Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR.29. APRÍL 1982 Starfandi utanríkisráðherra um Falklandseyjadeiluna: Hernám eyjanna er ský- laust brot á alþjóðalögum Kíkissljórnin hrfur ekki gert neina samþykkí varðandi þau deilu- mál og átök, sem nú eru uppi milli Knglands og Argentinu um Falk- landseyjar, sagöi Tómas Arnason, starfandi utanríkisráðherra, í fram- haldsumræðu um skýrslu utanríkis- ráðherra á Alþingi i fyrrakvöld. Ég legg heldur ekki lögfræðilegt mat á deilumálin. Hitt er Ijóst, að hernám Argentínu á Falklandseyjum er ský- laust brot á alþjóðalögum, valdbeit- ing °S yfirgangur gegn íbúum eyj- anna, sem eru brezkir og lúta brezk- um lögum. Starfandi utanríkisráð- herra minnti og á samþykkt öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna, þess efn- is, að Argentína dragi herlið sitt frá eyjunum — og málsaðilar leiti lausn- ar á deilumálum með friðsamlegum hætti. Tilefni þessara orða var fyrir- Verslað með kann- abisefni á Hlemmi ’ — l>eir sem komið hafa til með- ferðar hjá okkur greina oft frá því að viðskipti þeirra með kannabisefni haft farið fram á Hlemmtorgi og við höfum lengi vitað að á Hlemmi væri eins konar miðstöð þessara við- skipta, sagði Gísli Björnsson hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í sam- tali við Mbl., en í útvarpi i gær var haft eftir Vilhjálmi Kagnarssyni að þar væri stunduö nokkur verslun með þessi efni. Gísli Björnsson sagði starfs- menn fíkniefnadeildar reyna að fylgjast með eins og kostur væri, ekki væri óeðlilegt að fólk hittist á fjölförnum stöðum sem Hlemmi eða nágrenni til að stunda þessi viðskipti, eins og tíðkaðist á járnbrautarstöðvum erlendis. Sagði hann oft hafa komið fram við yfirheyrslur að menn hefðu fengið efni afhent þarna og stund- að viðskipti á Hlemmi, ljóst væri að þar færi fram í nokkrum mæli eins konar smásöluverslun með kannabisefni. Vörubílarnir í Borgarnesi: Von er á betri stýris- örmum um miðjan maí „VONIK standa til þess að betri stýr- isarmar komi í bílana um miðjan na-sta mánuð og að þá muni þessum erfiðleikum okkar Ijúka og bilstjórarn- ir munu ekki hætta akstri þeirra I. maí, eins og þeir höfðu ætlað,“ sagði Olafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri í Korgarnesi, en svo sem Mbl. greindi frá á dögunum eru nokkrir Bedford- vöruflutningabílar í eigu Kaupfélags Borgfirðinga nú undir sérstöku eftirliti vegna tíðra galla í stýrisörmum. Olafur Sverrisson sagði að þegar Kosningahappdrætti Sjálfstæðisflokksins FYKIK nokkrum dögum hleypti Sjálfsta'ðisflokkurinn af stokkunum hefðbundnu kosningahappdrætti sínu. Ilappdrætti flokksins er helsta fjáröflunarleið hans og gerir flokks- mönnum öllum og stuðnings- mönnum hans kleift að leggja sitt að mörkum eftir efnum og ástæð- um. Nú stendur flokkurinn enn frammi fyrir því að berjast fyrir eindurheimt meirihluta síns í Keykjavík og bættum árangri j sveitarstjórnum um allt land. í bréfi frá formanni, varaformanni og framkva'mdastjóra flokksins sem sent er með happdrattismiðunum segir m.a.: „Kosningabaráttan, sem nú er ýmist hafin eða er að hefjast í hverju sveitarfélagi, ræður úrslit- um um það hvort stefna Sjálf- stæðisflokksins mótar stefnu og starf sveitarstjórnarinnar í þínu sveitarfélagi næsta kjörtímabil eða ekki. Kosningabaráttan og allt kosn- ingastarfið krefst mikillar fórn- fýsi af flokksmönnum og öðrum stuðningsmönnum flokksins. Meginhluti starfsins er unninn af sjálfboðaliðum en þrátt fyrir það er kosningabaráttan feikn dýr. Auglýsingar, útgáfa blaða og sérrita, fundahöld, rekstur á kosningaskrifstofum, símakostn- aður og póstburðargjöld er allt kostnaður sem greiða þarf. Fjár- munina til að reka kosningabar- áttuna getur Sjálfstæðisflokkur- inn ekki sótt annað en til stuðn- ingsmanna sinna. Því er þessu kosningahappdrætti hleypt af stokkunum. Sjálfstæðisflokkurinn treystir því að þú viljir leggja honum fjár- hagslegt lið til þess að ná sameig- inlegu markmiði. Sigur Sjálfstæðisflokksins ei þinn sigur — stuðlaðu að honum. spurn frá Albert Guðmundssyni (S), sem fór nokkrum orðum um átök Breta og Argentínumanna í þessari umræðu, sáttastörf Bandaríkjamanna, sem því miður hafi ekki borið æskilegan árangur, og hættuna á því að þessi deila þróist í enn alvarlegri atburði fyrir heimsbyggðina. Taldi Albert þörf á því að starfandi utanríkis- ráðherra gerði þingheimi grein fyrir viðhorfi ríkisstjórnarinnar til þessa deilumáls. Starfandi utanríkisráðherra svaraði sem hér segir að ofan og bætti við, að það hlyti að vera af- gerandi þáttur í þessu máli, hvað íbúar Falklandseyja vildu sjálfir. Hann sagði ennfremur að brezka sendiráðið hefði gert íslenzka utanríkisráðuneytinu grein fyrir viðhorfum sínum í þessu við- kvæma deilumáli. Ég vona, sagði ráðhérra, að það takist, þótt seint sé, að koma á sáttum og afstýra alvarlegum átökum, sem ekki er hægt að sjá fyrir hvaða dilk draga á eftir sér. væri búið að skipta um ákveðna hluti í bílunum, en búist væri við nýjum stýrisörmum og þar með fullnaðarviðgerð um miðjan maí. „Fulltrúar verksmiðjanna komu til okkar fyrir nokkru og telja þeir að lausn sé nú fundin, en þessir erfið- leikar hafa valdið okkur tjóni og óþægindum, enda er dýrt þegar oft þarf að stöðva akstur þessara af- kastamiklu bíla,“ sagði Ólafur Sverrisson ennfremur. Auglýsendur athugið Auglýsingar, sem birtast eiga í Morgunblaðinu laugardaginn 1. maí nk., þurfa að hafa borist auglýsingadeildinni fyrir klukkan 18.00 í dag, fimmtu- dag. Morgunblaðið kemur ekki út sunnudaginn 2. maí. Afmæliskaffi í sparisjóðnum AFMÆLISVEIZLA Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis t tilefni af 50 ára afmæli sparisjóðsins var fjölsótt og tókst hið bezta að sögn ráðamanna. Heita má, að stanzlaus straumur viðskiptavina hafi verið allan daginn og þáðu þeir kaffi og meðlæti um leið og þeir sinntu erindum sínum. A annarri myndinni má sjá viðskipta- vini bíða afgreiðslu með kaffibolla í hönd. Á hinni myndinni þakkar Jón Aðalsteinn Jónsson, ritstjóri Orðabókar Háskólans, Baldvini Tryggvasyni, sparisjóðsstjóra, fyrir móttökurnar. Baldvin sagði Mbl. að dagurinn hefði verið hinn ánægjulegasti og hefðu afmæl- isgestir verið hátt á þriðja þúsund. Ljósm. KÖE. Krafa Dýraverndunarfélags R.víkur vegna „Rokks í Reykjavík“: Ábyrgðarmenn dýra- dráps sæti ábyrgð Dýraverndunarfélag Keykjavíkur sendi í gær ríkissaksóknara bréf. Þar er þess krafizt, aó þeir, sem stóðu aö upptöku á kaflanum um hljómsveitina Bruna B.B. í myndinni Kokk i Keykja- vík, bæói hljómsveitarfólkió og allir þeir aórir, er kunna að bera ábyrgð á því að þessi kafli er nú sýndur al- menningi, verði látnir sæta ábyrgð að lögum. í bréfinu segir að þessi kvik- myndataka hafi á sínum tíma verið kærð til lögreglunnar af aðila, sem mun hafa verið viðstaddur, er hún fór fram. Þar segir ennfremur: „Ofangreind upptaka fór fram á vegum „hljómsveitarinnar" Bruni B.B. og var aðalefni hennar, slátrun hænsna, tvímælalaust brot á 1. málsgrein laga nr. 21 1957 og hefði því átt að gera kvikmyndina upp- tæka samkvæmt ákvæði 69. greinar laga nr. 19 1940, því fullyrða má, að aflífun hænsna, sem framkvæmd er sem skemmtiatriði í viðurvist fjölda áhorfenda og tekin upp á filmu til sýningar almenningi í hagnaðarskyni, er tvímælalaust „misgerningur“ í þeirri refsiverðu merkingu, sem 69. grein laga nr. 19 1940 gerir ráð fyrir. Á sama hátt hlýtur ofangreind aflífun hænsn- anna að teljast alvarlegt brot á lög- um um dýravernd samanber 1. grein laga nr. 21 1957.“ Jafnframt því, sem ofangreind aflífun á hænsnunum er skýlaust brot á lögum um dýravernd, er hún einnig alvarlegt sálrænt áfall fyrir grandalausa áhorfendur kvikmynd- arinnar Rokk í Reykjavík, sem fara í kvikmyndahús til að horfa á mynd um tónlist, að því að þeir telja, en er svo boðið að horfa á þvílíkan óhugnað, sem þessi kafli myndar- innar er og á að flestra dómi ekkert erindi í mynd þessa, eins og fram hefur komið, bæði í sjónvarpi og dagblöðum. Jafnframt skal bent á, að full þörf er á því að rannsaka nafngift „hljómsveitarinnar" Bruni B.B. því að, eftir því sem stjórn DR best veit, þá mun nafngiftin vera þannig til komin, að hún vekur til umhugs- unar um það hvort „hljómsveitar- fólkið" muni vera í andlegu jafn- vægi. Stjórn Dýraverndunarfélags Reykjavíkur telur, að brýnt sé að ákvörðun um ákæru verði tekin fljótlega og máli þessu fylgt eftir af fullri alvöru, því það er álit stjórn- arinnar og allra þeirra, er hún hefir rætt þetta mál við, að aflífun hænsna með framangreindum hætti og allar aðstæður við verkn- aðinn, séu miklu alvarlegra mál, en í fljótu bragði mætti ætla og full þörf á, að gripið verði í taumana áður en hugmyndaflug „hljómsveit- armanna" í Bruni B.B. leiðir til al- varlegri atburða." Jafnframt hefur Dýraverndunar- félagið sent kvikmyndaeftirliti ríkisins bréf, þar sem þess er óskað að aldurstakmark á myndina verði ekki lækkað í 12 ár og það tekið fram meðal annars, að bannið hefði mátt miðast við 16 ár og þá skiptu engu ummæli Bubba Morthens eða Bjarna. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun það hvorki ætlunin hjá Dýraverndunarfélagi Reykja- víkur að krefjast lögbanns á mynd- ina né heldur að viðkomandi atriði verði klippt úr henni. Frystihúsin í Reykjavík: Hætta konur bónusvinnu? EF SAMNINGAR takast ekki, þá hafa 266 konur, sem starfa eftir bónuskerfinu í frystihúsunum í Keykjavik ákveðið að leggja niður vinnu eftir bónusfyrirkomulaginu hinn .3. maí næstkomandi. Konurnar ætla þó ekki að ganga út úr frysti- húsunum, heldur vinna venjulega timavinnu við fiskverkunina. Konurnar í frystihúsunum söfn- uðu undirskriftum, sem síðan voru lagðar fram á aðalfundi Verka- kvennafélagsins Framsóknar ásamt kröfum þeirra. Var stjórn og trúnaðarmannaráði félagsins falið að leggja fram kröfurnar við aðalsamninganefnd Verkamanna- sambands íslands. Undanfarið hafa staðið yfir samningaviðræð- ur vegna bónusmálsins og er boðaður sáttafundur hjá sátta- semjara klukkan 14 í dag. Fyrr í dag koma undirnefndir saman til viðræðna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.