Morgunblaðið - 25.09.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
27
Jón Björnsson
Minningarorð
Kæddur 17. nóvember 1891
Dáinn 17. september 1982
Arin á milli heimsstyrjaldanna
voru ekki ár örrar þróunar á Sauð-
árkróki. En litla þorpið okkar
hafði tekið á sig þann svip sem
enn sjást glögg merki um; óvenju
breið og bein gata lá i gegnum
þorpið mitt, þar sem það lá í kyrrð
undir Nöfunum í vestri, og við
opið úthafið í austri, en til suðurs
bugðaðist Sauðáin sem þorpið dró
nafn af.
Við þessa aðalgötu sem náði frá
kirkju að Kaupfélagi var aðal-
vettvangur þessa litla samfélags,
svo sem Barnaskóli og kirkja,
sjúkrahús og læknir, símstöð, apó-
tek, iðnaðarmenn á tré og járn, úr-
og gullsmiður, rafvirki og fl. Hér
voru líka allar verslanir þorpsins.
Við þessa götu sem nú heitir
Aðalgata og í húsi sem er númer
17, bjó Jón Björnsson sem mig
langar að minnast, en hann er til
moldar borinn frá Sauðárkróks-
kirkju í dag.
Hér bjuggu þau hjónin Unnur
og Jón. Hús þeirra var skáhallt
hinum megin við götuna andspæn-
is okkar húsi. Þar sem börn þeirra
hjóna voru á svipuðum aidri og ég
og yngri systkini mín, var eðlilegt
að vinátta tækist milli þessara
heimila og hefir hún haldist alla
tíð síðan.
Hús Jóns og Unnar kallast lítið
hús í dag, en ég hygg að þrengsli
hjá þeim hafi verið minni en al-
gengt var á Króknum í þá daga.
Afast húsinu þarna í miðbænum
við aðalgötuna var fjós fyrir tvær
kýr, fjárhús, hlaða og lítið haug-
hús. Þetta var algengt og forðaði
fjölskyldunum frá hungri á þess-
um árum.
Jón fæddist 17. nóv. 1891 í
Hringsdal á Látraströnd í Suður-
Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans
voru hjónin Björn Björnsson ætt-
aður úr Svarfaðardal og Guðbjörg
Guðjónsdóttir frá Hólmavaði í
Aðaldal, en þau voru þarna vinnu-
hjú.
Til þriggja ára aldurs voru for-
eldrar hans með hann á ýmsum
stöðum í Svarfaðardal, en fluttust
að Hrafnsstöðum í Hjaltadal, en
sá bær heitir raunar Hlíð nú. Þar
með voru spunnir þeir örlaga-
þræðir að Jón var alla sína ævi í
Skagafirði.
Lítið varð um menntun annað
en sem svarar tveggja vikna
kennslu og lítils háttar viðbót hjá
heimiliskennara fyrir ferminguna.
Vorið 1910 fékk Jón vinnu á
Hólum í Hjaltadal við að byggja
fjós og hlöðu. Með því gat hann
aurað svo saman að hann komst í
Hólaskóla um haustið og
brautskráðist þaðan vorið 1912.
Vann Jón við ýmislegt til vors-
ins 1915 að hann réðst til Kristins
P. Briems sem verslunarmaður, og
starfaði hjá honum í 23 ár.
Þegar „Jón hjá Briem" hætti í
þeirri verslun þá var það svo sann-
arlega stór viðburður í okkar litla
þorpi. Það var ekki síður mikil-
vægt þá en nú að góðir afgreiðslu-
menn væru í verslununum, en Jón
var í fyrsta lagi mjög húsbónda-
hollur og í öðru lagi lipur og ráð-
hollur viðskiptavinum, sem var
mjög áríðandi á þessum kreppuár-
um.
Árið 1938 réði Jón sig til Kaup-
félagsins sem þá var að setja upp
nýja verslun í Gránu. Þar var
hann svo til ársins 1970 að hann
hætti eftir að hafa stundað versl-
unarstörf í 55 ár, og mun það fá-
gætt að hafa staðið svo lengi inn-
anbúðar.
í allmörg ár eftir að Jón fluttist
til Kaupfélagsins var hann kallað-
ur „Jón hjá Briem“ en smámsam-
an breyttist það í „Jón í Gránu".
Fátítt mun það vera nú til dags
að menn séu svo mjög bundnir
vinnustað sínum sem Jón var.
Þegar hann byrjaði hjá Briem
þá var vinnutími frá kl. 8 til 8 og
lengur í kauptíðinni. Ekki breytti
Jón til muna sínum vinnutíma þó
opnunartími breyttist, því ávallt
var nóg að sýsla fyrir árvakan
mann sem öllu hélt í góðu lagi.
Eru margar sögur til um ár-
vekni Jóns í starfi þó ekki verði
tíundaðar hér.
Árið 1919, 16. maí kvæntist Jón
eftirlifandi konu sinni Unni
Magnúsdóttur. Eignuðust þau
fimm börn, Auði ekkjufrú, vinnur
við afgreiðslustörf hjá Amaro á
Akureyri, Björn rafvirkjameist-
ara, vinnur hjá Rafveitu Sauð-
árkróks, Magnús búsettan í Ástr-
alíu, Sigríði húsfrú í Kópavogi og
Kára fulltrúa á pósthúsinu á
Sauðárkróki.
Áttu þau miklu barnaláni að
fagna, börnin hraust og traustir
þjóðfélagsþegnar, öll gift og eru
afkomendur þeirra hjóna orðnir
um 60.
Eftir að ég fluttist frá Sauð-
árkróki en tók að venja komur
mínar til heimahaganna kom ég
oft til þeirra, en einkanlega þótti
mér gott að koma til þeirra og fá
árbít, því þau voru árrisul Unnur
og Jón. Var þá margt skrafað,
gamalla tíma minnst og dægurmál
rædd. Það var mér sífellt undrun-
arefni hversu fróður Jón var í
heimspólitíkinni, og myndaði sér
skoðanir um hin ýmsu mál þótt
fjarlæg væru.
Nú er starfsdagur þessa ötula
starfsmanns að kveldi kominn.
Hans er minnst sem sómakærs,
virts og vinsæls samborgara sem
gott var að taka mið af. „Jón hjá
Briem“ eða „Jón í Gránu" gleymist
ekki í Sögu Sauðárkróks.
Við hjónin sendum aðstandend-
um samúðarkveðjur.
Otto A. Michelscn
Þekktur dansari væntanlegur
ÞEKKTUR bandarískur dansari,
Steve Fant, er væntanlegur til ís-
lands á næstunni, en hingað kemur
hann á vegum Sóleyjar Jóhanns-
dóttur, danskennara, og skemmti-
staðarins Broadway. Steve Fant
mun halda hér sex vikna dansnám-
skeið ásamt Sóleyju og auk þess
stjórna uppsetningu og setja á svið
sýningu í Broadway með íslenskum
dönsurum. Steve Fant er vel þekkt-
ur í heimalandi sínu, Bandaríkjun-
um, en síðastliðin sex ár hefur hann
dansað hjá Mörthu Graham og Alv-
in Ailey og starfað hjá American
Dance Workshop Company.
Steve Fant
Viðskipta- og
hagfræðingatal
Vegna stéttartals viöskiptafræöinga og hagfræöinga, sem í undir-
búningi er, vilja aðstandendur útgáfunnar hvetja þá, sem eyöublöö
hafa fengiö, aö hraöa útfyllingu og innsendingu þeirra til Almenna
bókafélagsins, Austurstræti 18, Reykjavík, fyrir 1. október nk.
Þá er þeim viöskiptafræöingum og hagfræðingum, sem af ein-
hverjum ástæöum hafa ekki fengið eyöublöð send sér, bent á aö
hafa samband viö Almenna bókafélagiö, Austurstræti 18, sími
25544, sem mun afhenda eöa senda þeim eyöublöö.
Aðstandendum fjarstaddra eða látinna viðskiptafræðinga og
hagfræðinga er sömuleiöis bent á aö setja sig í samband viö
Almenna bókafélagiö, Austurstræti 18, sími 25544, vegna eyðu-
blaða og verða þau þá send eins og um veröur beöið.
Almenna Félag viöskiptafræöinga
bókafélagið og hagfræöinga
FALLEG — STÍLHREIN — ÓDÝR
HÚSGÖGN
Opið frá kl. 10—5
Langholtsvegi 111, Reykjavik.
Sími 37010 — 37144.