Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 Hljómplötuútgáfa Steina hf.: íslenska útgáfan fær góðar viðtökur íltgáfa á íslenskum hljómplötum á vegum Steina hf. hefur verið meö meira móti það sem af er árinu og hafa allar plöturnar fengið góðar viðtökur, að því er segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Safnplöturnar „Næst á dagskrá" og „Beint í mark“ hafa selst vel, sú fyrrnefnda í yfir 4000 eintökum og hin síðarnefnda í yfir 6000 eintökum. Þá hefur Egó- platan „Breyttir tímar" farið bet- ur af stað en fyrri plötur sem Bubbi Morthens hefur verið við- riðinn til þessa, að sögn forráða- manna Steina hf., og benda þeir ennfremur á, að allt útlit sé fyrir áframhaidandi velgengni þar sem platan hafi fengið meiri spilun og nái til breiðari hóps en fyrri plöt- ur Bubba. Plötur sem Steinar hf. hefur tekið í dreifingu fyrir önnur út- gáfufyrirtæki hafa einnig gengið vel og má þar nefna plötu Þursa- flokksins, „Gæti eins verið ...“, sem nýlega kom út. Þá má nefna kvikmyndatónlistina úr „Rokk í Reykjavík", sem út kom á tveimur plötum fyrir skömmu og hafa þær plötur fengið góðar viðtökur. Þá er þess einnig getið í fréttatilkynn- ingunni, að plöturnar „Tass“ með Jóhanni Helgasyni og „Grýlurn- ar“, sem út komu fyrir síðustu jól, séu enn í góðri sölu og hið sama megi segja um plötu hljómsveitar- innar „Bodies". Þá mun lítil plata með „Valla og víkingunum", sem út kom fyrir skömmu, hafa fengið prýðilegar viðtökur. Ákveðin hefur verið útgáfa á fleiri íslenskum plötum á vegum Steina hf. nú á næstunni og má þar nefna plötur með hljómsveit- unum Þrumuvagninum og Bara- flokknum. Er vinnsla beggja þess- ara platna vel á veg komin. Þá er Gunnar Þórðarson, upptökustjóri söngflokksins „Þú og ég“, farinn Hljómsveitin Egó sendi nýlega frá sér nýja hljómplötu „Breyttir tímar“, sem hlotið hefur góðar viðtökur. utan til Lundúna til að undirbúa upptöku á nýrri plötu söngflokks- ins. Einnig má nefna að Jakob Magnússon er væntanlegur til landsins í maí með nýja plötu í pokahorninu. Sú plata er væntan- leg á markað innan tíðar, en end- anlegur útgáfudagur hefur enn ekki verið ákveðinn. NU TOKUM VIÐ FRAM TRESKONA HOLLENDINGAR ERU KOMNIR í VÍKINGASAL Hollenskir dagar 29/4 • 2/5 - HÓTEI, LOFTLEIÐUM Það verður líf í tuskunum á Hollendingakvöldum Hótels Loftleiða. Hollenskir harmonikuleikarar, átján manna dansflokkur frá HoUandi, ókeypis happdrætti með Amsterdamferð í vinning á hverju kvöldi, og túUpanar frá Amsterdam. Matseðill MENU HoUandse gerookte pahng Dutch smoked eel HoUenskur reyktur áU Groentesoep met vermiceUi en baUetjes VermiceUi soup with vegetables and meatbaUs Grænmetissúpa með vermiceUi og kjötboUum Ossetong met rozijnensaus Huzaraenslatje Ox tongue with raisins sauce Huzar's salad Nautatunga með nisinusósu Hússara salat Poffertjes Dutch puffs HoUenskar púffur Stuðlatrió leikur fyrir dansi Amsterdamferð í vinning Hollensk blómastemming: 1000 túUpanar frá Amsterdam. Blómaskreyting: Aad Groeneweg, Alaska Breiðholti. HoUenskar kvikmyndir í Auditorium: Lau. 1/5 kl. 13:00 -18:00. Matur framreiddur frá kl. 19:00. Borðapantanir í síma 22321 • 22322 P.S. Gestir okkar fá hoUenska postulínsskó við skenkinn og e.t.v. smádropa af þessu hoUenska,... þú veist. Verið veUtomin. HÚTEL LOFTLEIÐIR FLUGLEIDIR Tískusýning í kvöld kl. 21.30 Modelsamtökin sýna vor- og sumartízkuna frá Prjónastofunni löunni h/f. Forskoðun kynbótahrossa 1982 vegna landsmóts, fer fram eins og hér greinir: 26. apríl: Álftaver kl. 13, Kirkjubæjarklaustur kl. 16. 27. apríl: Fornustekkjavöllum kl. 13. 28. apríl: Á Mýrum. 29. apríl: I Suöursveit. 30. apríl: Vík Mýrdal kl. 10. Skógar kl. 14. 3. maí: Ftangárbakka viö Hellu kl. 13—19. 5. maí: Flúöir (Torfdalur) kl. 10—16 fyrir Flreppa og Skeið. 6. maí: Selfoss kl. 10—16 fyrir Flóa, Ölfus, Hveragerði og Þorlákshöfn. 10. maí: Kjósarhreppur kl. 10, Akranes kl. 14. 11. maí: Sigmundarstaðir kl. 10—18. 12. maí: Faxaborg (eöa Hvanneyri) kl. 13—18, Stakkhamar kl. 21. 13. maí: Grundarfjörður kl. 10, Stykkishólmur kl. 15. 14. maí: Búöardalur kl. 13, Broddanes kl. 21 (fundur). 15. maí: Hólmavík kl. 10, Bæjarhreppur kl. 16. 17. maí: Mosfellssveit kl. 18—22. 18. maí: Keflavík kl. 10, Kópavogur kl. 15—19. 19. maí: Hafnarfjöröur og Garöabær kl. 13—18. 20. maí: Víöivellir í Reykjavík kl. 9—18. 21. —22. maí: löavellir fyrir allt Austurland. 24. maí: Holt, V-Eyjafjöllum kl. 13, v. afkvæmasýningar. 27. maí: Torfastaöir, Bisk, kl. 9, Bjarnastaðir, Grímsn. kl. 15. 28. maí: Sýning og úttekt á stóöhestum í Gunnarsholti kl. 14. 2. júní: Lækjarmót, V-Hún. kl. 14. 3. júní: Stóra-Giljá, A-Hún. kl. 10. • 4. júní: Hólar, Hjaltadal kl. 9. 5.—6. júní: Héraðssýning Vindheimamelum, Skag. 7-—júní: Þingeyjarsýslur (ákv. nánar af stjórnum félaga). 10. júní: Ólafafjörður kl. 11, Dalvík kl. 17. 11. —12. júní: Melgerðismelar, Eyjafirði. Skráningareyöublöö fyrir kynbótahross fást á skrifstofum Búnaö- arsambanda og hjá ráöunautum og formönnum hestamannafélaga. Ber aö fylla þau nákvæmlega út og afhenda dómnefnd um leiö og hrossum er framvísaö til forskoöunar (dóms). Sé hross endursýnt, veröur að leggja fram eldri dóma (þá nýjustu) um leiö, svo hægt sé að ákveöa á staönum, hvort þaö kemst áfram á landsmót eöa ekki. Dómnefnd áskilur sér rétt til aö vísa frá, hrossum, sem ónógar upplýsingar fylgja. . ... . Bunadarfelag Islands Hrossaræktarráóunautur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.