Morgunblaðið - 12.10.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1982
31
>
FREiSIO 2. A«e. #9fl»
Frelsið innbundið
ANNAR árgangur tímaritsins Frelsis-
ins, 1981, sem Félag frjálshyggju-
manna gefur út þrisvar á ári, er nú
kominn út innbundinn fvrir þá, sem
það vilja. Á meðal greina í þessum 2.
árgangi er grein eftir Davíð Olafsson
seðlabankastjóra um Birgi Kjaran,
önnur eftir Davíð Oddsson borgar-
stjóra um sjálfstæðisstefnuna, síðan
skrifar llannes H. Gissurarson sagn-
fræðingur um ádeilur ýmissa íslenskra
menntamanna á þingræði á þriðja ára-
tug aldarinnar og Friðrik Friðriksson
hagfræðingur um þær umræður, sem
verið hafa hérlendis um hagfræði-
kenningu austurríska nóbelsverð-
launahafans heimskunna Friedrich A.
Hayeks. í 2. hefti árgangsins er síðan
rækileg skrá um rit, sem varða frjáls-
hyggju, bæði innlend og útlend.
Áskrifendur Frelsisins eru að sögn
ritstjóra þess, Hannesar H. Gissur-
arsonar, nú um 1050. í ritnefnd
tímaritsins eru þeir Gísli Jónsson
norrænufræðingur, Jónas H. Haralz
bankastjóri, Matthías Johannessen
skáld, Olafur Björnsson prófessor
og dr. Þorsteinn Sæmundsson
stjarnfræðingur.
Á þessu ári hefur 1. hefti verið
gefið út, þar sem aðalefnið var við-
tal við Ólaf Björnsson prófessor í
tilefni sjötugsafmælis hans, en 2.
heftið er væntanlegt síðast í þessum
mánuði. í þvi eru greinar eftir Einar
Guðfinnsson um stjórnmálakenn-
ingu Milton Friedmans, eftir Jónas
H. Haralz um bókina Frjálshyggjuna,
eftir Birgi Björn Sigurjónsson
viðskiptafræðing, eftir Jónas Krist-
jánsson ritstjóra um Unesco og
skoðanafrelsið og eftir Ólaf
Björnsson um atvinnuleysi og
verkalýðsfélög.
Sýningu Braga
lýkur í kvöld
Málverkasýning Braga Ásgeirsson-
ar í Vestursal Kjarvalsstaða, sem átti
að Ijúka á sunnudagskvöld, hefur ver-
ið framlengd, og lýkur henni ekki fyrr
en í kvöld, þriðjudagskvöld, klukkan
22.
„Jú, sýningin hefur gengið mjög
vel, og þótt ég ætlaði alls ekki að
framlengja, þá hef ég orðið við
óskum margra og framlengt hana
til þriðjudagskvölds," sagði Bragi í
spjalli við blaðamann Morgunblaðs-
ins í gær. „En lengra verður það alls
ekki,“ bætti Bragi við. „En ég er
mjög þakklátur fyrir viðtökurnar
einkum vegna þess að ég hef fengið
tvö tilboð um að gera grafíkseríur
Bragi Ásgeirsson við eitt verka sinna á
sýningunni á Kjarvalsstöðum.
erlendis og hygg gott til þess. Eig-
inlega sit ég í startholunum og
hlakka til leyfis frá kennslu í eitt ár.
Svo verður það að ráðast hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig.“
Eflum einn flokk til ábyrgðar
sins
k
Dregió 16. október.
3 glæsilegir bifreiðavinningar. Colt 1200 GL
Verðmæti hvers bíls er 140.000.-
Afgreiðslan er opin frá kl. 9—22. Sími 82900
Sækjum greiöslu heim, ef óskað er.
Vinsamlega gerið skil sem fyrst.
Enginn efast um gæðin fra General Electric
Toppklassa, kæli- og frystlskápar, þvottavélar og
þurrkarar fyrlrliggjandi.
Þaö Pesta veröur ávallt ódyrast, þegar til lengdar