Morgunblaðið - 25.09.1982, Síða 36

Morgunblaðið - 25.09.1982, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982 /rEf pú eri s\K>r\o. snjali, hveKoig sierdur p(X (X þ\/í Ób> jpdb \j(xr SvOna mifeío ótr€rr)dav-~ d^tand i heiir>ínum, ctbur er> 'eg faccidist t*" ásí er... .. að í/ródursetja eftirlœt- is blómin hennar. Tll Röq U.S Pat Off — all rights reserved • 1982 Los AnQeles Times Syndicate I>etta stendur allt til bóta á morg4- un. Þá verður billjardborðið laust! HÖGNI HREKKVlSI E£ HRÆDDUR UM AO HOPUÆKN/N6 POíSI EKK| / " Að hóta Skilvís skrifar: Ríkisútvarp okkar íslendinga mun vera eina útvarpsstöð í heim- inum þar sem sífellt er verið að hóta landsmönnum næstum blóði og eldi, ef þeir borgi ekki þetta og hitt strax. Svo er venjulega látið fylgja að okurvextirnir muni látn- ir dynja á fólki ef ekki sé borgað strax. Þessir vextir eru kallaðir dráttarvextir, til þess að þurfa ekki að nota réttnefnið, sem er okurvextir. Þessar eilífu hótanir og viðvar- anir í útvarpinu eru fyrir löngu orðnar óþolandi með öllu. Eru Is- lendingar virkilega svo skuldseigir að það sé nauðsynlegt að láta þessar ógeðfelldu hótanir dynja á fólki daginn út og daginn inn? En hvað með þá skilvísu? Eiga þeir að þurfa að hiusta á þessar hótanir frá morgni til kvölds vegna van- skilamanna? Því má ekki láta þetta fólk, sem ekki greiðir gjöld sín, fá okurvextina hótanalaust? Hótanirnar eru fyrir löngu orðnar máttlaust vopn, fólk lætur þær sem vind um eyru þjóta, en langflestum dauðleiðist þessi sí- felldi söngur um 4% dráttarvexti verði ekki gerð skil fyrir þennan og þennan dag. Og svo kemur þetta: Til þess að komist verði hjá því að beita viðurlögum!! Já, þeir komast sennilega við, rukkararn- ir, þegar þeir móttaka okurvextina i beinhörðum peningum. Krókó- dílstár, heitir það. Engum ber að gleyma Þ.Þ. (9532—0783) skrifar 18. september: „Velvakandi! Mig langar til að biðja þig um að komast eftir hvort einhver kann eða veit um einhvern sem kann Farmannavísur frá Hellnum á Snæfellsnesi. Þær eru sennilega ortar á árunum 1885 til 1890. Fað- ir minn kunni þær allar og kenndi mér, en ég er búinn að gleyma mörgum þeirra. Þær sem ég kann eru svona: FORMENNIRNIR VORU TÓLF Fimm á miðin fiska kólf flóða kiðin renna. Formenn liðugt tel ég tólf tryggða sið ei grenna. 1. Helgi gætinn geðs um far græn þó mæti bára, fram á sæti sæmeyjar Svanninn lætur ráða. (Ort um Hel|(« í Oíelabc) 2. Örvabaldur aðgætinn Olafur Skjaldartraða, ötull lætur súða sinn svalið kalda vaða. (Ort um Olaf í Skjaldartrod) 3. Kristján lætur Læishund löðrið væta kalda. Ægisdætur um þá stund af sér tæta falda. (Ort um Kristján í BárAarbúð eda Kristján á Kambi) 4. Hraustur jafnan hugglaður, höppum safnar lengi, borðar hrafni Brynjólfur býr á Drafnarengi. (Ort um Brynjólf i t.rbD 12. Taldir eru allir hér, engum ber að gleyma sem að eru um llnisuhyl Húnameri að teyma. GÆTUM TUNGUNNAR Sést hefur: Um næstu mánaðarmót. Rétt væri: Um næstu mánaðamót. (Ath.: Mánaða-mót eins og ára-mót, EKKI árs mót.) Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma þvi ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Komum í veg fyr- ir slys á börnum Móðir skrifar: „Velvakandi! Ég býst við að ég sé ekki ein um að fyllast ótta við lestur dagblaðanna á síðustu dögum. Þetta haust ætlar ekki að verða neitt betra en þau síðustu. Þrátt fyrir mikinn áróður í öllum fjöl- miðlum er eins og ekkert gerist. Nema þegar stórslys verður, þá tekur fólk við sér og sumir lofa bót og betrun. En það er of dýru verði keypt að slys þurfi til að fólk athugi sinn gang. Síðan gleymist slysið og öku- menn halda áfram að stíga of fast á bensíngjöfina og aka eins og þeir séu einir í heiminum. En þarf þetta að vera svona? Nei, það er ýmislegt hægt að gera ef fólk hugsar eitthvað og tekur ákvarðanir í samræmi við það. Mig langar að nefna nokkur dæmi sem gætu bætt ástandið. Mjög mörg börn þurfa að fara í skólann mörgum sinnum á dag vegna þess að stundaskráin er öll í götum. Þetta geta skóla- menn lagað í flestum skólum ef þeir taka nútímatækni í þjón- ustu sína við samningu stunda- skrár (og taka fyrst og fremst tillit til barnanna og síðan óska kennarans). Samfelldur skóla- dagur getur komið í veg fyrir slys á börnum sem þurfa að fara yfir akbrautir þar sem umferð er mikil. Annað dæmi: Ef ökumenn aka alltaf með því hugarfari að þeir geti mætt sínu eigin barni (barnabarni) við næstu gangb- raut eða gatnamót. Ennfremur: Ökumenn verða að gera sér grein fyrir því að barn er ekki smækkuð mynd af fullorðnum manni og hegðar sér þar af leið- andi ekki eins, er ekki eins ábyrgt gerða sinna ef svo má að orði komast. Vegna þessa verður alltaf að búast við hinu óvænta þegar ökumenn eiga leið fram- hjá börnum. Að foreldrar hafi stjórn á hjólreiðaferðum barna sinna, bendi þeim á hvar þeim er óhætt að hjóla og komi í veg fyrir að þau séu á hjóli ef þau hafa ekki aldur og þroska til þess að.hjóla samhliða umferð bíla. Ekkert barn ætti að fá að hjóla sam- hliða umferð bíla fyrr en eftir 10—11 ára aldur (og þá að und- angenginni þjálfun). Að vera alltaf viðbúinn þegar ekið er framhjá strætisvagni, sem numið hefur staðar, að barn geti komið hlaupandi fram und- an vagninum, og aka þess vegna varlega framhjá og í góðri fjar- lægð. Fyrir utan þá skyldu, sem hvílir á öllum ökumönnum, að fara eftir umferðarreglum, hvort sem það er hámarkshraði eða að virða umferðarmerkin. Verða ökumenn að vera viðbúnir hverju sem er hversu fjarstætt sem það gæti virst þegar ekið er framhjá börnum. Ef allir leggjast á eitt um að gera sitt besta getum við komið í veg fyrir eða a.m.k. dregið úr slysum á börnum í umferðinni." „Ökumenn verða að gera sér grein fyrir því að barn er ekki smækkuð mynd af fullorðnum manni og hegðar sér þar af leiðandi ekki eins, er ekki eins ábyrgt gerða sinna, ef svo má að orði komast. Vegna þessa verður alltaf að búast við hinu óvænta, þegar ökumenn eiga leið fram hjá börnum.“ Þ.Þ. 9532—0783

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.