Morgunblaðið - 29.04.1982, Síða 17
1
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1982
Morgunblaðsskeifan veitt í 25. sinn
l.jósm.: llelgi lljarnasuii
Hér má sjá Sverri Möller frá Reykjavík halda á Morgunblaðsskeifunni,
en hjá honum stendur hesturinn Ófeigur frá Varmalæk í Skagafiröi.
NÝLEGA fór fram hin ár-
lega skeifukeppni á bænda-
skólanum að Hvanneyri
auk gæðingakeppni og gæð-
ingaskeiðkeppni.
Skeifukeppnin er á milli
nemenda bændaskólans
um það hver þeirra hefur
náö bestum árangri við að
temja hross yfir veturinn.
Sigurlaunin eru Morgun-
blaðsskeifan, sem nú var
veitt í 25. skipti.
Sigurvegari í þessari keppni
varð Sverrir Möller frá
Reykjavík á hestinum Ófeigi
frá Varmalæk og sigraði
Sverrir með nokkrum yfirburð-
um. Hlaut Sverrir alls 84,0 stig.
í skeifukeppninni er dæmt
eftir ákveðnum reglum, þar
sem vægi einstakra þátta er
frá 1 til 15, en alls eru metin 9
atriði og gefa þau í heildar-
einkunn frá 9—100. Þessir
þættir eru: Að teyma hest og
stíga á bak, fetgangur, brokk,
tölt, stökk, skeið, hlýðni og út-
lit hests og áseta knapa.
Alls tóku 11 nemendur þátt í
keppninni. I öðru sæti varð
Bjarni Bragason frá Selfossi
með 80,5 stig. í þriðja sæti varð
Ólafur Reynisson frá Fá-
skrúðsfirði með 78,0 stig.
Eins og áður segir fór einnig
fram gæðingakeppni og skeið-
keppni og urðu úrslit þessi:
I gæðingakeppni urðu
hlutskarpastir: Ljónslöpp, 5
vetra, frá Refsstöðum, Borg-
arfirði. Eigandi og knapi
Björnþór Kristjánsson. I öðru
sæti varð Greiði, 6 vetra, frá
Stóra-Hofi, Rangárvallasýslu.
Eigandi Páll Sigurbergsson, en
knapi var Ásbjörn Pálsson. í
þriðja sæti varð Skjóni, 9
vetra, frá Brautarholti, Vest-
ur-Húnavatnssýslu. Eigandi og
knapi Ásgeir Sverrisson.
Til keppni í gæðingaskeiðinu
mættu 13 hestar. Úrslitin í
gæðingaskeiðkeppninni urðu
þau að Hlynur 910, 8 vetra, frá
Bárustöðum, varð hlutskarp-
astur. Eigandi er Sigurborg
Jónsdóttir, en knapi Jón
Ólafsson.
í öðru sæti varð Sikill, 16
vetra, frá Bárustöðum. Eigandi
er Jón Ólafsson, knapi Leifur
Helgason. í þriðja sæti varð
Gerpla 4523, 8 vetra, frá Báru-
stöðum. Eigandi Guðmundur
Ólafsson en knapi Jón Ólafs-
son. Það má geta þess að ofan-
talin hross lágu báða skeið-
sprettina.
Er þessu var lokið voru úrslit
skeifukeppninnar tilkynnt en
það gerði kynnir keppninnar og
fréttaritari Morgunblaðsins,
Ófeigur Gestsson. Afhenti
hann Sverri Möller Morgun-
blaðsskeifuna að loknu stuttu
ávarpi til keppenda.
Að því loknu var öllum boðið
til kaffiveitinga í húsakynnum
bændaskólans og voru þar af-
hent verðlaun fyrir sigur í
gæðingakeppni og skeiðkeppn-
inni. Við þetta tækifæri flutti
Skúli Kristjánsson, Svigna-
skarði, og Magnús B. Jónsson
skólastjóri stutt ávörp og
kveðjur. Magnús þakkaði
stjórn hestamannafélagsins
Grana, sem er félag nemenda,
fyrir góð samskipti í vetur
undir öruggri stjórn formanns
félagsins, Kristins Hugasonar
frá Akureyri.
Talsverð umsvif hafa verið í
vetur hjá hestamannafélaginu
Grana að sögn formannsins.
Meðal annars annaðist félagið
gerð tamningagerðis, sem
bændaskólinn kostaði ásamt
fyrrverandi nemendum skól-
ans, sem gefið höfðu fjárupp-
hæð í þessu skyni. Þá voru
einnig smíðaðir 12 nýir básar í
hesthúsinu. Einnig gekkst fé-
lagið fyrir fræðslufundum en
þar ræddi m.a. Þorvaldur
Árnason um kynbætur og
hrossarækt, Haraldur Har-
aldsson hélt járningarnám-
skeið, Þorkell Bjarnason
hrossaræktarráðunautur flutti
erindi og Ragnar Hinriksson
leiðbeindi um tamningar.
17 '
-------------------
j
Arne Slverisen ]
I
Hreyfingar-
fræði i
!
I
I
I
I
1
I
LÍKAMSWÁLFliN
FM BEJtVSKI) TH HU.ORWVS<IU
„Hreyfingarfræði“
bók um
líkamsrækt
KOMIN er út hjá Iðunni bókin
Hreyfingarfræði eftir norska iþrótt-
akennarann Arne Sivertsen i þýð-
ingu Karls Guðmundssonar iþrótt-
akennara. Er þetta þriðja og siðasta
hefti rita er kallast einu nafni Lik-
amsþjálfun frá bernsku til fullorð-
insára.
Fyrsta heftið nefnist Líffæra-
fræði—lífeðlisfræði og annað
Þjálffræði. I þessu síðasta hefti er
gerð grein fyrir ýmsum þáttum
líkamsbeitingar í daglegu lífi,
íþróttum, við skólastarf o.fl. Á
bókarkápu segir m.a.: Þessi bók
veitir víðtækt yfirlit um líkams-
þjálfun og vaxtarrækt. Bókin er
ætluð öllum þeim sem starfa að
íþróttauppeldi barna og unglinga."
Bókin er 64 bls., Prentrún prent-
aði.
Aftnælisafeláttur
Torgið á um þessar mundir 5 ára af-
mæli. í tilefni þessara tímamóta
bjóðum viðýmsar vörutegundir á sér-
stöku afmælisverði.
Gallabuxur 175,- Handklæði 29,- Herraskór .... 259,-
Kvenblússur 245,- Kvennærbuxur 23,- Kvenskór .... 195,-
Strigabelti 35,- Frottésokkar 15,- Götuskór .... 295,-
Sportuxur 350,- Garn 12,- Sportskór .... 290,-
Mini-pífupils 295,- Barnapevsur 99,- Barnarússkinnskór .... 85,-
Herraskyrtur 95,- Barnabuxur 145,- Barnabolir .... 35,-
1977—1982
Austurstnrti 10
sínii: 27211