Morgunblaðið - 12.10.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1982
15
með altósaxófónleik sínum.
Þetta er tregafull melódía í stíl
við það, sem ýmsir saxófónleik-
arar hafa spreytt sig á allar göt-
ur síðan Coleman Hawkins blés
Body and Soul. Sigurði tekst
mjög vel upp í þessu lagi og
sjálfum finnst mér þetta besta
verkið á plötunni. Þessi 18 ára
menntaskólanemi á mikla fram-
tíð fyrir sér með þessu áfram-
haldi.
Þriðja lagið á þessari hlið ber
nafnið „Frýgiskt frumlag". Það
er eftir Jóh. G. Jóhannsson og er
útsett af honum og Sveinbirni I.
Baldvinssyni. Sveinbjörn tekur
ágætan sóló á gítarinn og gægist
Philipe Catherine stundum fram
á milli gripanna. í heild er þetta
nokkuð frumlegt og skemmtilegt
verk.
Síðasta lagið á plötunni er
„Dögun“ eftir Jóh. G. Jóhanns-
son. Þar kemur áhrifavaldurinn
Bill Evans nokkuð fram, en
verkið er athyglisvert og greini-
lega samið af alvöruþrungnum
tóniistarmanni.
í heild er mikill fengur að
þessari plötu og ber hún vott um
þá miklu grósku, sem færst hef-
ur í íslenskt jazzlíf að undan-
förnu. Auðvitað eru á plötunni
hnökrar, t.d. finnst mér strákun-
um takast mun betur upp, þegar
þeir leika í hægum lögum en
hröðum, þar sem stundum skort-
ir nokkuð á tækni. Eftir mínu
viti er vel til plötunnar vandað,
upptökur góðar og frágangur í
besta lagi.
Nýja kompaníið á þakkir
skildar fyrir þetta frumkvæði
sitt og enginn jazzunnandi má
láta þessa plötu framhjá sér
fara.
Jón Oddur og
Jón Bjarni
gera víðreist
NÆSTU helgar verða síðustu
sýningar á kvikmyndinni Jón
Oddur og Jón Bjarni á íslandi í
bráð. Að undanförnu hefur
myndin vakið athygli á kvik-
myndahátíðum erlendis, og er
nú mjög spurt eftir henni til
þátttöku í hátíðum og til sýn-
inga. Af þessum sökum fara öll
eintök af myndinni úr landi á
næstunni, segir í tilkynningu frá
Norðan 8 hf.
Dagana 7.—17. sept. sl. var
myndin í hópi þeirra ellefu
mynda sem voru valdar til
þátttöku í Attundu alþjóðlegu
barnamyndahátíðinni í Frank-
furt am Main í Vestur-Þýska-
landi, en af öðrum myndum sem
þangað var boðið má nefna
„Gimsteinaríkið" eftir hinn
kunna indverska leikstjóra
Satyajit Ray. Jón Oddur og Jón
Bjarni vakti afarmikla athygli í
Frankfurt og fékk myndin íof-
samleg ummæli í blöðum þar, og
buðu Þjóðverjar myndinni að
taka þátt í Nordische Filmtage í
Lubeck, 4.-7. nóv. nk. Einnig
var falast eftir myndinni af
vestur-þýska og hollenska sjón-
varpinu.
Kvikmyndin Jón Oddur og Jón
Bjarni var einnig boðsgestur á 4.
Norrænu barna- og unglinga-
myndahátíðinni, sem að þessu
sinni fór fram á Hanasaari í
Finnlandi. Þar fékk myndin hin-
ar bestu viðtökur hjá áhorfend-
um og finnska sjónvarpið
tryggði sér þegar í stað sýn-
ingarréttinn.
Mótatimbur
Hagstætt verð/góð greiðslukjör
V Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTÍG 1 S. 18430
SLLX/EHK
rafeindailtveL
aWúmiiiTLaiinsms
Þeir sem þurfa aö vélrita mikið vita manna best
hve ritvélin skiptir miklu máli. Ritarar, rithöfundar, blaða-
menn, skrifstofufólk og aðrir atvinnumenn við ritvélina, sem
verja miklum hluta vinnutíma síns í textagerð og skriftir
velja sér þess vegna ritvél af sömu nákmæmni og
orðin, sem þeir nota.
Silver Reed rafeindaritvélarnar eru í atvinnumanna-
flokknum. Þær eru ekki aðeins með allt það sem prýðir
fullkomnar rafeindaritvélar, heldur einnig sjálfvirka
undirstrikun, sjálfvirka miðjustillingu, Decimal
Tabulator og ekki síst: 5 íslenskar
leturtegundir og útlitið er
öðruvísi! —
Silver Reed rafeindaritvélarnar fást í
þremur gerðum; EX42, EX44 og
EX55,- allt eru þetta úrvalsvélar
sem uppfylla allar kröfur
atvinnumannsins.
Silver Reed rafeindaritvélar: ódýrar og með 5 íslenskum leturtegundum.
Komið - hringið - skrifið og kynmst Silve1 Reed rafeindaritvélinni - sýnisvélar í verslun okkar.
SKRIFSTOFUVELAR H:F.
%
Hverfisgötu 33
Simi 20560