Morgunblaðið - 09.10.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982
SAAB reynsluekið í Tékkóslóvakíu
og Vestur-Þýzkalandi:
Lítil benzíneyðsla
kom mest á óvart
— Meðaleyðsla turbo-bílanna var 10,3—10,5 lítrar á 100 km
— Meðaleyðsla 900 CíLi var 9,4 lítrar á 100 km
— Meðaleyðsla 99 bílsins var 8,7 lítrar á 100 km
Sighvatur Blöndahl
Bílaframleiðendur heimsins
hafa á liðnum misserum og árum
lagt æ þyngri áherzlu á fram-
leiðslu eyðslugrannra bíla og hef-
ur orðið ótrúlega ágengt í þeim
efnum. Á dögunum reynsluók ég
hinum ýmsu útfærslum af SAAB
1983-árgerðinni á leiðinni frá
Prag í Tékkóslóvakíu til Frank-
furt í Vestur-Þýzkalandi, en auk
þess að kynna framleiðslu sína af
1983-árgerðinni, lögðu SAAB-
menn sérstaka áherzlu á að kynna
mönnum hvernig bílarnir koma út
í eyðslu. Mjög nákvæmar mæl-
ingar voru gerðar á hinum ýmsu
bílum á leiðinni og þegar upp var
staðið er ekki hægt að segja annað
en árangurinn hafi verið ótrúlega
góður.
LÍTIL MEÐALEYÐSLA
Eknir voru um 670 km og höfðu
menn til umráða SAAB 900 GLi,
SAAB Turbo og SAAB 99. Um var
að ræða misjafna vegi, allt frá
frekar lélegum vegum í Tékkó-
slóvakíu upp í mjög góðar hrað-
brautir í Vestur-Þýzkalandi. Þar
sem menn skiptust á að aka bílun-
um má segja, að útkoman sé nokk-
uð marktæk, því auðvitað aka
menn með mismunandi aksturs-
lagi. Meðaleyðslan á öðrum
turbo-bílnum á þessum 670 km var
um 10,3 lítrar á hverja 100 km, en
um 10,5 lítrar á hinum. Meðal-
eyðslan á GLi-bílnum var um 9,4
lítrar á hverja 100 km, en meðal-
eyðslan á 99-bílnum var um 8,7
lítrar á hverja 100 km.
Það sem kom mér mest á óvart
var benzíneyðsla bílanna þegar
þeim var ekið síðustu 200 km inn
til Frankfurt á góðum hrað-
brautum. Sjálfur ók ég SAAB
Turbo og ók ég bílnum á 160—200
km hraða á klukkustund mestalla
leiðina, auk þess að setja hann í
liðlega 220 km hraða á klukku-
stund. Eyðslan á þessum gríðar-
lega hraða var ekki nema Iiðlega
11,5 lítrar á hverja ekna 100 km.
Á þessu sama kafla var SAAB
900 GLi-bílnum ekið á 150—180
km hraða á klukkustund og var
eyðsla hans á þessum kafla 9,8
lítrar á hverja 100 km. Loks má
geta þess, að SAAB 99-bílnum var
ekið á 140—160 km hraða að með-
altali á þessum hluta leiðarinnar,
en eyðslan á honum var rétt lið-
lega 9,2 lítrar á hverja 100 km.
Þessi útkoma er óneitanlega mjög
SAAB 99 kemur nú með nýju grilli, sem er til bóta.
Mælaborðið í SAAB Turbo er mjög vel hannað.
góð, enda hafa sérfræðingar verk-
smiðjanna lagt í það gríðarlega
vinnu á undanförnum árum, að
gera bílana sem allra sparneytn-
asta. Það má reyndar skjóta því
inn, að á síðasta ári var sett ný vél
í 99-bílinn, sem talin er vera
10—15% eyðslugrennri en sú
eldri.
BREYTINGAR Á
1983-ÁRGERÐINNI
Áður en lengra er haldið er rétt
að líta aðeins á þær breytingar,
sem verða á 1983-árgerðinni frá
SAAB. Ekki er um neinar rót-
tækar breytingar að ræða. Allir
bílarnir eru nú framleiddir með
nýjum svokölluðum asbest-
bremsum, sem gera það að verk-
um, að klossar eiga að endast um
þrisvar sinnum lengur en ella.
Turbo-bílarnir eru nú fáanlegir á
öllum mörkuðum með hið svokall-
aða APC-kerfi, sem gerir það að
verkum, að hægt er að aka bílnum
á öllum tegundum benzíns, burt-
séð frá því hver oktantalan er, auk
þess sem kerfið á að tryggja um
8% minni benzíneyðslu. SABB 99
kemur nú með nýju grilli, sem er
til bóta, auk þess sem hann er nú
fáanlegur á öllum Evrópu-
mörkuðum með 5 gíra kassa og á
sérstökum P8-dekkjum, sem gera
það að verkum, að hann eyðir
minna benzíni en ella. Sömu sögu
er að segja af SAAB 900 GLs og
GLi. Þá hefur stillimöguleikum
bílstjórasætisins verið fjölgað,
sem er til bóta. Loks má geta þess,
að meira úrval er nú af litum og
áklæðum í bílana.
SAAB Turbo
Innréttin? 900-bílanna er mjög vönduð og sætin einnig.
Erik Carlsson, rallkappinn kunni,
sem starfar í kynningardeild SAAB,
fyllir hér i einn turbo-inn i leiðinni
fri Prag til Frankfurt.
Bílar
SAAB 900 GLi:
Tekur vel við sér með
beinni innspýtingu
SAAB 900 GLi svipar í raun
mjög til turbo-bílsins, þar sem
þeir eru í raun með sömu yfir-
byggingu. Það þarf því ekki að
fjölyrða svo mjög um útlit bíls-
ins, en hægt er að velja um
þriggja, fjögurra og fimm dyra
bíl. Ekki er um neina meirihátt-
ar breytingu að ræða á bílnum
frá fyrri árgerð.
Sömuleiðis er innrétting bíls-
ins um margt svipuð, þó eilítið
meiri íburð sé að sjálfsögðu að
finna í turbo-bílnum. Sætin eru
þau sömu, en nefna má að rúðu-
upphalarar eru handvirkir í
GLi-bílnum, en rafdrifnir í
turbo.
GLi-bílIinn er knúinn 118 DIN
hestafla, fjögurra strokka vél,
sem er með beinni innspýtingu,
sem virkar mjög vel. Það er til-
tölulega erfitt að bera GLi-bíl-
inn saman við turbo-inn, þar
sem sá síðarnefndi er slíkur yfir-
burðabíll. Hins vegar virkar
GLi-bíllinn alveg ágætlega og
beina innspýtingin gerir það
m.a. að verkum, að hann tekur
ágætlega við sér, reyndar mun
betur en GL- og GLs-bílarnir.
Þess má geta, að GLi-bílamir
komu í fyrsta sinn hingað til
lands á dögunum.
Um aksturseiginleika bílsins
er það að segja, að þeir eru góðir.
Hann liggur vel á miklum hraða
og fjöðrunin er ágæt, þótt hún sé
ekki eins stíf og í turbo-bílnum,
sem í sjálfu sér er kostur hér á
landi, þar sem vegir eru ekki
betri en raun ber vitni. Annars
má vísa til skrifa, sem birtust
hér í blaðinu á dögunum um
reynsluakstur bílsins hér á
landi.
Vió vegi í Tékkóslóvakíu er víða að finna skilti sem þetta, en vió þau geta
ökumenn stillt Ijós bifreióa sinna. Það var aó vísu ekki neina stillingu fyrir
SAAB-inn aó fínna. Við bílinn stendur Ole Wallén frá kynningardeild SAAB,
sem var siglingafræóingur undirritaðs.