Morgunblaðið - 25.09.1982, Síða 40
^^Vskriftar-
síminn er 830 33
"^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
Ný flugstöð á Keflavíkurflugvelli:
Samkomulag á Bandaríkjaþingi um
að fresta niðurfellingu fjárveitingar
Undirmenn á farskipum:
Verkfall hófst í gær
VERKFALL undirmanna á farskipum hófst klukkan tólf á hádegi í gær,
föstudag, eins og boðaó hafði verið. Samningafundur farmanna og
skipafélaganna hjá ríkissáttasemjara stóð til klukkan 20 í gærkveldi,
án þess að samkomulag tækist.
Guðlaugur Þorvaldsson, rík- þó ekki í sjónmáli. Nýr fundur í
issáttasemjari, sagði í samtali deilunni hefur ekki verið boðað-
við blaðamann Morgunblaðsins ur, en ríkissáttasemjari kvaðst
í gærkveldi, að miklar umræður hafa samband við fulltrúa
hefðu farið fram, gagnlegar í deiluaðila á mánudag.
sjálfu sér, en samkomulag væri
Storð gengst fyrir nýstárlegum skákviðburði:
Vaxtastig verðtryggðra
lána komið í 88,8%
Hraði byggingavísitölu nú 86,1% miðað við heilt ár
VEXTIR og verðtrygging á verð-
tryggðum lánum er nú 88,8% á ári sé
miðað við hækkun lánskjaravísitölu
I. október næstkomandi.
Eins og fram kom í Mbl. í gær,
þá hækkaði lánskjaravísitalan 1.
október um 5,22% frá septem-
bermánuði. Sé sú hækkun fram-
reiknuð á heilt ár sýnir hún að
verðbólguhraðinn er 84,23%. Og ef
vöxtunum af verðtryggðum lán-
um, sem yfirleitt eru 2—3% á ári,
er bætt við verðtrygginguna kem-
ur í ljós að vextir og verðtrygging
sem iántakendur verðtryggðra
lána þurfa að greiða eru 88,8% á
ári.
Vísitala byggingarkostnaðar
hækkaði um 16,8% á tímabilinu
júní til september í ár, samkvæmt
útreikningum Hagstofunnar. A
ársgrundvelli samsvarar þessi
hækkun 86,1%. Vísitala bygg-
ingarkostnaðar er reiknuð eftir
verðlagi í fyrra hluta september,
og reyndist hún vera 1.331 stig,
miðað við að vísitölustigið var 100
í október 1975. Vísitala þessi gildir
á tímabilinu október til desember
1982.
Eins og kom fram í tilkynningu
Hagstofunnar um byggingavísi-
tölu þá er tók gildi 1. júlí í sumar,
kom hækkun útseldrar vinnu sak-
ir nýs kjarasamnings meistara og
sveina frá 14. júní, ekki fram í
henni. Hækkun þessi er á hinn
bóginn inni í þessari nýju vísitölu,
en væri henni sleppt væri hækkun
vísitölunnar frá verðlagi í júni til
verðlags nú í september 14,1% í
stað 16,8%.
Blíða á Hvammstanga
Spassky og Friðrik mæt-
Tefldar verða fjórar skákir í
einvíginu en ekki hefur enn verið
ast í „lokuðu“
BORIS Spassky, stórmeistari og
fyrrum heimsmeistari í skák, og
Friðrik Ólafsson, forseti FIDE,
tefla einvígi hér í Reykjavík dag-
ana 4. til 8. október næstkomandi.
Að þessum sérstæða skákviðburði
stendur Storð, nýtt tímarit, sem Al-
menna bókafélagið og lceland
Review undirbúa nú að gefa út
sameiginlega, eins og fram kom i
frétt i Mbl. á miðju sumri.
Einvígið verður haldið fyrir
luktum dyrum og mun úrslitum
þess verða haldið leyndum þar
til fyrsta tölublað Storðar kemur
út, fljótlega eftir áramótin, en
þar munu skákirnar birtast
ásamt skýringum stórmeistar-
anna.
einvígi
ákveðið með hverjum hætti
skorið verður úr um sigurvegar-
ann, ef keppendur standa jafnir
að fjórum skákum loknum. Ein-
vígið mun fara fram á Hótel
Loftleiðum, en Flugleiðir hafa
boðið Spassky far til og frá land-
inu og uppihald meðan á dvöl
hans hér stendur.
Spassky hefur fallist á að tefla
eitt fjöltefli, áður en sjálft ein-
vígið hefst og mun það fara fram
síðdegis sunnudaginn 3. október.
Nær allir þátttakendur í fjöltefl-
inu verða úr hópi starfsmanna
Búnaðarbankans, Landsbankans
og Útvegsbankans, en áhorfend-
um verður heimilt að fylgjast
með fjölteflinu.
— formleg afgreiðsla í
þingdeildum á næstu dögum
SAMKOMULAG hefur náöst um það á Bandaríkjaþingi að fella ekki niður 20
milljóna dollara fjárveitingu til nýrrar flugstöðvarbyggingar á Keflavíkurflug-
velli. Fyrir lá, að fjárveitingin yrði þurrkuð út af bandarískum fjárlögum 1.
október næstkomandi þar sem ríkisstjórn íslands hefur ekki getað komið sér
saman um að nýta fjármagnið. Samkvæmt samkomulaginu í þinginu, sem gert
var á miðvikudag, er gildistími fjárveitingarinnar framlengdur um eitt ár, til 1.
október 1983. Marshall Brement, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, fylgdi
tilmælum Olafs Jóhannessonar um framlengingu á fjárveitingunni eftir, þegar
hann dvaldist í Washington í tilefni af
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti þann þátt fjárlaga sem
fjallar um fjárveitingar til fram-
kvæmda á valdsviði varnarmála-
ráðuneytisins fyrir skömmu. í
þeirri samþykkt fólst framlenging
Fyrsta
„frostið“
í Grimsby
FYRSTU frystivélarnar í frysti-
geymslum Sölumiðstöðvar hrað-
frytihúsanna i Grimsby voru
gangsettar í gær. Um er að ræða
7.500 fermetra geymslurými,
þegar allt hefur verið tekið í
notkun. Þessar upplýsingar sím
í gær Friða Proppé, blaða-
maður Morgunblaðsins, sem
stödd er í London.
A leiðinni munu vera fyrstu
fiskfarmarnir af frystum fiski,
sem fara eiga í þessar geymsl-
ur. Er það m.a. blokkarfiskur,
en fyrirhugað er síðar meir að
í sambandi við þessar fisk-
geymslur verði starfrækt fisk-
réttaverksmiðja, sem framleiði
fyrir brezkan markað með
svipuðu sniði og Coldwater-
verksmiðjurnar í Bandaríkjun-
um framleiða fyrir markað þar
vestra.
heimsókn forseta Islands þangað.
á fjárveitingum til nokkurra verk-
efna, þar á meðal nýju flugstöðvar-
innar á Keflavíkurflugvelli. Öld-
ungadeildin hafði hins vegar lýst
því yfir, að hún væri andvíg ýmsum
ákvæðum í þessu lagafrumvarpi.
Miðvikudaginn 22. september var
síðan efnt til fundar í sameigin-
legri nefnd beggja deilda Banda-
ríkjaþings, þar sem samið er um
framgang mála, sem önnur deildin
vill að nái fram en hin ekki. Á
fundi þessarar nefndar var fallist á
málamiðlun, sem felur það meðal
annars í sér að öldungadeildin fell-
ur frá andstöðu sinni gegn fram-
lengingu á fjárveitingunni til nýju
flugstöðvarinnar. Frumvarp, sem
byggt er á slíkri málamiðlun milli
þingdeildanna, verður hins vegar
að fara í gegnum báðar deildirnar
og verði það samþykkt, eins og allt
bendir til, þarfnast lögin undirrit-
unar Ronald Reagans, Bandaríkja-
forseta, til að öðlast gildi. Talið er
að þessi gangur málsins geti tekið
um tvær vikur.
Ráðherrar Alþýðubandalagsins
beittu hinn 8. september sl. neitun-
arvaldi gegn tillögu Ólafs Jóhann-
essonar um að ráðast í fram-
kvæmdir við bygginguna á þessu
ári. Þar með lá fyrir, að 20 milljóna
dollara fjárveiting Bandaríkja-
manna myndi falla niður 1. október
næstkomandi. Við svo búið sagðist
utanríkisráðherra leita eftir fram-
lengingu á fjárveitingu Banda-
ríkjastjórnar og síðan fylgdi
Marshall Brement, sendiherra,
málinu eftir í Washington.