Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 47

Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982 47 e Evrópukeppnin í knattspyrnu: Liverpool og Tottenham sigruðu FYRRI umferðin í itta liða úrslitum í Kvrópumótunum í knattspyrnu var leikin í gærkvöldi. Ensku liðin náðu öll mjög hagstæðum úrslitum í leikj- um sínum. Aston Villa gerði marka- laust jafntefli á útivelli gegn rússn- esku meisturunum. Liverpool sigraði CSKA 1—0 á beimavelli. Það var Whelan sem skoraði mark Liv- erpool, á 65. mfnútu leiksins. Tott- enham sigraði v-þýska liðið Ein- tracht Frankfurt 2—0. Miller og Hazard skoruðu mörk Tottenham. Belgísku liðin Anderlecht og Standard unnu sína leiki. Stand- ard sigraði FC Porto frá Portúgal 2—0. Mörk Standard skoruðu Englebert og Wendt á 33. og 68. mín. Geurts og Lozano skoruðu mörk Anderlecht. Pétur Pétursson lék ekki með liði Anderlecht. Sænska liðið IFK Gautaborg stóð sig vel gegn spánska liðinu Valencia og náði jafntefli á úti- velli, 2—2. Cornelius og Nilsson skorðu mörkin. Daninn Frank Arnesen skoraði bæði mörk Val- encia. Svissneska liðið Xamax stóð í Hamborg SV en leikur iiðanna fór fram í Hamborg. Leikurinn endaði 3—2. Mörk Hamborg skor- uðu Bastrup, Memering og Hees- en. Givens og Luethi skoruðu fyrir Xamax. Úrslit í Evrópukeppnunum f knattspyrnu í gærkvöldi urðu þessi: Evrópukeppni meistaraliða: ('raiova - Bayern Munchen 0:2 (0:2) Dinamo Kiev - Aston Villa 0K) (0K)) Liverpool - CSKA-Sofia l.-O (0K)) Anderl. - Red Star Belgr. 2:1 (1K)) Evrópukeppni bikarhafa: Tottenh. - Eintr. Frankf. 2K) (1K)) Legia Varsjá - Dyn. Tblisi 0:1 (0:1) Standard Liege - FC Porto 2K) (1K)) Leipzig - FC Barcelona UEFA-keppnin: Real Madrid - FC Kaisersl. 3:1 (2K)) Valencia - IFK Gautaborg 2:2 (2:2) Hamb. SV - Neauch. Xamax 3:2 (1:1) Dundee IJnited - FC Radnicki 2-0 Sex pólskir landsliðsmenn í handbolta setjast að í V-Þýzkalandi IXortmund, 3. marz. AP. SEX liðsmenn í pólska lands- liðinu í handknattleik, sem verið hafa á keppnisferðalagi í V-Þýzkalandi, hafa ákveðið að verða eftir í V-Þýzkalandi og freista þess að leika með v-þýzkum félögum. Ýmsir þekktustu handknattleiks- menn Pólverja eru í þessum hópi, þeirra á meðal Panas, Klempel og Szymczak, en þessir menn hafa leikið á ís- landi. Pólska handknatt- leikssambandið hefur sam- þykkt það fyrir sitt leyti að mennirnir leiki með þýzkum félögum. Bikarkeppni HSÍ: Tveir sigrar hjá Fram FRAM sigraði lið FH f meistora- flokki kvenna í handknattleik er lið- in mættust í bikarkeppni HSÍ. Fram sigraði 12—9, eftir hörkuspennandi leik. Lið FH, sem er núna efst í 1. deild, er því faliið út úr bikarkeppn- inni. Einn leikur fór fram í meistara- flokki karla í gærkvöldi í bikar- keppni HSÍ. Fram vann öruggan sigur á liði HK að Varmá í Mos- fellssveit með 28 mörkum gegn 23. Staðan í hálfleik var 12—10 fyrir Fram. Flest mörk Fram skoruðu þeir Jón Árni Rúnarsson og Hann- es Leifsson, 6 mörk hvor. Markhæstir í liði HK voru Gunnar Eiríksson, Ragnar Ólafs- son og Hörður Sigurðsson, allir með 5 mörk. — ÞR. íslandsmótið 2. deild: Stórt tap hjá Fylki • Breiðablik gersigraði slakt lið Fylkis í 2. deildarkeppninni í hand- knattleik í gærkvöldi með 29 mörk- um gegn 19. Breiðablik hafði yfir í háhleik 19—14. Leikur liðanna var frekar slakur. Flest mörk Breiða- bliks skoraði Björn Jónsson, 8. Ólaf- ur Björnsson skoraði 6. Hjá Fylki skoraði Gunnar Baldursson 6 og Andrés Magnússon 4. — ÞR. Bayern sigraði Bayern Miinchen var ekki í vand- ræðum með að sigra Craiova, 2—0, á útivelli í gærkvöldi í Evrópukeppni meistoraliða í knattspyrnu. Það var fyrirliði liðsins, Paul Breitner, sem skoraði fyrra markið strax á 7. mín- útu með þrumufleyg af 30 metra færi. Knötturinn hafnaði svo til f samskeytum marksins, óverjandi fyrir rúmenska markvörðinn. Markaskorarinn mikli, Rummen- igge, skoraði síðara markið á 20. mínútu fyrri hálfleiks með ekki ósvipuðu skoti af löngu færi. En Rummenigg spilar varla leik nema að gera mark, hvort heldur í lands- liði eða með Bayern. Ásgeir Sigurvinsson var á bekkn- um en fékk ekki tækifæri á að spreyto sig í leiknum. Lið Bayern var þannig skipað: Mueller, Weiner, Augenthaler, Beierlozer, Horsmann, Kraus, Dremmler, Breitner, Duern- berger, Hoeness, Rummenigge, og Guttler kom inná sem varamaður á 40. mínútu fyrir Weiner. Öruggt hjá UMFN gegn ÍS UMFN sigraði lið ÍS mjög örugglega í bikarkeppninni í körfuknattleik í gærkvöldi í Njarðvík. Leik liðanna lauk með að UMFN skoraði 83 stig gegn 65 stigum ÍS. í hálfleik hafði UMFN 10 stiga forystu, 41—31. Danny Shouse lék ekki með UMFN að þessu sinni en það kom ekki að sök. Valur Ingimundarson átti best- an leik með liðinu og skoraði 32 stig þar af 24 í fyrri hálfleiknum. Júlíus skoraði 19 stig og Sturla, sem átti góðan leik, 13 stig. Pat Bock bar af hjá ÍS, skoraði 31 stig, en Ingi Stef- ánsson kom næstur með 8 stig. — ÞR/emm. '■wzrvannmo MÁNUDAGSKVÖLD 8 MARS |k f FORSALA ADGÖNGUN m FALKANUM LAUGA' fj kvartett m _ i/—1'-~- */i—*■--------r N nussonar i nnu m DAGSKRÁ: Húsið opnað kl. 19.30 MATSEÐILL: Fordrykkur — Snekkju Special Grísabógur Cuesiniere Carré De Porc Cuesiniere Peru-ís Glace aux Poires TÍSKUSÝNING Modelsamtökin undir stjórn Frú Unnar Arngrímsdóttur sýna vor- og sumartískuna '82. BENIDORM FERÐAKYNNING Ný kvikmynd frá Hvítu ströndinni Costa Blanca Benidorm, en þar hafa fjölmargir Hafnfirðingar dvalið. Kynnir með myndinni er Jórunn Tómasdóttir. SKEMMTIÞÁTTUR Magnús ,,Prince Póló“ Ólafsson og Þorgeir ,,Skonrok(k)“ Astvaldsson flytja margslunginn cabarett með Hafnarfjarðar- og Breiðholtsskrítlum, svo og léttum söngatriðum. Alfarið nýtt skemmtiatriði! FERÐABINGÓ Halldór Arni stjórnar ferðabingói og vinningar eru auðvitað BENIDORM ferðavinningar! DANS Hljómsveitin METAL mun síðan skemmta gestum með danstónlist fram eftir nóttu. Kynnir kvöldsins; GISSUR KRISTJÁNSSON umboðsmaður Ferðamið- stöðvarinnar í Hafnarfirði. Miðasala i SNEKKJUNNI frá 15-19 miðviku- og fimmtudag. Nánari upplýsingar í sima 52502/51810. VERD AÐGÖNGUMIDA150 KR. B FERÐAMIÐSTÖDIIM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.