Morgunblaðið - 09.10.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
3
Síldveiðar að
giæðast að nýju
SÍLDVEIÐAR eru nú að glæðast að nýju eftir fremur dauft tímabil. Vel hefur
veiðzt í hringnót, en mun minna í rek- og lagnet. Veiðar hafa gengið þokkalega
í nótina síðustu þrjá daga og mest veiðzt í og út af Vopnafirði og Borgarfirði.
Mestu af síldinni hefur verið landað á Vopnafirði, Eskifirði og Norðfirði, en
einnig hefur síld borizt suður til Fáskrúðsfjarðar og allt til Grindavíkur. Lítið
hefur verið landað á Hófn í Hornafirði.
Aflahæsta skipið á vertíðinni nú
er Sigþór frá Húsavik, sem í gær
hafði fengið um 440 lestir. Magnús,
Neskaupstað, hafði fengið um 310
lestir, Börkur, Neskaupstað, um
300, Hrafn frá Grindavík um 340,
Sæljónið, Eskifirði, um 240 og Gísli
Árni frá Reykjavík um 230 lestir í
gærdag. Allt eru þetta nótaskip.
Hámarksveiðikvóti á skip er 460
lestir.
Ágúst Guðmundsson SK kemur með síld til Eskifjarðar í blíðuveðri eins og verið hefur eystra síðustu daga. Til vinstri er
minnismerki um drukknaða siómenn: siómaður fer með sjóferðarbæn. l.jósm. /Kv»r.
16% GENGISFELLING
SÆNSKU KRÓNUNNAR
IGÆR
SIORLÆKKUN
IDAG
Dæmi um verðlækkun.
Fyrir gengisfellingu:
SAAB 900 Gli 231.900 kr.
eftir gengisfellingu 205.700 kr.
mismunur 26.200 kr.
Það sannast betur og betur,
—SAAB er bíllinn.
Opið í dag frá kl. 10—18.
TÖGCURHF.
SAAB
UMBODIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530