Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 21 Tónleikar Dómkórsins Kór Dómkirkjunnar í Reykjavík heldur tónleika sunnudaginn 2. maí kl. 5 e.h. Kórinn syngur við allar guðsþjónustur i kirkjunni en finnst, þrátt fyrir mikið starf, þörf á að glíma við stærri verk- efni. Rúmlega 40 söngvarar hafa í vetur mætt á æfingar tvisvar í viku, og oftar nú síðustu vikurnar, til að undirbúa aðra tónleika vetr- arins. Að loknum jólasöngvum hófust æfingar á mótettunni „Jesu, meine Freude" eftir Bach og kórverkum eftir Stravinsky og Hessenberg. Sexraddaða mótettan „O Herr, mache mich zum Werk- zeug deines Friedens" eftir Hess- enberg er sérstök á þann hátt, að tónskáldið reynir að tengja saman gömul form og leggur áherslu á hið lagræna. Áhrifin frá tólftóna- tónlistinni eru greinileg og þær tilraunir í hljómasamsetningu að láta tvo hljóma hljóma samtímis. Þetta áhrifamikla verk vakti mikla athygli í Þýskalandi á sjötta áratugnum. Ljóðið er eftir Franz frá Assisi, Friðarbæn hans, og hafa orð hans mikið gildi enn í dag. I upphafi tónleikanna verður flutt nýtt orgelverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, „Auf meinen lieb- en Gott“, en sálmalagið sem Þor kell notar er þekkt undir nafninu „Þú brúður Kristi kær“. Verkið er mjög heilsteypt og fjörmikið, með hljómum sem orgelunnendur eiga ekki að venjast frá eldri meistur- unum. Verkið var frumflutt er- lendis, en mun nú í fyrsta sinn leikið hérlendis. Auk þess mun Sigrún V. Gests- dóttir syngja tvær aríur frá bar- okktímabilinu, en hún, ásamt Sig- ríði Gröndal, Rut Magnússon og Rúnari Einarssyni syngja í mót- ettunni eftir Bach. I því verki leik- ur Hjálmur Sighvatsson með á ferðaorgel Langholtskirkju, sem var fengið að láni, og Pétur Þor- valdsson á selló. Stjórnandi og orgelleikari á tónleikunum er Marteinn H. Friðriksson dómorg- anisti. Forráðamenn Dómkirkjusafn- aðarins fagna þessu starfi mjög og það er þeirra einlæg von, að fólk fjölmenni á tónleikana, sem verða, eins og fyrr segir, í Dómkirkjunni á sunnudag og hefjast kl. 5 sd. (Kréttatilk. frá Dómkirkjunni.) Samleikur í Norræna húsinu Tónlist |Jón Ásgeirsson Lífið er stutt en listin löng, segir í gamalli orðhnitu, sem í knöppu formi sínu rúmar alla leit manns- ins, skammæja hverjum og einum, gegn þeirri eilífð sem listin er og verður. Freyr Sigurjónsson flautuleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari fluttu hlustendum í Norræna húsinu tónlist, sem þau á löngum tíma, í erfiðu námi, hafa safnað þrótti og kunnáttu til að flytja með sem glæsilegustum hætti. Freyr er góður flautuleikari og í leik hans verða tónverkin lif- andi, þar sem hver tónboginn tek- ur við af öðrum, sem samfelld hugsuð heild. Það eina, sem mætti finna að Frey, er að hann er ekki nógu frakkur. Hann hefði mátt koma örlítið meira fram í því sem hann er að gera. Þessi hógværð varð nokkuð áberandi vegna þess að meðleikarinn er einmitt gæddur þessum eiginleika, að koma sjálf mjög sterkt í ljós. Anna Guðný er góður píanóleikari og skemmtilegt hvernig ýmis skapbrigði voru greinileg í leik hennar. Fyrsta verkið, Concert (svíta) eftir Couperin, fyrir flautu og sembal, er erfitt vegna nauðsyn- legrar nákvæmni í flutningi marg- breytilegra skrautnótna, sem eru eiginlega svo sér franskar í gerð, að það tekur mörg ár að ná leik- andi valdi á þessum sérkennum franskrar barokk- og rococco- listar. Annað verkefnið var Fimm seiðlög eftir Jolivet, fyrir einleiks- flautu. Hvað svo sem mönnum kann að virðast um tónsmíðina, var leikur Freys vel útfærður og auðheyrt að hann er orðinn mjög góður flautuleikari. I Rómönsu eft- ir Pixis, sem var þriðja verkefnið, lék Freyr svolítið óbeislað. Það var aftur á móti skemmtileg ró yfir verkinu er það var endurtekið sem aukalag. Tvö síðustu verkin, Són- ata eftir Martinu og Svíta eftir Widor, eru geysierfið í flutningi, „virtúósísk", á köflum og var margt frábærlega gert hjá báðum flytjendum. Upphafið á þessari umsögn var til að undirstrika þá staðreynd hversu erfitt það er og krefjandi, að ná því marki að verða góður hljóðfæraleikari. Mönnum, sem tala gáleysislega um tónmennt hér á landi, má benda á þann stóra hóp gáfaðra ungmenna, sem nú leita sér ýtrustu menntunar í tónlist erlendis og, til gamans, bera þann hóp saman við tónlistarmenn, sem nærri ólæsir og óskrifandi á tónlist telja sig í aðstöðu til að segja fólki fyrir verkum, og reyna að sjá í hvorum hópnum íslensk tónlist á framtíð til vaxandi lærdóms og kunnáttu. FURUSÓFASETT 3-1-1 FURUSKENKUR Kr. 5.298.-. FURUBORÐ FURUSÓFASETT og 4 stólar 3.1.1 kr. 4.628.-. Kr. 2.965.- allt settið. Kr. 4.960.-. * é * t i FELLI- BORÐ Kr. 2.913. FURUSOFASETT 3-1-1 kr. 5.840.-. 3-2-1 kr. 6.520.-. FURUSÓFASETT 3-1-1 Kr. 5.380.-. Sófaborð kr. 1.392.-. Hornborð kr. 893.-. LR»n!J HAMRABORG 3, SIMI. 42011, KOPAVOGI Athugiö tilboð okkar á húsgögnum í sumarhúsið og fyrir heimilið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.