Morgunblaðið - 25.09.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
15
um. Reyndist það erfiðara í vor en
áður. m.a. vegna þess hve langt
námskeiðið var. „Það ævintýri,"
sagði Rut, „er sennilega úti, —
næst verðum við að koma útlend-
ingunum fyrir í heimavist. Við
viljum ekki missa þá af námskeið-
inu, því það er svo gott fyrir okkar
fólk að kynnast jafnöldrum sínum
svona og fá tækifæri til að bera
sig saman við þá.“
Þeim Rut og Jóni bar saman
um, að nú væri komið að þátta-
skilum varðandi framkvæmd
námskeiðsins. Bæði af fjárhags-
legum og öðrum ástæðum yrði að
hafa næsta námskeið styttra —
vonandi þó ekki styttra en þrjár
vikur — hækka yrði lágmarks-
kröfur um kunnáttu og takmarka
meira fjölda þátttakenda. Þau
sögðust helzt kjósa að sjá þessi
námskeið fjármögnuð með frjáls-
um framlögum. „Þeir, sem hafa
lagt þessu lið, hafa séð og heyrt,
hve ótrúlegur árangurinn er — og
teljum við þó, að hann skili sér
ekki allur fyrr en síðar. Við treyst-
um því, að stuðningsmenn nám-
skeiðsins trúi á þetta starf og gildi
þess fyrir tónlistarlíf framtíðar-
innar".
Með mörg járn í eldinum
En hvers vegna kemur þessi víð-
kunni maður, Paul Zukofsky,
hingað ár eftir ár og leggur á sig
jafn mikið starf og raun ber vitni
til þess að styrkja grundvöll ís-
lenzks tónlistarlífs? Skýringin er
að hluta hreinn faglegur áhugi og
að nokkru persónulegur áhugi á
landi og þjóð. Hann hefur þó næg-
um öðrum verkefnum að sinna,
enda segja þeir, sem til hans
þekkja, að honum falli aldrei verk
úr hendi — hann komi jafnvel
stundum hingað til þess að fá
vinnufrið vegna þess hve mörg
járn hann er með í eldinum heima
fyrir.
Um feril Zukofskys sem fiðlu-
leikara hefur margt verið skrifað
og verður ekki endurtekið hér.
Minna má þó á, að hann hefur
leikið inn á hljómplötur verk, sem
spanna tímabilið frá Bach til
þessa dags, að hann er einn kunn-
asti túlkandi nútímatónlistar í
Bandaríkjunum og hljómsveit
hans, Colonial-Sinfóníuhljóm-
sveitin í New Jersey, hefur fengið
verðlaun fyrir nýjungar í verk-
efnavali, Þá má benda á, að hann
rekur eigið hljómplötufyrirtæki,
sem leggur megináherzlu á hljóð-
ritun nútímatónlistar. Jafnframt
starfar hann að vísindalegum
rannsóknum á tónlist og tónlistar-
flutningi; meðal annars hefur
hann átt um slíkar rannsóknir
samvinnu við tónskáldið John
Cage, sem sótti okkur heim á lista-
hátíðinni í hitteðfyrra — og vakti
þá raunar ekki minni athygli fyrir
matarkúnstir sínar en músík.
Starf manna á borð við Paul
Zukofsky verður seint fullþakkað.
Vonandi berum við gæfu og vit til
þess að sjá svo til, að námskeið
hans geti haldið áfram meðan
hann vill veita okkur af nægta-
brunni músíkmenntunar sinnar og
hæfileika. Því að — eins og Jón
Þórarinsson, tónskáld, segir; „Það
hefur verið nemendunum hér
ómetanleg reynsla að fá að taka
þátt í flutningi stórverka á borð
við 5. sinfóníu Mahlers og Vorblót
Stravinskys undir stjórn slíks
manns. Mér er jafnvel til efs, að
þeir sjálfir geri sér fulla grein
fyrir því ennþá, hve mikilvæg
þessi reynsla er. Þeir skilja það
kannski ekki fyrr en seinna. Af
hálfu Zukofskys hefur námskeiðið
ekki verið hugsað sem neitt
skemmti-sumarnámskeið þar sem
þátttakendur komi saman til að
„músisera", þegar þá langar til.
Þvert á móti hefur hann lagt
áherzlu á hörkuvinnu og strangan
aga og þannig eflt tilfinningu
þátttakendanna fyrir því, hvernig
þarf að vinna að músik til að ná
árangri. Námskeiðið nú samsvar-
aði um það bil hundrað vinnu-
stundum með fullri einbeitingu —
eða sem svarar heils vetrar vinnu
með skólahljómsveit."
- MH.
Fræösluþáttur Geðhjálpar ...
Hvað er til ráða?
Hugmynd um lausn þjóðfé-
lagsins á því mikla vandamáli
„erfiðir geðsjúklingar, sem passa
hvergi inn í kerfið".
Skilgreining á slíkum einstakl-
ingum.
a) Veikur einstaklingur, sem
ekki hefur valdið dauða ann-
ars manns eða gert tilraun til
þess eða brotið lög svo hægt
sé að stinga honum inn í
fangaklefa og láta hann dúsa
þar.
b) Veikur einstaklingur, sem
ekki lætur að stjórn á geð-
sjúkrahúsi.
c) Veikur einstaklingur, sem
ekki lætur að stjórn á heimili.
d) Veikur einstaklingur, sem
ekki getur hugsað um sig
sjálfur.
e) Veikur einstaklingur, sem
hvað eftir annað lendir í
árekstrum úti i samfélaginu
við okkur hin sem erum heil-
brigð.
f) Veikur einstaklingur, sem
ekki hefur ennþá leyst vanda-
málið sjálfur og fyrirfarið
sér.
Hversvegna er þetta eiginlega
lagt á okkur hin heilbrigðu (al-
þingismenn, ýmsa aðra ráða-
menn, lækna, sálfræðinga,
hjúkrunarfólk, félagsfræðinga,
félagsráðgjafa, lögreglu, að-
standendur og hinn almenna
borgara)? Við megum ekkert
vera að því að velta okkur upp úr
slíkri eymd, sem þessi hópur á
við að stríða, við höfum nóg á
okkar könnu. Við þurfum að
byggja okkur hús, eignast al-
mennilegan bíl, ala upp börnin
okkar, ráða fram úr ýmsum mál-
um, sem eru þó leysanleg, glíma
við verðbólguna o.s.frv. o.s.frv.
Nei, þetta gengur ekki lengur.
Við verðum að taka afstöðu, því
að ekki er hægt að fela þetta
fólk. Það lætur ekki að stjórn og
gægist alltaf upp á yfirborðið og
það er vægast sagt óþægilegt.
Góðir heilbrigðir samborgar-
ar, látum þetta fólk ekki angra
okkur lengur með öll sín vanda-
mál, það er hvort sem er ekki
gert ráð fyrir því neins staðar í
kerfinu. Og varla getum við
rýmt til fyrir því og gefið því
pláss. Með því að sjá vandann
eins og hann er í raun og veru og
taka á honum út frá staðreynd-
um sýnum við heiðarleika og
hugrekki í stað þess að loka sí-
fellt augunum og stinga hausn-
um niður í sandinn. Hugmyndin
er því „að slá þetta fólk af“. Eins
væri þessi „aðgerð" mjög ódýr
því ekki veitir okkar íslending-
um af að spara á þessum síðustu
og verstu tímum.
Þess skal getið í lokin að þessi
orð eru skrifuð af aðstandanda
geðsjúklings í vanmátta reiði og
örvæntingu. Oft er ég komin að
því að gefast upp og kasta þessu
öllu frá mér, en samviskan segir
að það megi ég alls ekki, enda er
það engin lausn fyrir sjúkling-
inn.
Með þessum nöturlegu skrif-
um mínum er ég í raun og veru
að hrópa á hjálp og skilning
ráðamanna til þess að gera lífið
bærilegra fyrir erfiða geðsjúkl-
inga og aðstandendur þeirra.
Akureyrarflugvöllur:
Malbikun á
framlenging-
una hefst í dag
MALBIKUN á framlengingu flug-
hrautarinnar á Akureyrarflugvelli
hefst á morgun, laugardag, en nú er
unnið að kappi við undirbúning þess
verks. Með því lengist flugbrautin
um 500 metra til norðurs og því
opnast möguleikar fyrir millilanda-
flug og öryggi eykst.
Fyrir lengingu var flugbrautin
1.565 metrar og verður því um
2.100 metrar er malbikun lýkur.
Undirbúningur verksins hófst
fyrir um fjórum árum er undirlagi
var dælt upp með sanddælu
Flugmálastjórnar. Síðan hefur
burðarlag verið keyrt ofan á upp-
fyllinguna og síðast hefur Akur-
eyrarbær tekið að sér lagningu
jöfnunarlags og malbiks á flug-
brautina. Hefur bærinn veitt
Flugmálastjórn greiðslufrest
fram yfir áramót vegna verksins.
Reiknað er með að malbikun ljúki
eftir um það bil hálfan mánuð, en
ljós við framlenginguna verða
ekki sett upp fyrr en á næsta ári,
fáist fjárveiting til þess, að sögn
Rúnars Sigmundssonar, umdæm-
isstjóra Flugmálastjórnar á Norð-
urlandi. Rúnar sagði ennfremur,
að þó svo yrði ekki, yrði hægt að
nota hinn nýja hluta brautarinnar
í björtu og auk þess væri þetta
mikið öryggisatriði, þegar lent
væri úr suðri, sérstaklega þegar
hálka væri á vellinum. Þá gat
Rúnar þess, að um mánaðamótin
yrði ennfremur lokið uppsetningu
nýrra aðflugstækja fyrir aðflug úr
suðri, þannig að öryggi ykist mik-
ið af báðum sökum.
Símamenn mót-
mæla bráða-
birgðalögum
Á FUNDI í Félagsráði Félags ísl.
símamanna nú nýlega var eftirfar-
andi ályktun samþykkt:
Félagsráð FÍS mótmælir harð-
lega nýsettum bráðabirgðalögum
ríkisstjórnarinnar og þeirri kjara-
skerðingu sem í þeim felst til við-
bótar við þá miklu skerðingu sem
orðið hefur á sl. þremur árum og
þá sérstaklega hjá opinberum
starfsmönnum, en þeir hafa orðið
fyrir um 15% kjaraskerðingu á
þessum tíma sem er mun meira en
hjá öðrum launþegum.
Jafnframt átelur Félagsráð
harðlega síendurteknar aðgerðir
stjórnvalda að rifta gildandi
kjarasamningum, sem leitt hefur
af sér þverrandi tiltrú launþega á
gildi formlegra kjarasamninga.
Haustlaukakynning
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræð-
ingur leiðbeinir um val á haustlaukum
í dag kl. 2—6.
Heimsækið gróðurhúsið um helgina,
alltaf eitthvað nýtt í hverri viku.
Yfír hundraö tegundir túlípana. Aldrei meira úrval „smálauka“
Tilboð helgarinnar
20% afsláttur af öllum burknum.
Lauktilboð
50 stk. túlipanar 138.-
50 stk. páskaliljur 138.-