Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
35
Aðalfundur Kaupmannasamtaka í íslands 18. marz nk.:
Verðlagsmál verða eflaust
stærsta málið á fundinum
- segir Gunnar Snorrason, formaður samtakanna
Innflutningsgjald
á sælgæti fellt
niður í áföngum
AÐALFUNDUR Kaupmanna-
samtaka íslands verður hald-
inn 18. marz nk., að sögn
Gunnars Snorrasonar, for
manns samtakanna, sem sagði
að verðlagsmálin yrðu eflaust
stærsta míl fundarins.
Það hefur alla tíð verið
okkar skoðun, að verðlag ætti
að gefa frjálst og við teljum
fyrsta skrefið í því vera, að
ríkisstjórnin hætti afskiptum
sínum af samþykktum Verð-
lagsráðs. Frjáls verðmyndun
er til hagsbóta fyrir alla
aðila, þegar upp er staðið,
sagði Gunnar Snorrason.
Gunnar sagðist eiga von á
því, að fundurinn yrði að
mestu með hefðbundnu sniði.
Hann myndi flytja ræðu í
upphafi. Þá myndi Magnús E.
Finnsson, framkvæmdastjóri
samtakanna flytja skýrslu
sína um starfið, auk þess sem
fluttar yrðu skýrslur um
starfsemi Lífeyrissjóðs verzl-
unarmanna og um starfsemi
Verzlunarbanka íslands. Á
fundinum fer svo fram kosn-
ing formanns, varaformanns
MIKLIR erfiðleikar steðja nú að
skipasmíðastöðvum í Evrópu.
Stærsta skipasmíðastöð í Belgíu,
Cockerill, lokaði fyrir skömmu og
námu skuldir fyrirtækisins 175
milljónum dala. Belgíska ríkis-
stjórnin var ekki reiðubúin til að
veita skipasmíðastöðinni meiri
fjárhagsstuðning, þótt lokun
hcnnar þýddi, að 2700 starfs-
menn misstu atvinnu sína og þús-
undir annarra byggðu afkomu
sína á rekstri skipasmíðastöðvar
innar.
Þá hefur sænska ríkisstjórn-
in, sem lengi hefur veitt skipa-
smíðastöðvum þar í landi
stuðning, neitað sænskri skipa-
smíðastöð í eigu tveggja
bræðra, Lars og Vilgot Jo-
hannssona, um fjárstuðning til
þess að byggja olíuflutninga-
skip fyrir ríkisstjórnina í Túnis
og endurskoðenda samtak-
anna. Að sögn Gunnars eru
svo kosnir þrír menn til við-
bótar í framkvæmdastjórn
samtakanna á fyrsta full-
trúaráðsfundinum eftir aðal-
fund, en í fulltrúaráði sam-
takanna sitja tveir fulltrúar
frá hverju hinna liðlega 20
aðildarfélaga.
Gunnar Snorrason sagði
ennfremur, að gestur fundar-
ins yrði Tómas Árnason, við-
skiptaráðherra, sem myndi
flytja ræðu.
og hafa bræðurnir ákveðið að
loka skipasmíðastöðinni.
Sænska ríkisstjórnin hefur
ennfremur tilkynnt stærstu
skipasmíðastöð Svíþjóðar, að
fyrirtækið geti ekki búizt við
meiri fjárstuðningi eftir árið
1984, en hér er um ríkisfyrir-
FRÖNSKU bílaverksmiðjurnar
Renault hafa á undanförnum ár-
um keypt hlut í bandarísku bíla-
verksmiðjunum, American Mot-
ors og eiga frönsku verksmiðjurn-
ar nú 46,4% af öllu hlutafé í
bandaríska fyrirtækinu, sem m.a.
— Ég á von á því, að nokkr-
ar umræður verði um aðild
okkar að Vinnuveitendasam-
bandi íslands, sem nú stend-
ur fyrir dyrum, en enn er ekki
ljóst hvernig þeirri aðild
verður nákvæmlega háttað.
Þá verða eflaust umræður um
Hús verzlunarinnar, en um
þessar mundir er einmitt ver-
ið að teikna og skipuleggja
okkar húsnæði þar og á
næstu mánuðum munum við
flytja starfsemi okkar af
Marargötunni. Þá má nefna
mál eins og skipulagsmál,
tollamál, skattamál og mál-
efni dreifbýlisverzlunarinn-
ar, sem eflaust verða til um-
ræður. Síðan verður eflaust
tæpt á eilífðarmálinu, þ.e.
hversu mörgum kaupmönn-
um líðst það, að standa utan
samtakanna og fleyta rjóm-
ann af því starfi, sem unnið
er innan þeirra, sagði Gunnar
Snorrason, formaður Kaup-
mannasamtaka íslands, að
síðustu. Þess má og geta, að
félagar í Kaupmannasamtök-
um íslands eru liðlega 700
talsins.
tæki að ræða, sem tapaði um
260 milljónum dollara á síðasta
ári. Einni af fjórum stöðvum
fyrirtækisins verður lokað í
árslok 1983 og jafnvel fyrr, og
talið er, að fyrirtækið verði að
segja upp sjö þúsund starfs-
mönnum á næstu þremur árum,
ef takast á að bjarga því.
framleiðir hina þekktu Willys-
jeppa. Fulllrúi frá Renault hefur
nú tekið við sem aðalforstjóri Am-
erican Motors.
Á þessu ári munu bandarísku
bílaverksmiðjurnar byrja fram-
leiðslu á amerískri útgáfu Ren-
ault 9-bílsins, sem kynntur var í
Evrópu á síðasta ári og er búizt
við, að verksmiðjurnar muni á
næstu árum framleiða fleiri
Renault-bíla en framleiðsla á
fólksbilum American Motors,
sem byggðir hafa verið á undan-
förnum árum, verði stöðvuð á
árinu 1985.
Frönsku verksmiðjurnar
munu við lok þessa árs hafa
fjárfest í American Motors um
350 milljónum dala, en ástæðan
fyrir þessari fjáríestingu er sú,
að það hefði kostað Frakka enn
meiri fjármuni að hazla sér völl
á Bandaríkjamarkaði með öðr-
um hætti. American Motors
skilaði rúmlega 70 milljónum
dollara hagnaði á árinu 1979, en
tapaði tæplega 200 milljónum
dollara á árinu 1980 og á fyrstu
þremur ársfjórðungum ársins
1981 nam tap verksmiðjanna
tæplega 90 milljónum dollara,
en stefnt er að því, að verk-
smiðjurnar skili hagnaði á ný á
árinu 1983.
EINS OG kunnugt er, varð aðlögun
kex- og slægætisiðnaðarins að frí-
verslun með allt öðrum hætti en hjá
öðrum greinum. Lengst af gilti sér
stakt kvótakerfi á innfluting á sæl-
gæti og kex, en innlendum framleið-
endum var jafnframt skylt að kaupa
mjólkurduft innanlands á verði, sem
var mun hærra en heimsmarkaðs-
verð. Síðar var tekin upp endur
grciðsla á mismun heimsmarkaðs-
verðs og heimamarkaðsverð á
mjólkurdufti.
I'etta kemur fram í nýjasta frétta-
bréfi Félags íslenzkra iðnrekenda.
Knnfremur segir:
í desember 1979 ákvað ríkis-
stjórnin að gefa innflutning á
sælgæti frjálsan frá og með 1. apr-
íl 1980, en innflutningur á kexi var
hins vegar gefinn frjáls frá 1.
janúar 1980. Jafnframt var ákveð-
ið, að innlendir framleiðendur
fengju að kaupa mjólkurduftið á
heimsmarkaðsverði hverju sinni.
Þessu snöggu umskipti á sam-
keppnisaðstöðu innlendrar kex- og
sælgætisframleiðslu þýddi í raun
og veru ekkert aðlögunartímabil
fyrir þessar greinar í líkingu við
það alögunartímabil, sem aðrar
greinar höfðu fengið, þar sem toll-
ur var látinn lækka í áföngum og
samkeppni við innflutning jókst
smám saman.
Þegar, eftir niðurfellingu kvóta-
kerfisins átti innlend framleiðsla
mjög í vök að verjast. Markaðs-
hlutdeildin féll úr 63% í 33% og
fyrstu fimm mánuði ársins 1980
var innflutningur meiri en allt ár-
ið 1979. Til að verjast frekari
rekstrarerfiðleikum neyddust
fyrirtækin til þess að segja upp
starfsmönnum. A miðju ári 1980
hafði starfsmönnum verið fækkað
um 30%.
Til að koma í veg fyrir hrun
þessara fyrirtækja var ákveðið í
september 1980 að leggja á tíma-
bundið innflutningsgjald. Var
gjaldið ákveðið 40% fyrir sælgæti,
en 32% fyrir kex. Gildistími
Fyrirtækið hefur að undanförnu
leitazt við að ná fram launalækk-
un í samningaviðræðum við
bandarísku verkalýðssamtökin
United Auto Workers og hefur
stefnt að því að ná fram lækkun á
launum og verðbótum, sem nemur
2V4 dollar á klukkustund, auk
niðurskurðar á orlofsgreiðslum og
niðurfellingu á fyrirhuguðum
gjáldsins var ákveðinn 18 mánuðir
.og yrði þessum tíma varið til hag-
ræðingarátaks, sem auðveldað
gæti þessum iðnaði að aðlaga sig
breyttum markaðsaðstæðum.
A þeim tíma sem liðinn er, hef-
ur mikið verið unnið í einstökum
fyrirtækjum, en sérstök áhersla
verið lögð á betri markaðsfærslu,
vöruþróun og umbúðahönnun.
Ahrif innflutningsgjaldsins
reyndust hins vegar mun minni
árið 1981 en vonast var til. Stafaði
það af mjög óhagstæðri gengis-
þróun. Um 91% af innfluttu sæl-
gæti kemur frá EFTA- og EBE-
löndum. Meginhluta ársins 1981
lækkuðu flestar Evrópumyntir
gagnvart íslensku krónunni og
þegar á árið í heild er litið, var
hækkunin afar lítil, en á sama
tíma jókst innlendur kostnaður
| um 50%. Smám saman dró því úr
verndarháhrifum innflutnings-
gjaldsins á árinu og kom það með-
al annars þegar fram í minnkandi
markaðshlutdeild innlendrar
framleiðslu. A 1. ársfj. 1981 var
markaðshlutdeild innlendu sæl-
gætisframleiðslunnar 57,5%, en á
3. ársfj. var hún komin í 43,4%.
Mið hliðsjón af því, að tíma-
bundið innflutningsgjald fellur
niður að öðru jöfnu í byrjun mars
nk., átti Viðskiptaráðuneytið
frumkvæði að því, að teknar voru
upp viðræður um stöðu mála. Eft-
ir fundi með fulltrúm Viðskipta-
ráðuneytisins og FÍI í byrjun
janúar, var ákveðið að fara þess á
leit við Viðskiptaráðuneytið, að
það beitti sér fyrir því, að inn-
flutningsgjaldið verði fellt niður í
áfönguml í því sambandi hefur
verið rætt um að gjaldið lækki á
þriggja mánaða fresti og falli al-
veg niður 1. mars 1983.
Viðskiptaráðuneyti hefur tekið
vel í þessa málaleitan og er nú að
leita stuðnings fyrir henni hjá
öðrum EFTA-ríkjum, en heimild
er til slíkrar aðgerðar í samningi
íslands við EBE.
hækkunum á lífeyri. Þessum kröf-
um hafa verkalýðssamtökin hafn-
að og ein af ástæðunum er reiði
samtakanna yfir því, að á sama
tíma og farið var fram á launa-
lækkun hjá ófaglærðum starfs-
mönnum, greiddi fyrirtækið út
sérstakan hagnað til um 3300
stjórnenda hjá fyrirtækinu.
forsvarsmenn fyrirtækisins
ráð fyrir um 18,3 milljóna
Bandaríkjadollara tapi á yfir-
standandi ári. Til samanburð-
ar, þá var hagnaður af rekstri
fyrirtækisins árið 1980 um 42,8
milljónir Bandaríkjadollara og
um 37 milljónir Bandaríkja-
dollara á árinu 1979. Það má
segja, að áliðnaðurinn í hinum
vestræna heimi hafi allur ver-
ið í mestu vandræðum á síð-
asta ári, þar sem ekki fékkst
nauðsynlegt verð fyrir hráefn-
ið.
Samkeppnishæfni
Noregsbanki spáir því, að
samkeppnishæfni norsks iðn-
aðar muni versna um a.m.k.
3% á yfirstandandi ári, en
staðan versnaði um 2,5% á síð-
asta ári.
Verðbólga
Fjármálaráðherra Noregs,
Rolf Presthus, sagði nýverið,
að allar líkur bentu til þess, að
halda mætti verðbólgu í land-
inu innan við 10% markið á
þessu ári.
Þingmenn Verkamanna-
flokksins sem er í stjórnar-
andstöðu segja hins vegar
ljóst, að verðbólga verði í það
minnsta 10,5% á árinu.
Elkem tapar
Norska stórfyrirtækið Elk-
em, sem m.a. sér um alla sölu á
framleiðslu íslenzka járn-
blendifélagsins, tapaði á síð-
asta ári um 2,5 milljónum doll-
ara, en til samanburðar var
hagnaður af rekstri fyrirtæk-
isins upp á um 30 milljónir
Bandaríkjadollara á árinu
1980 og um 47 milljóna Banda-
ríkjadollara hagnaður á árinu
1979.
Skipasmíðastöðvar loka
Renault tekur yfir
American Motors
Erfíðleikar hjá Inter-
national Harvester
KANDARÍSKA stórfyrirtækið, International Harvester, á við mikla fjárhags-
erfiðleika að etja um þessar mundir. Árssala fyrirtækisins nemur um sjö
milljörðum Bandaríkjadala á ári, en á síðustu tveimur árum hefur tap þess
numið um einum milljarði Bandaríkjadala og skuldir þess nema um 4,2
milljörðum dala.