Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF — umsjón Sighvatur Blöndahl Heimsframleiðslan á sykri: Er 3,4 millj. t. umfram þörf „ÞAÐ MÁ í RAIJN segja, að sykurmarkaöurinn sé að verða súr,“ segir í nýlegu hefti brezka tímaritsins „The Economist“. í frétt tímaritsins segir, aö nýjustu spár varöandi sykurframleiösluna á framleiðslutímabilinu 1981 — 1982 séu þær, að framleiðslan veröi um 94,2 milljónir tonna, en þaö er um þaö bil 3,4 milljónum tonna meira, heldur en reiknaö er meö að eftirspurnin veröi. Þá segir í frétt tímaritsins, að Þá segir blaðið frá þeirri verð á sykri hafi lækkað um 20% þróun, að væntaniega muni frá því í janúar sl., en í dag kost- Bandaríkjamenn, sem hafa verið ar sykurtonnið 141 sterlingsp- stærstu innflytjendur sykurs í und og hefur það ekki verið á heiminum, setja á innflutnings- iægra verði í liðlega 2‘/2 ár. kvóta á þessu ári. Ice. Kr 10 UTSÖLUVERÐ BENSÍNLÍTRA 59 70 72 74 Þróun benzínverðs: Félagarnir Gunnar Steinn Pálsson, t.v. og Gunnar Gunnarsson í hinum nýju husakynnurn Auglýsingaþjónustunnar. NZ t Augiýsingaþjónustan flytur í nýtt húsnæði: Gjörbylting á allri vinnuaðstöðu okkar - segir Gunnar Steinn Pálsson, annar aðaleigandi stofunnar AuglýsingaÞjónustan hf. flutti nýverið i nýtt húsnæði að Skúla- túni 4, en að sögn Gunnars Steins Pálssonar, annars aðaleiganda fyrirtækisins, varð um ieið gjör- bylting á allri vinnuaöstööu, því í eldra húsnæði fyrirtækisins var orðið þröngt um mannskapinn samfara fjölgun starfsmanna og auknum umsvifum fyrirtækisins. „Nýja húsnæðið er 300 fermetr- ar að stærð, innréttað með Facit- húsgögnum og tækjum á skrifstof- unni, en innréttingar á teiknistofu smíðuðu þeir Guðbjörn Gunnars- son og Hannes Tómasson, innan- húsarkitekt var Heiða Jóhannes- dóttir," sagði Gunnar Steinn enn- fremur. Aðaleigandi Auglýsingaþjón- ustunnar hf. ásamt Gunnari Steini er Gunnar Gunnarsson, en alls starfa nú hjá fyrirtækinu 13 starfsmenn við teikni- og skrif- stofustorf, textahönnun og fleira. Gunnar Steinn sagði, að einkum væri unnið fyrir fasta viðskipta- vini og á meðal þess sem kemur inn á borð stofanna mætti nefna auglýsingagerð fyrir dagblöð og tímarit, hönnun og framleiðslu á sjónvarpsauglýsingum, útvarps- auglýsingar, gerð bæklinga, hönn- un firmamerkja, uppsetning sýn- ingarbása, framleiðsla kynn- ingarkvikmynda, markaðsráðgjöf og almenningstengsl og margt fleira. Auglýsingaþjónustan hf. er ein af átta auglýsingastofum, sem eiga aðild að SÍA, Sambandi ís- lenzkra auglýsingstofa. Til allra SIA-stofa eru gerðar ákveðnar kröfur um alhliða þjónustu á sviði auglýsingagerðar og markaðs- ráðgjafar og á SÍ A-stofum er unn- ið eftir alþjóðlegum siðareglum auglýsingástofa um sannsögli, heiðarleika og velsæmi í hvers konar kynningarstarfsemi. Á veg- um SÍA er reglulega framkvæmd sérstök fjölmiðlakönnun og ýmsar athuganir aðrar gerðar, sem tengjast auglýsingum hérlendis og erlendis," sagði Gunnar Steinn Pálsson ennfremur. Hefur hækkað um ríflega 916% frá ársbyrjun 1978 - Framfærsluvísitala um 400% - Vísitala byggingarkostnaðar um 416,5% EINS og sést á meðfylgjandi súlu- riti var hækkun á útsöluverði benzíns fremur hæg og stígandi á árunum 1969 til 1972, en árið 1973 kemur nokkur kippur og hækkar síðan jafnt og þétt fram til ársins 1978, þegar hraðinn vex og virðist ekkert lát vera á hækk- unum enn í dag. í ársbyrjun 1978 kostaði hver lítri benzíns 0,93 krónur, en í upphafi þessa árs kostaði hver lítri benzíns 9,45 krónur. Verðið hefur þvj á þessum fjórum árum ríflega tífaldast, eða ef mælt er í prósentum, þá hefur benzínlítrinn hækkað um liðlega 916% á fjórum árum. Til samanburðar má geta þess, að framfærsluvísitalan hækkaði frá 1. febrúar 1978 til 1. febrúar 1982 úr 936 stigum í 4.678 stig, eða um „aðeins" 400%. Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði á tímabilinu 1. janúar 1978 til 1. janúar 1982 úr 176 stig- um í 909 stig, eða um liðlega 416,5%. Á þessum tölum sést því greini- Iega, að benzínverð hefur hækkað ríflega helmingi meira en fram- færsluvísitala og vísitala bygg- ingarkostnaðar á umræddu tíma- bili. Það þýðir í raun, að benzín- verðið hefur hækkað um ríflega helmingi meira en verðbólgan í landinu. Uppsláttarritið „íslenzk fyrirtæki“ komið á markað UPPSLÁTTARRITIÐ „íslenzk fyrir- tæki“ er nú komið út og er útgáfan sú tólfta í röðinni, en það er útgáfu- fyrirtækið Frjálst framtak, sem gef- ur bókina út. Martha Eiríksdóttir, ritstjóri bókarinnar, sagði í samtali við Mbl„ að bókin hefði að geyma ítarlegri upplýsingar en nokkru sinni fyrr, en hún er um 1.000 blaðsíður. „íslenzk fyrirtæki er nú eina bókin sinnar tegundar hér á landi og þjón- ar jafnt innlendum markaði sem er- lendum aðilum, sem áhuga hafa á upplýsingum um ísland og viðskipt- um við íslendinga,“ sagði Martha ennfremur. I bókinni er að finna nöfn starf- andi fyrirtækja, stofnár þeirra, heimilisfang, síma, nafnnúmer, söluskattsnúmer, telexnúmer, starfssvið, stjórn, helztu starfs- menn, starfsmannafjölda, umboð, þjónustu og framleiðslu. Einnig upplýsingar um sveitarfélög, stofnanir, félög, sendiráð og fleira. íslenzk fyrirtæki skiptist niður í eftirfarandi meginkafla: Fyrir- tækjaskrá yfir fyrirtæki, félög og stofnanir í Reykjavík og nágrenni og síðan er landsbyggðin í staf- rófsröð þar fyrir aftan. I fyrir- tækjaskránni eru fjölmörg firma- merki og vörumerki. I vöru- og þjónustuskránni eru upplýsingar um tvö þúsund vöru- flokka og þjónustu og hvar sé hægt að fá viðkomandi vöru eða þjónustu. Nánari upplýsingar er að finna um fyrirtækin í fyrir- tækjaskránni. Umboðsskráin greinir frá fjögur þúsund umboð- um og umboðsmönnum. Skipa- skráin er eina skráin, sem veitir upplýsingar um íslenzk skip, ein- kennisstafi, eiganda eða útgerð- armann og símanúmer og nafn- númer viðkomandi aðila. í kaflanum „Iceland today (hints to business men) eru upp- lýsingar fyrir erlenda kaupsýslu- menn um viðskiptamál á Islandi, reglur um hvernig skipta megi við Island auk upplýsinga um íslenzk- ar útflutningsvörur og íslenzka útflytjendur. Martha sagði, að vegna vaxandi áhuga erlendra aðila á viðskipta- legum upplýsingum um ísland verði íslenzk fyrirtæki sérstaklega kynnt í flestum Evrópulöndum í tengslum við Útflutningsmiðstöð iðnaðarins. „íslenzk fyrirtæki er unnin í samstarfi við stjórnendur fyrirtækjanna sem skráð eru í bókina og ferðuðust starfsmenn Frjáls framtaks um allt land á meðan bókin var í undirbúningi, sagði Martha Eiríksdóttir enn- fremur. Þá má geta þess, að um- sjón með vinnslu bókarinnar hafði Erla Einarsdóttir." Loks kom það fram í spjallinu við Mörthu, að í þessari nýju út- gáfu er um 40% magnaukningu upplýsinga að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.