Morgunblaðið - 29.04.1982, Side 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
i0nri0íií!mM'íií»í®>
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
|IUTj5tmííl8Íití>
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1982
Vöniskiptajöfnuðurinn janúar-marz:
Óhagstæður um
564,2 milljónir kr.
Vöruskiptajöfnuður íslendinga
var óhagstæður um liðlega 564,2
milljónir króna fyrstu þrjá mánuði
ársins, en verðmæti innflutnings á
þessu tímahili var liðlega 2.048,6
milljónir króna, en verðmæti út-
flutnings á tímabilinu var liðlega
1.484,3 milljónir króna.
Til samanburðar má geta
Benzín hefur
hækkað um 916%
á 4 árum
VERi) á hverjum benzínlitra hefur
á tímabilinu 1. janúar 1978 til upp-
hafs þessa árs hækkað um liðlega
916%, eða úr 0,93 krónum hver lítri
í 9,45 krónur.
Til samanburðar má geta þess,
að framfærsluvísitalan hefur
hækkað á tímabilinu 1. febrúar
1978 til 1. febrúar 1982 úr 936
stigum í 4.678 stig, eða um 400%.
A tímabilinu 1. janúar 1978 til
1. janúar 1982 hefur vísitala
byggingarkostnaðar hækkað úr
176 stigum í 909 stig, eða um
416,5%.
Af framansögðu er ljóst, að
benzínverð hér á landi hefur
hækkað ríflega helmingi meira
en annað verðlag í landinu.
Sjá ennfremur frásögn á
viðskiptasíðu um þróun
benzínverðs.
þess, að vöruskiptajöfnuðurinn
var óhagstæður um liðlega 252,5
milljónir króna á sama tímabili
í fyrra, en þá var verðmæti inn-
flutnings liðlega 1.362,8 milljón-
ir króna, en verðmæti útflutn-
ings hins vegar 1.110,3 milljónir
króna.
í marzmánuði var vöruskipta-
jöfnuðurinn óhagstæður um
191,8 milljónir króna, saman-
borið við liðlega 125,8 milljónir
króna í marz á síðasta ári.
Við samanburð við utanrík-
isverzlunartölur 1981 verður að
hafa í huga, að meðalgengi er-
lends gjaldeyris í janúar-marz
1982 er talið vera 39% hærra en
það var í sömu mánuðum 1981.
Báðir á floti
l>að mætti halda eftir myndinni að
da ttia, að bátur og bíll væru á floti,
en svo er þó ekki. Myndin var tekin
sl. mánudagi l’orlákshöfn.
Ljócnn. Mbl.: Krifrtjáll Örn KIÍUHon.
Stórmálin væntanlega áfram
til meðferðar í hliðarsölum
MIKIÐ hefur verið fundað og rætt í
hliðarsölum Alþingis síðustu daga.
Mest hefur borið á samningaviðræð-
um um Blönduvirkjun og steinullar-
verksmiðju og reynt hefur verið að
ná samstöðu um sameiginlega niður-
stöðu i atvinnumálanefnd sameinaðs
Alþingis um málið, en menn voru í
Kvennaframboð kært
fyrir Jafnréttisráði
IINOUR maður úr Kópavogi hef-
ur sent Jafnréttisráði kæru
vegna kvennaframboðs í Reykja-
vík og á Akureyri. Hann telur að
framboðin gangi gegn jafnrétt-
islögum þar sem karlmönnum sé
meinuð seta á listunum.
Bréfið til Jafnréttisráðs er
dagsett 18. apríl sl. Jafnrétt-
isráð kemur næst saman til
fundar nk. miðvikudag og
verður kæra þessi þá væntan-
lega tekin fyrir.
gærkvöldi orðnir vondaufir um að sú
samstaða næðist. Nefndin kemur
saman til fundar árdegis í dag og
munu línur þar væntanlega skýrast,
en ekki töldu menn að niðurstaða
fengist, a.m.k. ekki sameiginleg,
þannig að væntanlega verða þessi
stórmál áfram mestmegnis til með-
ferðar í hliðarsölum.
Þá hefur verið knúið fast á af
stjórnvöldum siðustu daga að
frumvarp um kísilmálmverk-
smiðju á Reyðarfirði og einnig
sykurverksmiðju færu í gegnum
þingið fyrir þinglok.
Staðan í Blönduvirkjun virtist í
gær vera sú, að menn leituðu
málamiðlunarleiða hvað varðar
orðalag á sameiginlegu áliti
nefndarinnar, en hver tilraunin af
annarri fór út um þúfur. Ráðherr-
unum Pálma Jónssyni og Hjörleifi
Guttormssyni mun hafa, sam-
kvæmt heimildum Mbl., fundist of
mikið gefið eftir, einstökum þing-
mönnum fannst aftur á móti ekki
nóg að gert. Aðalvandamálið varð-
andi afgreiðsluna virðist vera
orðalag um stærð stíflumann-
virkja í upphafi framkvæmdanna,
þ.e. hvort miða eigi mannvirkin
við að lónið verði e.t.v. síðar
stækkað í 400 G1 eða hvort byggja
á þau eingöngu miðað við 220 G1
miðlunarlón, og stækka þau þá
síðar ef til kæmi, en slík verktil-
högun hefði kostnaðarauka í för
með sér, eins og bent hefur verið
á.
Hvað varðar steinullarverk-
smiðjuna, þá hafa framsóknar-
menn verið með þá hugmynd að
leggja til við Alþingi, að málinu
verði vísað til ríkisstjórnarinnar,
en nokkur samstaða hefur náðst
meðal fulltrúa annarra flokka um
að halda sig við hugmyndina sem
Mbl. hefur skýrt frá, þ.e. að fara
fram á við ríkisstjórnina að hún
nýti ekki lagaheimild til fjár-
mögnunar 40% af verksmiðjunni.
Þess í stað fái áhugaaðilar ákveð-
inn tíma til að sýna fram á að þeir
geti sjálfir fjármagnað verkið.
Fyrst var rætt um 6 mánaða frest
til að sýna fram á fjármögnunar-
getu, nú hefur verið rætt um ein-
hvern sveigjanleika hvað þetta
varðar. Vísun málsins til ríkis-
stjórnarinnar þýðir að mestum
líkindum óbreytta stöðu mála, en
iðnaðarráðherra, Hjörleifur Gutt-
ormsson, hefur lagt til við ríkis-
stjórnina að verksmiðjan verði
reist á Sauðárkróki.
Samningaráð Vinnuveitendasambandsins:
Telur sáttaumleitanir
vera tilgangslausar
meðan ýmsir helztu forystumenn ASÍ vilja bíða kjördags
Vinnuveitendasamband íslands
hefur farið þess á leit við sáttasemj-
ara að sáttaumleitunum verði frestað
þar til eftir 22. maí. 1 samþykkt
samningaráðs VSÍ segir að af yfirlýs-
ingu ýmissa forystumanna ASÍ, þess
efnis að úrslit í kjarabaráttunni ráðist
á kjördegi, verði það eitt ráðið að þeir
hafi ákveðið að hindra alla samninga
milli ASÍ o({ VSÍ þar til eftir að kjör-
stöðum hefur verið lokað 22. mai nk.
til þess að nota megi kröfugerð ASÍ
og sérsambanda þess sem kosn-
ingamál.
— í þessu felst einfaldlega að
VSÍ telur það vera innanríkismál
forystumanna ASI hvort þeir gera
kröfurnar að kosningamáli, sagði
Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, í samtali við Mbl. — Við
hvorki hneykslumst á þessu né
mótmælum, en við látum ekki
draga okkur inn í póiitísk átök með
þessum hætti. Sáttaumleitanir
verða auðvitað skrípaleikur einn
þegar ýmsir helstu forystumenn
ASÍ hafa ákveðið að úrslit þeirra
verði ekki fyrr en eftir lokun kjör-
staða. Því sendum við þessi tilmæli
til sáttasemjara. Þessi ákvörðun
margra helstu forystumanna ASÍ
um að ekki verði samið fyrr en eftir
kjördag kom vissulega á óvart eftir
að þeir hafa gagnrýnt okkur fyrir
að letja til samningaviðræðna.
— Eg er furðu iostinn yfir þess-
um vinnubrögðum, sagði Ásmund-
ur Stefánsson, forseti ASÍ, um
beiðni VSÍ til sáttasemjara. — Það
er ekkert nýtt að Alþýðubandalag-
ið sendi frá sér yfirlýsingu um það
sem gerist í kjaramálunum og VSÍ
er fullkunnugt um að ASÍ og Al-
þýðubandalagið eru sitthvor aðil-
inn. Undarlegt er ef VSÍ gengur
fram fyrir skjöldu í pólitískum yf-
irlýsingum. I samkomulaginu frá
því í nóvember sl. er gert ráð fyrir
að samningar takist fyrir 15. maí
og hefur samninganefnd ASÍ lagt
alla áherslu á að það takist. Telji
VSI að það sé einum flokki hag-
stæðara en öðrum að samningavið-
ræður standi yfir er kosið er, er
hægast að semja fyrir 15. maí. Við
hljótum að leggja megináherslu á,
eftir að hafa reynt hvern táfaleik-
inn á fætur öðrum af hálfu VSÍ, að
verkalýðsfélögin svari fljótt kalli
og afli sér verkfallsheimildar og að
VSÍ sjái að alvara sé að fylgja
kröfugerðinni eftir. Að sjálfsögðu
treystum við því að þeir fundir,
sem hafa verið boðaðir, verði
haldnir og það er fráleitt í aðstæð-
um okkar að fresta samningagerð.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari tjáði Mbl. í gær að
hann myndi ræða við sáttanefnd í
dag og er í dag fundur með yfir-
mönnum á farskipum og á mánu-
dag með félögum og samtökum
innan ASÍ. Á þriðjudag verður svo
fundur með ASÍ og VSÍ og sagði
sáttasemjari að þessir fundir
stæðu óbreyttir nema annað yrði
ákveðið.
Sjá ályktun Samningaríðs VSÍ á
miðopnu blaðsins.
Verðlagsráð:
Samþykkti
14% hækk-
un á steypu
l>á hækkar gjaldskrá
Pósts og síma um 14%
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á
fundi sínum í gær, að heimila
14% hækkun á steypu, en 10%
hækkun á sandi og möl, en sú
hækkun er inni í fyrrgreindri
hækkun á steypu. Fyrirtækin
höfðu sótt um hækkanir á bilinu
18—22%.
Að sögn Brynjólfs Ingólfs-
sonar, ráðuneytisstjóra í sam-
gönguráðuneytinu, staðfesti
ráðuneytið í gærdag sam-
þykktir gjaldskrárnefndar
varðandi hækkanir til Pósts
og síma annars vegar og
Skipaútgerðar ríkisins hins
vegar.
Samkvæmt því munu síma-
gjöld Pósts og síma hækka um
14% 1. maí nk., en póstgjöld
munu hins vegar hækka um
14% frá 1. júní nk. Póstur og
sími hafði sótt um 18% hækk-
un á báðum gjaldskránum.
Þá staðfesti ráðuneytið 17%
hækkun á gjaldskrá Skipaút-
gerðar ríkisins.