Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 Getraunasíða Morgunblaðsins 1X2 — 1X2 — 1X2 Getraunaspá 33. leikviku l>etta gekk bara nokkuð vel í síðustu viku, þó að seðillinn væri frekar erfiður. Þrír fastir leikir voru réttir og sá tvítryggði. Það var bara vítaspyrn- an, sem Aston Villa fékk, er kom i veg fyrir fullt hús. Það voru líka allir á vellinum sammála um að hún væri tóm della. Auk þess voru 3 þrítryggðu lcikjanna með réttu U-merki, sem er hagstæðast, svo að kerfið gaf örugga 10 rétta með 20% likum á 11 réttum. 1. Arsenal : West Ham 1 (1X2) Arsenal er ekki sannfærandi þessa dagana og líkurnar á Evrópusæti fara minnkandi. West Ham eru svo sem ekki miklu öruggari heldur, en þeir unnu þó sigur í miklum markaleik um helgina 4:3 gegn Leeds. Ætli ég spái ekki Arscnal sigrinum út á heimavöllinn, með hálfum hug þó og þess vegna þrítryggi ég. Arsenal vann á Upton Park 2:1. 2. Aston Villa : Manch. City 1 (1 X) Villa er eitt af liðunum sem er í formi nú, en ætli úrslitaleikurinn í Evrópukeppninni fari ekki brátt að draga úr fórnarvilja leikmanna, þeir gætu jú mciðst og misst af honum. ('ity er hins vegar alveg úr formi og bíður eftir því að keppnistímabilinu Ijúki. Heimasigur, tvitryggður með jafntefli. ('ity vann i vetur 1:0. 3. Coventry : Tottenham 2° ('oventry virðast vera búnir að bjarga sér frá falli og geta því spilað afslappað. Spurs elta aftur á móti uppi hvert stig, þvi að þeir segjast enn geta náð Lipverpool. Ég veit nú ekki hvort ég á að trúa því en ætla samt að spá þeim sigri. Þeir töpuðu þó óvænt heima 2:1. 4. Ipswich : Midddlesbrough 1° Þau eru dýrmæt stigin sem Ipswich hefur misst vegna misnotaðra víta- spyrna síðustu tvær vikurnar. Ég hef þó ekki trú á að þeir missi stig gegn botnliði Middlesbrough, þrátt fyrir góðan sprett hjá Boro að undanförnu. Hann kemur því miður of seint. Heimasigur, Ipswich vann l:0 á útivelli. 5. Leeds : Stoke X (1X2) Þetta er einn af erfiðustu leikjum vikunnar. Það er orðið langt siðan Leeds vann sinn síðasta leik og Stoke vann sinn fyrsta sigur í I0 leikjum um helgina. Ætli ég reyni ekki við jafnteflið í þessum leik, en þrítryggi líka. Leeds vann í Stoke 2:1. 6. Liverpool: Notth. Forest 1° Fyrir 1—2 árum var þetta með mestu baráttuleikjum vetrarins, en ég á bágt með að sjá að Forest eigi nokkurn möguleika gegn Liverpool-vélinni núna. Ég sé ekki að neitt stöðvi Liverpool frá því að taka 13. titilinn. Hver hefði trúað því í nóvember? Heimasigur. Liverpool vann i Nottingham 2:0. 7. Manch. Utd.: Southampton 1 (1X2) Barátta tveggja liða sem bæði hafa að Evrópusæti að keppa, og stendur United þar sýnu betur að vígi. United vann nauman sigur um helgina en Southampton tapaði heima, að visu fyrir Liverpool. Ég ætla að spá United sigri en þrítryggja einnig. Southampton vann heima í hörkuleik 3:2. 8. Notts County : Birmingham 2 (1X2) ('ounty er með sitt á þurru og því hefðu víst fáir trúað í haust. Birmingham hresstust verulega um helgina og ætla sér ekki fallsæti. Eigum við ekki að slá til hér og spá þeim sigri, sinum fyrsta útisigri í vetur. Ég ætla þó til öryggis að hafa hann þrítryggðan. Birmingham vann heima 2:1. 9. Sunderland : Brighton 1° Sunderland hafa tímasett endasprettinn í stil við bestu knapa. Sigur hér léttir mestu pressunni af þeim þó að ekki megi slaka á fyrr en markinu er náð. Brighton tapar nú flestum leikjum svo ég ætla að spá þessum sigri. Brighton vann heima 2:1. 10. Swansea : Everton 1 (1X2) Swansea kvöddu endanlega titilvonirnar á laugardaginn, en geta þó ekki leyft sér að slaka á fyrr en Evrópusætið er í höfn. Everton voru friskir á laugardaginn og ungt lið þeirra gæti auðveldlega komið á óvart og stolið stigi eða stigum. Ég spái þó heimasigri en þrítryggi. Everton vann á Goodison 3:1. 11. Wolves : WBA X (1X2) Enn einn erfiður leikur milli tveggja nágrannaliða sem bæði eru að reyna að stinga falldrauginn af. Albion hafa tapað 8 síðstu leikjum en eru allt of góðir til að falla. Þeir hljóta að hrista þetta af sér og hvers vegna ekki gegn slöku liði l’lfanna. Ég þori þó ekki að spá þeim meiru en jafntefli, með þrítryggingu. Albion unnu í vetur 3:0. 12. Charlton : Watford 2 (1X2) Watford vantar nú aðeins 2—3 sigra í viðbót til að hafa 2. sætið í 2. deild tryggt. Stórsigur þeirra gegn Sheff. Wed. um helgina var athyglisverður. Charlton hefur lítið að spila fyrir en getur komið á óvart stundum. Spáin er útisigur með þrítryggingu. Fyrri leik lauk 2:2. LSG Gylfi Gautur Pétursson Gylfi Gautur verður eini fulltrúi sinnar ættar í keppninni og mun- um við gæta þess sérstaklega að hvergi verði á hann hallað í þetta sinn. © The Football League Leiklr 1. mai 1982 K L 2 1 Arsena! - West Ham omi 2 Aston V. - Manch. C. ! 3 Coventry - Tottenham z z 4 Ipswich - Middlesb. 7j 5 Leeds - Stoke oim 6 Liverpool - Nott'm F. 7 7 Man. Utd — Southam s Y T 8 Notts C. - Birmingh. / 2 z 9 Sunderland - Brighton 7 10 Swansea - Everton % 7 T 11 Wolves - W.B.A. / & T 12 Charlton - Wjtford JL X' 2 Gunnar Þjóðólfsson Gunnar hefur verið í miklu formi að undanförnu bæði í keppninni og hvað varðar eigin getraunaþátttöku. Nú veltur mikið á að sýna stöðugleika því loka- keppnin stendur aðeins í þrjár vikur. © Tho Football League Leikir 1. mai 1982 1 Arsena! - West Ham 2 Aston V. - Manch. C. 3 Coventry - Tottenham 4 Ipswich - Middlesb. 5 Leeds - Stoke 6 Liverpool - Nott'm F. 7 Man. Utd — Southam 8 Notts C. - Birmingh. 9 Sunderland - Brighton 10 Swansea - Everton 11 Wolves - W.B.A. 12 Charlton - Wutford Ari Gunnarsson Ari í Holunni mætir nú aftur til leiks eftir fjögurra vikna hvíld. Er ekki að efa að hann ætlar sér stærri hlut nú en áður enda var óheppni hans þá með ólíkindum. © The Football League Leikir 1. mai 1982 1 Arsena! - West Ham 2 Aston V. - Manch. C. 3 Coventry - Tottenham 4 Ipswich - Middlesb. 5 Leeds - Stoke 6 Liverpool - Nott'm F. 7 Man. Utd — Southam 8 Notts C. - Birmingh. 9 Sunderland - Brighton 10 Swansea - Everton 11 Wolves - W.B.A. 12 Charlton - Watford Magnús Ingimundarson Magnús er eini nýi keppandinn í þetta sinn. Hann hefur fylgt Manchester Utd., frá blautu barnsbeini. Eins og aðrir aðdáend- ur þeirra lifir hann enn á æva- gömlum minningum en lokar aug- unum fyrir árangri síðari ára. © The Football League Leikir 1. maí 1982 K \L 1 Arsena! - West Ham rmu 2 Aston V. - Manch. C. / □ □ 3 Coventry - Tottenham n tm 4 Ipswich - Middlesb. 7 5 Leeds - Stoke z 6 Liverpool - Nott'm F. / Z 7 Man. Utd — Southam 8 Notts C. - Birmingh. 7 X 7 9 Sunderland - Brighton X T 10 Swansea - Everton 7 7 11 Wolves - W.B.A. X T 12 Charlton - Watford \L z 2 Vitringarnir fjórir Nú eru aðeins þrjár vikur eftir af leiktimabilinu. Vitr- ingarnir hafa borið sig illa yftr leikreglum, telja ósanngjarnt að þeir fái bara að tippa á eina röð, meðan spámaðurinn hafi heilt kerfi til umráða. Þaö má til sanns vegar færa að ein röð segir ákaflega lítið til um getu tippara. í lokaumferðunum sitja vitringarnir þvi við sama borð og spámaöurinn. Þeir tippa á kerfi mánaðarins og þurfa því að finna fjóra fasta leiki, einn tvítryggöan og loks fá þeir að geta sér til um rétt U-merki á heiltryggðu leikjun- um. Fyrir fasta leiki fást 3 stig, 2 stig fyrir hvert rétt U-merki og fyrir þann hálftryggða eitt stig. Sturrock kjörinn leikmaður ársins SKOSKI landsliðsframherjinn l’aul Sturrock, sem leikur meö Ilundee Utd. var um síðustu helgi kjörinn knattspyrnumaður ársins í Skot- landi. Hinn 25 ára gamli markaskor- ari vann titilinn með meiri yfirburð- um en áður höfðu tíðkast í Skot- landi. Mörg lið í 1. deildinni ensku hafa áhuga á að fá Sturrock til liðs við sig. Vorhlaup ÍBK Keflvíkingar gangast fyrir víða- vangshlaupum í Keflavík 1. maí næstkomandi. Hefjast hlaupin við íþróttahöllina í Keflavík kl. 14. Keppt verður í fjórum flokkum, hlaupa karlar 5—7 km, konur 3—4 km, sveinar 3—5 km og telpur 1—3 km. Verðlaun verða veitt, en nánari upplýsingar gefur Jóhann Sveinsson, s. 92-2473 eða 92-3788. Þátttökutilkynningar þurfa að berast Jóhanni fyrir fimmtu- dagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.