Morgunblaðið - 04.03.1982, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
Decharm verður
heiðursgestur
á úrslitaleiknum
l>EGAR úrslitaleikur HM-keppninn-
ar í handknattleik fer fram í Dort-
mund 7. mars næstkomandi verður
handknattleikskappinn Joachim
Decharm heiðraður sérstaklega.
Verður hann heiðursgestur þýska
handknattleikssambandsins. Saga
Guðmundur
hljóp 800 m
á 1:55,3 mín.
GUÐMUNDUR Sigurðsson hlaupari
úr UMSE og nemandi við háskólann
í Alabama í Bandaríkjunum, tók
þátt í innanhússmóti í Gainesville í
Florida um helgina og náði ágætum
árangri í 800 metra hlaupi.
Guðmundur hljóp 800 metrana
á 1:55,3 mínútum, sem er einu sek-
úndubroti betri tími en hann á
bezt utanhúss á þessari vegalengd.
Islandsmetið innanhúss á Þor-
steinn Þorsteinsson, en það er
1:53,3 mínútur, sett fyrir áratug.
Decharms er öll hin hryggilegasta,
en hann var á sínum tíma kallaður
besti handknattleiksmaður veraldar.
Arið 1978, er VesturÞjóðverjar urðu
heimsmeistarar á HM í Danmörku
var Decharm stjarna liðsins, hreint
ótrúlega snjöll stórskytta.
En 30. mars árið eftir tók líf
hans aðra stefnu og voveiflegri í
Evrópubikarleik með Gummers-
bach gegn Tatabanya lenti Dech-
arm í samstuði og skall með höf-
uðið í grjóthart hallargólfið.
Ungverjinn sem í hlut átti gleymir
aldrei hinu hryllilega brothljóði
sem kvað við er Decharm skall í
gólfið. Decharm var síðan fluttur í
skyndi á sjúkrahús, þar sem
læknalið mikið lagði nótt við dag
til þess að bjarga lífi hans. Það
tókst, en Decharm komst ekki til
meðvitundar fyrr en eftir 131 dags
dásvefn. Frá slíku ganga menn
ekki eins og ekkert hafi í skorist.
Enn þann dag i dag getur hann
ekki gengið óstuddur, hann á erf-
itt með mál og er afar gleyminn,
fjarri því að vera hálfur maður á
við áður.
• íslenska unglingalandsliðið í badminton sem keppir á NorðurlandameLst-
aramótinu í Noregi.
Mæta Rússar
Rúmenum í
úrslitaleiknum?
• Joachim Decharm f þeirri stöðu
sem íþróttaunnendur þekktu hann
besL
SÍÐUSTIJ leikirnir í riðlakeppni
heimsmeistarakeppninnar í hand-
knattleik verða leiknir f kvöld. f
A-riðli leika Rússar og A-Þjóðverjar,
Tékkar og Pólverjar, og Svisslend-
ingar og V-Þjóðverjar. í B-riðli leika
Rúmenar og Spánverjar, Danir og
Ungverjar og Júgóslavar og Svíar.
Ljóst er að Rússar leika til úr-
slita um heimsmeistaratitilinn
þar sem þeir hafa sigrað í A-riðli.
Mjög líklega verða Rúmenar mót-
herjar þeirra. Það var mál manna
í V-Þýskalandi í gærdag að Rússar
myndu leyfa A-Þjóðverjum að
sigra í leiknum í kvöld þar sem
þeir munu hvíla sína bestu menn.
En það þýðir að þá myndu A-Þjóð-
verjar leika um 3. til 4. sætið. Sigri
Danir Ungverja í kvöld og tapi lið
Rúmena fyrir Spánverjum leika
Danir til úrslita um heimsmeist-
aratitilinn. Það yrði nú saga til
næsta bæjar ef svo færi. Marka-
tala rússneska liðsins i keppninni
er athyglisverð og sýnir styrkleika
liðsins. Rússar hafa skorað 105
mörk en aðeins fengið á sig 68
mörk.
• Decharm í dag, styður sig við föður sinn sem staðið hefur sem klettur við
hlið sonar síns.
Hávaxnir og
leikreyndir
Hávaxnasti leikmaður HM-keppn-
inar er VesturÞjóðverjinn Erhart
Wunderlicht, en hann er 204 senti-
metrar á hæð. Næstur honum kemur
sovéski risinn Anpilogov, en hann er
203 sentimetrar. Fimm aðrir leik-
menn HM eru 2 metrar eða meia,
þar á meðal Daninn Per Skaarup.
Minnstur er Bouhallisa frá Alsír, en
hann er 172 sentimetrar á hæð.
Þá má geta þess, að séx leik-
menn á HM hafa leikið 200 lands-
leiki eða meira. Þrír þeirra eru í
ungverska liðinu, þeir Bela Bartol-
os, Stefan Kovacs og Istan Szi-
agui, en hinir eru þeir Voina og
Birtalan hjá Rúmeníu og gamla
brýnið Jerzy Klempel hjá Pól-
landi.
íslenska landsliðið í
handknattleik fær erfiða
keppinauta í næstu B-keppni
Ul-landsliðið til Noregs
í I)AG, fimmtudaginn 4. mars, held-
ur unglingalandslið íslands í
badminton til keppni í NM unglinga
sem haldið er í Asker (22 km frá
Osló) í Noregi dagana 5.-7. mars.
í unglingalandsliðið hafa verið
valdir eftirtaldir keppendur:
Elísabet Þórðardóttir TBR, Inga
Kjartansdóttir TBR, Þórdís Eð-
vald TBR, Indriði Björnsson TBR,
Pétur Hjálmtýsson TBR og Þor-
steinn Páll Hængsson TBR. Far-
arstjóri og þjálfari unglingalands-
liðsins er Hrólfur Jónsson.
I einstaklingskeppninni byrja
piltarnir allir á að spila við Norð-
menn, en stúlkurnar spila þannig:
Þórdís við finnska, Inga við
sænska og Elísabet við norska, en
þetta eru allt mjög sterkir ein-
staklingar, sem þau lenda á móti í
fyrstu umferð.
Svo sem kunnugt er, fer fram
R-keppni í handknattleik í Hollandi
á næsta ári og er ísland þar meðal
þátttökuþjóða. A B-keppni þessari
verður einungis leikið um tvö laus
sæti fyrir Olympíuleikana sem
haldnir verða í Los Angeles árið
1984.
Róðurinn verður þungur, því 12
lið keppa í Hollandi og verður
þeim skipt í tvo riðla, sex í hvor-
um riðli. Efstu liðin leika síðan til
úrslita og öðlast rétt til að keppa í
Los Angeles. Þrjú neðstu liðin í
Keppti með hendina í
giffsi en sigraði samt
ÞEIR eru margir unglingarnir á
landinu sem stunda orðið skíða-
íþróttina af miklum krafti með
keppni fyrir augum. Og oft á tíðura
er áhugi þeirra með ólíkindum. Þeir
láta ekkert aftra sér frá að komast á
skíðin ef þess er nokkur kostur. Um
síðustu helgi fór fram afmælismót
ÍR í skíðaíþróttinni. Keppt var á
skíðasvæði félagsins í Hamragili.
Sigurvegari í flokki 13 til 14 ára varð
Gunnar Smárason úr Kópavogi.
Gunnar hafði rétt fyrir mótið
orðið fyrir því óhappi að fingur-
brotna illa og var með höndina í
gifsi. En slíkur var áhuginn að
hann lét ekkert aftra sér frá því
að vera með, og keppti með hönd-
ina í gifsumbúðum.
— Það háði mér allverulega í
keppninni að vera með hendina í
gifsumbúðum. Ég gat ekki haldið
almennilega á skíðastafnum og
jafnvægið var ekki eins gott og
það á að vera, sagði Gunnar þegar
Mbl. spjallaði við hann um keppn-
ina.
„Ég var að keppa á Akureyri
fyrir skömmu. Eftir að keppninni
þar lauk var ég að leika mér í
bruni og varð þá fyrir því óhappi
að reka höndina niður í hart
hjarnið og fingurbrotna. Það varð
að setja höndina í gifs og svona
verð ég í tvær til þrjár vikur. En
ég er ákveðinn í því að æfa af full-
um krafti Jirátt fyrir það, og
keppa líka. Eg keppi fyrir ÍR, en í
því félagi er mikið og gott ungl-
ingastarf. Mikið unnið fyrir
yngstu kynslóðina. Þá er skíða-
land í Hamragili mjög gott. Við
æfum svona 4 til 5 sinnum í hverri
viku, og ég mun keppa á um 10
mótum í vetur. Um næstu helgi
keppi ég á punktamóti unglinga
sem fram fer á Húsavík. Skíða-
íþróttin er mjög tímafrek íþrótt.
Það þarf að taka rútu á skíða-
svæðið og til baka og í það fer
drjúgur tími. Þetta er líka frekar
dýr íþrótt, en hún er svo sannar-
lega þess virði að hún sé stunduð,
sagði Gunnar að lokum.
Það mátti heyra á honum að
hann léti nú ekki smáóhapp
hindra sig í að æfa og keppa í
íþrótt sinni. — þg
hvorum riðli á HM sem nú stendur
yfir í Þýskalandi verða meðal
keppenda í Hollandi, en það verða
líklega Pólland, Sviss, Tékkoslóv-
akía, Svíþjóð, Ungverjaland og
Spánn. Þá verða meðal keppenda
Belgía og Búlgaría sem sigruðu í
C-keppninni í Belgíu fyrir
skömmu. Loks verða svo Island,
Frakkland, ísrael og Holland. Það
er því sýnt að enginn barnaleikur
verður að hreppa sæti á 01 og
frekar ólíklegt að það takist.
Styrkleikinn í B-keppninni er
meira að segja slíkur að landinn
má hafa sig allan við að halda sér
í B-flokki, en einungis sex efstu lið
keppninar ná því. Sex efstu lið nú-
verandi HM-keppni halda sér í
A-flokki og keppa án frekari und-
ankeppna í Los Angeles. Þar í hópi
eru Danir, en burtséð frá því hvort
danska liðið nælir í verðláun eða
ekki úr því sem komið er, líta Dan-
ir á það sem stórsigur fyrir sig að
hafa tryggt Ol-sætið.
• Skíðakappinn Gunnar Smárason með verðlaunagripinn, sem hann hlaut
fyrir sigur í svigkeppninni á ÍR-mótinu.