Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982 15 Siglingamálastjóri með tillögur að nýjum reglum — um losunar- og sjósetningar- búnað gúmmíbjörgunarbáta menningarmál og málefni lepp- ríkjanna í Austur-Evrópu. Þegar félagar í stjórnmálanefndinni eru dregnir í dilka, hefur jafnan leikið minnstur vafi á því, hvar setja skuli Chernenko, allir hafa verið sammála um, að hann sé „Brezhnevs-maður". Völd sín og áhrif hefur Chernenko fengið frá Brezhnev, en þeir kynntust fyrst fyrir um það bil 30 árum, þegar Chernenko starfaði undir stjórn Brezhnevs í Moldavíu. Kirilenko hefur líka starfað lengi með Brezhnev. Hann hefur komið sér vel fyrir í sovéska valdakerfinu. Kirilenko er einn af fjórum félög- um í stjórnmálanefnd flokksins, sém starfa á aðalskrifstofu mið- stjórnar flokksins, hann hefur um langt árabil fylgst með daglegu flokksstarfi og látið til sín taka við ráðningu mann í trúnaðar- stöður í flokknum, einkum í emb- aetti utan höfuðborgarinnar, Moskvu. Á áttunda áratugnum töldu margir líklegt, að Kirilenko tæki við af Brezhnev. Þess ber að gæta, að hann er þremur mánuðum eldri en Brezhnev. Þótt hann sé við betri heilsu en leiðtoginn, myndi hann aðeins setjast til bráðabirgða í stól hans, ef til þess kæmi. Stjarna Kirilenkos virðist hafa dalað síðustu misseri, hann er sjaldnar en áður í hirð hinna mestu tignarmanna í Kreml. Sé litið til skoðana þeirra Kiril- enkos og Chernenkos, kemur í ljós, að þeir eru á öndverðum meiði, að minnsta kosti á einu mikilvægu sviði: Hvernig á að bregðast við hinum geigvænlega efnahagsvanda, sem að Sovétríkj- unum steðjar? Kirilenko er verk- fræðimenntaður og hann hefur slegist í hóp þeirra, sem vilja leggja kapp á tæknivæðingu og aukna framleiðni til að sigrast á vandanum. Chernenko hefur á hinn bóginn lagt áherslu á nauð- syn þess, að haldið sé uppi aga meðal verkalýðsins og hann hvattur til dáða með hugmynda- fræðilegri innrætingu. Bandarískur jassleikari kennir á Akur- eyri og Rvík JASS-gítarleikarinn Paul Weeden kom hingað til lands um síðustu min- aðamót og dvelur nú á Akureyri þar sem hann kennir á námskeiði á veg- um Tónlistarskólans, Menntaskólans og Tónlistarfélagsins. Einnig leikur hann opinberlega á KEA. Á Akureyri verður Weeden til 8. mars en þá held- ur hann til Reykjavíkur þar sem hann verður með námskeið á vegum Tónskóla FÍH og leikur á skemmti- stöðum og í klúbbum. Weeden mun dvelja hér í hálfan mánuð, en hann hefur leikið inn á margar hljómplötur, segir í frétt frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Hann er nú búsettur í Osló og hef- ur á síðustu árum kennt á nám- skeiðum og haldið tónleika í Noregi og nágrannalöndum. Hann hefur hlotið heiðursviðurkenningu norsku menningarmiðstöðvarinn- ar, Oslóborgar og jasshátíðarinnar í Harstad. MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Sigl- ingamálstofnun ríkisins: „Siglingamálastjóri hefur sent samgönguráðherra tillögur að nýjum reglum um losunarbúnað og sjósetningarbúnað gúmmí- björgunarbáta fyrir öll íslensk þilfarsskip. Við samningu þessara reglna leitaði Siglingamálastofn- un ríkisins til Sigmundar Jó- hannssonar, Friðriks Ásmunds- sonar, skólastjóra og Jóns I. Sig- urðssonar, formanns Björgunarfé- lags Vestmannaeyja. Þessar tillögur að reglum gera ráð fyrir, að við fyrstu búnaðar- skoðun skips eftir 1. september 1982, verði hvert skip að vera með losunarbúnað til sjósetningar samkvæmt reglunum fyrir alla gúmmíbjörgunarbáta skipsins. Verði þessar tillögur að reglum staðfestar, þá myndu öll íslensk þilfarsskip verða með slíkum bún- aði nálægt 1. september 1983. Reglurnar gera ráð fyrir, að settur verði í öll þilfarsskip losun- arbúnaður, þar sem með einu handtaki sé hægt að losa gúmmí- björgunarbát úr sæti til sjósetn- ingar, annaðhvort með handafli eða með þrýstiorku eða á annan vélrænan hátt. Sé um einhvern þann vélrænan hreyfibúnað að ræða, sem gæti bilað eða brugðist, skal líka vera hægt að losa og sjósetja gúmmí- björgunarbátinn með handafli á hefðbundinn hátt, en losun hans skal ávallt vera hægt að gera með einu handtaki. Tillögum þessum að reglum fylgir viðauki með nánari skýring- um um, hvers krafist verður af losunar- og sjósetningarbúnaði, til að hann geti fengið viðurkenningu Siglingamálastofnunar ríkisins. Þessar reglur eru fyrst og fremst byggðar á hugmyndum Sigmunds Jóhannssonar í Vestmannaeyjum, en nú hefur verið settur slíkur búnaður við einn gúmmíbjörgun- arbát í hverju skipi í 31 fiskiskip í Vestmannaeyjum og fyrir tvo gúmmíbjörgunarbáta í tveim skipum, þ.e.a.s. alls í 33 fiskiskip 'af 54, sem nú eru skráð í Vest- mannaeyjum. Almennt er þó í reglunum gert ráð fyrir, að þesi og álíka búnaður muni þróast áfram. Gera má ráð fyrir, að sam- gönguráðherra, í samræmi við til- lögur siglingamálastjóra, sendi tillögur þessar að reglum, til um- sagnar hagsmunaaðila og þá fyrst og fremst til samtaka sjómanna og útgerðarmanna og til farm- skipaeigenda. Að því búnu er það samgöngu- ráðherra, sem tekur ákvörðun um setningu slikra reglna, og þá með þeim breytingum, sem umsagnirn- ir kunna að gefa tilefni til." ydi Nei, ekki beinlínis veröhrun, en hvaöa orö lýsir betur nýjasta veröinu á Skoda? frá 63.000 kr. Hann Halli svarar í símann eöa tekur á móti ykkur með allar upplýsingar á reiðum höndum og býður jafnvel upp á kaffibolla JÖFUR HR Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.