Morgunblaðið - 04.03.1982, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
Birkir Skarphéðinsson var
endurkjörinn formaður
Kaupmannafélags Akureyrar
AÐALFUNDUR Kaupmannafélags Akureyrar var haldinn að Hótel KEA
fyrir skömmu og var Birkir Skarphéóinsson, endurkjörinn formaður félags-
ins. Aðrir í stjórn félagsins voru kjornir Matthías Þorbergsson, varaformað-
ur, Guðmundur Sigurðsson, ritari, Pálmi Stefánsson, gjaldkeri og meðstjórn-
endur þeir Aðalsteinn Jósepsson og Tryggvi Pálsson. Varamenn voru kjörnir
þeir Stefán Jónsson og Bjarni Bjarnason.
Gestir fundarins voru þeir
Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtaka íslands,
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri samtakanna, og Jón
I. Bjarnason, ritstjóri Verzlunar-
tíðinda. Á fundinum flutti Gunnar
Snorrason ávarp og bar fundar-
mönnum kveðju frá samtökunum.
Ennfremur flutti Magnús E.
Finnsson ávarp.
Birkir Skarphéðinsson, formað-
ur félagsins, flutti skýrslu stjórn-
ar og fjallaði um félagsstarfið á
síðasta ári. Þar kom m.a. fram, að
fimm nýir félagar gengu í félagið
á s.l. ári og eru félagsmenn nú 53.
Félagið á nú skrifstofuhúsnæði í
smíðum, sem verður fullbúið og
tekið í notkun á árinu.
Á fundinum voru samþykktar
tvær ályktanir, annars vegar um
sölustarfsemi í einkahúsum og
hins vegar um sérskatta á verzl-
unarhúsnæði. Fyrri ályktunin er
svohljóðandi: „Aðalfundur Kaup-
mannafélags Akureyrar 13.febrú-
ar 1982, lýsir furðu sinni á því, að
enn skuli viðgangast sölustarf-
semi í einkahúsum með alls kyns
vörur, þrátt fyrir að slíkt sé bann-
að með lögum. Skorar fundurinn á
bæjarfógetann á Akureyri og
sýslumanninn í Eyjafjarðarsýslu
að taka fyrir allt slíkt nú þegar og
ailtaf þegar til slikrar starfsemi
fréttist. Vísar fundurinn til álykt-
unar er gerð var á síðasta aðal-
fundi um þetta efni.“
Seinni ályktunin varðandi
sérskatta á verzlunarhúsnæði
hljóðar á þessa leið: „Aðalfundur
Kaupmannafélags Akureyrar
haldinn 13.febrúar 1982 lýsir yfir
undrun og vanþóknun á þeim
vinnubrögðum stjórnvalda, að enn
skuli vera lagður sérskattur á
verzlunar- og skrifstofuhúsnæði.
Telur fundurinn, að mælirinn sé
þegar orðinn fullur hvað varðar
álögur á smásöluverzlunina og
forðast beri að leggja meiri byrðar
á þessa þýðingarmiklu atvinnu-
grein. Sé haldið áfram á þessari
óheillavænlegu braut, verður ekki
annað séð, en að verzlun dragist
Saman og uppsagnir starfsfólks
verði óhjákvæmilegar. Er þó ekki
bætandi á það ástand, sem fyrir er
í þjóðfélaginu. Einnig skorar
fundurinn á stjórnvöld, að nú þeg-
ar verið afnumið það úrelta álagn-
ingarkerfi, sem er að tröllríða
allri verzlun í landinu. Bendir
fundurinn á þá staðreynd, að smá-
söluverzlunin verður ekki rekin á
eðlilegan og raunhæfan hátt, með-
an hún fær ekki að selja vörur á
því verði, sem þarf til að standa
undir rekstrarkostnaði. Það virð-
ist sem stjórnvöld geri sér ekki
grein fyrir því, að það er ekki talið
viturlegt að blóðmjólka kúna, þá
gefur hún enga afurð.“
Páll J. Briem
Búnaðarbankinn:
Moritz W. Sigurðsson
Ú tibúss tjóraskipti
í Mosfellssveitinni
HINN 15. marz nk. lætur Páll J. Briem, útibússtjóri Búnaðarbankans í
Mosfellssveit, af störfum fyrir aldurs sakir, en hann verður 70 ára hinn 6.
aprfl nk. Páll á að baki rúmlega 40 ára starf í Búnaðarbankanum eða allt frá
I. maí 1939, er hann gerðist starfsmaður í víxladeild bankans. Þar vann hann
í rúm 20 ár eða til ársins 1900, er hann varð deildarstjóri í Stofnlánadeild
landbúnaðarins. Við stofnun útibús bankans í Mosfellssveit var Páll ráðinn
útibússtjóri og hefur gegnt því starfi síðan.
Við starfi útibússtjóra í Mos-
fellssveit tekur Moritz W. Sigurðs-
son, núverandi útibússtjóri við
Háaleitisútibú í Reykjavík. Moritz
er fæddur 9. okt. 1939 og hefur
verið starfsmaður Búnaðarbank-
ans síðan í ársbyrjun 1959, fyrst í
víxladeild aðalbankans, en síðan
útibússtjóri samfleytt frá stofnun
Háaleitisútibús árið 1966.
(FrétutílkrnnÍBg.)
Gefinn kostur á Ieirbökstrum
Sjúkranuddstofa Hilke Hubert í Reykjavík hefur að und-
anförnu gefið fólki kost á leirbakstri. Leirbaksturinn nefnist
Fangó og er það blanda af leir og paraffnvaxi. í leirnum er
kísill, ál, magnesíum og járn auk snefilefna.
í fréttatilkynningu frá Hilke
Hubert segir, að í mörg ár hafi
Fangó-meðferð verið viðhöfð í
Evrópu með góðum árangri. Sér-
staklega hafi þessi meðferð
reynst vel við gigtarsjúkdómum,
þreytuverkjum í liðamótum,
vöðvum, taugum, sinum og hvers
konar „fíbrósum" bandvefum
í fréttatilkynningunni segir,
að fólki sé ráðlagt að hafa sam-
ráð við heimilislækni áður en
Fangó-meðferð sé reynd.
Salur I var þéttsetinn gestum á frumsýningu siðustu myndar Peier Sellers, Being There.
„Með hjálp góðra,
skilningsríkra og
harðduglegra manna“
fyrir 526 manns, númer 2 fyrir
237, númer 3 fyrir 139, númer 4
fyrir 99 og númer 5 og 6 fyrir 17
manns hvor.
í dag eru kvikmyndahús byggð
með svona fyrirkomulagi og
hafa allt upp í 20 sali, það að
geta fært myndina til á milli
sala er nauðsynlegt til að ná
betri sætanýtingu.
í húsinu eru þau fullkomnustu
tæki sem völ er á í dag, sýn-
ingarvélar eru frá Cinemeccan-
ica í Milano, sýningarplattar frá
Christie í Bandaríkjunum,
stereo-tæki frá Eprad í Banda-
ríkjunum, hátalarar frá Electr-
icvoice, Bandaríkjunum og stól-
ar frá Irwin, einnig frá Banda-
ríkjunum. Sem sagt, hér inni er
allt splunkunýtt.
Einnig vil ég taka það fram, að
efni það sem er hér á veggjum
sýningarsalanna er frá Sound-
fold í Bandaríkjunum, hljóð-
dempandi og brunavarið efni,
sem hefur verið látið í 16.000
Bíóhöllin í Mjóddinni var opnuð
formlega í fyrradag, eins og sagt
hefur verið frá í Morgunblaðinu,
en við opnunarathöfnina flutti
Árni Samúelsson, forstjóri Bíóhall-
arinnar, ávarp þar sem hann rakti
sögu bygginarinnar sl. 8 mánuði.
Þá tóku einnig til máls Samúel
Torfason, faðir Árna, og óskaði
hann syni sínum og tengdadóttur
til hamingju með árangurinn og
flutti þeim heillabrag sem hann
hafði ort Þá flutti Vignir Bene-
diktsson trésmíðameistari og yfir
smiður byggingarinnar ávarp þar
sem hann þakkaði mörg snör og
góð handtök og afhenti hann Árna
síðan skreytingu úr járni, sýn-
ingarspólu með lykilhálsi á og upp-
hafsstöfum Árna. Þá tóku einnig
til máls Ragnar Bjarnason, söngv-
ari, og Gunnar Árnason, formaður
Félags sýningarmanna, og hrópuð
var hyllingarkveðja til eigenda
hins glæsilega kvikmyndahúss
sem er það stærsta og fullkomn-
asta á ísíandi. Hér fer á eftir ávarp
Árna Samúlessonar við opnun Bíó-
hallarinnar:
„Góðir gestir.
Ég vil fyrir hönd konu minnar
og mín bjóða ykkur hjartanlega
velkomin hér við opnun Bíóhall-
arinnar.
Saga þessa húss er all sérstök.
Það hefur aðeins tekið liðlega 8
mánuði að fullgera það, fyrst
hinn stórglæsilega skemmtistað
Broadway hér niðri, sem opnað-
ur var 26. nóvember, og svo núna
þetta kvikmyndahús sem er
stærsta og fullkomnasta kvik-
myndahúsið á íslandi. Sagt er að
þetta sé íslandsmet í bygg-
ingarhraða.
En svona nokkuð gerist ekki
nema með hjálp góðra, skiln-
ingsríkra og harðduglegra
manna, og hefur verið valinn
maður í hverju starfi. Hvað
kvikmyndahúsið varðar, þá eru
hér 6 sýningarsalir, númer 1 er
Árni Samúelsson og Guðný Ásberg Björnsdóttir, eigendur Bíóhallar-
innar, með gjöfina frá trésmíðameistara hússins.
I.júnnjndir Mbl. Kristján Einarason.
kvikmyndahús víðs vegar í heim-
inum, og sannar það ágæti þess.
Gólfdúkurinn sem við stönd-
um hér á, er all sérstæður, en
hann er frá Norament í Þýska-
landi, fluttur inn af J. Þorláks-
son og Norðmann.
Ég vil þakka öllum þeim
mönnum sem hér hafa lagt hönd
á plóginn til að hrinda þessu
verki í framkvæmd. Sérstaklega
vil ég færa þeim manni sem hef-
ur verið mín hægri hönd hér og
hefur um leið séð um að láta upp
allar sýningarvélar og önnur
tæki, en hann er Sigurjón Jó-
hannsson, og mun hann verða
sýningarstjóri hér, með þá Lárus
Valberg og Þröst Árnason sér
við hlið.
Einnig vil ég þakka þeim
ARKO-mönnum, Jóni Róbert,
Jóni Kaldal og Ásmundi fyrir
frábæra hönnun á þessu húsi.
Yfirmanneskjur í miðasölu
verða Ólöf Ragnarsdóttir, Erna
Stefánsdóttir og Ragnheiður
Sigurðardóttir. Yfirmanneskjur
í sælgætissölum verða Katrín
Eiðsdóttir, Bergþóra Þorsteins-
dóttir og Sigurlaug Guðmunds-
dóttir. Yfirdyravörður og hús-
vörður verður Svavar Guð-
mundsson, og vil ég færa honum
sérstakar þakkir fyrir hans
framlag við undirbúninginn.
Við hefjum núna sýningar á 6
myndum samtímis á hverjum
degi, en þegar við höfum tekið
tvo síðustu salina í notkun, get-
um við sýnt hér 10 myndir á dag.
Ég vil að lokum þakka aftur
öllum þeim sem stuðlað hafa að
því að koma húsi þessu upp,
ólafi Laufdal fyrir samstarfið
við uppbygginguna, borgarráði
fyrir úthlutunina á lóðinni og
öðrum góðum mönnum sem
hjálpað hafa til að gera þetta
mögulegt.
Góða skemmtun."
í rúmgóðu anddyri Bíóhallarinnar biðu frumsýningargestir með óþreyju
eftir frumsýningum í fjórum sölum samtfmis.