Morgunblaðið - 09.10.1982, Side 27

Morgunblaðið - 09.10.1982, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 1982 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar □ Gimli 598210117 — 1 Atk □ Helgafell 59821092 IV/V — 5 Krossinn Samkoma í kvöld kl. 20.30 aö Alfhólsvegi 32, Kópavogi. Hel- ena og Gréta koma i bæinn. Allir hjartanlega velkomnir. Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík A morgun, sunnudag. veröur sunnudagaskóli kl. 11.00 og al- menn samkoma kl. 17.00. Athugiö breyttan samkomutíma. Veriö velkomin. Heimatrúboöiö Óðinsgötu 6a Almenn samkoma á morgun sunnudag kl. 20.30. Allir vel- komnir. Sunnudagaskólar Fíladelfíu Njarövíkurskóli kl. 11. Grindavikurskóli kl. 14. Munum svörtu börnin. Öll börn hjartanlega velkomin. Kristján Reykdal FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU3 SÍMAR11796 og 19533. Sunnudagur 10. október 1. kl. 10. Langahlíö — Brenni- steinsfjöll — Settún Nokkuö löng.ganga. en ekki erfið 2. kl. 13. Ketilstígur — Krísuvík — Seltún Ekiö á Lækjarvelli, síöan gengiö um Ketilstig. Arnarvatn og i Krísuvík. Létt ganga. Verö i báö- ar feröirnar kr. 180, gr. viö bíl- inn. Frítt fyrir börn i fylgd meö foreldrum sinum. Fariö frá Um- feröarmiöstööinni aö austan- veröu. Ferðafélag Islands. m Símsvari: 14606 Dagsferöir sunnudag- inn 10. okt. Kl. 8.00 Þórsmörk. Verö 250 kr. Háltt gjald fyrir 7—15 ára. Kl. 13 ísólfsskóli — Selatangar. Katlahraun (Dimmuborgir), hell- ar, fiskabyrgi, refagildrur, o.m.fl. skemmtilegt. Verö: 150 kr. frítt f. börn m. fullorönum. Brottför frá BSl, bensínsölu. (í seinni ferö er stansaö v/Kirkjug. Hafnarf.). Bjart framundan. SJÁUMSTI Feröafélagiö Útivist Félagið Svæðameðferð heldur námskeiö i haust sem hér segir: Upprifjunarnámskeiö fyrir þá, sem hafa lokiö hæfnismati. Námskeiö I og II. Upplýsingar og pantanir í síma 92-1689. Til sölu 3ja herb. íbúð í þríbýlishúsi í Fellabæ (Egils- stööum). ibúöin er rúmlega fokheld. Uppl. í síma 1180 Eg- ilsstööum á kvöldin. UTIVISTA'RFERÐIR raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar Keflavík Aðalfundur Heimis, FUS, Keflavík, veröur haldinn laugardaginn 9. október kl. 14.00 f Sjálfstæöishúsinu, Hafnargötu 46, Keflavfk. 1. Aöalfundarstörf. 2. Bæjarmálin. Frummælandi: Hjörtur Zakariasson. 3. Þurfum viö aö breyta lýöræöisskipulaginu ? Frummælandi: Hannes H. Gissurarson. 4. Önnur mál. Stiórnin. Sjálfstæðiskvennafélagið Edda, Kópavogi Aöalfundur veröur haldinn fimmtudaginn 14. október 1982 kl. 20.30 aö Hamraborg 1, 3. hæö. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. 3. Kaffiveitingar. Stjórnin. Keflavík Aöalfundur Heimis, FUS, Keflavik, veröur haldinn laugardaginn 9. október kl. 14.00. Dagskrá: 1. Aöalfundarstörf. 2. Bæjarmálin. Frummælandi: Hjört- ur Zakaríasson. 3. Þurfum viö aö breyta lýöræöissktputagtnu? Frummælandl Hannes H. Gissurarson. , 4. Önnurmál. St*órn,n Akurnesingar Fulltrúaráö sjálfstæöisfélaganna á Akranesi heldur fund f Sjálfstæö- ishúsinu mánudaginn 11. október kl. 20.30. Fundarefni: 1. Valdimar Indriöason, forseti bæjarstjórnar Akraness ræöir bæjar- malefni 2. Albert Guömundsson, alþingismaöur situr fyrir svörum um stjórn- málaviðhorfiö 3. Almennar umræöur og fyrirspurnlr. Allt sjálfstæöisfólk veikomiö Stjómki. Hafnarfjörður Stefnir, félag ungra sjálfstæöismanna í Hafnarfiröi, heldur aöalfund sinn þriöjudaginn 12. októbar nk. kl. 20.30 i Sjálfstæöishúsinu Hafn- arfiröi. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Félagsmenn f jölmenniö og takiö meö ykkur nýja félaga. Stjórnin. Einstaklingsframtak eða ríkisforsjá Samband ungra sjálfstæöismanna efnir til almenns stjórnmálafundar í matsal Hjálms Flateyri laugardaginn 9. október kl. 16.00. Ræðumenn: Geir H. Harde formaöur SUS Einar K. Guöfinnsson Eiríkur Greipsson oddviti. Allt áhugafólk vel- komiö. Geir Einar Fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna í Kjósarsýslu Aöalfundur fulltrúaráösins veröur haldinn i Fólkvangi, Kjalarnesi, mánudaginn 11. október kl. 9 e.h. Fundarefni: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Þingmennirnir Salóme Þorkelsdóttir, Matthías Mathiesen og Ólaf- ur G. Einarsson koma á fundinn. 3. Sameiginleg kaffidrykkja. Stiórnin. Guðmundur Guðmunds son Flateyri - Minning Fæddur 5. desember 1882 Dáinn 2. október 1982 I dag verður til moldar borinn á Flateyri við Önundarfjörð Guð- mundur Guðmundsson, skósmið- ur, saddur lífdaga, enda vantaði aöeins tvo mánuði á það að hann næði 100 ára aldri. Guðmundur var fæddur að Vöðlum í Önundarfirði 5. desem- ber 1882. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Pálsson og Ingileif Ólafsdóttir, en þau fluttu að Kirkjubóli í Bjarnardal, er Guðmundur var á öðru ári, og þar ólst hann upp þar til hann hleypir heimdraganum um tvítugt og fer á Hvammstanga að vinna að skó- smíðum, en þær hafði hann numið af Katli skósmið á ísafirði. Á Hvammstanga bjó Guðmund- ur í tvö ár, en þar kynntist hann konu sinni, er þá var ekkja með tvö smá börn, Guðrúnu Jónsdótt- ur, en Guðrún var valinkunn sæmdarkona, og reyndist þeirra sambúð sérlega farsæl alla tíð. Guðrún lést 5. júní 1957 á Flat- eyri, og voru það þung spor Guð- mundi og börnunum að fylgja henni til grafar, svo mikill styrkur hafði hún ætíð verið sinni fjöl- skyldu. Frá Hvammstanga flutt- ust þau hjónin til Hafnarfjarðar 1912. Þar vann Guðmundur ýmis störf, bæði til lands og sjávar, skósmíði og smíðar á vetrum, en við sjóinn á sumrin. En hörð voru þessi fyrirstríðsár og eins árin 1914 til 1918, og sem dæmi um hve kröpp kjörin voru, sagði Guð- mundur mér að á þeim níu árum er hann dvaldi í Hafnarfirði hefði hann flutt tólf sinnum milli íbúða. Eins og síðar kemur fram, var Guðmundur sérlega nýjunga- gjarn, og eignaðist því snemma reiðhjól. Dag einn mætir hann Þórarni Olgeirssyni, útgerðar- manni, og biður hann Guðmund að hjóla með bréf fyrir sig til Kefla- víkur, og liggi mikið við, enda skuli hann greiða tíu krónur fyrir viðvikið. Þetta sagði Guðmundur mér að hefði verið til þess að bjarga heimilinu næsta mánuð- inn, enda stór peningur í þá daga. Árið 1921 flytur Guðmundur svo aftur til Flateyrar á fornar slóðir og býr þar allt til ársins 1977, er hann flytur til dóttur sinnar, Ingi- leifar, í Hafnarfjörð. Þeim Guðmundi og Guðrúnu varð þriggja barna auðið. Þau eru: Ingileif, gift Gunnlaugi Sveins- syni, kennara, Sigurlaugur, ógift- ur, vinnur sem iðnverkamaður í Rvík, og Lilja, ógift, sem hefir alla tið búið hjá foreldrum sínum á Flateyri, og býr þar enn. Á Flateyri hafði Guðmundur ætíð nokkurn búskap allt fram á síðustu ár. Áður fyrr átti hann trillubát er hann reri á á sumrum, eða vann annað það sem til féll, er oft vildi vera stopult, en þá sneri hann sér að sínum hugðarefnum og kenndi þar margra grasa, og skal hér nú nokkuð upptalið: Um Guðmund átti vel við þessi vísa: Löngum var ég læknir minn, lögfræðingur, prc.stur, smiöur, kongur, kcnnarinn, kerra, plógur, hcstur. Svo var Guðmundur fjölhæfur að einsdæmi má telja, ekki færri en sex iðngreinar hefir hann lagt fyrir sig um dagana. Hann hafði iðnréttindi sem trésmiður, skó- smiður og staðarlöggildingu sem rafvirki á Flateyri. Múrvinnu hef- ir hann unnið fyrir Flateyringa fram á síðustu ár sjöunda tugar- ins, bátasmíði hefir hann fengist við og vefnað og prjónaskap, þá hefir hann á síðustu árum gert teppi og púða allskonar, sem hver ungfrúin gæti verið stolt af. Þess má og geta að Guðmundur mun fyrstur manna hafa rafdrifið spunarokk. Þannig sá hann aldrei svo nýjungar, að hann vildi ekki finna hvaða gagn þær mættu færa til léttis og framfara. Þegar Guðmundur var um ferm- ingu gaf Norðmaðurinn Ellefsen, sá er rak hvalstöðina á Sólbakka, nokkrum unglingum í önundar- firði skíði. Guðmundur minntist þessa oft með hlýju, og reyndar lét hann sitt ekki eftir liggja og stundaði skíðaíþróttina, og er hann var áttræður tók hann þátt í skíðalandsgöngunni, og var auð- vitað elsti þátttakandinn á Flat- eyri. Guðmundur gat ekki talist mannblendinn, en var hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi, enda traustur vinur vina sinna og trölltryggur. Guðmundur var tölu- vert lesinn, hann var sjór af sög- um og vísum og frásagnargáfan var slík, að í honum bjó áreiðan- lega rithöfundur, ef hann hefði snúið sér að þeim málum. Síðustu þrjú árin var Guðmund- ur vistmaður að Sólvangi og hrak- aði bæði andlegri og líkamlegri heilsu hans ört, en þó hafði hann fótavist daglega fram til síðustu stundar, en elli kerling var farin að taka sinn toll af hugsanagangi gamla mannsins. Hér er nú lokið sögu hins dag- farsprúða eljumanns, sem aldrei mátti vamm sitt vita, en vann dagsverk sitt í kyrrþey án kröfu til upphefðar eða launa af samfé- laginu. Það er dásamlegt að hafa átt vinfengi og samleið með slík- um manni, og minningin lifir um góðan dreng, sem ætíð átti gott eitt til að leggja samferðamönn- unum. Ættingjum og vinum Guðmund- ar sendum við hjónin samúðar- kveðjur. Magnús Konráðsson ATHYGU skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. f minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.