Morgunblaðið - 29.04.1982, Page 30
3 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
Akureyri:
Skákmót til minn-
ingar um Jón Ingi-
marsson hefst í dag
Sigurlína (Margrét Helga Jóhannsdóttir), Steinþór (Þorsteinn Gunn-
arsson) og Salka (Guðrún Gísladóttir).
Leikfélagi Reykjavíkur
boðið að sýna Sölku
Völku í Búlgaríu
SKÁKMOT til minningar um Jón
Ingimarsson, fyrrverandi formann
Iðju, félags verksmiðjufólks, og eins
af máttarstólpum Skákfélags Akur-
„Rokkið" í
Regnboganum
I gær hófust að nýju sýningar á
kvikmyndinni „Rokk í Reykjavík"
í Regnboganum, þar sem nýbúið er
að koroa fyrir fullkomnum 4ra
rása stereo-hljómflutningstækj-
um, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Hugrenningi, sem gerði
myndina. Felldar voru niður
ákveðnar setningar og er myndin
nú bönnuð börnum innan 12 ára.
FRAM er kominn 4. listinn til
væntanlegra bæjarstjórnarkosn-
inga á Dalvík, en það er listi Al-
þýðuflokks og óháðra kjósenda.
Sjö efstu sætin skipa: Jón
eyrar í áratugi, hefst á Akureyri i
kvöld i skákheimilinu við Strand-
götu.
Þátttakendur á mótinu eru á
milli 30 og 40 og tefldar verða 7
umferðir eftir monrad-kerfi. Með-
al skákmanna verða Helgi Ólafs-
son, alþjóðlegur skákmeistari, Sæ-
var Bjarnason, Elvar Guðmunds-
son og forseti Skáksambands ís-
lands, Ingimar Jónsson, sem er
sonur Jóns Ingimarssonar. Fyrsta
umferðin hefst klukkan 20.00 í
kvöld, en síðan verða tefldar tvær
umferðir á dag til sunnudags er
mótinu lýkur með samsæti og
verðlaunaafhendingu. Iðja hefur
gefið vegleg verðlaun til mótsins
og auk þess hafa ýmis önnur fyrir-
tæki stutt Skákfélag Akureyrar
vegna mótsins.
Baldvinsson, Vigdís Sævalds-
dóttir, Haraldur Rögnvaldsson,
Kolbrún Pálsdóttir, Hjálmar
Júlíusson, Þóranna Hansen og
Sverrir Sigurðsson.
Fréttaritarar
LEIKFÉLAGI Reykjavíkur hefur
verið boðið að sýna Sölku Völku
eftir Halldór Laxness á alþjóðlegri
leiklistarhátíð í Sofia i Búlgaríu i
sumar. í fréttatilkynningu frá
Leikfélaginu segir að hátíð þessi,
„Leikhús þjóðanna", þyki með
merkari leiklistarhátíðum, en hún
er haldin á vegum Alþjóða leik-
húsmálastofnunarinnar á ári
hverju og skiptast aðildarfélögin á
að vera gestgjafar.
Á Sölku Völku verða tvær sýn-
ingar, 28. og 29. júní, og er full-
trúi hátíðarinnar kominn hingað
til lands að þessu tilefni. Þetta
cr í fyrsta skipti, sem Leikfélagi
Reykjavíkur er boðið að sýna á
slíkri hátíð og þykir það mikill
heiður. Salka Valka var frum-
sýnd í janúar síðastliðnum í til-
efni 85 ára afmælis Leikfélags-
ins. 18 leikarar fara með hlut-
verk í leikritinu.
Síðustu
sýningar á
„Kisuleik“
Ungverska leikritið Kisuleikur
hefur verið sýnt á Litla sviði Þjóð-
leikhússins síðan í byrjun janúar við
afbragðs undirtektir, en nú er sýn-
ingum á verkinu að Ijúka, segir í
fréttatilkynningu frá Þjóðlcikhús-
inu. Verður næstsíðasta sýningin á
fimmtudagskvöld, 29. apríl, kl.
20.30, og síðasta sýningin, sem jafn-
framt er 30. sýning leiksins, verður
þriðjudaginn 4. mai nk.
Kisuleikur er eitt af frægustu
verkum István örkény sem lést
fyrir tveimur árum, en hann er
talinn fremsta leikskáld Ungverja
á þessari öld ásamt með Ferenc
Molnár. Islenska þýðingu Kisu-
leiks gerðu þeir Karl Guðmunds-
son og Hjalti Kristgeirsson, leik-
stjóri er Benedikt Arnason, leik-
mynd og búninga gerði Sigurjón
Jóhannsson og lýsinguna annast
Páll Ragnarsson.
Aöalfundur
Ljóstæknifé-
lags Islands
Aðalfundur Ljóstæknifélags ís-
lands verður haldinn fimmtudaginn
29. apríl nk. i félagsheimili Raf-
magnsveitu Reykjavíkur við Klliðaár
og hefst með léttum kvöldverði kl.
19.00.
Að loknum aðalfundarstörfum
verður fjallað um nýjar gerðir
ljósgjafa.
Dalvík:
Fjórði listinn er kominn fram
Dalvík, 2X. april.
Sýning á hjálpargögn-
um fyrir lamaöa
UNDANFARNA daga hefur staðið
yfir sýning á húsgögnum og hjálp-
argögnum fyrir dvalarheimili og
sjúkrahús á Hótel Loftleiðum. Sýn-
ingunni lýkur í dag og er opin frá
klukkan 10 til 18.
Á sýningunni eru sýnd hin ýmsu
tæki, sem komið geta hreyfihöml-
uðum til gagns, svo sem hjóla-
stólalyftur til flutninga á hjóla-
stólum upp tröppur, rúm með
hæðarstillingu fyrir dvalarheimili
og sjúkrahús, hentug borð og fær-
anlegir stólar.
Þá eru einnig á sýningunni hús-
gögn hönnuð fyrir aldraða og fatl-
aða til notkunar á einkaheimilum,
dvalarheimilum og sjúkrahúsum,
vinnustólar, rafdrifnir stólar, æf-
ingarstólar og stólar í iðnfyrir-
tæki. Þá er sýnt sérstakt stóla-
kerfi með óteljandi samsetn-
ingarmöguleika.
Þá eru einnig sýnd almenn
hjálpargögn, hjólastólar, tvíhjól
og þríhjól, legurúm o.fl.
Sýningaraðilar á sýningunni
eru: G. Hinriksson hf., Danco hf.,
Epal hf. og Bergfell hf.
Myndirnar eru frá sýningunni.
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík
OPIÐ HÚS 1. maí
Sjálfstæðisfelögin i Reykjavik gangast fyrir OPNU HLISI í Sjálfstæö-
ishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1, 1. maí næstkomandi kl.
15.00—18 00.
Avörp, tónlist, veítingar. Allir velkomnir.
1. maí nefndin.
Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðisflokksins
Seltjarnarnesi
er aö Melabraut 76. sími 25240 og veröur opin fyrst um sinn:
Mánudaga/föstudag kl. 17.30 til 21.00.
Laugardaga/sunnudaga kl. 14.00 til 19.00.
Skrifstofan veitir allar upplýsingar um kjörskrá og utankjörfundar-
kosnmgu
X D-listinn.
Ræðum
borgarmálin
Sjálfstæöismenn í Langholti hafa opiö hús aö
Langholtsvegi 124, laugardaginn 1. maí kl.
15—17. Viö hvetjum sjálfstæöisfólk til aö líta
inn, fá sér kaffibolla og skiptast á skoöunum.
Gestir fundarins verða Ingibjörg Rafnar og
Ragnar Júliusson.
Stjórntn.
Hafnarfjörður Hafnarfjörður
Fundur um skipulagsmál
verður haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu í Hafnarfirði mánu-
daginn 3. maí 1982 og hefst
hann kl. 20.30.
Jóhann Bergþórsson verk-
fræðingur, formaður skipu-
lagsnefndar, hefur framsögu og ræöir um að-
alskipulag Hafnarfjaröar, miöbæjarskipulag,
væntanlegt skipulag í Setbergslandi og fleira,
sem er aö gerast í skipulagsmálum.
Sjálfstæöisfélögin í Hafnarfirði.
Keflavík
Kosningaskrifstofan er opin daglega milli kl.
14—19 nema sunnudaga. Stuðningsmenn
lítið við a skrifstofunni.
Skipulagsnefnd.
Kópavogur Kópavogur
1. maí-kaffi
Sjálfstæöisfélögin i Kópavogi veröa meö 1. maí-kaffi á frídegi verka-
lýðsins, 1. maí frá kl. 14—18 í Sjálfstæöishúsinu, Hamraborg 1.
Allur ágööi rennur til Hjúkrunarheimilis aldraöra i Kópavogi. Allir
velkomnir SjálfstSBÓisfélögin.