Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
11
Fjölgad í sveitar-
stjórn f Sandgerði
Prófkjör sjálfstæðismanna um helgina
Sandgerði, 3. mara.
HREPPSNEFND Miðneshrepps hefur ákveðið og fengið
samþykki sýslunefndar til að fjölga fulltrúum í sveitarstjórn
úr fímm í sjö og verða því í væntanlegum sveitarstjórnar
kosningum í vor í fyrsta sinn kosnir sjö fulltrúar í hrepps-
nefnd Miðneshrepps.
Bænadagur kvenna
er á morgun
KONUR í 150 þjóOlöndum koma saman til benar í smáum og stórum bópum
á morgun, 5. marz. Baenadagurinn byrjar við dagalínu í Kyrrahafi og fyrstu
kristnu hóparnir koma saman á Tongaeyjum, Fiji og Nýja Sjálandi. Aðilar að
hænadegi kvenna á fslandi eru fjölmargir og samkomur haldnar víða um
land þennan dag. f Reykjavík verður samkoma i Dómkirkjunni kl. 20.30. Þar
munu tala séra Miyako Þórðarson og Svava Bernharðsdéttir.
Undirbúningur undir framboð
til kosninganna er hafinn hér
fyrir nokkru. Meðal annars geng-
ust alþýðuflokksmenn og óháðir
borgarar, sem boðið hafa fram
H-lista undanfarin ár, fyrir skoð-
anakönnun um helgina 20.—21.
febrúar sl. Fjórir efstu menn úr
þeirri könnun urðu: Jóhann G.
Jónsson, Grétar Mar Jónsson, Jón
Norðfjörð og Sigurður Friðriksson
— en framboðslisti þeirra hefur
ekki verið birtur enn. Sjálfstæðis-
félag Miðneshrepps hefur ákveðið
að hafa prófkjör til uppstillingar á
framboðslista. Hyggst félagið
hafa prófkjörið um næstu helgi,
6.-7. mars. Verður það fram-
kvæmt með svipuðu sniðu og
nokkrar undanfarnar kosningar,
þannig að prófkjörslistar verða
bornir í hús til hugsanlegra stuðn-
ingsmanna nk. föstudag og sóttir
til þeirra aftur eftir kl. 17 á
sunnudag. Fyrir þá sem kunna að
vera stuðningsmenn en ekki hafa
fengið heimsenda prófkjörslista
verður opinn kjörstaður í Leik-
vallahúsinu frá kl. 13—17 nk.
sunnudag.
Átján eftirtaldir aðilar hafa
gefið kost á sér á prófkjörslista
Sjálfstæðisflokksins: Björgvin
Pálsson, Erlingur Jónsson, Guðjón
Þ. Ólafsson, Gunnar Sigtryggsson,
Heiðar Viggósson, Jón E. Clausen,
Jón F. Friðriksson, Jón H. Júlíus-
son, Rúnar Þórarinsson, Margrét
Pálsdóttir, Pálína J. Guðmunds-
dóttir, Reynir Sveinsson, Sigurður
Bjarnason, Sigurður Þ. Jóhanns-
son, Svanbjörg Eiríksdóttir, Sæ-
unn Sigurbjörnsdóttir, Þórarinn
Reynisson og Þorbjörg Tómas-
dóttir.
- Jón
Alþjóðlegur bænadagur kvenna
átti upphaf sitt í Ameríku. Um
miðja 19. öld hafði myndast þar
bænahringur, sem síðan hefur
orðið að alþjóðlegri hreyfingu.
Hreyfingin hefur aðalstöðvar sín-
ar í New York.
Aðilar að bænadeginum á ís-
landi eru: Aðventkirkjan, Elím-
söfnuðurinn, Fríkirkjan í Reykja-
vík, Hjálpræðisherinn, Hvíta-
sunnusöfnuðurinn, KFUK, Kaþ-
ólski söfnuðurinn, Kristniboðsfé-
lag kvenna og Þjóðkirkjan.
Á morgun safnast hópar saman
í bæn og lofgjörð sem‘flutt verður
á 1.000 mállýzkum, þar til sól sezt
við strendur Alaska. Segir í
fréttatilkynningu frá forráða-
mönnum bænadagsins á íslandi,
að á þessum degi vilji konur
minna á að Guð kallar alla til þess
að vera sinn lýður. Þær vilji biðja
um frið á jörð, um miskunn Guðs
vegna þeirrar margvíslegu neyðar,
sem hrjáir mannkyn allt. Þær
biðji, að kærleiksríkur máttur
Guðs hafi áhrif á líf einstaklinga
og þjóða.
„Ég lcet bankann óvaxta peningana mína."
Bankinn getur ávaxtað peninga þína
án nokkurs kostnaðar eða áhættu!
Þeir hœtta engu sem leggja peninga sína
inn á verðtryggðan bankareikning.
Peningar á verðtryggðum bankareikningi
eru lausir tvisvar á ári. Þœgileg viðskipti,
fullkomið öryggi, engin sölulaun. Á verð-
tryggðum bankareikningi íœrðu auk
vaxtanna fullar vísitölubœtur.
Inneign þín er meira að segja skattfrjáls.
Viðskiptabankarnir
Því segja nú sííellt fleiri: „Ég lœt bankann
ávaxta peningana mína."