Morgunblaðið - 21.02.1982, Síða 9
Námskeið
í búfræði á
Hvanneyri
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
þriggja námskeiða í búfræði að
Hvanneyri, sem hvert stendur í fjóra
og hálfan dag. Námskeiðin eru öll-
um opin, en við undirbúning þeirra
eru einkum hafðir í huga bændur og
aðrir sem við búskap starfa.
Námskeið í bútækni verður hald-
ið 22.-26. febrúar. Námskeiðið
verður á vegum Bændaskólans á
Hvanneyri og Bútæknideildar
Rannsóknastofnunar landbúnað-
arins. Þar verður bókleg og verk-
leg kennsla í vélfræði, logsuðu og
rafsuðu. Einnig verður fjallað um
heyvinnutæki og áburðardreifara
bæði bóklega og verklega. Fyrir-
lestrar verða um fjárhús og loft-
ræstingu gripahúsa.
Námskeið í fóðurrækt, heyverkun
og fóðrun verður haldið 1.—5.
mars. Námskeiðið verður á vegum
Bændaskólans á Hvanneyri. A
námskeiðinu verður í fyrirlestrum
og hópvinnu fjallað um túnrækt,
grænfóðurrækt, heyverkun og
fóðrun. Hálfur dagur verður
notaður til að fara í kynnisferð
um Borgarfjörð.
Námskeið í framleiðslustjórnun
verður haldið 8.—12. mars. Nám-
skeiðið verður á vegum Bænda-
skólans á Hvanneyri og Stéttar-
sambands bænda. Fjallað verður
um framleiðslu- og markaðsmál
meginafurða landbúnaðarins,
framleiðslustjórnandi aðgerðir,
dreifingu framleiðsluaflanna á
fleiri búgreinar, og möguleika
bænda, sem skerða þurfa fram-
leiðslu sína, á því að lækka jafn-
framt framleiðslukostnaðinn.
Upplýsingar eru veittar á
Hvanneyri.
Frestafélag Suðurlands:
Kirkjan í
nútíma
þjóðfélagi
l’RESTAFÉLAC Suðurlands heldur
fund í Crensáskirkju á mánudags-
kvöld, hinn 22. febrúar, klukkan
20.30.
Fundarefni er að séra Sigurður
Sigurðsson á Selfossi flytur erindi
um efnið „Kirkjan í nútíma þjóð-
félagi“.
Félagsmenn eru hvattir til að
fjölmenna og taka þátt í umræð-
um.
(Kréttatilkynning)
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
41
GLÆSIVAGN A GOÐU VERÐI
Mjög sparneytin og þýðgeng Veltistýri.
1600 cc eða 2000 cc vél.
T
Aðalljós með innbyggðum Stillanleg tram- og aftursæti.
þokuljúsum.
Komið,skoðiðt
og reynsluakið
IhIHEKLAHF
' I Laugavegi 170-172 Sími 21240
W SKIIAFEROIB
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI: 26900
Umboðsmenn um allt land
Til Akureyarar — Skíðahóteliö Hlíðafjalli
Eitt besta skíðasvæöi landsins — grill — gufubað — skíöaleiga — skíöakennsla.
Gisting í herbergjum og svefnpokaplássi. Verö frá kr. 882,00 m/morgunverði í 2 nætur.
Þegar aö veröa fullbókað fram yfir páska — Athugiö, sérstök páskaferö. Verö frá kr.
1.237,00 í 5 nætur m/morgunverði.
URVAL
VIÐ AUSTURVÖLL SÍMI: 26900
Umboðsmenn um allt land
Úrvals-páskaferðin er einnig kölluö „páskaævintýriö