Morgunblaðið - 09.10.1982, Qupperneq 44
^^kriftar-
síminn er 830 33
tttttmMftpft S
_jiglýsinga-
síminn er 2 24 80
LAUGARDAGUR 9. OKTOBER 1982
Verkfall hjá
mjólkurfræð-
ingum í nótt
„LAUSN málsins er alls ekki
í augsýn,“ sagði Guðlaugur
Uorvaldsson, ríkissáttasemj-
ari, í samtali við Mbl., er
hann var inntur eftir stöðu
mála í kjaradeilu mjólkur-
fræðinga og viðsemjenda
þeirra.
Mjólkufræðingar höfðu boðað
verkfall frá og með miðnætti sl. og
þegar Mbl. fór í prentun seint í
gærkvöldi, leit ekki út fyrir annað,
en það kæmi til framkvæmda.
Mjólkufræðingar felldu ASÍ—
VSI samkomulagið á fundi sínum í
september s.l., en þeir hafa krafizt
þess að fá sambærilegan samning
þeim er byggingariðnaðarmenn
gerðu við viðsemjendur sína í
sumar, en þar er um nokkru meiri
hækkanir að ræða, heldur en gert
er ráð fyrir í samkomulegi ASI og
VSÍ.
FULLORÐINN maður slapp
ómeiddur er lítilli flugvél, sem
hann á ásamt fleirum, hlekktist á í
lendingu á flugvellinum við
Hrauneyjafoss um miðjan dag í
gær. Vélinni, sem er fjögurra sæta
af gerðinni Cessna 172, hafði mað-
urinn flogið frá Vestmannaeyjum
til Hrauneyjafoss þar sem hann
hugðist heimsækja son sinn. Hann
var einn í flugvélinni. Við Hraun-
eyjafoss er um 600 metra löng
flugbraut, en maðurinn lenti vél-
inn of innarlega á vellinum þannig
að hann náði ekki að stöðva í tíma.
Rann vélin út af brautarendanum
og fór kollhnís fram yfir sig út af
4—5 metra háu barði og endaði á
hvolfí. Maðurinn slapp ómeiddur,
en vélin, sem ber einkennisstafina
TF-ONO, er talsvert skemmd.
Hægviðri
um helgina
ÚTLIT var í gær, samkvæmt upp-
lýsingum frá Veðurstofunni, fyrir
að hægviðri yrði áfram um helgina,
en skýjað með köflum.
Þá var spáð áframhaldandi hlý-
indum, en reiknað með austlægari
átt á sunnudag með austangolu.
Tilbod opnuð i smíði Breiðafjarðarferju:
Lægsta tilboð tæp-
lega 27 milljónir kr
TILBOÐ í Breiðafjarðarferju voru
opnuð í Framkvæmdastofnun í
gær, en stjórn Framkvæmdastofn-
Starfsmenn Síldarverksmiðjanna á Siglufirði:
Fengu greidd laun þó þeir
legðu niður vinnu um tíma
ÞKIR starfsmenn Síldarverksmiðju
ríkisins á Siglufirði, sem lögðu niður
vinnu til að mótmæla uppsögnum
þriggja starfsfélaga sinna fyrir
skemmstu, fengu greidd laun fyrir
þann tíma, sem þeir voru frá vinnu.
Þetta staðfesti Kolbeinn Friðbjarn-
arson, formaður verkalýðsfélagsins
Vöku á Siglufirði, i samtali við Mbl.
„Eftir því sem ég best veit hafa
laun aldrei verið greidd í verkfalli á
íslandi og hið sama er að segja þeg-
ar fólk hefur gripið til mótmælaað-
gerða sem þessara svo að ég viti til,“
sagði Kolbeinn.
Hann var spurður hver þáttur
verkalýðsfélagsins væri í þessu
máli?
„Við skrifuðum strax stjórn
Síldarverksmiðju ríkisins og
kröfðumst þess, að uppsagnirnar
yrðu dregnar til baka. Einnig
heimtuðum við að þeir, sem bæru
ábyrgð á uppsögnunum og fram-
kvæmd þeirra, þ.e. framkvæmda-
stjóranum, skrifstofustjóranum á
Siglufirði og verksmiðjustjóran-
um á Siglufirði, yrði vikið úr
starfi.
Við teljum að þessir menn séu
Hefja rekstur
farþegaskips
á næsta vori
EIMSKIPAFÉLAG íslands og Haf-
skip hafa stofnað sjálfstætt hlutafé-
lag, Farskip hf., til að annast út-
gerð bilferju og farþegaskips milli
Reykjavíkur, Newcastle í Englandi
og Bremerhaven í Vestur-Þýzka-
landi frá og með sumrinu 1983.
Gert er ráð fyrir vikulegum sigling-
um frá Reykjavík, og býður far-
kosturinn upp á öll þægindi
farþegaskips ásamt flutningi á
einkabílum.
ábyrgir fyrir því hvers konar
vinnubrögð voru viðhöfð við þess-
ar uppsagnir.
Að okkar dómi vildu þessir
menn ná fram hefndum á gömlum
starfsmanni fyrirtækisins. Við
álítum að þetta sé valdníðsla og
stjórnin hafi ekki ætlast til þess.
Og einnig drögum við í efa að það
hafi verið vilji stjórnarinnar að
hóta þeim starfsmönnum, sem
lögðu niður vinnu í mótmælaskyni
við uppsagnirnar, brottrekstri ef
þeir kæmu ekki til starfa um há-
degi daginn eftir, eins og stjórn-
endur gerðu," sagði Kolbeinn.
unar og yfirstjórn Byggðasjóðs
ákváðu fyrir nokkru að beita sér
fyrir því að fengin yrði ferja á
Breiðafjörð, til þess að sinna
byggð þar og umferð um Breiða-
fjarðarsvæðið, samkvæmt upplýs-
ingum sem Mbl. fékk hjá Sverri
Hermannssyni, framkvæmda-
stjóra stofnunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. hefur aflað sér, átti Báta-
lón í Hafnarfirði lægsta tilboðið
í ferjuna, 26,750 milljónir, síðan
kom Stálvík í Garðabæ með
28,770 milljónir, þá kom Stál hf.
Seyðisfirði með 29,470 milljónir,
Skipavík Stykkishólmi með
29,750 og loks Marselíus Bern-
harðsson á Isafirði með 44,850
milljónir. Tekið skal fram að í
tölum þessum er miðað við mis-
munandi vélarstærð.
Sverrir Hermannsson sagði í
samtali við Mbl. að stjórnskipuð
nefnd hefði verið sett á laggirn-
ar til að ræða um gerð og stærð
ferjunnar og hefði Siglinga-
málastofnun verið beðin um að
teikna ferju, í samræmi við
niðurstöður nefndarinnar. Síðan
hefði verkið verið boðið út á
grundvelli útboðsgagna frá Sigl-
ingamálastofnun, en síðan yrðu
tilboðin metin af stofnuninni.
Sverrir kvaðst ekki vita hvenær
afstaða yrði tekin til tilboðanna,
en menn hefðu vonað að ferjan
kæmist í gagnið snemma árs
1984. Ekki hefur verið ákveðið
hver gera mun ferjuna út, en
Sverrir kvað hugmynd hafa
komið upp um að Baldur myndi
gera það.
„Það sem verið er að gera
þarna er brúarbygging, það er
verið að leggja veg til eyja-
manna, rétt eins og þegar Fram-
kvæmdastofnun byggði Hríseyj-
arferju," sagði Sverrir. „Ég held
að þetta svæði sé dýrðar ferða-
mannaland og við höfum haft þá
hugmynd að tengja þetta hótel-
inu í Stykkishólmi og reyna að
leyfa mönnum að njóta þess
dýrðar ferðamannalands sem
Breiðafjarðareyjar eru, án þess
þó að fuglalífi verði spillt," sagði
Sverrir Hermannsson.
Forseta íslands á ný
boðið til Bandaríkjanna
FORSETA íslands, Vigdísi Finn-
bogadóttur, hefur verið boóið aftur
til Handaríkjanna í tcngslum viö
„Scandinavia Today". Að sögn
Patriciu McFate, forseta Amerísk-
norræna félagsins (The American-
Scandinavian Foundation), en þaö
skipulagningu
menningarkynningarinnar, hefur
Vigdísi veriö boöið að flytja aðal-
ræðuna við opnun „Scandinavian
Today“ á vesturströnd Bandaríkj-
anna 9.—11. febrúar á næsta ári.
Þingflokksfundur Alþýðuflokksins í gær:
Full samstaða — sam-
þykktin stendur óbreytt
„SAMÞYKKT þingflokksins frá í
ágúst stendur óbreytt. Það var sam-
komulag um alla hluti á fundinum í
gær,“ sagði Magnús H. Magnússon
varaformaður Alþýðuflokksins að
loknum þingflokksfundi Alþýðu-
flokksins í gær, en þar náðist fullt
samkomulag eftir hreinskiptar um-
ræður um að þingflokkurinn stæði
sem einn maður að afgreiðslu bráða-
birgðalaga ríkisstjórnarinnar og að
samþykkt þingflokksins frá í ág-
ústmánuði stæði óbreytt, en hún fel-
ur ra.a. í sér að þingflokkurinn muni
greiða atkvæði gegn staðfestingu
bráðabirgðalaganna.
Eins og Mbl. skýrði frá í frétt-
um í gær var nokkur ósamstaða
innan þingflokksins um hvernig
standa skyldi að afgreiðslu máls-
ins og hafði Árni Gunnarsson lýst
því yfir, að honum fyndist réttara
að samþykkja þau en hjálpa
stjórnarliðum frá þeirri ábyrgð
sem ætti að fylgja samþykktum
þeirra. Á fundinum í gær fóru
fram hreinskiptar umræður og að
sögn viðmælanda blaðsins úr
þingflokknum var fundurinn
árangursríkur að þessu leyti og
náðist þar full samstaða. Næsti
þingflokksfundur er boðaður að
lokinni þingsetningu á mánudag.