Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
51
Búnaðarþing
22. febrúar
MÁNUDAGINN 22. febrúar kl.
10.00 verður Búnaðarþing sett í
Bændahöllinni af formanni stjórnar
Búnaðarfélags íslands, Ásgeiri
Bjarnasyni.
Landbúnaðarráðherra, Pálmi
Jónsson, mun flytja ávarp á þess-
um fyrsta fundi. Undanfarin ár
hefur Búnaðarþing staðið yfir í 2
vikur og gert er ráð fyrir að svo
muni einnig verða í ár.
Búnaðarþingsfulltrúar eru 25,
en ásamt þeim sitja fundina
stjórn Búnaðarfélags Islands og
ráðunautar. Fundir Búnaðarþings
eru opnir öllum, sem áhuga hafa á
að fylgjast með störfum þess.
Flugáhuga ^ menn
Eigendum Sharp örbylgjuofna gefst nú tækifæri til aö sækja
námskeiö þar sem kennd veröur matreiösla í örbylgjuofnum og
meöferö þeirra. Námskeiöin veröa haldin í verzlunum okkar aö
Hverfisgötu 103, miövikudaginn 24. febrúar kl. 20—22 og
fimmtudaginn 25. febrúar kl. 20—22.
Stjórnandi námskeiöanna veröur Ólöf Guönadóttir, hússtjórn-
arkennari.
Þátttaka tilkynnist í síma 17244, frá kl. 10—12 á morgun,
mánudag.
Bóklegt námskeiö fyrir einkaflugmannapróf
veröur haldiö í marz og apríl nk. ef næg þátttaka
fæst.
Nánari upplýsingar
veittar í síma 28122.
VETRARVERÐ
Eigum fyrirliggjandi örfáa
af hinum vinsælu
AGROMET
áburðardreifurum
fyrir 350 kg.
Verð með drifskafti
kr. 3.300,00
4áfS^ HLJÓMTÆKJADEILD
(p KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
JMunið
kon udaginn
í dag
^Blómabændur