Morgunblaðið - 12.02.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1982
31
• Steindór Gunnarsson Val margreyndur landsliðsmaður í handknattleik og
einn snjallasti línuspilari landsliðsins kominn í gott skotfæri.
„Leggjum mikla
áherslu á að
sigra Svíana"
- segir Hilmar Björnsson
landsliðsþjálfari
„1>AÐ GR kominn tími til að leggja
Svía að velli og við munum leggja
mikla áherslu á að ná því marki,“
sagði Hilmar Björnsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik, á dögunum,
en íslenska landsliðið mætir því
sænska í tveimur landsleikjum eftir
helgina. Fyrri landsleikurinn fer
fram á þriðjudagskvöldið og sá síð-
ari á miðvikudagskvöldið. Báðir fara
fram í Laugardalshöllinni og hefjast
klukkan 20.30. Landsliðshópurinn
er hinn sami og mætir Rússum um
helgina. Hugsanlegt er þó að breyt-
ingar verði ef meiðsl leikmanna
höggva skörð.
Island hefur ekki sigrað Svía í
landsleik síðan árið 1964, er
12—10-sigurinn frægi leit dagsins
ljós. Umræddur sigur er jafn-
framt eini sigurinn sem unnist
hefur gegn Svíum. Þjóðirnar hafa
reynt með sér 15 sinnum og hafa
Svíar unnið 13 sigra, einu sinni
varð jafntefli og einu sinni sigr-
uðu íslendingar. Markatalan er að
sjálfsögðu óhagstæð, 214—275.
Svíar mæta með leikreynt lið,
þrír hafa yfir 100 landsleiki að
baki, Basti Rasmussen hefur leik-
ið 114 leiki, Bo Anderson 112 og
Claes Hellgren 105 landsleiki. Þá
hefur Claes Ribendahl leikið 92
landsleiki og Bengt Hanson 90
leiki. Það er því ekki verið að ráð-
ast á garðinn þar sem hann er
lægstur að þessu sinni...
Tekst Fram að
sigra UMFN
í KVÖLD kl. 20.00 fer fram stórleik-
ur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
I.ið UMFN og Fram leika í íþrótta-
húsinu í Njarðvík. /Etli Fram að eiga
einhverja möguleika á sigri í úr
valsdeildinni í ár verða þeir að sigra
í leiknum. Sigri hinsvegar lið UMFN
bendir allt til þess að liðið verji ís-
landsmeistaratitil sinn í ár.
Það verður ekki létt verk hjá
leikmönnum Fram að sigra
UMFN í ljónagryfjunni í Njarð-
vík. En nái lið Fram að stöðva
hinn frábæra leikmenn Danny
Shouse getur allt gerst. Víst er að
leikmenn Fram munu selja sig
dýrt því að þetta er þeirra síðasta
hálmstrá.
Staðan í úrvalsdeildinni er nú sem
hér segir:
Njarðvík 15 12 3 1301—1177 24
Fram 15 10 5 1245—1150 20
Valur 16 10 6 1320—1271 20
KR 15 8 7 1157—1226 16
ÍR 16 5 10 1251 — 1335 10
ÍS 15 1 14 1208—1363 2
Tekstloks
rússneska
- Þrír landsleikir qeqn í
að sigra
björninn?
Sovétríkjunum um helgina
ÍSLENDINGAK leika þrjá lands-
leiki gegn Sovétmönnum á næstu
dögum og fer sá fyrsti fram í Laug-
ardalshöllinni í kvöld. Hefst hann
klukkan 20.30. Á sunnudaginn leika
þjóðirnar aftur í Höllinni og hefst
leikurinn klukkan 20.30. A sama
tíma á mánudagskvöldið fer síðan
fram þriðji og síðasti leikurinn.
Hann fer fram í íþróttahúsinu í
Keflavík.
Island og Sovétríkin hafa leikið
10 landsleiki í gegnum árin og
hafa íslendingar iðulega náð að
standa uppi í hárinu á rússneska
birninum þó svo að hann hafi
ávallt sigrað örugglega. Markatal-
an í leikjunum tíu er 199—170,
Rússum í hag. Ekki svo afleitt ef
litið er á getu sovéska liðsins. Þar
fer algert yfirburðalið í íþróttinni,
lið sem hefur verið í allra fremstu
röð síðustu árin. Rússar urðu í 2.
sæti á síðustu Olympíuleikum og í
síðustu heimsmeistarakeppni og
Olympíumeistari varð landslið
þeirra árið 1976.
Eitt af einkennum sovéska liðs-
ins er hin mikla meðalhæð leik-
manna liðsins. I 15 manna lands-
liðshópi þeirra eru þrír leikmenn 2
metrar á hæð eða meira og sex til
viðbótar sem eru 1,90 eða meira.
Frægasti leikmaður sovéska liðs-
ins er vafalaust fyrirliðinn Vladi-
mir Belov sem leikur með Kunts-
evo í Moskvu.
Hilmar Björnsson valdi fyrir
nokkru landsliðshóp sinn og var
hann birtur í Mbl. á þriðjudaginn.
Hann skal engu að síður rifjaður
hér upp. Markverðir eru Kristján
Sigmundsson Vík., Einar Þorvarð-
arson HK og Brynjar Kvaran KR.
Aðrir leikmenn: Ólafur Jónsson
Vík., Gunnar Gíslason KR, Bjarni
Guðmundsson Nettlestedt, Hauk-
ur Geirmundsson KR, Guðmundur
Guðmundsson Vík., Steindór
Gunnarsson Val, Óttar Mathiesen
FH, Jóhannes Stefánsson KR,
Þorbergur Aðalsteinsson Vík., Al-
freð Gislason KR, Páll Ólafsson
Þrótti, Sigurður Sveinsson Þrótti,
Sigurður Gunnarsson Vík., Þor-
björn Jensson Val og Kristján
Arason FH. Dómarar verða frá
Vestur-Þýskalandi.
Norðmenn unnu
Breta 42—11
FLEIRI úrslit hafa borist úr undan-
keppninni fyrir C-keppnina í hand-
knattleik sem haldin verður í Belgíu
áður en langt um líður. Belgía,
Noregur og Búlgaría allt að því
tryggðu sér sæti í lokakeppninni. í
A-riðli eru Búlgaría og Noregur efst
með 6 stig hvor þjóð, en Búlgarir
unnu síðast Færeyjar 26—16 og
Noregur sigraði England 42—11.
í B-riðli hafa Belgar 6 stig að
þremur leikjum loknum, en þeir
unnu síðast Austurríkismenn
16—14. Portúgalir sigruðu Finna
24—21 og hafa 4 stig •
Tap hjá SK Brugge
EINN leikur fór fram í belgísku
deildarkeppninni í knattspyrnu í vik-
unni, Sævar Jónsson og félagar hjá
Cercle Brugge töpuðu 0—1 á útivelli
gegn Winterslag.
Börkur til
Bryne
KK-ingurinn Börkur Ingv-
arsson, hefur gengið til liðs við
norska I. deiidar liðið Bryne,
sem er eitt af bestu liðum Nor-
egs. Börkur hefur dvalið hjá
norska félaginu að undanfnrnu
og athugað málin.
Eitthvað mun eiga eftir að
ganga frá smáatriðum, en
Börkur verður ekki löglegur
hjá Bryne fyrr en 6. júní.
Norsk blöð hafa rætt dálítið
um komu islendingsins og
gert mest úr því að hinn 23
ára gamli miðvörður hafi
lengi verið oröaður við ís-
lenska landsliðið og raunar
verið valinn í landsliðshóp þó
ekki hafi hann náð að hreppa
landsleik. jel./gg.
Punktar úr ensku knattspyrnunni:
Tottenham og Liverpool
leika til úrslita
ÞAÐ VERÐUR Tottenham sem
mætir Liverpool í úrslitum
deildarbikarkeppninnar í knatt-
spyrnu, en leikurinn fer fram á
W'embley í næsta mánuði. Totten-
ham sigraði WBA 1-0 í síðari leik
undanúrslitanna í fyrrakvöld, sigr
aði því samtals 1-0, þar sem fyrri
leik liðanna lauk með markalausu
jafntefli. Mike Hazzard skoraði sig-
urmark Tottenham snemma í síðari
hálfleik, en sigurinn hefði getað
hafnað hvoru meginn sem var, WBA
síður en svo lakari aðilinn. Ekki stóð
til að Hazzard ætti að leika, en í
upphitun slasaði hinn seinheppni
Ricardo Villa sig og Hazzard var því
kallaður inn á síðustu stundu. Kom
það sér bara vel fyrir Tottenham.
Tveir leikir fóru einnig fram í 1.
deildinni í fyrrakvöld, Aston Villa og
Southampton skildu jöfn, 1-1, á
Villa l’ark í Birmingham, Peter
Withe skoraði fyrir Villa, en Kevin
Keegan svaraði fyrir Southampton.
Þá sigraði Stoke lið Sunderland 2-0
á útivelli. Brendan O’Callaghan og
Sammy Mcllroy, nýi maðurinn frá
Man. Utd., skoruðu mörkin.
Einhver slagsíða er að koma í
Nottingham Forest-trilluna, en þrír
Enska
knatt-
spyrnan
af lykilmönnum liðsins hafa verið
scttir á sölulista, fjórir því í allt, því
John Robertson tók sæti þar í síð-
ustu viku. Þremenningarnir eru lan
Wallace, Justin Fashanu og John
McGoverns. Wallace og Fashanu
kostuðu Forest á sínum tíma á
þriðju milljón sterlingspunda,
McGovern hefur hins vegar verið
fyrirliði á City Ground í mörg ár.
ÍR:
Benedikt Ingþórsson 5
Hjörtur Oddsson 6
Jón Jörundsson 7
Kristinn Jörundsson 7
Sigmar Karlsson 4
Ragnar Torfason 4
Óskar Baldursson 5
Helgi Magnússon 5
llræringar einnig á Main Road,
heimslóð Manchester City. Þar hef-
ur City lánað tvo af þekktari leik-
mönnum sínum til smáliðs í Hong
Kong til þriggja mánaða. Hér er um
Phil Boyer og Tommy Hutchinson
að ræða. í fljótu bragði virðist
hreinlega verið að móðga kappana
með þessu og verður fróðlegt að sjá
hvað úr verður.
Valur:
Torfi Magnússon
Kíkharður Hrafnkelsson
Jón Steingrímsson
Valdemar Guðlaugsson
Leifur Gústafsson
Kristján Ágústsson
íþróttafélagið Þróttur Neskaupstað óskar eftir að
ráða
knattspyrnuþjálfara
fyrir næsta keppnistímabil.
Upplýsingar gefa Guðmundur í simum 7641 og
7500 og Viðar í síma 7598.
Elnkunnagjöfin
Ö1