Morgunblaðið - 04.03.1982, Side 2

Morgunblaðið - 04.03.1982, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982 Hjúkrunarfræðingar hjá Reykjavfkurborg: Sögðu langflestir upp um mánaðamótin Um 90% hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða í Reykja- vík og nágrenni hafa sagt störfum sínum lausum MIKILL meirihluti hjúkninarfreðinga hjá Reykjaríkurborg sagði upp atörfum sínum frá og með síðustu mánaðamótum. Á BorgarspíUlanum og deildum hans sUrfa um 190 hjúkrunarfræðingar og höfðu 132 þeirra sagt upp fyrir 1. marz og i Heilsuverndarstöðinni mun hlutfallið vera svipað eða heldur herra. Hjúkrunar fraeðingar hjá borginni samþykktu aðalkjarasamning við borgina á laugardag, en til að knýja á um frekari úrbætur í launamálum og til að sýna samstöðu með hjúkrunarfræðingum á ríkisspítulunum, sem einnig hafa sagt upp, ákváðu hjúkr unarfræðingar hjá borginni að grípa til þessa ráðs. Uppsagnir hjúkrunarfræðinga á uppsagnarfrest eins og hjúkrunar- ríkisspítulunum munu vera mjög al- mennar og á sumum deildum hafa allir hjúkrunarfræðingar sagt upp. Þeir hafa nánast allir þriggja mán- aða uppsagnarfrest, en á ríkisspítul- unum er hægt að skylda þá, sem segja upp, til að starfa í þrjá mánuði til viðbótar. Það er hins vegar ekki hægt varðandi hjúkrunarfræðinga hjá borginni eða sjálfseignastofn- unum. Hjúkrunarfræðingar hafa gert kröfu um að byrjunarlaun skuli greidd samkvæmt 16. launaflokki BSRB, en nú þiggja þeir byrjunar- laun samkvæmt 11. launaflokki. Langflestir sjúkraliðar, sem starfa í Reykjavík og nágrenni, hafa einnig sagt upp, en um 600 sjúkralið- ar starfa á þessu svæði. Á Borgar- spitalanum höfðu t.d. 132 af um 180 sjúkraliðum sagt upp 1. marz. Að sögn Málhildar Angantýsdóttur, sem sæti á í stjórn Sjúkraliðafélags Is- lands, hafa um eða yfir 90% sjúkra- liða sagt störfum sínum lausum. Sjúkraliðar eru með þriggja mánaða fræðingar. Komi uppsagnir þessara stétta til framkvæmda leggja hjúkr- unarfræðingar og sjúkraliðar niður störf 15. maí — 1. júní í sumar. Mál- hildur sagði, að sjúkraliðar í Reykja- vík og nágrenni fengju nú byrjunar- laun samkvæmt 6. flokki, en á lands- byggðinni væru sjúkraliðum greidd byrjunarlaun samkvæmt 8. launa- flokki. Hún sagði, að krafan væri að allir sjúkraliðar byrjuðu í 9. launa- flokki. Sjúkraliðafélagið er ekki samn- ingsaðili við ríkið eða stofnanir þar sem sjúkraliðar starfa, heldur fara Starfsmannafélag ríkisstofnana og Starfsmannafélag Reykjavíkur með samningagerð fyrir sjúkraliða. Málhildur var spurð hvers vegna sjúkraliðar gripu til þessara aðgerða þegar Kjaranefnd fjallaði um sér- kjarasamninga. Hún sagði, að sjúkraliðar hefðu ekki góða reynslu af dómnum og ætluðu sér að vera tilbúnir ef Kjaranefnd felldi úrskurð svipað og áður. Þungaskattur hækk- ar um allt að 83% í ár ÞUNGASKATTUR bifreiða hækkaði í janúar sl. eins og lög gera ráð fyrir. Hins vegar er hækkunin mjög mismunandi eftir þyngd bílanna. Þungaskattur bíla, sem eru allt að 12 tonnum að þyngd hækkaði um 33%, en hækkunin fer síðan stighækkandi þaðan í frá. Til dæmis er hækkunin á bíl, sem er 12 tonn á þyngd um 41%, á bíl, sem er 13 tonn um 47,6% og á bíl, sem er 14 tonn, er hækk- unin um 56%. Hækkunin á bíl- um, sem eru í kringum 23 tonn, en það er algeng stærð á flutn- ingabílum, er hins vegar um 83%. Um 33% hækkunarinnar eru beint vegna vísitöluhækkunar, en hækkanir umfram hana eru taldar nauðsynlegar vegna þess, að stærri bílarnir slíti vegunum mun meira en hinir. Lárus Ögmundsson í fjár- málaráðuneytinu, sagði i samtali við Mbl., að tekjur vegna þessara stóru bíla væru mun minni held- ur en kostnaðurinn vegna þeirra. Hækkunin nú væri gerð að til- lögu stjórnskipaðrar nefndar, sem hafði það verkefni m.a. að kanna hver kostnaður Vegagerð- arinnar væri vegna aksturs stórra bíla og fjáröflun Vega- sjóðs og fleira. Það var álit nefndarinnar, að jafnvel þessi hækkun nú nægði engan veginn til að koma jafnvægi á kostnað og tekjur vegna þessara stóru bíla. Þad er margt skrafaö við fiskadgerd. Myndin er tekin í Þorlákshöfn. I.jósm. Mbl. RAX. Óhófleg, órökræn skattheimta: Meginorsök „svartr- ar atvinnustarfsemi" - segja flutningsmenn þingsályktunartillögu „ALÞINGI ályktar að skipuð skuli 7 manna nefnd til þess að gera úttekt á „svartri at- vinnustarfsemi“, þ.e. atvinnu- starfsemi þar sem ekki eru greidd opinber gjöld, og koma með tillögur til úrbóta. Nefnd- ina skipi 4 einstaklingar til- nefndir af þingflokkum, tveir tilnefndir af Landssambandi iðnaðarmanna og einn til- nefndur af forsætisráðherra, sé hann formaður nefndarinn- ar. Nefndin skili tillögum fyrir árslok 1982.“ Þannig hljóðar tillaga til Þórunn Sveinsdóttir VE búin að landa 620 tonnum NKTABÁTURINN Þórunn Sveinsdóttir frá Vestmannaeyjum er nú lang- hæsti vertíðarbáturinn á landinu, en um mánaðamótin hafði Þórunn Sveinsdóttir landað 620 tonnum í Vestmannaeyjum frá því að vetrarvertíð hófsL í febrúarlok var heildarafliinn f Vestmannaeyjum orðinn 8224,8 tonn frá áramótum, en var 6238,6 tonn á sama tíma í fyrra. Afli netabáta í Eyjum var orð- aflahæsti báturinn er ófeigur 3. þingsályktunar, sem Vilmundur Gylfason, Karvel Pálmason og Benedikt Gröndal hafa flutt á Al- þingi. í greinargerð er vitnað til samþykktar á 39. Iðnþingi íslend- inga þar sem vikið er að „svartri atvinnustarfsemi", sem komizt hafi fram hjá skattalegum kvöð- um almenns atvinnurekstrar og snarbrengli samkeppnisgrundvöll allan. Stjórnvöld verði samhliða að gera sér grein fyrir því að „óhófleg, ósanngjörn og órökræn skattheimta á almenning og flestan atvinnurekstur þessa lands sé ein meginorsök þess, að svört atvinnustarfsemi þrífst í landinu”. inn 5165,5 tonn um mánaðamótin, afli trollbáta 1023 tonn, afli línu- og handfærabáta 189,1 tonn og afli togaranna var orðinn 2347,2 tonn. Eins og fyrr segir, þá er Þór- unn Sveinsdóttir langhæst Eyja- báta með 620 tonn, annar í röðinni er Suðurey með 358 tonn og þriðji með 357 tonn. Af trollbátum er Björg aflahæst með 146 tonn. Breki er aflahæstur togaranna þriggja með 685 tonn, en þess ber að geta að togararnir koma með fiskinn óslægðan að landi, en dagróðrarbátarnir ekki. Viðskiptaráduneytið ákvedur lágmarksverð: Grásleppuvertíðin að hefjast: Mikil verðlækkun á grásleppuhrognum Veiðar ekki tak- markaðar fyrst í stað VERÐ á grásleppuhrognum befur verið lækkað verulega frá því, sem var á síðasta ári eða um Ueplega 23% ef miðað er við dollara. Þá hefur einnig verið ákveðið að miða lágmarksverðið við danskar krónur og vesturþýzk mörk, en ekki doll- ara eins og áður. Viðskiptaráðuneytið hefur ákveðið, að lágmarksverð fyrir hverja tunnu af grásleppuhrogn- um skuli vera 1.950 danskar krón- ur eða 595 mörk fyrir þann hluta framleiðslu síðasta árs, sem enn hefur ekki verið seldur úr landi. Nákvæmar tölur um hversu mik- ið af hrognum er eftir í landinu liggja ekki fyrir, en gizkað hefur verið á rúmlega 5 þúsund tunnur af tæplega 20 þúsund tunna framleiðslu. Þetta verð samsvar- ar um 255 dollurum, en í fyrra- vetur var lágmarksverðið ákveðið 330 dollarar á tunnuna. Fyrir framleiðslu þessa árs ákvað viðskiptaráðuneytið, að lág- marksverðið skyldi vera 2.200 danskar krónur eða jafngildi annarrar myntar. Það jafngildir 285—288 dollurum. Björn Líndal, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, sagði í gær, að ástæður þessarar ákvörð- unar væru einkum þrjár. í fyrsta lagi hefði verið nauðsynlegt að mati ráðuneytisins að greiða fyrir sölu á óseldum birgðum því lífsafkoma margra framleiðenda væru undir því komin að þessi hrogn seldust. I öðru lagi hefði legið fyrir samþykkt stjórnar Samtaka grásleppuhrogna- framleiðenda, þar sem hún sam- þykkti þessa verðlagningu, en þetta verð hefði ekki verið ákveð- in nema sú ákvörðun hefði legið fyrir. í þriðja lagi hefðu kaupend- ur fallið frá verðlækkunarfyrir- vörum vegna framleiðslu ársins 1981. VERTÍÐ grásleppukarla norð- anlands byrjar í næstu viku eins og venja hefur verið síðustu ár. Enn er ekki Ijóst hvort veiðarn- ar verða takmarkaðar, en Morg- unblaðinu barst í ger eftirfar andi frétt frá sjávarútvegsráðu- neytinu: „Vegna erfiðleika á sölu saltaðra grásleppuhrogna á erlenda markaði er í athugun í ráðuneytinu hvort takmarka þurfi grásleppuveiðar á kom- andi vertíð. Þar sem enn ríkir óvissa í sölumálum og stuttur tími er til vertíðar, hefur ráðuneytið ákveðið að hefja vertíð á hefðbundinn hátt. Mun síðar, þegar ljóst verður hver þróun verður í sölumál- um, tekin afstaða til þess, hvort takmarka þurfi veiðar. Reynist nauðsynlegt að grípa til takmörkunar á veiðum, verður haft samráð við sjó- menn um hvernig að slíkri takmörkun skuli staðið. Þeir aðilar, sem hyggjast stunda grásleppuveiðar á komandi vertíð, skulu sækja um leyfi til sjávarútvegsráðu- neytisins. í umsókn skal koma fram nafn og heimilisfang, ásamt póstnúmeri umsækj- anda, ennfremur nafn og ein- kennisstafir báts, leyfisnúmer frá fyrra ári, veiðisvæði og hvert senda á leyfið. Athygli skal vakin á því, að þeir sem ekki skiluðu veiði- skýrslu eftir síðustu vertíð, mega búast við að fá ekki veiðileyfi í ár.“ * Utgefendur DV kaupa meirihluta í Videoson ÚTGEFENDUR Dagblaðsinn og Vísis, fýrirtækið Frjáls fjölmiðlun, befúr gert samning um kaup á meirihhita hluta- bréfa í fyrirtækinu Videoson. Að sögn Harðar Einarssonar eru ýmsir fýrirvar ar í þessum samningi, þannig að það yrði ekki endaniega Ijóst fýrr en um miðjan mánuðinn hvort af kaupunum yrði. Hörður sagði, að engin áform væru uppi um breytingar á rekstri Videoson og sennilega myndi fyrir- tækið starfa áfram í óbreyttri mynd. Aðspurður um kaupverð meirihluta hlutabréfa í Videoson sagði Hörður það vera trúnaðarmál milli kaup- enda og seljenda. Sjónvarpið sýnir beint frá Wembley NÚ HEFUR endanlega verið ákveðið að sýna beint úrslitaleik ensku deildabik- arkeppnínnar milli Tottenham og Liv- erpool, sem fram fer á Wembley-leik- vanginum í Lundúnum annan laugar- dag. Þetta verður i fyrsU skipti, sem sjónvarpið sýnir beint frá íþróttavið- burði erlendis. Sýning frá leiknum hefst khikkan 14.55 og hefur sjónvarpið afnot *f gervihnetti til klukkan 16.45. Enn er eklti ákveðið hvort Bjarni Felbtson lýsir leiknum beint frá Wembley eða hvort enskir þulir sjá um lýsinguna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.