Morgunblaðið - 04.03.1982, Page 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
48. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fá pólskir verkalýðsfor-
ingjar að flytja úr landi?
Vmrajá, Geaf, 3. marz. AP.
NEFND á vegum Alþjóðavinnumála-
stofnunarinnar í Genf ályktaði í dag
að herlögin í Póllandi gKtu ekki leyst
vanda Pólverja og að þegar bæri að
aflétta banni við starfsemi verkalýðs-
félaganna í landinu. Einnig var skor
að í pólsk yfirvöld að láta þegar úr
haldi þá verkalýðsforingja, sem hand-
teknir hafa verið.
Hernaðaryfirvöldin í Póllandi
hafa nú til athugunar að veita
verkalýðsforingjum í landinu vega-
bréfsáritanir til að fara til útlanda,
en þó þannig að þeim verði ekki
heimilt að snúa aftur. Frá þessu
var greint í tilkynningu yfirvalda í
dag.
Pólsk blöð gera í dag mikið veður
út af heimsókn Jaruzelskis hers-
höfðingja til Sovétríkjanna og fara
fögrum orðum um vináttu og bróð-
urþel Sovétmanna í garð Pólverja.
Fjölskylda Lech Walesa leiðtoga
Samstöðu skýrði frá því í dag, að
ákveðið hefði verið að fresta því að
skíra yngsta barn Walesa-hjón-
anna, sem fæddist í janúar sl., þar
til heimilisfaðirinn hefði verið lát-
inn laus úr haldi. Barnið á að heita
María Viktóría og upphaflega stóð
til að skíra nk. sunnudag, en því
hefur nú verið frestað um óákveð-
inn tíma.
Forseti EI Salvador:
Þurfum stuðning allra
lýðræðisþjóða heims
La Libertad, Kl Salvador, 3. marz. AP.
JOSE Napoleon Duarte, forseti E1 Salvador, hvatti í dag „lýðræðisþjóðirnar í
heiminum" til að styðja við bakið á fyrirætlunum stjórnarinnar um að halda
kosningar í landinu í lok þessa mánaðar, enda þótt vinstri sinnar hafi ákveðið
að virða þær að vettugi.
„Við þurfum stuðning allra lýðræðissinna til að gefa því fólki hér tækifæri,
sem ekki kærir sig um ofbeldi og morð, en vill lýðræði," sagði Duarte í ræðu
í borginni La Libertad.
Duarte sagði, að í væntanleg-
um kosningum 28. marz nk.,
myndu íbúar landsins fá tæki-
færi til að taka þátt í veigamestu
hugmyndafræðilegu baráttu á
vesturhveli jarðar. „Okkar bar-
átta er ekki aðeins fyrir E1
Salvador, heldur fyrir lýðræðið
alls staöar í latnesku Ameríku,"
sagði forsetinn,
1 kosningunum í þessum mán-
uði á að velja 60 menn til þings,
sem hafa mun það hlutverk að
koma á bráðabirgðastjórn í land-
inu, skrifa nýja stjórnarskrá og
setja reglur um kjör forseta, sem
væntanlega verður á næsta ári.
Miðflokkur Duartes keppir í
kosningunum við fimm hægri
flokka um fylgi kjósenda, en
vinstri sinnaðir flokkar hafa
neitað að taka þátt í kosningun-
um, þar sem ekki sé hægt að
tryggja öryggi frambjóðenda
þeirra. Ekki er búizt við því að
kosningaþátttaka verði mikil.
Um 1,2 milljónir manna hafa
kosningarétt í E1 Salvador, en
hermenn í her landsins, 25 þús-
und að tölu, hafa ekki atkvæðis-
rétt.
Brezka ríkisstjórnin tilnefndi í
dag lagaprófessor og fyrrverandi
sendiherra sinn í Mexíkó til að
vera fulltrúar Breta í E1 Salva-
dor þegar kosningarnar fara
fram og fylgjast með þeim.
(Sfmamynd AP)
Mitterand Frakklandsforseti á Ben Gurion-flugvelli við Tel Aviv ásamt
Navon forseta ísraels og Begin forsætisráðherra landsins.
Mitterand vid komuna til Tel Aviv:
„Eg er vinur Israels“
Jenásalem, 3. marz. AP.
FRANCOIS Mitterand Frakklands-
forseti kom í dag í opinbera heim-
sókn til ísraels og var forkunnarvel
tekið þar af ráðamönnum og aP
menningi. Allir helztu ráðamenn
ísraels tóku á móti Mitterand á
flugvellinum, en þetta er i fyrsta
sinn sem franskur þjóðhöfðingi
heimsækir fsrael. Meðal þeirra, sem
tóku á móti forsetanum, var Begin
forsætisráðherra, en hann er enn í
hjólastól vegna aðgerðar, sem hann
gekkst undir nýlega.
Nordsat-áætlunin var sam-
þingi Norðurlandaráðs
þykktá
Hclsinki, 3. marz.
Frá Eb'nu Pálmadóttur blm. Mbl.
NORDSAT var siðdegis f dag bjargað
frá dauða hér á þingi Norðurlandaráðs
þegar samþykkt var með 52 atkvæðum
gegn einu tillaga um að 4 þjóðanna,
Island, Finnland, Noregur og Svíþjóð,
haldi áfram að vinna að þróun kerfis
fyrir sjónvarps- og útvarpssendingar
um sjónvarpshnött þrátt fyrir það að
Danmörk hafi dregið sig út úr. 12 sátu
hjá. Hefur verið mikill órói hér vegna
þessa máls, og hafa íslenzku þing-
mcnnirnir, sem eru allir miklir stuðn-
ingsmenn málsins, unnið að því af
kappi og eru flutningsmenn tillögunnar
til menningarmálanefndar, sem eftir
2'/j tíma umræður á sunnudagskvöld
náði samkomulagi um að mæla ein-
róma með þessu við þingið.
Þingmennirnir voru í gær að
vinna af kappi að því að vinna tillög-
unni fylgi, þegar Ingvar Gíslason
lýsti því yfir í ræðustól að áhugi ís-
lands sé ekki sá sami eftir að Dan-
mörk dró sig út og óvíst um afstöðu
íslands eftir að löndin væru orðin
fjögur. Kom þetta þingmannanefnd-
inni algerlega í opna skjöldu og fann
Halldór Ásgrímsson sig knúinn til
að koma í ræðustól i dag og leggja
áherzlu á það við þingið að allir í
islenzku sendinefndinni styddu til-
löguna einróma. Síðar í dag kom svo
Ingvar Gíslason i ræðustól og dró í
land, kvaðst ekki vera neikvæður í
þessu máli, en hann vildi að menn
litu með raunsæi á það. Hann tæki
fram að hann styddi tillöguna eins
og hún liggur fyrir. Fréttamaður
Mbl. spurði Gunnar Thoroddsen í
símtali að gefnu tilefni um afstöðu
stjórnarinnar og sagði hann að ef
allir væru ekki með, breyttust kostn-
aðarhlutföll og ríkisstjórnin hefði
ekki tekið afstöðu til þessara nýju
viðhorfa.
Með breyttu orðalagi tillögunnar
og fyrirvörum m.a. um að málið
komi aftur fyrir þing Norðurlanda-
ráðs áður en útvarps- eða sjón-
varpshnöttur fari á framkvæmda-
stig, féllust Svíarnir á að vera með,
en Sósíaldemókratarnir sænsku voru
nokkuð hikandi við að setja Nordsat,
sjónvarpshnött af stað við hliðina á
sínum telex-gervihnetti, sem er
minni. En Falldin forsætisráðherra
sagði aö Svíar yrðu með og að slíkur
hnöttur rúmi bæði iðnaðar- og
menningarlega hagsmuni landanna.
Er reiknað með að næstu 2 árin
fari fram athugun á tæknilegum og
fjárhagslegum þáttum og miðað að
því að hægt verði að skjóta norræn-
um gervihnetti upp 1985.
Umræðurnar stóðu lengi og allir
þeir, sem til máls tóku frá þjóðunum
fjórum, mæltu ákaft með tillögunni
um að þær héldu áfram, töldu það
skipta óhemjulegu máli fyrir norr-
æna menningu og samheldni Norð-
urlanda, sem ættu á hættu að
drukkna í flóði nýrrar tækni. Enginn
danskur fulltrúi tók til máls.
Mitterand sagði í stuttu ávarpi
við komuna til ísraels, að hann
væri vinur ísraels, en vék einnig
að tillögum Evrópubandalagsins
um lausn á vandamálum Palest-
ínuaraba. í ísrael hafa menn lagt
á það mesta áherzlu að heimsókn
Mitterands tákni nokkra breyt-
ingu á stefnu Frakklands gagn-
vart Miðausturlöndum, en undan-
farin 15 ár hafa Frakkar fremur
verið hliðhollir Aröbum en ísra-
elsmönnum.
Tveir menn
falla í árás
á menning-
armiðstöð
Briiíwel, 3. mmn. AP.
TVEIR menn voru drepnir í
kvöld, miðvikudag, og þrír særðir
í skothríð í hverfi í Bríissel, sem
einkum er byggt fólki sem er af
júgóslavnesku bergi brotið. Einn
af þeim sem særðust er sagður (
lífshættu.
Að því er sjónarvottar
skýrðu lögreglunni frá, kom
maður vopnaður vélbyssu inn í
menningar- og íþróttamiðstöð-
ina Júgóslavía í hverfinu og hóf
skothríð á fólk, sem var inni í
húsinu. Maðurinn lagði snar-
lega á flótta, en lögreglan seg-
ist hafa fengið góða lýsingu á
honum.
Hrydjuverkamenn leystu
230 fanga úr haldi í Perú
Lima, Perú, 3. marz. AP.
STDR hópur hryðjuverkamanna
réðst til atlögu inn á lögreglustöð,
fangelsi og sjúkrahús, sem eru í sam-
byggingu f bænum Ayarucho, og
leysti úr haldi 230 fanga sem voru á
þessum stofnunum. Þrír lögreglu-
menn voni drepnir í þessum árásum.
Jose Gagliardi innanrfkisráðherra
sagði að sjö hryðjuverkamenn hefðu
fallið, og fjórir fangar voru skotnir á
flótta. Munu því fjórtán manns hafa
látizt samkvæmt opinberum heimild-
um, en þar sem fréttum um málið
ber ekki saman, kann sú tala að vera
hærri.
Innanríkisráðherrann sagði, að
árásirnar hefðu bersýnilega verið
þrautskipulagðar og léki grunur á
að einhverjir hernaöarsérfræð-
ingar kynnu að hafa tekið þátt í
undirbúningnum. Þetta er alvar-
legasti atburður sem hefur orðið í
Perú síðan Belaunde Terry forseti
tók við völdum ásamt borgaralegri
ríkisstjórn sinni í Perú fyrir rúm-
lega hálfu öðru ári.
Innanrikisráðherrann sagði að
ellefu þjóðvarðliðar hefðu særzt og
allmargir hryðjuverkamenn hefðu
verið handsamaðir. Lýst hefur ver-
ið yfir neyðarástandi í bænum, en
lögreglustjóri þar sagði í kvöld, að
allt virtist nú með kyrrum kjörum.
í kvöld hafði ekki spurst til fang-
anna sem komust undan og ekki
hafði lögreglan haft hendur I hári
fleiri tilræðismanna.