Morgunblaðið - 04.03.1982, Qupperneq 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1982
Alusuisse sting-
ur upp á viðræð-
um f lok marz
ÁLUSUISSE hefur nú srvarað beiðni Hjörleifs Guttormssonar iðnaðaráðherra
um viðræður vegna álsamningsins og er Morgunblaðinu kunnugt um að dr.
Miiller aðalforstjóri Alusuisse stingur upp á því í bréfi til íslenzku ráðherra-
nefndarinnar, sem skipuð var vegna álmálsins og í eru þeir dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra og Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra, að viðræður fari
fram síðast í marsmánuði.
Sem kunnugt er hafði iðnaðar-
ráðherra lagt mikla áherslu á, að
viðræður vegna álsamningsins
færu fram í Kaupmannahöfn í
byrjun mars, en forráðamenn Alu-
suisse gátu ekki mætt til fundar
þá, eins og skýrt hefur verið frá.
Samkomulag tókst í ISAL:
Samið um fastar
kaupaukagreiðslur
SAMKOMULAG hefur tekizt í ál-
verinu í Straumsvík milli stéttarfé-
laganna, sem eru umbjóðendur
starfsmannanna þar, og fslenzka ál-
félagsins hf. Var það undirritað á
sunnudag eftir sólarhrings samn-
ingalotu og verður borið undir fé-
lagsfundi stéttarfélaganna nú um
næstu helgi. Samningaumleitanir
höfðu staðið alllengi.
Samið var um 3,25% grunn-
kaupshækkun, sem gildir frá 1.
nóvember 1981, þrátt fyrir að síð-
astgildandi samningur rynni ekki
út fyrr en 31. janúar síðastliðinn.
t>ví gildir hinn nýi samningur þrjá
mánuði aftur í gamla samninginn.
Samningurinn gildir til septem-
bermánaðar.
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum Morgunblaðsins, fara nú
fram ýmsar tækni- og skipu-
lagsbreytingar í álverinu í
Straumsvík, bæði í kerskála og
steypuskála. Á meðan á þessu
stendur eru framleiðslubónus og
nýtingarbónus settir fastir á
ákveðna prósentu, sem samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins er
mjög hagstætt starfsmönnum
ÍSALs, þar sem óvíst er hvað þess-
ir liðir gefa á meðan á þessum
breytingum stendur.
Verkalýðsfélögin féllust á í
samningunum að framkvæma þær
tæknibreytingar, sem fyrirhugað-
ar eru. Þegar þetta breytingaskeið
er síðan á enda, verða búnar til
nýjar reglur um bónus og kaup-
auka miðað við nýtt vinnuskipulag
í álverinu.
Hallgrímskirkja er nú komin undir þak. Bygging kirkj-
unnar hefur sem kunnugt er tekið áratugi og kirkjan eða
öilu heldur turn hennar er löngu orðinn táknrænn fyrir
Reykjavík, svo víða sést hann að. Myndin er tekin í
góðviðrinu í fyrradag.
Ljóflin.: Freysteinn G. Jónsson.
Rekstrarskuldir Ríkis-
spítalanna 12 millj. kr.
Rúmum fækkad
um 30 á Borg-
arspítalanum
VEGNA skorts á hjúkrunarfræð-
ingum á Borgarspítalanum hefur
orðið að fækka rúmum um 30.
Atján þessara rúma var lokað í
janúar, en þau eru á lyflækninga-
deildum. Um síðustu helgi varð
síðan að loka tólf rúmum á
skurðlækningadeild. Jóhannes
Pálmason, skrifstofustjóri Borg-
arspítalans, sagði í gær, að mikill
skortur væri á hjúkrunarfræðing-
um og stöðugt virtist halla undan
fæti.
REKSTRARSKULDIR Ríkisspítal-
anna nema nú 12 milljónum króna,
eða sem nemur 1,2 milljörðum
gkróna, og þar af eru skuldir tveggja
mánaða og eldri um 6 milljónir
króna. „Staðan er þannig, að við er
um í skuld hjá öllum okkar viðskipta-
aðilum og það segir sig sjálft, að
þetta er óskaplega erfiður og slítandi
rekstur," sagði Davíð Á. Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Ríkisspítalanna, í
samtali við Mbl. í gær.
Undanfarið hefur verið greint
frá fjárhagserfiðleikum annarra
sjúkrahúsa; sjálfseignarstofnana
og spítala í eigu sveitarfélaga, en
Davíð sagði stöðu Ríkisspítalanna
sízt betri. Ríkisspítalarnir eru á
föstum fjárlögum, en hinar stofn-
anirnar fá daggjöld. Aðalskýring-
una á erfiðri rekstrarstöðu Ríkis-
spítalanna sagði Davíð vera verð-
bólguna og að föstu fjárlögin væru
ekki bætt nógu hratt til að ná
hraða hennar.
„Allt frá árinu 1978 hefur verið
gífurlega mikið aðhald í öllum
rekstri og við höfum reynt að spara
eins og við höfum framast getað.
Það hefur tekizt á sumum sviðum,
en á öðrum hefur ríkissjóður ætl-
azt til þess, að við værum fljótari
til en við höfum ráðið við. Útkoman
er sú, að við sitjum uppi með þenn-
an vanda og það munar að minnsta
kosti 2—3% prósentustigum á því
sem okkur er áætlað og því sem við
sjáum nokkurn minnsta flöt á að
lifa við,“ sagði Davíð Á. Gunnars-
Arnarflug
fær leyfi á
Diisseldorf
og Ziirich
Samgönguráðuneytið veitti
í gærdag Arnarflugi leyfi til
áætlunarflugs milli íslands
og Diisseldorf í Vestur
Þýzkalandi annars vegar og
Zurich í Sviss hins vegar.
Arnarflug sótti á sl. ári um
leyfi til áætlunarflugs milli ís-
lands og Frankfurt og Hamborg-
ar í Vestur-Þýzkalandi, Parísar í
Frakklandi og Zúrich í Sviss, og
í nóvember sl. sagði Steingrímur
Hermannsson, samgönguráð-
herra, að hann hefði tekið
ákvörðun um að veita félaginu
leyfi til áætlunarflugs til Vest-
ur-Þýzkalands og Sviss, en
nefndi ekki nákvæma staðsetn-
ingu í Vestur-Þýzkalandi.
I bréfi samgönguráðuneytisins
til Arnarflugs er hvatt til þess,
að teknar verði upp viðræður
milli Arnarflugs og Flugleiða
um samvinnu í sambandi við
flug til Vestur-Þýzkalands, þar
sem Flugleiðir verði með áætl-
unarflug til Dússeldorf í Vest-
ur-Þýzkalandi á sumri komanda.
Þá má geta þess, að allnokkrar
viðræður hafa farið fram milli
flugfélaganna tveggja um hugs-
anlega samvinnu á einhverjum
sviðum, en enginn árangur varð
af þeim viðræðum. Gunnar
Þorvaldsson, framkvæmdastjóri
Arnarflugs, sagði í samtali við
Mbl., að Arnarflugsmenn myndu
skoða málin í ljósi þessara leyfa,
sem væru að vísu ekki eins og
þeir hefðu gert ráð fyrir, þ.e.
Arnarflugsmenn hefðu óskað
eftir Frankfurt, en ekki Dússel-
dorf. Málið mun hins vegar
liggja ljóst fyrir í næstu viku,
sagði Gunnar Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri Arnarflugs,
ennfremur.
Jóhannes Zoega hitaveitustióri:
„Ekki tími til að bora nægi
lega margar holur í sumar“
„ÞÓ SVO að Hitaveita Reykjavfkur
hefði nægilegt fé til framkvæmda, þá
held ég að við gætum aldrei borað og
virkjað nógu margar holur í sumar til
að hægt sé að ábyrgjast að ekki komi
til vatnsskorts í kuldaköflum á veitu-
svæðinu næsta vetur, til þess er tfm-
inn of skammur,“ sagði Jóhannes
Zoega hitaveitustjóri í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Morgunblaðið spurði Jóhannes
hvað hann vildi segja um þá sam-
þykkt borgarráðs Reykjavíkur að
heimila Hitaveitu Reykjavíkur að
hækka gjaldskrá sína um 13%.
„Þetta er talið hóflegt skref,“
sagði Jóhannes, „en ég hefði viljað
hafa hækkunina meiri en nú er rætt
um, eða sem samsvarar því, sem við
sóttum um fyrr í vetur. Gjaldskrá
Hitaveitunnar þarf að hækka um
11% til viðbótar þeim 13%, sem
borgarráð hefur samþykkt og í raun
þurfum við meira, þar sem hækkan-
Hrun loðnuveiðanna veidur
því að einn milljarður tapast
NÍJ LÍTUR út fyrir að engar loðnu-
veiðar verði heimilaðar á næstunni
og jafnvel verða engar loðnuveiðar
heimilaðar fyrr en eftir næstu ára-
mót. í samtali sem Morgunblaðið
átti við Kristján Ragnarsson for
mann Landssambands íslenzkra út-
vegsmanna í gær, kemur fram að
undanfarin þrjú ár hafa íslendingar
veitt að meðaltali um 800 þúsund
tonn af loðnu. Útflutningsverðmæti
800 þúsund tonna af loðnu er rétt
tæplega einn milljarður nýkróna og
af því fara í hlut útgerðarmanna og
sjómanna um 420 milljónir kr.
Áætlað er, að útflutningsverð-
mæti sjávarafurða á þessu ári
verði 9—9,5 milljarðar króna og er
meðaltalsverðmæti loðnuafurða
síðustu þriggja ára um 10% af
áætluðum heildarútflutningi sjáv-
arafurða á þessu ári.
Sjá „Norðmenn veiða ekki loðnu
næsta sumar frekar en við“ á bls. 21.
irnar koma mánuði síðar, en gert
var ráð fyrir.“
Fyrr í vetur samþykkti borgarráð
að heimila Hitaveitu Reykjavíkur
að taka 30 milljón króna erlent lán,
en borgarstjórn á enn eftir að fjalla
um lántökuna.
„Að mínu mati er það hreinasta
vitleysa, að Hitaveitan skuli þurfa
að taka lán, það er bara gálgafrest-
ur, því lántökurnar draga úr fram-
kvæmdafénu, þegar kemur að því
að endurgreiða þau og borga vexti,"
sagði Jóhannes Zoéga.
Jóhannes sagði, að sú hækkun,
sem nú væri framundan á gjaldskrá
Hitaveitu Reykjavíkur, drægi að
vísu úr þörfinni fyrir erlent lán til
framkvæmda. Sú hækkun, sem
borgarráð hefði samþykkt væri
spor í rétta átt, þessi hækkufl hjálp-
aði til að gera það, sem koma þyrfti
í verk.
„Framundan eru mikil verkefni á
vegum Hitaveitu Reykjavíkur, því í
mörg ár hafa framkvæmdir verið of
litlar sökum fjárskorts," sagði Jó-
hannes Zoega að lokum.