Morgunblaðið - 29.04.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
7
Utankjörstaðakosning
Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæöisflokksins,
Valhöll, Háaleitisbraut 1,
símar 86735 — 86847 — 86747.
Upplýsingar um kjörskrá o.fl.
Sjálfstæöisfólk! Vinsamlegast látiö skrifstofuna vita
um alla kjósendur, sem ekki veröa heima á kjördegi.
Utankjörstaöakosning fer fram aö Fríkirkjuvegi 11
alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
Sunnudaga kl. 14—18.
TUDOR
RAFGEYMAR
Laugavegi I80 sími 84I60
73>L&amall:adutinn
c^-iattiSQÓtu 12-18
SÝNISHORN
ÚR SÖLUSKRÁ:
Mazda 626 — 2000 1982
Gullsanseraöur., ekinn 3 þús. 5
gíra. Verö 135 þús.
M. Benz 230 1974
Gulur ekinn 117 þús., útvarp,
segulband, snjó- og sumardekk.
Verö 96 þús.
Mazda 929 1980
Grænn, ekinn 35 þús., sjálfskipt-
ur, aflstýri, útvarp, snjó- og
sumardekk. Verö 130 þús.
Toyota Corolla
Liftback 1979
Oranze ekinn 47 þús., útvarp og
segulband. Verö 90 þús.
Chevrolet Malibu
Classic 1979
Svartur og grár, 8 cyl., ekinn 20
þús., sjálfskiptur, aflstýri, útvarp,
snjó- og sumardekk. Verö 160
þús.
Einnig Malibu Sedan 1979 6 cyl.,
ekinn 19 þús. Verö 145 þús.
Dodge Aspen 1979
Brúnn m/víniltopp, 8 cyl. (318),
sjálfskiptur m/öllu. Verö 145 þús.
Honda Accord 1981
Dökkblár, ekinn 14 þús., 5 gíra,
útvarp. Verö 138 þús.
ty*ymt. < •1 *
Toyota Carina 1981
Rauöur, ekinn 9 þús., sjálfskipt-
ur, útvarp og segulband. Verö
130 þús.
rrnrwvm* -r *■
Wagoner 1978
Grár, ekinn 50 þús., vél 360,
sjálfskiptur, aflstýri, útvarp, seg-
ulband, upphækkaöur og gróf
dekk. Verö 165 þús.
.prtllMl I.JODVIUIINN - SID* 5
j~Samþykkt aðalfundar verkalýðsmálaráðs Alþvðubandalagsins:_j \
Kosningamar í vor eru
j kjarabarátta
: Styðjum kröfur verkalýðssamtakanna
Kosningabarátta Alþýðubandalagsins
Engu er líkara en kommúnistar telji örlög sín þegar ráöin og þeir
muni bæöi tapa forystunni í borgarstjórn og ríkisstjórn, þeir átta sig
jafnframt á því, að þá er aðeins eftir forystan í verkalýöshreyfing-
unni. Kosningabarátta Þjóöviljans vegna sveitarstjórnarkosn-
inganna snýst í raun um stööu kommúnista í verkalýöshreyfingunni.
Var þetta meðal annars staöfest á aöalafundi verkalýösráös Al-
þýöubandalagsins á sunnudaginn. Ekki hefur veriö skýrt frá ræöu
formanns þess ráös, Benedikts Davíössonar, í Þjóöviljanum. Ekki
er ólíklegt, aö hann hafi skýrt félögum sínum frá nýlegri ferö sinni til
Kúbu á þing alþjóða verkalýössambands kommúnista, þar sem
þeir voru heiöraöir, Brezhnev og Castro, fyrir vináttu við alþýðuna.
Á þinginu um helgina var Svavar Gestsson sérstaklega heiöraöur
fyrir vináttu viö alþýöuna, ef marka má Þjóðviljann. Nú er upplýst,
að Castro fái yfir 8 milljónir dollara á dag frá Kremlverjum til að
viöhalda gjaldþrota kerfi sínu — kannski er þaö sú lausn á efna-
hagsvanda islendinga, sem kommúnistum er kærust? /Etli þeir þori
aö segja þaö í kosningabaráttunni? Eftir ferð sína til Kúbu sagði
Benedikt Davíösson á hinn bóginn: „Merkasta ferö sem ég hef
farið.“
Álið í Kaup-
mannahöfn
Böðvar Cuðmundsson
vak(i máls á því í Tímariti
Máls og menningar fyrir
skömmu, art Hjörleifi Gutt-
ormssyni, iðnaðarráðherra,
hefði þótt það hin mesta
móðgun við sig, að full
trúar Alusulsse hefðu ekki
viljað ra-ða við sig í Kaup-
mannahöfn og hlusta á
„nmmklukkutímaræð-
una“. Kftir að Böðvar ritaði
grein sína, hittust þeir und-
ir lok mars á fundi hér i
Reykjavík, lijörleifur og
dr. Paul Miiller, formaður
framkvæmdastjórnar Alu-
suisse. Um þann fund
sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson, að málin lægju
nú Ijósar fyrir en áður og
unnt ætti að vera fyrir
málsaðila að gera upp hug
sinn varðandi efnisatriði
deilunnar fyrr en seinna.
f næstu viku heldur
Iljörleifur Guttormsson
síðan í langþráða ferð til
Kaupmannahafnar og hitt-
ir þar fulltrúa Alusuisse. í
fylgd með lijörleifi verða
fulltrúar þeirra 62 sérfræð-
inga og stofnana, sem
hann hefur síðan 1980 ráð-
ið í þjónustu sína á kostnað
skattgreiðenda, hins vegar
verða ekki með honum
nefndarmenn í einni af 31
nefnd ráðherrans síðan
1980, en ein þeirra heitir
þó „nefnd til viðrseðna við
Alusuisse" og var til henn-
ar stofnað 31. júlí 1981 „til
þess að eiga viðræður við
Alusuisse um skoðana-
ágreining fyrirtækisins og
ríkisstjórnarinnar vegna
samnings aðilanna um ál-
bræðslu í Straumsvík og
endurskoðun á þeim samn-
ingum".
Kommúnistar munu líta
á þessa Kaupmannahafn
arferð Hjörleifs Gutt-
ormssonar sem einskonar
kosningaferð. Hjörleifur
mun þó ekki koma fram á
opinberum fundum á
kostnað skattgreiðenda
eins og þau Sigurjón Pét-
ursson og Guðrún Helga-
dóttir á dögunum, enginn
væntir þess að íslendingar
í Kaupmannahöfn nenni
ótilneyddir að hhista á
„fimmklukkutímaræðu“
lljörleifs. Hins vegar er
það ætlun kommúnista, að
á fundinum í Kaupmanna-
höfn muni iðnaðarráðherra
leggja fyrir Alusuisse
stefnu Alþýðubandalagsins
um meirihlutaeign íslend-
inga í álverinu og síðan
verði stefnufestu ráðherr-
ans haldið á loft í kosn-
ingabaráttunni hér heima
— finnst kommúnistum
hentugast, að iðnaðarráð-
herra kynni stefnu Alþýðu-
bandalagsins í útlöndum
fyrst og aðrir taki að sér að
túlka hana hér heima, þar
með sé minni hætta á mis-
tökum og lélegum undir-
tektum.
Hjörleifur Guttormsson
lét mikið af þvi eftir fund
sinn með dr. Paul Miiller
hér á dögunum, að þeir
hefðu getað talað saman á
þýsku. Samkvæmt heimild-
um Staksteina verður
stefna Alþýðubandalagsins
lögð fyrir Ahisuisse á
austur-þýsku.
Undirgefni
Tómasar
í fyrradag lagði Tómas
Árnason, viðskiptaráð-
herra, fram frumvarp til
laga um aðild íslands að
Alþjóða orkumálastofnun-
inni. Hér er um mikilvægt
mál að ræða og hefur Tóm-
as verið gagnrýndur fyrir
það frá því á fyrri hlula árs
1980 að hafa ekki lagt
fram slíkt frumvarp. Við-
bárur ráðherrans hafa ver-
ið na-sta léttvægar og skin-
ið hefur í gegn, að hann
hefur ekki haft roð við
kommúnistum í ríkis-
stjórninni, sem eru andvíg-
ir aðild að þessari stofnun,
af þvi að þeir óttast, að
samhliða aðildinni muni
áhrifamáttur sovésku olíu-
innkaupanna minnka i
Stjórnarráðinu og á öðrum
mikilvægum stöðum.
I'ndirgefni Tómasar
Árnasonar undir kommún-
ista er í raun staðfest með
framlagningu frumvarpsins
um þetta mikilvæga efni,
nú þegar aðeins örfáir sól-
arhringar eru til þing-
lausna. Kkki þarf mikið
hugmyndaflug til að sjá, að
hér er um hefðbundinn
framsóknarleikaraskap að
ræða. Kramsóknarmenn
þykjast mestir, þegar þeir
eru líkastir Jóni sterka í
viðureigninni við kommún-
ista. I þessu máli hafa
ráðherrar kommúnista sagt
við Tómas: Jú, við skulum
leyfa þér að leggja þetta
frumvarp fram, þegar ör-
uggt er, að það verður ekki
afgreitt.
hótt undarlegt sé vegna
tignarstöðu ráðherra fram-
sóknarmanna í eigin
flokki, fer Tómas Árnason
með ráðherraumboðið fvrir
Olaf Jóhannesson, utanrík-
isráðherra, á meðan Olafur
er í Kína. Hefði þó verið
eðlilegra, að Steingrímur
Hermannsson, flokksfor-
maður, tæki að sér utanrík-
isráðuneytið. Olafi mun þó
ekki hafa verið um það
gefið, enda grunnt á því
góða milli hans og Stein-
gríms og enginn trúnaður.
Ymislegt bendir til, að
Tómas bregðist þeim trún-
aði, sem Olafur Jóhannes-
son sýndi honum. í furðu-
legri ræðu um skýrslu
utanrikisráðherra á þriðju-
dag, sagði hinn starfandi
utanríklsráðherra, Tómas
Árnason, að hann væri
ósammála því, sem kæmi
fram í skýrslu hins skipaða
utanríkisráðherra um verk-
efnaskipti milli utanríkis-
og viðskiptaráðuneyta og
ekki nóg með það, Tómas
laldi sér einnig skylt að
dylgja um starfshætti í
utanríkisráðuneytinu, þeg-
ar hann sagðist ekki viss
um, að samstarf milli
deilda í utanríkisráðuneyt-
inu, t.d. varnarmáladeildar
og annarra deilda þess,
væri nokkru nánara en
samskíptin milli utanríkis-
ráðuneytisins og viðskipta-
ráðunevtisins. Kða á
kannski að skilja þessi orð
Tómasar sem dúsu upp í
kommúnista fyrir það, að
þeir leyfðu honum að flytja
frumvarpið um Alþjóða
orkumálastofnunina?
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar
4ra vikna námskeið hefst 3. maí
Hinir vinsælu HERRATÍMAR í hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum.
Sértímar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eöa meira.
Sértímar fyrir eldri dömur og þær sem eru slæmar í baki eöa þjást af
vöðvabólgum. Lejkfjim fyrir konur á öllum aldri.
Vígtun, mæling, sturtur, gufuböð, kaffi.
Nýjung höfum hina vinsælu Solarium lampa.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Innritun og upplýsingar alla
virka daga frá kl. 13—22
í síma 83295.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK