Morgunblaðið - 04.03.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
Svipmyndir
frá 30 ára
afmæli SLF
Þessar svipmyndir voru teknar er viöbygging Endur-
hæfingarstöðvarinnar að Háaleitisbraut var formlega
tekin í notkun í fyrradag. Hið nýja húsnæði er rúmlega
þúsund fermetrar að stærð, eða meira en helmingi
stærra en það sem fyrir var. Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, var meðal gesta og afhjúpaði m.a.
listaverk eftir Örn Þorsteinsson.
Boðið var upp á kaffi og kökur og þær ekki af minni gerðinni!
I’essi unga stúlka tók i móti Vigdísi er hún kom að hinu nýja húsnæði Endurhæfingarstöðvarinnar og færði
henni blómvönd.
Og að lokum afhjúpaði forsetinn veggmynd eftir Örn Þorsteinsson sem í héðan frá mun gleðja þá sem
heimsækja Endurhæfingarstöðina.
Þessa mynd tók fréttaritari Mbl. Bæring ('ecilsson á Grundarfirði af starfsfólki kaupfélagsins á Grundarfirði, en 20.
síðasta mánaðar hélt það upp á 100 ára afmæli kaupfélaganna í landinu og 80 ára afmæli Sambands íslenskra
samvinnufélaga.
Foreldra- og kennarafélag Árbæjarskóla:
Harmar tómlæti
borgaryfirvalda
„ALMENNUR fundur íbúa Árbæjar
og Seláss, haldinn af Foreldra- og
kennarafélagi Arbæjarskóla í félags-
miðstöðinni Árseli 17. febr. 1982, ha-
rmar það tómlæti, sem borgaryfirv-
öld hafa sýnt gagnvart endurteknum
og eindregnum óskum um lokun
Vatnsendavegar við Rofabæ.
Svo hefst ályktun sem Foreidra-
og kennarafélag Árbæjarskóla
gerði á fundi sínum í febr. sl. Um
200 manns sátu fundinn þar sem
fjallað var um umferð við Árbæj-
arskóla og starfsemi hinnar nýju
félagsmiðstöðvar, Ársels. Ýmis fé-
lög í hverfinu hafa lengi bent á
slysahættu við Vatnsendaveg og
óskað eftir því að veginum verði
lokað við Rofabæ.
Síðar í álytkuninni segir að
fundurinn veki athygli á því að
slysahætta er vaxandi við skólann
með vaxandi umferð, og meiri en
opinberar skýrslur gefa til kynna.
Skorar fundurinn á Borgarráð og
embættismenn borgarinnar og
nefndir sem un þetta fjalla að
endurmeta afstöðu sína.