Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982 Æviskrár samtíðarmanna: Fyrsta bindið af þremur komið út hjá Skuggsjá KOMIÐ er út fyrsta bindi bókarinn- ar /Gviskrár samtíðarmanna hjá Nkuggsjá í Hafnarrirði. Síðustu tvö árin hcfur verið unnið að útgáfu þessa uppsláttarrits og er það hlið- stætt ritunum Hver er maðurinn, sem Rrynleifur Tobíasson tók saman, og fslenskir samtíðarmenn, sem sr. Jón Guðnason og Pétur Haraldsson rit- stýrðu. /Gviskrám samtíðarmanna rit- stýrði Torfi Jónsson fyrrum lögreglu- fulltrúi. Gert er ráð fyrir að Æviskrár samtíðarmanna verði í 3 bindum. í fyrsta bindinu, sem er nærri 700 bls., eru æviskrár nærri 2 þúsund núlifandi Islendinga og býst útgef- andi við að alls verði í bindunum þremur æviskrár um það bil 6 þús- und karla og kvenna. Fyrsta bindið hefur að geyma æviskrár þeirra er bera nöfn sem byrja á stöfunum A—H. í öðru bindinu, sem ráðgert er að komi út á hausti komanda, verða nöfn sem byrja á I—R og í síðasta bindinu nöfn S—0, en það mun koma út vorið 1983. Því mun fylgja viðauki með æviskrám þeirra er bera nöfnin A —R og hafa af einhverjum ástæðum orðið úti í tveimur fyrri bindunum. En æviskrár hverra eru í ritinu? í frétt Skuggsjár segir m.a.: „Við val manna í Æviskrár samtíðar- manna hefur verið farið eftir þeirri meginreglu að birtar eru æviskrár núlifandi karla og kvenna, sem gegnt hafa eða gegna meiriháttar opinberum störfum í þágu ríkis, höfuðborgar, bæjar- og sveitarfé- laga. Ennfremur athafnamenn, forstöðumenn og aðrir trúnaðar- menn fyrirtækja í ýmsum starfs- greinum, forvígismenn í félagsmál- um og annarri menningarstarf- semi, rithöfundar og listamenn, sem viðurkenningar hafa hlotið og ýmsir fleiri, sem ekki er unnt að gera skil í stuttu rnáli." Oliver Steinn Jóhannesson eig- andi Skuggsjár tjáði Mbi. að nú væri unnið af fullum krafti við framhaid ritsins. Sagði hann það von útgefenda að þeir sem á ný hefðu fengið senda spurningalista um þessar mundir eða ættu eldri lista, sem þeir hefðu ekki svarað, myndu senda hinar umbeðnu upp- lýsingar hið fyrsta ef takast ætti að halda framangreindri áætlun um útgáfuna. Öllum, sem æviskrá eiga í ritinu, var gefinn kostur á að eignast ritið á áskriftarverði og hefur það verið sent í póstkröfu til manna, en þeir sem ekki vildu fá bókina heimsenda geta vitjað hennar hjá útgáfunni. Einnig er hún til sölu í bókaverslunum. Setn- ingu, filmuvinnu og prentun ann- aðist Prisma sf. og um bókbandið sá Bókfell hf. Jazz í Djúpinu í kvöld Kvartett Kristjáns Magnússonar skipa frá vinstri: Bjarni Hveinbjörnsson, Guömundur K. Einarsson, Kristján og Þorleifur Gíslason. Einhamar reisir 25 einbýlis- og parhús Einhamar sf. er um þessar mundir að byggja 25 einbýlishús og parhús við Kögursel 2—50 og í Breiöholti. Reisugildi var haldiö skömmu fyrir páska og voru húsin þá sýnd frétta- mönnum. Hér er um að ræða 9 einbýlis- hús, 161,6 fm á tveimur hæðum, og 8 parhús með tveimur aðskildum íbúðum í hverju húsi, 133,5 fm á tveimur hæðum. Húsin eru í fok- heldu ástandi fullfrágengin að utan með gleri og útihurðum og einangruð að hluta, þá fylgir bíl- skúrsplata, að frátöldu einu húsi, sem var selt fullgert með bílskúr. Þegar lóðunum var úthlutað var Einhamri sf. gefinn kostur á því að taka þátt í deiliskipulagi á svæðinu. Deiliskipulagið var unnið af Teiknistofu Knúts Jeppesen undir yfirstjórn borgarskipulags. Strax í upphafi tókst góð sam- vinna með þátttakendum Einham- ars sf., sem eru: Ólafur H. Pálsson, Gissur Símonarson, Bragi Sigur- bergsson, Guðmundur Björnsson og Magnús Arnason, sem leiddi til þess, að Knúti Jeppesen var falið að teikna húsin ásamt þeim Arna Friðrikssyni og Páli Gunnlaugs- syni. Húsin eru verksmiðjufram- leidd. Um framkvæmdir á bygg- ingarstað hefur séð Bragi Sigur- bergsson, húsasmíðameistari. Múrarameistari er Ólafur H. Pálsson. Verkfræðingur er Sveinn G. Sveinsson. Um sölu á húsunum hefur Fast- eignamarkaður Fjárfestingafé- lagsins hf., Skólavörðustíg 11, Rvík, séð. Óánægja í Siglufirði með drög að reglugerð um flokkun sjúkrahúsa: Skerðir þjónustuna og enginn sparnaður - segir Sigurður Fanndal um fyrirhugaða breytingu á Sjúkrahúsi Siglufjarðar NEFND á vegum heilbrigðisráðuneytisins hefur sent frá sér drög að reglu- gerö um flokkun sjúkrahúsa landsins, en með henni er tekin upp eins konar verkaskipting sjúkrahúsanna og þeim markaöur ákveðinn bás i heilbrigðis- kerfinu, eins og Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri heilbrigðismálaráðuneytis- ins orðaði það. Landssambandi sjúkrahúsa var falið að kynna drögin fyrir stjórnum sjúkrahúsa landsins og leita álits þeirra og ráðgerði Haukur Bene- diktsson formaður þess að greinargerð landssambandsins færi til ráðuneytis- ins um eða eftir næstu helgi. Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri taldi ekki ríkja óánægju meðal stjórnenda sjúkrahúsa á Reykja- víkursvæðinu með reglugerðar- drögin, en á nokkrum stöðum úti á landi kvað hann óánægju hafa gætt með þessa flokkun sjúkra- húsa, t.d. á Bolungarvík, Siglu- firði, Egiisstöðum og Selfossi. Sjúkrahúsið á Siglufirði, sem nú telst vera almennt sjúkrahús, á samkvæmt reglugerðardrögunum að vera hjúkrunarheimili. Þar eru nú starfandi 2 heilsugæslulæknar og einn sérfræðingur í skurðlækn- ingum auk hjúkrunarliðs. Gert er ráð fyrir að lögð verði niður staða skurðlæknisins og því yrðu Sigl- firðingar að leita til annarra sjúkrahúsa með ýmsar aðgerðir, sjúkdóma og neyðartilvik. Sigurð- ur Fanndal formaður stjórnar Sjúkrahúss Siglufjarðar sagði um þessar hugmyndir: — Okkur finnst sem þessi reglu- gerð hljóti að vera samin af ein- hverjum sem ekki þekkja vel til, því sérstaða okkar Siglfirðinga er sú að í einangrun okkar t.d. yfir veturinn er óhægt um vik með að leita til annarra sjúkrahúsa. Ef af þessum hugmyndum verður mun þjónusta sjúkrahússins við Sigl- firðinga skerðast að mun, en hér hefur verið starfandi skurðlæknir frá því fyrir 1940. Þykir okkur geysilegt öryggi í því að hafa hann hér, enda iðulega sem hann þarf að sinna konum í barnsnauð, botnlangasjúklingum og slysum og iðulega er íllfært hér bílum sem flugvélum til að ferðast með sjúka og því teljum við allar hugmyndir um að minnka þjón- ustu sjúkrahússins hér mjög vafa- samar. Þá sýnist mér enginn sparnaður verða af þessu, því hér verða áfram tveir af þremur lækn- um, sama hjúkrunarlið þarf og eitthvað hljóta auknir flutningar á sjúklingum að kosta. Nýtingin á sjúkrahúsinu er milli 80 og 90%, en á sjúkrahúsun- um í nágrenni okkar, þ.e. Akureyri og Sauðárkróki er nýtingin yfir 100%. Okkur finnst því undarlegt ef færa á sjúklinga frá sjúkrahúsi, sem ekki er fullnýtt, á önnur sjúkrahús, sem eru fullnýtt fyrir. Og hræddur er ég um að verði af þessum hugmyndum muni bresta flótti í liðið, sagði Sigurður Fann- dal að lokum. „Musical theater“ í Reykjavík: Dans- og söngleikhúsi komið upp í höfuðborginni Hópur fólks í Reykjavík hefur ákveðið að stofna félag er hafi það að markmiði að koma upp dans- og söngleikahúsi i Reykjavik. Undirbún- ingsstofnfundur var haldinn hinn 15. apríl síðastliðinn, en stofnfundur verður haldinn hinn 16. maí nk. Á biaöamannafundi í gær með undirbún- ingsnefnd að stofnun félagsins kom fram, að tilgangurinn með stofnun félagsskaparins er þríþættur: I fyrsta lagi að skapa að jöfnti atvinnugrundvöll fyrir dansara, hljóðfæraleikara, leikara, söngv- ara, rithöfunda og fleiri, undir merki dans- og söngleikhúss. í öðru lagi að reka þjálfunarstöð eða skóla fyrir fólk sem vill geta sungið, dansað og leikið á sviði jöfnum höndum. í þriðja lagi væri einn megintilgangur félags- ins að auðga menningarlíf þjóð- arinnar. A undirbúningsstofnfundinum á sínum tíma var kjörin sjö manna framkvæmdanefnd til að koma málinu af stað, og skipa hana eftirtalin: Árni Scheving hljóðfæraleikari, formaður, Auður Haralds rithöfundur, Fanney Gunnlaugsdóttir dans- ari, Guðni Guðnason listamaður, Bára Magnúsdóttir skólastjóri, Rósa Ingólfsdóttir auglýsinga- teiknari og Birgir Gunnlaugsson hljóðfæraleikari. Kveikjan að stofnun félagsins nú er að aðstandendur söngleiks- ins Jazz-inn buðust til að gefa félaginu allan ágóða af sýning- um hópsins. Standa vonir til að þegar haldið verði áfram með sýningar í haust megi safna það miklu fé að félagið geti sett sitt fyrsta verk á svið. Þessa dagana er verið að leita að heppilegu húsnæði til leigu, og koma þar einkum þrjú hús til greina að sögn Báru Magnúsdóttur. Ekki væri þó unnt á þessu stigi að segja til um hvaða hús það væru. Hús af þessu tagi sagði Árni Scheving að þyrftu að vera með stærra sviði en nú væri fyrir hendi hér á landi. Aðstandendur dans- og söng- Frá blaðamannafundinum á Hótel Högu i gær, þar sem tilkynnt var um stofnun félags til að reka dans- og söngleikahús í Reykjavík. LjÓHm: Kri.stján KinarsNon. leikhússins kváðust þess full- vissir að hér á landi væri þörf á og mikill áhugi á að gera draum sem þennan að veruleika. Hér væri margt hæfileikafólk fyrir hendi, finna þyrfti fleira og vinna að því að hér mætti setja upp innlend sem erlend verk, „alvöru söngleiki". Tími væri til kominn að í Reykjavík starfaði sterkt dans- og söngleikhús, „musical theater" eins og þekkt væri víða erlendis. Ákveðið hefur verið að efna til hugmyndasamkeppni um nafn á fyrirhuguðu leikhúsi, þar sem fyrirtækið Japis mun gefa ferða- kassettutæki fyrir þrjár bestu hugmyndirnar. Tillögum ber að skila í pósthólf 677 í Reykjavík fyrir 13. maí nk. merkt „Nýtt nafn“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.