Morgunblaðið - 29.04.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
Fullsannað að lík-
klæðið í Torino sé
frá dögum Krists
Fullsannað þykir nú aö klæöið umdeilda, sem um aldir
hefur verið varðveitt í Torino á Ítalíu, sé frá því á dögum
Krists. í rannsóknum hingaö til hefur ekkert komið fram
sem afsannar þá kenningu kaþólsku kirkjunnar að hér sé
um aö ræða líkklæði Krists, — línklæðið sem guöspjalla-
mönnunum fjórum ber saman um að Jósef frá Arímaþeu
hafi sveipað um líkama Krists að fenginni heimild Pílatus-
ar til að taka hann ofan af krossinum og leggja í gröf.
Á klæðinu eru flekkir sem
mynda skýra mannsmynd og
hefur margra alda deila stað-
ið um það í fyrsta lagi hvort
myndin sé raunverulega af
Kristi, og að gefinni þeirri
forsendu, hvernig á því standi
að mannsmynd komi fram á
klæði. Með aðferðum sem not-
aðar eru við greiningu ljós-
mynda utan úr geimnum telur
Geimrannsóknastofnun
Bandaríkjanna (NASA), sem
nýlega rannsakaði klæðið,
frjókorn í líningu tvímæla-
laust vera frá dögum Krists.
Athuganir á vefnaði og blóð-
blettum í klæðinu höfðu áður
bent til þess sama, en þær
niðurstöður hafa ekki þótt
nándar nærri jafn öruggar og
þær sem nú liggja fyrir.
Ljóst má vera að þrátt fyrir
hinar nýju niðurstöður er
óframkvæmanlegt að sanna
að þótt klæðið sé frá dögum
Krists sé það í raun og veru
líkklæði hans en ekki einhvers
annars manns.
Lengi vel var því haldið
fram að mynd Krists á klæð-
inu sé þannig til orðin að við
andlát hans á krossinum eða
við upprisuna hafi gífurleg
orka leyst úr læðingi, ellegar
þá að orkubreyting hafi átt
sér stað, en við þær sviptingar
hafi líkaminn gefið frá sér
vökva em klæðið hafi svo
drukkið í sig. Þegar klæðið
hafi svo þornað hafi vökvinn
skilið eftir þau ummerki sem
að framan getur.
Samkvæmt hinum nýju
kenningum eru orsakirnar að
líkindum öllu nærtækari.
Luigi Malantrucco, geisla-
fræðingur og yfirlæknir við
Sjúkrahús Péturs postula í
Rómaborg, leiðir rök að því að
hin læknisfræðilega dánar-
orsök hafi verið hjartaslag, og
bendir á í því sambandi að við
krufningu á líkum manna sem
deyi af hjartaslagi komi í ljós
að út um sár eða skinnsprett-
ur komi þá blóðvatn.
Slíkt telur Malantrucco að
hafi átt sér stað á Golgata, en
þá kenningu styður frásögn
Jóhannesar guðspjallamanns
af krossfestingunni, en þar
Mynd þessa hefur vísindamaðurinn Lorenzo Ferri gert eftir þeim um-
merkjum sem eru á líkklæðinu.
segir í 19. kafla: „En einn af
hermönnunum lagði spjóti í
síðu hans, og jafnskjótt kom
út blóð og vatn.“
Kenning þessi hefur vakið
mikla athygli, ekki sízt innan
kaþólsku kirkjunnar. Silvita
Catolica er málgagn Jesúíta-
reglunnar, en í forystugrein
síðasta tölublaðs segir rit-
stjórinn, Piersandro Vanzan:
„Við mennirnir endum ævi
okkar með margvíslegum
hætti. Það breytir engu.
Kenningin um að hjartalag og
streita hafi verið dánarorsök-
in gefur einungis tilefni til að
ætla að Jesús hafi hlotið enn
þjáningarfyllri dauðdaga en
við höfum trúað. Kenningin
um hjartaslag gerir okkur enn
skýrari grein fyrir því hversu
ólýsanlegar þær andlegu
þjáningar hafa verið sem Jes-
ús leið. Vísa ég þar til þess
hver raun hans hefur verið,
þar sem lærisveinarnir höfðu
yfirgefið hann, Júdas svikið
hann og Pétur afneitað hon-
um, s.s. grundvöllurinn undir
lífsstarfi hans hefur virst
brostinn og af því hefur sú
þjáning verið sem kom hjarta
hans til að bresta."
Grunnnámskeið
um tölvur
Grunnnámskeið um tölvur verður haldið hjá Tölvu-
fræðslu SFÍ að Ármúla 36, 3. hæð, dagana 10.—13.
maí kl. 14—18.
Tilgangur námskeiðsins er að
gefa yfirlit yfir helstu hugtök á
i sviöi tölvufræöa og kynna í
stórum dráttum hvernig tölv-
ur eru uppbyggðar. Nám-
skeiöiö miöar aö því aö gefa
þátttakendum almennt yfirlit
yfir þau atriði sem máli skipta
varðandi tölvur, hvernig þær
eru notaöar í dag og hvernig
ætla má aö þær veröi notaöar
í framtíöinni.
Gerö veröur grein fyrir
grundvallar hugtökum í tölvu-
fræðum og lýst helstu tækjum
og skýrö hugtök tengd þeim.
Fjallað verður um hugbúnaö
tölva og hvernig byggja má
upp tölvukerfi. Fjallað veröur
um helstu notkunarsviö tölv-
unnar í dag og í framtíðinni.
Einnig er kynning á tölvuút-
stöövum og smátölvum og
notkun þeirra viö atvinnu og á
heimilum.
Námskeiðið er ætlað starfsmönnum fyrirtækja sem
nota tölvur í dag, munu nota tölvur eða hafa hug á
að kynnast nánar tölvuvæðíngu.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST TIL
STJÓRNUNARFÉLAGSINS f SÍMA 82930.
TÖLVUFRÆÐSLA
Dr. Kristján Ingvars-
son verkfræöingur
STJÓRNUNARFÉLAG fSIAN
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
^ Cetec Benmar
Course Keeper 210
sjálfskipting
Höfum nú fengiö lækkun á þessari frábæru stýringu
fyrir stærri skip og báta. Þaö skal tekið fram að
möguleiki er á aö tengja þessa sjálfstýringu við
Loran C, er býöur uppá ótrúlega möguleika á ná-
kvæmni í stefnu.
Til afgreiðslu strax
BENCO Boih°m4’
mW mm W W %J sími 219945 og 84077
19
Vantar þig?
Húsgögn á allt
heimilið fást hjá
KM-
húsgögn,
L.angholtsvegi 111,
símar
.17010—37144
/**^k
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Arnarfell ......... 3/5
Arnarfell ........ 17/5
Arnarfell ....... 31/5
Arnarfell ........ 14/6
ROTTERDAM:
Pia Sandved ...... 29/4
Arnarfell ......... 5/5
Arnarfell ........ 19/5
Arnarfell ......... 2/6
Arnarfell ........ 16/6
ANTWERPEN:
Pia Sandved ...... 30/4
Arnarfell ......... 6/5
Arnarfell ........ 20/5
Arnarfell ......... 3/6
Arnarfell ........ 17/6
HAMBORG:
Dísarfell ....... 7/5
Helgafell ........ 13/5
Helgafell ......... 3/6
Helgafell ........ 23/6
LARVIK:
Hvassafell ....... 10/5
Hvassafell ....... 24/5
Hvassafell ........ 7/6
Hvassafell ....... 21/6
HELSINKI:
Zuidwal ........... 20/5
Skip .............. 15/6
GAUTABORG:
Hvassafell ....... 11/5
Hvassafell ....... 25/5
Hvassafell ........ 8/6
Hvassafell ....... 22/6
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell ....... 12/5
Hvassafell ....... 26/5
Hvassafell ........ 9/6
Hvassafell ....... 23/6
SVENDBORG:
Hvassafell ....... 29/4
Hvassafell ....... 13/5
Helgafell ........ 17/5
Hvassafell ....... 27/5
Helgafell ......... 7/6
AARHUS:
Helgafell ...... 18/5
Helgafell ....... 8/6
LENINGRAD:
Zuidwal ........ 21/5
GLOUCESTER, MASS.:
Skaflafell ..... 26/5
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell 30/4
Skaftafell ........... 28/5
m.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavik
Sími 28200 Telex 2101