Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 14
14 Moskvu — Óvenjulegt at- vik gerðist hér fyrir skömmu, sem varð mönn- um hvati til að leggja meiri stund en áður á vangaveltur um það, hver verði eftir maður Leonid Brezhnevs, leiðtoga Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, þegar hann hverfur frá störfum vegna heilsuhrests, sem ágerist. í fréttatíma sjónvarpsins, þar sem sérstök alúð er lögð við að velja myndir af flokksleiðtogum, sást Brezhnev hágrátandi við jarðarför hershöfðingja, sem ekki vakti mikla athygli í lifanda lífi. Myndin sýndi hinn 75 ára gamla flokksleiðtoga standa við kistu Konstantin S. Grushevois, hers- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982 •NeUr jjork Sttnt0 Þá hafði Brezhnev fullt vald á til- finningum sínum. Hins vegar hef- ur háttalag flokksleiðtogans uppi á grafhýsi Leníns og við múrvegg- inn á Kremlarkastala, þar sem Suslov var lagður til hinstu hvílu við hlið síns gamla meistara, Stal- íns, verið til umræðu manna á meðal í Moskvu. Stundum sýndist Brezhnev utangátta og ruglaður, hann vissi til dæmis ekki alltaf, hvenær hann átti að heilsa heið- ursverði hermannanna. Tvisvar sinnum yfirgaf hann félaga sína í stjórnmálanefnd flokksins, hvarf úr nepjulegri röð þeirra og fór á bak við grafhýsið til að setjast og fá sér heitt að drekka. Atvik eins og þessi skipta ef til vill litlu. Brezhnev hefur í nokkur ár átt við vanheilsu að stríða, en heldur þó áfram að gegna opin- berum skyldum sínum. Engan SOIIDA RIR ÍN/IRMl IHill V aldabaráttan í Kreml Konstantin Chernenko var formad- ur sendinefndar sovéskra kommún- ista á þing franskra kommúnista, sem haldið var fvrir skömmu. Hann er hér til hægri á myndinni við hlið Georges Marchais, formanns franska Kommúnistaflokksins. eftir John F. Burns höfðingja og félaga í miðstjórn Kommúnistaflokksins, sem Brezhnev þekkti frá því að þeir störfuðu saman í Úkraínu á fjórða áratugnum. Frá kistunni gekk Brezhnev til svartklæddrar konu, greinilega ekkjunnar, og tárin streymdu niður kinnar hans. Aldrei fyrr hefur leiðtoginn verið sýndur sovéskum almúga með þessum hætti. Ekki er nema rúmur mánuður síðan Brezhnev var við aðra opinbera jarðarför, þegar Mikail Suslov, helsti hugmyndafræðing- ur flokksins, var til grafar borinn. þarf að undra, þótt hann þreytist eða missi stjórn á tilfinningum sínum við langdregnar athafnir. En leiðtogaskipti geta ekki ver- ið langt undan. Við dauða Suslovs, sem líklega var annar valdamesti maður hins lokaða stjórnkerfis, byrjuðu menn enn einu sinni að velta þessu máli fyrir sér. Fráfall Suslovs hefur tvímælalaust opnað einhverjar gáttir, sem valda- streitumenn munu sækjast eftir að fylla. 1964 átti hugmyndafræð- ingurinn mestan þátt í því að koma Krútsjoff frá völdum og setja Brezhnev á æðsta stall. Eftir að hafa verið 30 ár í lykilstöðu innan flokksins, er ótrúlegt, að Suslov hafi ekki getað deilt og drottnað við úthlutun á hinum æðstu embættum. Það er varasamt að geta sér til um líklega eftirmenn. Sovéskir ráðamenn gefa þó á stundum ótvíræðar vísbendingar. Til dæm- is skín stjarna Konstantin U. Chernenko, 70 ára skjólstæðings Brezhnevs, nú skærar en áður. Chernenko sýnist vera harðlínu- maður í innanlandsmálum en kann að vera dálítið sveigjanlegri í utanríkismálum. Helsta sérkenni stjórnmála- nefndarinnar undir forsæti Brezhnevs er, hve allir félagarnir í henni eru orðnir aldraðir. Við dauða Suslovs féll meðalaldurinn rétt niður fyrir sjötugt. Líklegast er, að einhver af gömlu mönnun- um í stjórnmálanefndinni verði eftirmaður Brezhnevs til bráða- birgða, þar til elli kerling hrifsar fleiri af öldungunum til sín og í þeirra stað koma þeir, sem næst standa í flokknum og ríkisstjórn- inni, en þeir eru flestir á sextugs aldri. í leit að bráðabirgða-leiðtoga hafa menn einkum staðnæmst við tvo félaga í stjórnmálanefndinni, sem báðir hafa starfað lengi með Brezhnev. Þeir eru Andrei P. Kir- ilenko og Chernenko. Svo virðist sem um nokkurt árabil hafi Kiril- enko staðið betur að vígi, en Brezhnev hampar Chernenko nú meira en áður. Engum sovéskum leiðtoga hefur tekist að færa völd sín í hendur þeim manni, sem hann kýs sjálfur. Staða Chern- enkos hefur þó styrkst síðustu vikur. Takist Chernenko að ná undir sig völdum Suslovs, er hæpið að nokkur geti staðist honum snún- ing. Suslov hlutaðist til um alla málaflokka, efnahagsmál, hermál, Þrjú ný dagvistarheimili Félag.smálastofnun Reykjavíkur borgar kynnti nýlega fréttamönnum þrjú ný dagvistunarheimili sem tek- in hafa verið í notkun fyrir skömmu. Um er að ræða skóladagheimili við Suðurhóla, færanlega leikskóladeild við Hólaborg og Ægisborg við Ægi- síðu. Færanlega leikskóladeildin er einingahús frá llúsasmiðjunni hf. en hin heimilin eru byggð eftir teikn- ingum sem unnar voru fyrir mennta- málaráðuneytið af arkitektunum Guðmundi Kr. Guðmundssyni og Olafi Sigurðssyni. Skóladagheimilid við Sudurhóla er 134 fm að stærð og er þar ein skóladagheimilisdeild, eða 20 skóla- börn. Verktakar voru Burstabær hf. og síðar Sveinbjörn Sigurðsson byggingameistari. Verkið hófst í ársbyrjun 1981 og áætlaður bygg- ingakostnaður er kr. 1,5 milljónir. Forstöðumaður skóladagheimilis- ins er Halldóra Björnsdóttir fóstra. Færanlega leikskóla- deildin við Hólaborg var tekin í notkun í desember sl. Þetta er timburhús, reist á stein- steyptum súlum og er það færanlegt með litlum fyrirvara, ef breyting verður á barnafjölda í viðkomandi hverfi og vöntun á leikskóla annars staðar. A deildinni verða 18 börn fyrir hádegi, en 20 eftir hádegi. Húsið er 90,5 fm, tvær leikstofur, salerni og lítið herbergi fyrir starfs- fólk. Börnin fá útiaðstöðu í garði Hólaborgar. Verktaki var Húsasmiðjan hf. og hófst verkið í ágúst sl. Áætlaður byggingarkostnaður er 650 þús. kr. Forstöðumaður Hólaborgar er Ragnheiður Halldórsdóttir fóstra, en deildin verður hluti af því heim- ili. Leikskólinn og dagheimilið Ægisborg er 428 fm að stærð. Þar er ein aldursblönduð dagheimilisdeild fyrir 17 börn, 1—6 ára, sem geta dvalið þar allt að níu stundir dag- lega. A tveimur tvískiptum leik- skóladeildum verða samtals 72 börn á aldrinum 2—6 ára og geta þau dvalið allt að 5 stundir daglega, 34 börn f.h. og 38 e.h. Verktaki var Burstabær hf. og hófust framkvæmdir í byrjun árs 1981. Kostnaður er áætlaður 4,7 milljónir kr. Forstöðumaður er Sesselja Björnsdóttir fóstra. Með þessum heimilum bætast við 37 pláss á dagheimilum og 110 pláss á leikskólum. Verður þá pláss fyrir 9% börn á dagheimilum í Reykjavík og 2055 á leikskólum, eða samtals 3051. Það er 39% barna yngri en 6 ára í borginni. Formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar er Gerður Stein- þórsdóttir, kennari, og formaður stjórnar dagvistarheimila Reykja- víkur er Guðrún Helgadóttir, al- þingismaður. Fréttamönnum og forráðamönnum borgarinnar var boðið upp á kaffi og krásir í Ægisborg og var þar setið á lágum smáum stóium við lág borð eins og tíðkast á þeim bæ. Þótti mönnum hollt að kynnast því á ný hvernig er að passa ekki við húsgögnin. Þau voru svolítið alvarleg yfir gestum sínum frá fjölmiðlunum á dögun um, en hreinlætið var í öndvegi. (i.jósm. K(i Færanlega leikskóladeildin við Hólaborg. (Ljósm. Krúján (irn Kltunon.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.