Morgunblaðið - 25.09.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.09.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982 21 Bragi Ásgeirsson , myndlistarmaður Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður opnar sýningu: við málverk si« vinkonumar. „Geng fyrir bjartsýninni“ SÝNING á verkum Braga Ásgeirssonar, myndlistarmanns, verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag kl. 15. Myndirnar, sem gerðar eru í olíu- og akryllitum svo og blandaðri efnistækni, eru 88 talsins. Mbl. ræddi við Braga í gær um sýninguna, en hún stendur yfír í þrjár vikur. Hvenær málaðir þú mynd- irnar sem þú sýnir nú? Þær eru langflestar mál- aðar á þessu ári. Þetta eru hugmyndir sem ég hef lengi haft, en vegna kennslu og skrifta hef ég ekki getað sinnt þeim fyrr. Og segja má, að ég hafi unnið sleitulaust við að mála frá því að ég fékk starfslaun og Bjartsýnis- verðlaunin. En í sumar hef ég gengið fyrir bjartsýninni. Og það er betra eldsneyti, en brennivín og kókaín sem margir listamenn neyta, ef trúa má bókum. Annars hef- ur bjartsýnin haft mjög góð áhrif á mig, ég hef verið af- slappaður og haft mikla ánægju af tilverunni. Hvert sækir þú efnivið í myndir þínar? Ég notaði þau hughrif sem ég hef orðið fyrir í sumar þegar ég hef horft út um gluggann á vinnustofu minni, farið í gönguferðir eða lesið bækur. Og ég hef mokað upp úr mér umbúða- laust. Hvaða myndefni eru þér hugleiknust? Þetta eru hugleiðingar um jörðina, hafið og himininn. T.d. er ein myndaröð, 7 verk, sem öll eru um þetta efni. Og eru þau í kringlóttu formi. Einnig lauk ég við eina mynd fyrir skömmu sem ég vann á þann hátt að ég tíndi laufblað í rigningunni á dög- unum og hélt á því meðan ég málaði til að fá haustlitina fram. Þá eru lífið, dauðinn og ástin mér hugleikin. Og ég hef sótt nafngiftir sumra verka minna í mál rithöf- unda. En ég nota fjölbreytt- ari liti í málverkum mínum nú en áður. Ég er þó ekki að reyna að vera frumlegur eða koma með eitthvað nýtt. Ef það er til í manni þá kemur það fram í verkunum. Hvað tekur við að sýning- unni lokinni? Ég mun halda áfram að mála af fullum krafti, og teikna meira og vinna að grafíkmyndum. Einnig ætla ég að myndskreyta bók eftir Matthías Johannessen. Svo að það er feykinóg af verk- efnum sem bíða mín. En ég kemst yfir allt sem ég geri, enda ætla ég að lifa 200 ár í viðbót. Bragi Ásgeirsson. í baksýn er eitt verka hans á sýning- unni á Kjarvalsstödum. Ljósm. KE. Tónleikar í Bústaðakirkju á sunnudag: Frumflutningur á verkum Hafliða Hallgrímssonar HAFLIÐI llallgrímsson, sellóleikari, og Helga Ingólfsdóttir, semballeik- ari, halda tónleika í Bústaðakirkju á sunnudag, 26. september. Á tónleikunum, sem hefjast kl. 17, verða eingöngu flutt tónverk eftir Hafliða og er um frumflutning þeirra að ræða í Reykjavík. Fyrsta verkið á efnisskránni er Strönd, sem er sónata fyrir sembal. Þá verða flutt íslensku þjóðlögin Kvölda tekur og Bí bí og blaka í útsetningu fyrir selló og sembal. Eftir hlé leikur Hafliði síðan einleiksverk fyrir selló sem ber heitið Solitaire, en það hefur ver- ið flutt víða um heim. Tónleikun- um lýkur með þjóðlögunum Ljós- ið kemur langt og mjótt og Grát- andi kem ég nú Guð minn til þín. Blm. Mbl. átti stutt samtal við þau Hafliða og Helgu í vikunni um verkin á tónleikunum á sunnudag og starf þeirra. Hver er kveikjan að samningu verksins Strandar? „Eg fékk hugmyndina að verkinu, sem er tileinkað Helgu Ingólfsdóttur, þegar ég kom fyilr rúmu ári á heimili hennar, Strönd, sem er yst á Álftanes- tanga,“ sagði Hafliði. „Húsið hafði mjög góð áhrif á mig; gluggar þess vísa til hafs og út- sýnið er stórkostlegt. Segja má að ég sé að lýsa þeim hughrifum í verkinu sem ég varð fyrir í hús- inu og við að sjá litbrigði hafsins og strauma á yfirborðinu. Einnig var mynd á heimili Helgu, sem ég hafði gefið henni fyrir mörg- um árum en hafði gleymt, kveikj- an að einum kafla verksins. En ég samdi Strönd í ómblíðum stíl til að hljómar sembalsins nyti sín betur. í raun er ég sjálfur kominn á strönd því að ég hef í hyggju að fást meira við tónsmíðar en ég hef gert hingað til. M.ö.o. er nýr kapítuli að hefjast í starfi rnínu." „Mér þykir ákaflega vænt um að Hafliði hafi tileinkað mér þetta verk,“ sagði Helga. „Einnig er ég ánægð með að hann skyldi hafa brúað langt bil, sökum þess að liðin eru tuttugu ár frá því að við lékum fyrst saman, en það var í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Auk þess hefur Hafliði útsett ýmis þjóðlög fyrir selló og semb- al og endurnýjar þar með gömul kynni.“ Hver er ástæða þess að þú samdir og útsettir þjóðlög, Haf- liði? „Þau voru upphaflega samin og útsett fyrir nemendur og var tilgangurinn að spanna erfiða tækni sem flestir ungir sellóleik- arar þurfa að fást við. í fyrstu samdi ég sönglögin fyrir selló og píanó, en síðan endursamdi ég og útsetti þau fyrir sembal og selló.“ Hvað með verkið Solitaire? „Það má DBcja því við dagbók sellóleikara gegnum árin, en þó hafa margar síður verið rifnar úr henni. Þetta er eins og kapall milli mín og verksins. Þrautin felst í því að láta þennan kapai Hafliði Hallgrímsson ganga upp. En verkið hefur tekið miklum breytingum frá því að það var frumflutt. í upphafi var það flókið en hefur með tímanum orðið einfaldara og skýrara i formi.“ Hverjar eru framtíðaráætlanir ykkar í starfi? „Ég hef mikinn áhuga á því að taka meiri þátt í íslensku tónlist- arlífi í framtíðinni," sagði Haf- liði. „í augnablikinu er ég að vinna að verki bæði fyrir Pólsku kammersveitina og þá skosku, en ég hef verið félagi í henni í fimm ár.“ Helga Ingólfsdóttir „Ég mun halda áfram tón- leikahaldi," sagði Helga. „En sú breyting verður þó á að ég hyggst um nokkurt skeið snúa mér ein- göngu að barokk-tónlist. Sú ákvörðun á rót sína að rekja til þess að ég festi kaup á mjög góð- um sembal í vor, en áður hafði ég notað heimasmíðað hljóðfæri. Samfara þessu ætla ég að leika með tónlistarmönnum sem leika eingöngu á gömul hljóðfæri, s.s. blokkflautu og viola de gamba, því að sembalinn hljómar svo miklu betur með þeim,“ sagði Helga að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.