppendur frá Akureyri, Borgar-
nesi, Gróttu, Hveragerði, KR, Sel-
fossi, Siglufirði, Val, Vestmanna-
eyjum og Víkingi. Mótsstjóri er
Hjalti Sigurðsson.
Unglingameistaramót í sundi:
Þrettán félög frá 10
stöðum mæta til leiks
Unglingameistaramót íslands
fyrir 16 ára og yngri verður haldið í
Sundhöll Reykjavíkur um næstu
hclgi, 13. og 14. febrúar. Þrettán fé-
lög frá tíu stöðum hafa tilkynnt
þátttöku í mótinu. Þátttakendur
verða frá Akranesi, Borgarnesi, Bol-
ungarvík, Akureyri, Vestmannaeyj-
um, Héraðssambandinu Skarphéðni,
þ.á m. Selfossi, frá Keflavík, Njarð-
víkum og Hafnarfirði, og frá Reykja-
vík verða þátttakendur frá Sundfé-
laginu /Egi, sunddeild Ármanns og
sunddeild KR. Sjaldan eða aldrei á
seinni árum hafa jafn margir þátt-
takendur frá jafn mörgum stöðum
verið skráðir til þátttöku í sundmóti
unglinga.
'J
■