Morgunblaðið - 04.03.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
ntCYZJA
r» «=>■"• *'tla
*• i . ö A
Vi' A -_T:--- — _ ^ki- w-.* '-4 ____
-- 1 FcW1** ** ___—- —
___-—~; -r: Ajr. f-°P°*7 1 _________—
20.00.1'-----------------------
i ------------ . Gder»*t:* >m,______________
|i»r» 1 urod2^J* eicKQrorvor,Uír,_ SlOC--
»\ i r ^)*0* Pr#C* , pjotcn1 1— 1
^wód ‘r' ^ «_u _ -------- P<*«H
GdonoH--------- w M --------------------------->-H
. -------. , „W*-* -Ol—
■ --------------------------------------------------
------------------ ^—— "
. __---------------' 1?. i2A«S>Jl • kM0"“ '":P''C“r'''
" _ »> . (*"* ' 4l> J - »C
« . tU1, >J" •
„ _ . t*CH
- yt \ 11 ^ ____________
, 0«rw" ob - ^ -------------------_ ....
' ■ *'**”"'=* ., vcví MO
, .<■ - ^041" 0„c -----r —
ytil XlO^tC -
.. «»»a"yl
pi«CS4« 0
12.11.,
^5
Handtökutilskipun á hendur
Lech Walesa leiðtoga óháðu verka-
lýðshreyfingarinnar í Póllandi,
Samstöóu, hefur verið smyglað frá
Póllandi, en þar má sjá að tilskip-
unin var gefin út daginn áður en
berlög gengu í gildi í Póllandi, eða
12. desember. Fullyrt er að Walesa
hafi ekki sjálfur séð tilskipunina
fyrr en 26. janúar, hálfum öðrum
mánuði eftir að hann var settur á
bak við lás og slá.
I tilskipuninni segir að Walesa
sé tekinn fastur fyrir starfsemi
er ögri öryggi þjóðarinnar, stefni
þjóðfélagsskipulaginu í voða og
boði stjórnieysi heim.
Afganistan:
Skoðanakannanir í Bretlandi:
Tilskipun um töku
Walesa smyglað út
Handtökutilskipunin er byggð
á heimild í lögum frá 12.desem-
ber 1981 um varðveizlu þjóðarör-
yggis. Hér mun vera um að ræða
herlögin. Lýkur handtökutilskip-
uninni á því að Walesa skuli
„geymdur í einangrun“. Það er
afbrotadeild lögreglunnar í
Gdansk sem gaf út tilskipunina,
en héraðsstjórinn í Gdansk und-
irritar hana.
í dálki fyrir starf og vinnustað
er sagt, að Walesa sé rafvirki í
skipasmíðastöð í Gdansk, en
hvergi minnst á stöðu hans hjá
Samstöðu. Reyndar er hvergi
minnst á Samstöðu í tilskipun-
inni.
Fylgishrun kosningabanda-
lags frjálslyndra og krata
London, 3. mare. AP.
I SKOÐANAKÖNNUN, sem gerð
var á fylgi bresku stjórnmálaflokk-
anna dagana 18.—22. febrúar kom í
Ijós að kosningabandalag sósíal-
demókrata og frjálslyndra hefur enn
1 naumt forskot á Verkamanna- og
íhaldsflokkinn, en hefur samt tapað
nokkru fylgi. Urtakið náði til 1.895
manns. Hlaut kosningabandalagið
34%, íhaldsflokkurinn, sem nú situr
við stjórn, 33% og Verkamanna-
flokkurinn, sem reyndar er klofínn í
stjórnarandstöðu, 30%.
21 hengd-
ur í íran
Beirút, 3 m»r/_ AP.
TEHERAN-útvarpið sagði frá þv{ í
morgun, að 21 maður hefði verið
hengdur þar eftir að dómar höfðu verið
uppkveðnir og mennirnir fundnir sekir
um eiturlyfjasmygl og sölu. í tilkynn-
ingu útvarpsins var gefíð í skyn, að
mcnrtirnir hefðu verið í sambandi við
erlenda glspamannahringi og hefðu
auk eiturlyfjamálsins flestir átt að baki
sakamannaferil.
Fimm hundruð manns hafa verið
lífíátnir í íran síðan Khomeini tók
við, sakaöir um að vera viðriðnir eit-
urlyfjasmygl, þar í hópi nokkrar
konur. Á mánudag voru fimm menn
teknir af lífi í íran og var þeim gefið
að sök að hafa haft á prjónunum
samsæri gegn stjórninni og njósnir í
þágu íraks og ótilgreindra vest-
rænna landa.
Opinberar tölur íransstjórnar um
fjölda þeirra sem hafa verið teknir
af lífi þar í landi síðustu tvö ár eru
alls 1.681. Fréttaskýrendur benda á,
að þeir sem hafi verið líflátnir síð-
ustu vikur og mánuði hafi yfirleitt
verið sakaðir um eiturlyfjasölu eða
aðra slíka glæpi og væri nú forðast
að tala opinberlega um að viðkom-
andi væru andsnúnir stjórnvöldum í
landinu.
Opinská lýsing sovésks
dagblaðs á ástandinu
ALMENNINGUR í Sovétríkjunum
fékk óvænta mynd af ástandinu í
Afghanistan er dagblað hersins,
Rauða stjarnan, birti fyrir skemmstu
fregnir þaðan. Þar sagði, að sam-
kvæmt upplýsingum varnarmálaráðu-
neytisins hefðu 2.223 andstæðingar
stjórnarinnar verið drepnir í janúar
mánuði einum. Að auki hefðu 1.117
verið handteknir og 2.000 vopn verið
gerð upptæk.
Þeir eru baráttuglaðir og fer blaðið
lofsamlegum orðum um hetjulund
þeirra. Er haft eftir einum her-
mannanna, að þeir séu ekki þarna
vegna þess að þeir hafi ekki nægar
áhyggjur heima fyrir, heldur vegna
þess að þeir séu synir októberbylt-
ingarinnar, Leníns og flokksins.
Fréttamaður blaðsins gerir sér
fulla grein fyrir, að Vesturlandabú-
ar munu ekki kyngja þessari túlkun
hans ástandinu í landinu. Því bætir
hann við í lok greinar sinnar skýr-
ingu á veru sovéskra hermanna í
Afghanistan: „Koma okkar til ná-
granna okkar, eftir neyðaróp hans,
er ekki árás né íhlutun eins og illa
innrættir rógberar hafa reynt að
sanna. Hlutverk sovéska hersins er
einungis að hjálpa Afghönum til að
hrinda utanaðkomandi ógnunum."
í hliðstæðri könnun, sem gerð
var mánuði áður, hlaut bandalagið
40% fylgi, Verkamannaflokkurinn
30% og Ihaldsflokkurinn 29%. í
annarri könnun á vegum sömu að-
ila kom í ljós að fylgi kosninga-
bandalagsins hafði minnkað um
5% í Skotlandi á undanförnum
þrem ur mánuðum, úr 34 í 29%.
Alls studdu 39% skoskra kjósenda
Verkamannaflokkinn á móti 36% í
síðustu könnun, sem gerð var í
nóvember. Fylgi íhaldsflokksins
minnkaði um eitt prósent, úr 18 í
17. Hins vegar jók skoski þjóðern-
isflokkurinn fylgi sitt um eitt
prósent.
Skoðanakannanir þessar sýna
umtalsvert fylgishrun kosninga-
bandalagsins, sem stofnað var
fyrir ári. Við stofnun þess ríkti
mikil bjartsýni á að þar væri loks-
ins komið nýtt leiðandi afl í bresk-
um stjórnmálum, sem ekki hefði
verið fyrir hendi undanfarna
hálfa öld.
Handtökuskipun á
Nancy Kissinger
Newark, New Jereey, 3. marz. AP.
HANDTÖKUHEIMILD hefur verið
gefín út á hendur Nancy Kissinger,
ciginkonu Henry Kissinger, fyrrv.
utanríkisráðberra Bandaríkjanna,
vegna þess að hún lét hjá l(ða að
koma fyrir rétt til að svara til saka
vegna ákæru um að hún hafi beitt
ofbeldi konu nokkra að nafni Ellen
L Kaplan á Newark-flugvellinum
þann 7. febrúar sl.
Málavextir eru þeir að sögn AP
að Ellen Kaplan og kunningjar
hennar voru á flugvellinum að
dreifa ritum um kjarnorkumál og
ráku þá augun í Kissinger og eig-
inkonu hans, en þau hugðust taka
flugvél til Boston þar sem hann
átti að gangast undir aðgerð. Þeg-
ar þau sáu Kissinger á flugvellin-
um þustu þau að honum og spurðu
hann um efni bréfs sem hafði birzt
í dagblaði þar sem Kissinger var
borinn þeim sökum, að hann hefði
átt þátt í að stríðið í Víetnam dróst
á langinn á sinum tíma. Kissinger
tók þurrlega undir og þegar Ellen
og félagarnir eltu þau síðan eftir
flugstöðvarganginum og lögðu
fyrir þau „nokkrar persónulegar
spurningar“ brást Nancy ókvæða
við, greip Ellen Kaplan hálstaki og
hugðist snúa hana niður hið bráð-
asta. Komu þá aðilar að og skildu
konurnar en Ellen Kaplan kærði
síðan athæfi Nancy, en hún hefur í
engu sinnt kvaðningum um að
mæta fyrir dómi, eins og fyrr seg-
Diplómat drepinn
Wawhinplon, 3. marz. AP.
UNGUR sendiráðsstarfsmaður Haiti í Washington fannst í morgun
stunginn til bana skammt frá íbúð sinni í norðvesturhluta Washington-
borgar. Talsmaður FBI sem greindi fréttamönnum frá þessu, sagði að
ástæða fyrir morðinu væri ekki ljós en málið væri í rannsókn.
I fréttinni, sem þykir óvenju
mannleg, ef mið er tekið af skrifum
sovéskra blaða, er sagt frá því að
lífið hjá rússnesku hermönnunum
sé enginn dans á rósum í fjallahér-
uðum Afghanistan. Veran þar sé
einmanaleg, kuldinn mikill og í
ofanálag eru þeir undir stöðugri
árás uppreisnarmanna, sem búnir
eru erlendum vopnum að sögn
blaðsins.
Þar segir ennfremur að aðferðir
uppreisnarmannanna séu ómann-
úðlegar. Skólar, sjúkrahús og hús
stuðningsmanna stjórnarinnar
hafa verið sprengd í loft upp. í einni
árásinni nýverið segir blaðið, að
fjögurra barna móðir hafi verið
dregin á götu út og höggvin til
dauða. Þá eru einnig fregnir af
fólki, sem tekið hefur verið hönd-
um, flegið lifandi og síðan myrt.
Rauða stjarnan segir að hermenn
sovéskra berjist harkalega gegn
uppreisnaröflunum og gefur í skyn
að þeir hafi átt stóran þátt í að-
gerðunum í janúar. Þrátt fyrir hinn
erfiða aðbúnað er engan bilbug að
finna á sovésku hermönnunum.
Annað hjónaband Kínverja og útlendinga:
Tókst að komast í hjónasæng
eftir eins árs ástarsamband
Peking, 3. marz. AP.
Eftir meira en eins árs ástar
samband tókst ítölskum leiklist-
arkennara og unnustu hans, kín-
verskri leikkonu, loks að komast í
hjónasængina, er þau voru gefín
saman í gær. Song Xiaoling, en svo
heitir hin 23 ára gamla leikkona,
var vikið úr skóla og hún síðar
fangelsuð.
Hjónaband hennar og kennar-
ans, Cardo, er hið annað í röð-
inni, sem vitað er um á milli
Kínverja og útlendings. Hið
fyrra var þegar kínversk lista-
kona, sem var upp á kant við
kerfið, og franskur diplómat
ákvaðu að giftast i nóvember sl.
Olli það miklu fjaðrafoki og varð
frægt um allan heim.
Kínverskum nemendum er
ekki leyft að ganga í hjónaband
fyrr en að loknu námi. Er jafnvel
vitað til þess að þeim hafi verið
vikið úr skóla hafi þeir orðið
uppvísir að. kynferðissambandi.
Að sögn Cardo urðu hann og
Song að hittast á laun. Var hún
undir miklum þrýstingi að slíta
sambandinu, en ákvað að halda
því til streitu.
í nýlegu hefti unglingablað-
sins, „Unglingafréttir", eru kínv-
erskar stúlkur varaðar við því að
láta glepjast af gylliboðum út-
lendinga.sem lofi þeim munaði
sem ekki þekkist í Kína. Segir
blaðið að stúlkurnar yrðu óham-
ingjusamar alla ævi ef þær gift-
ust útlendingum og flyttu úr
landi. Kínversk yfirvöld hafa um
langt skeið verið því mótfallin að
þarlendir þegnar gengju í hjóna-
band með útlendingum. Nú virð-
ist hins vegar sem þau séu
eitthvað farin að slaka á stefnu
sinni.í tímaritinu „Peking
Review“ er nýverið sagt frá því,
að nú sé ekkert því til fyrirstöðu
að Kínverjar gangi í hjónaband
með útlendingum svo framar-
lega sem báðir aðilar séu því
fyllilega samþykkir og reiðubún-
ir að gangast undir þau skilyrði,
sem til þarf.