Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
27
I'yrla varnarliösins lenti á þyrlupalli viö Borgarspítalann síödegis i g»r, eftir aö hafa sótt skipverja á finnsku
olíuskipi sem statt var um 160 milur aust-suðaustur af Vestmannaeyjum.
Varnarliðsþyrla í sjúkraflugi:
Sótti slasaðan skip-
verja í finnskt skip
Slysavarnafélagi íslands barst
beiðni laust eftir kl. 9 í gærmorgun
frá Skipamiölun Gunnars Guðjóns-
sonar um aöstoö vegna slasaðs
skipverja á finnska oliuskipinu
Palva er statt var um 160 mílur
austsuðaustur af Vestmannaeyjum
á leiö til Grænlands. Hafði 24 ára
kona fallið í stiga og við það brotn-
að illa á upphandlegg og meiðst í
baki.
Hannes Þ. Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarnafélags-
ins tjáði Mbl. að samkvæmt ráði
læknis á Borgarspítala, er hafði
samband við skipið um Hafnar-
radíó, hefði verið leitað til varn-
arliðsins um aðstoð, en liðinn
var þá um hálfur sólarhringur
frá því skipverjinn meiddist.
Hélt þyrla af stað um hádegisbil
ásamt eldsneytisflugvél og var
komin að skipinu um kl. 14. Sigu
læknir frá sjúkrahúsinu á Kefla-
víkurflugvelli og sjúkraliði niður
í skipið, bjuggu slasaða skipverj-
ann undir flutninginn og lenti
þyrlan við Borgarspítalann í
Reykjavík um kl. 17:20.
Vinstri meirihlutinn í stjórn SVR:
Ikarusvagnarnir áfram í
2—3 mánuði til reynslu
- gegn vilja 118 vagnstjóra af 134 hjá fyrirtækinu
STJÓRN Strætisvagna Reykjavík-
ur, SVR, samþykkti á fundi sínum
í gærdag, að Ikarusvagnarnir
svonefndu verði áfram í akstri hjá
SVR til reynslu í 2—3 mánuði og
var tillögu vagnstjóra um að selja
vagnana um leið hafnað, en 118
Fimm tilboð bárust í fram-
kvæmdirnar við kafla á Vestur-
landsvegi: Borgarverk hf., Borg-
arnesi, kr. 4,65 m.kr., Hlaðbær
5,93 m.kr., Loftorka 6,59 m.kr.,
Mekor 6,75 m.kr. og frávikstilboð,
þ.e. ekki var boðið í alla verkþætti,
frá Miðfelli 3,27 m.kr. Kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar var
rúmar 5 millj. króna.
Sjö tilboð bárust í framkvæmd-
ir við nokkra káfla á Norður-
vagnstjórar af 134 höfðu skrifaó
undir ályktun þess efnis.
Aheyrnarfulltrúi vagnstjóra í
stjórn SVR lagði tillögu fram 22.
marz sl. þess efnis, að vagnarnir
yrðu seldir nú þegar, þar sem
þeir hentuðu ekki rekstri SVR.
landsvegi: Borgarverk 5,80 m.kr.,
Grétar Olafsson 4,72 m.kr., Hlað-
bær 6,77 m.kr., Loftorka 6,31
m.kr., Mekor 4,49 m.kr. og tvö
frávikstilboð: Hegranes 2,41 m.kr.
og Miðfell 11,54 m.kr., en þar var
einnig reiknuð olíumöl. Kostnað-
aráætlun Vegagerðarinnar var
4,15 m.kr. Verið er að ganga frá
lokaathugunum á tilboðunum hjá
Vegagerð ríkisins og liggur því
senn fyrir ákvörðun um hvaða til-
boðum verður tekið.
Málið var síðan dregið á langinn,
en var loks tekið fyrir á stjórn-
arfundi 21. apríl sl. Þá lagði full-
trúi Alþýðuflokksins í stjórninni
fram viðbótartillögu við tillögu
vagnstjóranna, þar sem lagt var
til, að vögnunum yrði skilað, en
seldir ella.
Guðrún Ágústsdóttir, fulltrúi
Alþýðubandalagsins og formað-
ur stjórnarinnar, fór hins vegar
fram á frestun málsins um enn
eina viku á þeirri forsendu, að
stjórnarmenn gætu kynnt sér
málið enn betur, m.a. kynnt sér
athuganir, sem Eiríki Ásgeirs-
syni, forstjóra SVR, var falið að
gera á reynslu vagnanna í akstri
hjá SVR.
Á fundinum í gærdag gerðist
það svo öllum á óvart, að fulltrúi
Alþýðuflokksins hafði alveg snú-
izt í málinu og lagði nú fram
tillögu þess efnis, að bílarnir
yrðu enn í akstri til reynslu hjá
SVR í 2—3 mánuði, áður en tek-
in yrði ákvörðun um framhaldið,
þvert ofaní vilja þorra vagn-
stjóra, eins og áður sagði.
Var þessi tillaga alþýðu-
flokksmannsins samþykkt með
atkvæðum fulltrúa Framsóknar-
flokksins og Alþýðubandalags-
ins, gegn atkvæðum tveggja full-
trúa Sjálfstæðisflokksins, sem
töldu eðlilegt að taka tillit til
framkominna óska starfsmanna.
Sjö aðilar bjóða í
vegagerð á Vest-
ur- og Norðurlandi
OPNUÐ hafa verið tilboð hjá Vegagerð ríkisins í framkvæmdir á Vestur-
landsvegi og Norðurlandsvegi. Er um að ræða undirbyggingu, klæðningu og
lagningu slitlags. Bárust fimm tilboð i annað útboðið og sjö í hitt. Fram-
kvæmdir við Vesturlandsveg eru við Hafnarveg, Vatnsleysustrandarveg, í
Hvalfirði og Melasveit og á Norðurlandsvegi er m.a. um að ræða fram-
kvæmdir í Húnavatnssýslum.
Chloride
Rafgeymanámskeið
Viðhalds- og viðgerðarnámskeið á ratgeymum er haldið í
húsnæði okkar að Einholti 6, Reykjavík, alla daga ársins.
Námskeiðið er um meðferð og viðgerðir á öllum tegund-
um rafgeyma — ræsirafgeymum — drifrafgeymum — og
neyðarlýsingarafgeymum.
Námskeiðið er öllum viðskiptavinum okkar opið meö
stuttum fyrirvara, hvaðan af landinu sem er. Viðskiptavin-
ir okkar í dreifbýlinu geta þessvegna algjörlega haft sína
hentisemi hvenær sem þeir óska eftir tilsögn um meðferö
rafgeyma.
Nýtið tækifærið — fáið tilsögn frá mönnum með yfir 20
ára starfsreynslu.
Rafgeymaverksmiðjan Pólar hf.
Sími 18401.
Alltaf
eitthvað gott
á prjónunum
Prefcioo
KÍNVERSKA VEITINGAHÚSIÐ
LAUGAVEGI 22 SÍMI13628
til
1á“ og 1“ borvélar
afgreiðslu strax.
G. Þorsteinsson
& Johnson,
Ármúla 1, sími 85533.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
Nú hef ur
þú efni d
að eignast
C02 raf-
suðuvélina
sem þig
hefur lengi
langað i
Spuiðu urn
fÆSp"
Gæði kosta peninga, ailir eru
sammála um það. Þess vegna
hafa ESAB ratsuðuvélarnar
verið dálítið dýrari en aðrar raf-
suðuvélar.
En nú hefur ESAB tekist að
lækka verðið þrátt fyrir sömu
gæði, með því að stórauka
framleiðsluna.
Talið við okkur um verð á út-
þúnaðinum sem þig hefur lengi
langað í.
Þeir sem reynslu hafa af rat-
suðu velja
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2. REYKJAVlK
EF ÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU