Morgunblaðið - 25.09.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
37
1EK
AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Breiðholt — Árbær — Lækjartorg
Breiðholtsbúi skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Eg skrifa vegna vegarins sem
kominn er milli Breiðholts og
Árbæjar. Eftir tilkomu hans
finnst mér nauðsynlegt að fá
strætisvagnaleið milli Breiðholts
og Árbæjar. Hægt væri t.d. að
láta þessa leið fara frá Breiðholti
yfir í Árbæinn og svo hraðferð
þaðan og niður á Lækjartorg.
Árbæinga vantar líka greinilega
strætóleið niður á Lækjartorg,
því aðeins einn vagn, leið 10,
gengur þaðan og fer ekki lengra
en á Hlemm. Þarna mundu því
verða slegnar tvær flugur í einu
höggi. Virðingarfyllst."
Er nokkur dúkku
viðgerð í borginni?
A.St. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ætli það sé
starfrækt nokkurt dúkkuvið-
gerðarverkstæði hér í borg nú
orðið? Ég man að svo var einu
sinni. Mig minnir að það hafi
verið á Skólavörðustíg eða á
Þórsgötu. Getur ekki einhver
lesenda þinn hjálpað mér að
komast að hinu sanna í því efni?
Ámælisvert siðleysi
Margrét hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Fyrir
nokkrum dögum ók ég austur
yfir Hellisheiði. Á háheiðinni
var dimm þoka, rigning og mikið
snjókrap. Ég ók með ljósum á
u.þ.b. 60 km hraða og þótti nógu
hratt ekið við slík skilyrði. Fjór-
ir fólksbílar óku fram úr mér,
hver á eftir öðrum, á ofsahraða
líkt því og kappakstur væri. Þeir
jusu snjókrapinu yfir minn bíl,
svo að ekki sá út um rúðurnar.
Ég varð að snöggstöðva fjórum
sinnum, á meðan þurrkan
hreinsaði snjóinn af framrúðu
bílsins. Ef ekki hefði verið vegna
gætilegs aksturs þeirra sem á
eftir mér óku, hefði þarna skap-
ast hætta á árekstri. Dónaskap-
ur, tillitsleysi og lögbrot öku-
fanta víða á útvegum eru nú svo
algeng fyrirbæri að furðu sætir.
Þetta er auðvitað ámælisvert
siðleysi.
Vantar óskalagaþátt
fyrir aldraða
Hulda Jörgensen hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Er ekki hægt að mælast til
þess við Ríkisútvarpið að það
komi á laggirnar óskalagaþætti
fyrir fullorðna fólkið. Eg hef
frétt það eftir góðum heimildum,
að slíkur þáttur sé í danska út-
varpinu, þar sem fólk hringir inn
og fær óskalög sín flutt. Tónlist-
arsmekkur þess er yfirleitt öðru-
vísi en okkar sem yngri erum, en
full ástæða til að veita því
nokkra úrlausn ekki síður en
okkur hinum.
Sígarettuauglýs
ingar á skíðahúfum
HJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Ég fór til ír-
lands í vor og ætlaði áður að
verða mér úti um vörulista Frí-
hafnarinnar. Hann gat ég alls
ekki fengið og mér var sagt á
ferðaskrifstofunum að bannað
væri að dreifa listanum vegna
vín- og sígarettuauglýsinga sem
í honum væru. Svo þegar ég kom
í Fríhöfnina voru menn í óða önn
að selja skíðahúfur með sígar-
ettuauglýsingum á. Mér fannst
þetta skjóta skökku við þær upp-
lýsingar sem ég hafði áður feng-
ið.
Hjálpar ekkert
að hengja bakara
fyrir smið
Gunnar Jónsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Það hefur verið sagt í um-
ræðum um slysaölduna sem nú
ríður yfir hjá okkur, að ökumenn
taki lítið tillit til hjólreiðafólks.
I því sambandi vil ég segja að
það telst til undantekninga að
maður sjái reiðhjól með ljósum
á. Það vantar jafnvel luktirnar á
hjólin og allan ljósabúnað. Ég sé
ekki annað en herða þurfi stór-
lega eftirlit með þessum útbún-
aði á reiðhjólum og að hann sé
notaður. En um umferðar-
ómenninguna hér er það annars
að segja, að hún stafar að miklu
leyti af löggæsluleysi, held ég,
fyrst og síðast. Þetta tillitsleysi
sem hér ríkir í umferðinni, þrífst
aðeins fyrir það að lögregla er
hvergi nálæg, eða er afskipta-
laus eða afskiptalítil ef hún er
nálæg.
Menn eru að reyna að skella
skuldinni á bifreiðakennsluna,
að henni sé ábótavant. Þó dynja
á okkur viðvaranir og auglýs-
ingar árið út og árið inn, leið-
beiningar og ábendingar, en allt
til einskis: Móttakarinn er í
ólagi, menn gera ekki það sem
þeir þó vita réttast — og þeim
líðst það vegna ónógrar lög-.
gæslu, eins og ég áður sagði. Það
hjálpar okkur ekkert að ætla að
hengja bakara fyrir smið.
s»
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
EKKI TILEFNI
TIL BJARTSÝNI
Rætt viö Jóhannes Nordal,
Seölabankastjóra.
— O —
JOHN STEINBECK
og AUSTAN EDEN
— o —
GYÐINGAOFSÓKNIR
— o —
LOKAKAFLINN
ER HÁMARKIÐ
Rætt viö fyrrverandi fíkniefnasala
— O —
AÐ SÁLGREINA
LEIÐINDASKJÓÐUR
— o —
FÓTBOLTANUM
FÓRNAÐ FYRIR
ÓPERUNA
— o —
MARÍUHÖFN
— o —
ARNÓR
GUÐJOHNSEN
— o —
HELMUT KOHL
Svipmynd á sunnudegi
— O —
EKKI SVÖRT PLATA
Rætt viö félaga í Nýja Kompaníinu
— O —
POTTARÍM
— o —
HUGVEKJA
— o —
REYKJAVÍKURBRÉF
— o —
Á FÖRNUM VEGI.
Sunnudagurinn byrjar á síðum Moggans