Morgunblaðið - 09.10.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 09.10.1982, Síða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 22 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö. 6,45 aurar í 9,5 aura — ekki 15—20 aurar Iöllum mannlegum sam- skiptum gildir sú megin- regla, þegar menn semja sín á milli, að í upphafi setja þeir fram ýtrustu kröfur og fikra sig svo áfram að sameiginlegri niðurstöðu, þeir komast að málamiðlun sé vilji til sátta eða samninga en leita ella rétt- ar síns með öðrum hætti. Þessi einfalda regla ætti að vera öll- um ljós og ekki síst stjórn- málamönnum. Þeir ættu að vita betur en flestir aðrir, að málamiðlun næst ekki nema báðir aðilar deilu vilji nokkru fórna fyrir sættir. Hinn 25. mars 1982 lagði dr. Paul Múller, formaður fram- kvæmdastjórnar Alusuisse, til- boð fyrir Hjörleif Guttorms- son, iðnaðarráðherra, um lausn á ágreiningi milli ríkisstjórnar íslands og Alusuisse. Eitt helsta ágreiningsmálið er verð á raforku til álversins í Straumsvík. Eftir að Hjörleif- ur hafði tekið við þessu tilboði sagði hann í blaðaviðtali „að málin lægju nú ljósar fyrir en áður og unnt ætti að vera fyrir málsaðila, Island og Alusuisse, að gera upp hug sinn varðandi efnisatriði deilunnar fyrr en seinna". Hinn 6. maí 1982 hitt- ust aðilar aftur og þá var Hjörleifur Guttormsson með gagntilboð, þar sem hann bauð Alusuisse það, að verð á raf- orku til álversins skyldi frá og með 1. júlí 1982 hækka úr 6,45 mills í 9,5 mills og síðan að nýju, þegar ál hefði hækkað miðað við skráningu á markaði í London, en sú hækkun hefur ekki enn orðið. Vegna þeirra tímamarka sem ráðherrann gaf viðsemjanda sínum, nokkr- ar klukkustundir, til að taka tilboði sínu rifti Alusuisse við- ræðunum á þeim forsendum, að sér hefðu verið settir úrslitakostir og ekki gefið tóm til að kynna sér ráðherratillög- urnar. Þennan sama dag hélt Hjörleifur Guttormsson svo ræðu á Alþingi þar sem hann sagðist hafa krafist 15 til 20 mills hækkunar á raforkuverði í þessum viðræðum við Alu- suisse. Um tvísögli ráðherrans var fjallað í gær. Ráðherrann segir nú, að hann hafi boðið 9,5 mills, sem þá samsvaraði 9,5 aurum af því að hann ætlaði að fá hækkun upp í 15 til 20 mills! Þessi samningatækni stangast á við allar viðteknar venjur í mannlegum samskiptum — venjulega verða menn að slá af kröfum til að ná samkomulagi. Hvaða maður mundi hefja söluviðræður um húsið sitt með því að bjóðast til að gefa það? Tilboð Hjörleifs til Alu- suisse sýnir, að honum er ekki unnt að treysta fyrir málstað íslands. Tilboð Hjörleifs var of lágt miðað við stöðuna í samn- ingunum. Mistök iðnaðarráð- herra í álmálinu eru mörg en þetta lága tilboð líklega hin verstu. Hvað skyldi það kosta þjóðina tímabilið sem Hjörleif- ur Guttormsson veldur móðu- harðindum í orkumálum? SÍS á ísafirði Eftir að vörumarkaðurinn Ljónið á ísafirði hafði ver- ið seldur Kaupfélagi ísfirðinga sagði fráfarandi framkvæmda- stjóri vörumarkaðarins, Heið- ar Sigurðsson, í viðtali við Morgunblaðið, að sér fyndist að stjórnvöldum væri að takast það sem þau stefndu að, þ.e. að þjarma svo að versluninni, og þá sérstaklega matvöruversl- uninni, að hún kæmist öll á eina hendi og fyndist honum ekki ástæða til þess lengur að taka þátt í þessum skollaleik stjórnvalda. Réttmæti þessara fullyrðinga er alls ekki dregið í efa. Og þeir eru ekki ófáir leið- ararnir sem Tíminn, flokks- pólitískt málgagn SIS, hefur ritað um vanda dreifbýlisversl- unarinnar vegna of lágrar álagningar. Hvernig stendur þá á því, að SÍS getur og vill kaupa vörumarkaðinn Ljónið á ísafirði? Benedikt Bjarnason, formað- ur Kaupmannafélags Vest- fjarða, segir að geta SIS stafi af því, að þessi mikli verslun- arhringur njóti betri starfs- skilyrða en einkaaðilar. Um þá staðreynd þarf ekki að deila, enda kveinka flokkspólitískir málsvarar SÍS sér mest þegar sagt er að hringurinn eigi að njóta sömu skilyrða og aðrir. Vilji SÍS stafar af þeirri áráttu svo stórra fyrirtækja að út- rýma öllum keppinautum. Nú er SIS að verða einrátt á Isa- firði og mun „eignast" höfuð- stað Vestfjarða, þegar það nær tökum á frystihúsunum, en það er lokamarkið. Morgunblaðid/ Kristján Einarsson Klemminn yfir Reykjavík í hinu sögulega flugi í gær. Flugmálastjóri stjórnar flugvélinni úr aftursætinu. Klemminn aftur í loftið eftir 42 ára hlé ÞAII tíðindi gerðust i g«r, að I ið var á ný einni fyrstu flugvél ls- lendinga, Klcmmanum svonefnda, TF-SUX, sem á sínum tíma gegndi mikilvKgu hlutverki i flugsam- göngum hér á landi. Það var Agnar Kofoed Hansen flugmálastjóri sem stjórnaði TF-SUX, en hann var einn þeirra sem á sínum tíma stjórn- aði vélinni. Flaug Agnar í nokkr- ar mínútur yfir Reykjavík, en unnið er að gerð heimildarmynd- ar um flugvélina. Klemminn var skráður hér á landi í september 1938, en tekinn af skrá í febrúar 1940, og hefur því ekki flogið í millitíðinni, ef undan er skilinn einn hringur um Reykjavíkurflugvöll sumarið 1979 eftir að Gísli Sigurðsson hafði endurbyggt flugvélina. Flugvélin er þýzk, af gerðinni Klemm KL-25, og það voru þýzk- ir vísindamenn sem komu með hana á sínum tíma. Sá sem flaug TF-SUX seinna mest á sínum tíma var Sigurður Jónsson, Siggi flug, fyrsti flugmaður íslend- inga, og hann var að sjálfsögðu viðstaddur þegar vélinni var flogið í gær. Eins og nærri má geta er þessi fimmtuga flugvél í flughæfu ástandi, en heiðurinn af því á Gísli Sigurðsson þúsundþjala- smiður Flugmálastjórnar. Gísli fylgdist að sjálfsögðu með í gær og fannst mikið til koma að sjá krossviðsvélina gömlu kljúfa loftið. Gísli hefur nýverið fært í tal við Flugsögu- félagsmenn að nú sé bara að drífa í því að smíða Avro 504K-flugvél eins og þá fyrstu sem flaug hér á landi, en það var Agnar Kofoed Hansen búinn að hagræða sér I flugstjórasætinu og til- búinn að hefja flugið. árið 1919. Til munu fullkomnar teikningar og ýmsir þeir hlutir sem til þarf, og segir Gísli að ekkert sé í veginum, og bezt sé að hefjast handa sem fyrst. Um þessar mundir fæst Gísli við endursmíði fyrstu og einu flugvélarinnar, sem hönnuð hef- ur verið og smíðuð hér á landi, en það er Ögnin svonefnda, sem Gunnar Jónsson forstjóri í Stálhúsgögnum og fleiri smíð- uðu á sínum tíma. Endursmíðin er unnin að tilstuðlan Flugsögu- félagsins, og er vel á veg komin, en flugvél þessi flaug síðast 1942. - ágás. Gísli Sigurðsson þúsundþjala- smiður, sem endursmíðaði Klemminn og gerði flugið í gær kleift, fylgdist með fluginu í gær. Morgunblaðid/ Ólafur K. Magnússon t Morgunblaöið/ ÓI.K. Mag. Siggi flug við Klemminn á Reykjavíkurfugvelli í gær. Hann flaug þessari flugvél meir en nokkur annar hér á landi á sínum tima.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.