Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón Sighvatur Blöndal 48. ársþing Félags íslenzkra iðnrekenda ARSÞING Félags íslenzkra iðnrek- enda, þad 48. í roðinni verður haldið að Hólel D>flleiðum á morgun, fnstudaginn ó.janúar. Þingið hefst á venjulegum aðal- fundarstörfum, samkvæmt lögum félagssins, en síðan mun Davíð Scheving Thorsteinsson, formaður Félags íslenzkra iðnrekenda flytja ræðu. Að henni lokinni mun Hjörleifur Guttormsson ávarpa fundinn. Eftir hádegi mun Dr. Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri flytja ræðu um „Skýrslu starfsskilyrða- nefndar“. Síðan munu fara fram umræður um skýrsluna og verða frummælend.ur þar þeir Haukur Björnsson, Þráinn Þorvaldsson, Pétur Eiríksson og Kristján Jó- hannsson. Þá verða umræður og fyrir- spurnir, ályktun þingsins og kjör- stjóri lýsir úrslitum í stjórnar- kjöri. Samdráttur í flugvélaframleiðslu EINS OG kunnugt er af fréttum hafa Lockheed verksmiðjurnar í Bandaríkjunum ákveðið að hætta smíði Tri Star-farþegaþota og nú er um það rætt, að McDonnell Douglas muni fylgja í kjölfarið og hætta framleiðslu á DC-10 þotum. A síðustu þremur mánuðum ársins var hagnaður Boeing verksmiðjanna um 40% minni en á sama tíma árið áður. 300 milljóna dollara tap á amerískum flugfélögum HEILDARTAP bandarísku flugfélaganna á síðasta ári nam um 300 milljónum dollara, eða um 3000 m.kr. og leggja bandarískir bankar mikla áherzlu á að halda flugfélögunum gangandi vegna þess, að markaðurinn fyrir notaðar flugvélar er svo slæmur, að lánardrottnar hafa við litlu að taka. Mikið framboð af notuðum farþegaþotum MIKIÐ framboð er nú af notuðum farþegaþotum í heiminum og jókst töluvert, þegar Laker-flugfélagið varð gjaldþrota. Talið er, að um 40 DC-10 þotur hafi verið til sölu um skeið og við gjaldþrot Lakers bættust við níu DC-10 þotur og þrjár „Airbus“-þotur, sem framleiddar eru af Evrópumönnum. Fyrir utan þær þrjár munu um sjö slíkar þotur vera til sölu og 55—60 Boeing 747 eru einnig á söluskrá. Greiðsluerfiðleikar hjá Rúmenum POLVERJAR eru ekki eina AusturEvrópuþjódin, sem á í miklum fjár hagserfióleikum. Rúmenar standa nú frammi fyrir sama vandamáli, þótt það sé ekki jafn viðamikið og vandamál Pólverja. I janúarmánuði átti rúmensk- ir ráðamenn fund með full- trúum níu vestrænna banka, en Rúmenía skuldar 150 vestræn- um bönkum 6,1 milljarð banda- ríkjadala. Um þriðjungur þess- ara skulda fellur í gjalddaga á næstu 18 mánuðum og Rúmenía er þegar komin í vanskil með greiðslur, sem nema 1,2 millj- örðum bandaríkjadala og þarf að greiða 2,7 milljarða til við- bótar á árinu 1982. Þrátt fyrir þessar upphæðir telja vestrænir bankamenn, að Rúmenía eigi ekki við jafnal- varleg vandamál að stríða og Pólland, en muni hins vegar þurfa á að halda framlengingu á lánum og annars konar aðstoð til þess að geta staðið undir greiðslu vaxta og afborgana af þessum lánum. GM kaupir hlut í Suzuki SUZUKI-bílaverksmiðjurnar í Japan stefna nú að því að byggja sex hundruð þúsund smábíla á þessu ári, en töluverð eftirspurn hefur verið cftir bílum verk- smiðjanna, og eru það aðallcga fjölskyldur, sem eru að festa kaup á öðrum bíl, sem þar eru á ferðinni. Bandarísku bílaverk- smiðjurnar General Motors keyptu nýlega lítinn hlut í Suz- uki-verksmiðjunum og er Suzuki nú að vinna að því að þróa nýjan smábíl fyrir GM. GM er einnig hluthafi í Is- uzu-bílaverksmiðjunum í Jap- an og hefur hlutur þeirra verið rúmlega 34%, en talið er, að hann muni aukast í 40% á næstu árum og er búizt við því, að þessar japönsku bíia- verksmiðjur muni framleiða um 200 þúsund litla bíla á ári fyrir GM-verksmiðjurnar. Frá Mitsubishi-námskeidinu á dögunum. Ljósmynd Mbl. KÖE. Hekla: Japanskur sérfrædingur leið- beindi um viðhald Mitsubishi Mitsubishi-sérfræðingurinn skýrir fyrir þátttakendum á námskeiðinu ýmsa þætti varðandi vélina. Ljósmynd Mbl. kök. HEKLA hf. hefur í gegnum árin lagt mikla áherzlu á námskeiðahald fyrir starfsmenn sína og umboðsmanna sinna varðandi viðhald á vélum, bfl- um og tækjum, sem fyrirtækið selur. Eitt slíkt námskcið var haldið fyrir skömmu, þcgar hingað til lands kom sérfræðingur frá Mitsubishi-verk- smiðjunum japönsku til að leiðbeina um viðhald á Mitsubishi-bflum, sem Hekla hefur um árabil selt hér á landi. Sverrir Sigfússon, fram- kvæmdastjóri hjá Heklu hf., sagði í samtali við Mhl., að námskeiðið hefði staðið yfir í viku tíma og verið frá morgni til kvölds. — Námskeiðið sóttu okkar eigin starfsmenn svo og starfsmenn umboðsmanna okkar úti á landi, sem starfa við viðgerðir.sagði Sverrir ennfremur. Sverrir sagði það mál manna, að námskeiðið hefði í alla staði tekizt mjög vel og það væri reyndar skoðun þeirra Heklumanna, að námskeiðahald, sem þetta væri í raun bráðnauðsynlegt og hefði mikla þýðingu í bættri þjónustu fyrirtækisins við viðskiptamenn þess. A námskeiðinu var farið sér- staklega í sjálfskiptingar og vélar bílanna, auk þess, sem farið var í ýmsa aðra þætti eftir þörfum, sagði Sverrir Sigfússon ennfrem- ur. Sverrir sagði, að á næstunni myndi Hekla standa fyrir svipuðu námskeiði varðandi viðhald á Volkswagen-bílum og í tilefni þess kæmi hingað til lands sérfræðing- ur frá Volkswagen í Þýzkalandi. — Þá höfum við í gegnum árin haldið fjölda svokallaðra Cater- pillar-námskeiða, eða námskeiða í viðhaldi Caterpillar-vinnuvéia, auk þess að halda námskeið í með- ferð slíkra tækja fyrir viðskipta- vini okkar. Við verðum með eitt slíkt þriggja daga námskeið í þessum mánuði. Ennfremur hald- ið námskeið í meðferð sjóvéla og ljósavéla frá Caterpillar, sagði Sverrir Sigfússon ennfremur. Að sögn Sverris er þetta í fyrsta sinn, sem hingað til lands kemur sérfræðingur frá Mitsubishi í þessum erindagjörðum, en hins vegar myndi verða framhald á þessu námskeiðahaldi.— Annars er það okkar skoðun, að svona námskeiðahald auki mjög á öryggi viðskiptavina okkar, sem fyrir vikið fá betri þjónustu en ella. Sérstaklega er þetta mikilvægt fyrir landsbyggðina, sagði Sverrir Sigfússon, framkvæmdastjóri hjá Heklu hf. að síðustu. Noregsfréttir: Samkeppnishæfni norsks idn- aðar versnar um 30% á árinu Neytendaverð hækkaði um 13,8% á árinu 1981 í LOK síðasta árs voru um 2,1% vinnufærra manna í Noregi án atvinnu, eða um 35.600 manns. Þar af voru 22.100 karlmenn og 13.500 konur. Þá voru um 5.400 manns undir 20 ára aldri. Til samanburðar voru um 1,8% mannaflans án atvinnu í lok ársins 1980, eða um 30.100 manns. Þá má geta þess, að svo margir hafa ekki verið at- vinnulausir í Noregi frá stríðslokum, ef árin 1958 og 1959 eru undanskilin. Neytendaverð Neytendaverð hækkaði um 13,8% á síðasta ári í Noregi, þar af varð mest hækkun á ýmiss konar sælgæti og tóbaki, eða um 18,8%. Mátvæli hækk- uðu að meðaltali um 15,7% í verði. Verð á lyfjum og heilsu- gæzlu hækkaði minnst, eða að- eins 4,9%. Olía — Iðnaðurinn Á síðasta ári seldi norskur iðnaður vörur til olíuvinnsl- unnar í landinu fyrir liðlega 1.500 milljónir Bandaríkjadoll- ara, eða sem nemur liðlega 15,6 milljörðum íslenzkra króna. Til samanburðar, þá var þessi tala um 1.166 milljónir Banda- ríkjadollara á árinu 1980, eða sem næst 12,1 milljarði ís- lenzkra króna. Áliðnaðurinn „ Norska ríkisálfyrirtækið, Árdal og Sunndal Verk A/S, tilkynnti nýverið, að um 13 milljóna Bandaríkjadollara tap hefði orðið á rekstri fyrir- tækisins á síðasta ári. Þá gera

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.