Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
15
spígsporar um eins og strengja-
brúður sem haidið er uppi af því
sem er í tísku eða jafnvel því sem
er ekki í tísku og dansar í sam-
ræmi við það.
Og þó ekkert sé nema gott um
það að segja að halda líkamanum
sterkum og hraustum þá er það
óvirðing við manneðlið að líta á
sjálfan sig sem skrokk fyrst og
fremst og jafnvel lítið annáð.
I»ú ert maður
Ef einhver segði við mig: „Ég er
Jón Jónsson, þingmaður, faðir,
Reykvíkingur og listamaður,"
myndi ég svara: „Nei, góði minn,
þarna skjátlast þér heldur betur.
Þú ert maður, sem starfar á Al-
þingi, átt ef til vill nokkur börn,
vill svo til að býr í Reykjavík og
fæst við listsköpun við og við.
I>að besta, göfugasta
og sterkasta
Hvenær erum við þá mennsk?
Hvert er hið mannlega eðli okkar?
Daglegt mál gefur til kynna
merkingu þessara hugtaka. Við
tölum um mannréttindi, við tölum
með aðdáun um að einhver sé mik-
ill maður og segjum jafnvel með
undrun að Jón sé bara mannlegur
þrátt fyrir það að hann sé ráða-
maður.
Hið mennska eðli tekur til þess
sterkasta, besta og göfugasta í
okkur, þess sem gefur okkur til-
finningu um að vera virkilega lif-
andi.
Þetta eðli er að sjálfsögðu til
staðar í sérhverjum manni og
kemur fram þegar við finnum til
raunverulegrar tengingar við aðra
mannveru, eins og á stundum sem
við segjum gjarna um: „Það var
enginn veggur á milli okkar, við
vorum bara rétt eins og tveir
menn að talast við.“
Ef við gefum þessu nánar gaum
komumst við að raun um að við
verðum vör við hið mennska eðli
þegar við beinum athyglinni að
öðrum, að þörfum annarra, þegar
við gerum eitthvað fyrir aðra án
þess að ætlast til nokkurs í stað-
inn, þegar við skyggnumst bak við
grímu þingmannsins, ræstinga-
konunnar, lögreglumannsins, at-
vinnurekandans, verkamannsins
og hið rúnum rista andlit gamal-
mennisins og sjáum að einnig þar
er að finna þetta mannlega eðli.
Tvær leiðir
Reynslan sýnir okkur að það er
mögulegt að tengjast öðrum en
það gerist einungis þegar það
besta í okkur fær notið sín. I raun
höfum við um tvær leiðir að velja:
Önnur leiðir til aukinnar ein-
angrunar einstaklingsins, ótta og
andlegs vesaldóms í þjóðfélaginu.
Á þeirri leið er kaffært hið mann-
lega eðli og því fórnað á altari
ómerkilegrar og hlutkenndrar
ómennsku.
Hin er leið aukinna og bættra
tengsla, tilgangs, samstöðu og
gleði hjá einstaklingunum og
þjóðinni í heild. Þá leið fetum við
þegar við hættum að líta á okkur
sjálf og aðra sem hluti og vinnum
stefnufast og markvisst að því að
þróa það besta sem í okkur býr og
gefa öðrum tækifæri til hins
sama. Okkar er valið.
lngibjörg G. Guðmundsdóttir
leiðbeinandi í Samhygð.
Tónskóli Rangæinga
að ljúka vetrarstarfi
Tónlistarskóli Rangæinga er nú
að ljúka vetrarstarfi sínu. Nem-
endur í vetur voru 225 talsins úr
öllum hreppum sýslunnar. Kenn-
arar voru 13, þar af 6 fastráðnir.
Kennt er á 7 stöðum í sýslunni.
Skólinn er 7 mánaða skóli og lýkur
starfi sínu síðustu dagana í maí
með þrennum vortónleikum,
skólaslit og síðustu tónleikarnir
eru 1. maí.
Við Tónlistarskóla Rangæinga
eru starfandi kammersveit og
lúðrasveit. Einnig er starfandi
barnakór við skólann og mun
koma út hljómplata með söng
hans í byrjun sept. næstkomandi.
Tónleikar utanaðkomandi lista-
manna eru fernir á starfstíma
skólans, músíkfundir eru fernir og
jóla- og vortónleikar þrennir. Þá
hefur barnakórinn sjálfstæðan
konsert ár hvert. Formaður skóla-
nefndar er Sigurður Haraldsson
Kirkjubæ og skólastjóri er Sigríð-
ur Sigurðardóttir.
Línumenn og símsmiðir:
Ekki unnt að verða
við tilmælum símvirkja
- kosningasímarnir veröa settir upp
FJÖLSÓTTUR félagsfundur 6.
deildar Pósts og síma, línumanna
og símsmiða, samþykkti á laugar-
daginn að ekki væri unnt að verða
við tilmælum símvirkja um að
vinna ekki að uppsetningu kosn-
ingasíma. Vinnan væri nú þegar vel
á veg komin og því yrði að sjálf-
sögðu að láta jafnt yfir alla ganga.
Að öðru leyti tók fundurinn undir
með símvirkjum og mótmælti því
harðlega hvernig stjórnmálamenn
skertu tekjumöguleika Pósts og
síma með því að færa sjálfum sér
ríflega afslátt á þjónustu stofnun-
arinnar.
Fer ályktun fundarins orðrétt
hér á eftir:
Á fundi sem haldinn var hjá 6.
deild Pósts og sma þann 23. apríl
1982 var samþykkt einróma svo-
hljóðandi ályktun:
Því miður getum við ekki orðið
við þeim tilmælum símvirkja, að
vinna ekki við uppsetningu kosn-
ingasíma, því að það er nú þegar
vel á veg komið, og verður það að
sjálfsögðu jafnt yfir alla að
ganga.
Að öðru leyti tökum við heils
hugar undir með símvirkjum og
mótmælum því harðlega hvernig
stjórnmálamenn skerða tekju-
möguleika Pósts og síma.
Að lokum vekur þetta fordæmi
stjórnmálamanna eina spurn-
ingu: Hverjir eiga að greiða fullt
gjald fyrir þjónustu Pósts og
síma, ef ekki stjórnmálaflokkar?
Jafnframt viljum við fá að
nota tækifærið vegna misskiln-
ings sem við höfum almennt orð-
ið varir við hjá viðskiptavinum
Pósts og síma og upplýsa að það
eru línumenn og símsmiðir sem
sjá um allar símauppsetningar
hvort sem er i heimahúsum eða
fyrirtækjum.
Við sjáum einnig um allar
lagnir og tengingar hvort sem
um er að ræða jarðstrengi fyrir
heil hverfi eða innanhúslagnir,
mælingar og viðgerðir á jarð-
strengjum og öllum talfærabún-
aði hjá hinum almenna notanda.
(Einnig ýmis störf í sjálfvirkum
símstöðvum.)
FYRIRFERÐALÍTIL EN FULLKOMIN
Olympia SGE 45 rafritvélin hefur kosti stórrar skrifstofuvélar
þótt hún sé bæði minni og ódýrari. Fram og
aftur dálkaval, 44 lyklaborð, 8 endurtekn -
ingalyklar, hálft stafabil til
leiðréttinga o.m.fl.
Rétt vél fyrir þann sem
hefur Iftið pláss
en mikil verkefni.
Leitið nánari upplýsinga
o Olympia
mföfMmm KJARAISI HF [
ÁRMULI 22 - REYKJAVÍK - SÍMI 83022
Sala á lausum miAum og endurnýjun flokksmiða og ársmiða stendur yfir.
Miði er möguleiki
íbúðavinningur á 250.OOÖ krónur.
Bifreiðavinningur á 150.000 krónur.
8 bifreiðavinningar á 50.000 krónur.
565 húsbúnaðarvinningar á 1.000 og
5.000 krónur.
Dregið verður í 1. flokki
miðvikudaginn 5. maí.
25 utanferðir á 15.000 krónur.