Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 12
12 MORGITNRI.Anm RTMMTITnAr.ITR 14 OTfTÓBER 1982 Haukur Björnsson framkvæmdastjóri Karnabæjar um vanda iðnaðarins: Röng gengisskráning höfuðorsök vandans „(ienjiisskráning á ekki aá vera haíjstjórnar- tæki stjórnvalda“ ,,1'AI) má sogja, art stöAugt hafi sigiA á út'a'fuhliöina frá því um áramótin í fyrra og ásta-óan fyrir því er fyrst og fremst rangt skráó gengi krónunnar," sagAi llaukur Björnsson, fram- kvæmdastjóri Karnabæjar, í samtali viA Mbl., cr hann var inntur eftir stöA- unni, en eins og skýrt hefur veriA frá, á fataiAnaAurinn og reyndar iAnaAur- inn í heild í töluverAum erfiAleikum um þessar mundir. „Staðan lagaðist að vísu lítið eitt við gengisfellinguna í ágústmánuði, en það dugði þó hvergi til, við að koma málum i eðlilegt horf. Mitt mat er, að gengisfellingin hefði þurft að vera helmingi hærri, til að viðunandi staða næðist," sagði llaukur Björnsson ennfremur. Aðspurður um hvort þeir Karna- bæjarmenn hefðu þurft að fækka fólki vegna versnandi samkeppn- isstöðu, sagði Haukur að uppsögn- um hefði ekki verið beitt ennþá. —„Við höfum hins vegar ekki endurráðið fólk, sem hefur ha'tt störfum hjá okkur, þannig að tm þessar mundir erum við með um 2/3 af þeim fjölda starfsmanria, sem við vorum með á síðasta ári,“ sagði Haukur Björnsson. „Annars er heila málið, að stjórn- völd fari að gera sér grein fyrir því, að gengiskráning er ekki hagstjórn- artæki, heldur á hún að vera skrán- ing á raunverulegri stöðu hverju sinni. Að vera sífellt með þetta kukl, er eins og að ganga sífellt með ranga klukku," sagði Haukur Björnsson. Haukur sagði, að sá vandi, sem fataiðnaðurinn ætti við að stríða væri alls ekki einangrað dæmi við hann. Iðnaðurinn almennt ætti í verulegum erfiðleikum um þessar mundir,—„Sem dæmi um þróunina má nefna, að danska krónan hefur hækkað um u.þ.b. 60% frá ársbyrj- un í fyrra, en allur tilkostnaður innanlands hefur hækkað yfir 100%. Það gefur því auga leið, að samkeppnisstaðan hefur rýrnað gífurlega," sagði Haukur Björns- son, framkvæmdastjóri Karnabæj- ar að síðustu. Gengisfelling sænsku krónunnar og finnska marksins: Rýrir samkeppnis- stöðu íslenzks iðnaðar enn frekar - segir bórarinn (iunnarsson, skrifstofustjóri FÍL „l’KSSI (iKNGISKKI.I.IN'G sæ-nsku krónunnar og finnska marksins rýrir sam- keppnisslöóu íslen/.ka iAnaðarins enn frekar frá því sem orAiA var og var þó ekki á bælandi," sagði Þórarinn Gunnarsson, skrifslofusljóri Kélags íslcn/.kra iAnrekenda, í samlali viA Mbl., er hann var innlur el'lir áhrifum gengisfell- inganna í SvíþjóA og Kinnlandi. „Gengisskráning krónunnar gagnvart Kvrópugjaldmiðlum hefur verið mjög röng síðustu mánuði og þetta mun skekkja þá mynd enn frekar. Sérstaklega kemur gengis- fellingin illa við iðngreinar eins og fataiðnað og húsgagna- og innrétt- ingaiðnað, sem hefur átl mjög í vök að verjast undanfarna mánuði og misseri," sagði Þórarinn ennfrem- ur. Það koni ennfremur fram hjá Þórarni, að það hefur orðið hlut- fallsleg aukning á innflutningi frá Svíþjóð síðustu misserin, sérstak- lega hefur innflutningur á fatnaði annars vegar og húsgögnum og inn- réttingum hins vegar aukizt veru- lega á undanförnum árum. Þórarinn nefndi sem dæmi um þróun gengisskráningarinnar, að frá 1. janúar 1981 hefði sölugengi sænsku krónunnar hækkað um tæplega 12%, en 1. janúar 1981 var sölugengi sænsku krónunnar skráð 1,4265 krónur, en í gærdag var það skráð 2,0211 krónur. A sama tíma hefur allur innlendur tilkostnaður aukizt um yfir 100'/í . Reykjavíkurprófastsdæmi: Námsstefna um öldrunar- mál og safnaðarþjónustu Á föstudaginn kemur, þann 15. október, hefst námsstefna um öldr- unarmál og safnaðarþjónustu í Reykjavíkurprófastsdæmi. Hefst hún kl. 20.30 á föstudagskvöldið og heldur síðan áfram á laugardaginn. Það er ellimálaráð prófastsdæmis- ins sem gengst fyrir þessu nám- skeiði, en formaður þess er Sigríð- ur Jóhannsdóttir. Ávarp flytur Al- bert Guðmundsson, forseti borgar- stjórnar Reykjavíkur, og Gísli Sig- urbjörnsson, forstjóri Elliheimilis- ins Grundar. Unnur Halldórsdótt- ir, sem er lærð safnaðarsystir og er vígð til þess starfs, talar um þjón- ustu kirkjunnar fyrr og nú (diak- onia) og Margrét Hróbjartsdóttir fjallar um aldraða og kirkjuna. Hildur Viðarsdóttir, læknir, flytur erindi um breytingar þær, sem fylgja ellinni, og séra Sigurður Haukur Guðjónsson annast kvöld- bænir. Á laugardagsfundinum talar Kristján Guðmundsson, bæjar- stjóri í Kópavogi, um öldrunarmál bæjarfélaga og kirkjuna, og séra Sigurður H. Guðmundsson um öldrunarmálin og hið opinbera, en um viðfangsefni safnaðanna fjalla Dómhildur Jónsdóttir, séra Guð- mundur Óskar Ólafsson og Her- mann Ragnar Stefánsson. Bréf hafa verið send út til þeirra, sem sérstaklega hafa sinnt þessum málum og sýnt áhuga á þeim og er tekið á móti þátttökutilkynningum í skrifstofu dómprófasts árdegis í símum 37801 og 37810 og er öðru áhugafólki heimil þátttaka og það beðið að tilkynna sig í framan- greindum síma. Fundarstaður er Safnaðarheim- ili Bústaðakirkju. (Frá dómprófasti.) Jón Vídalín, síungur og hress enda síldin ekki langt undan. Valgeir Emilsson — brýnir hníf- ana. Ragna Benediktsdóttir — skyldi komast meira fyrir í tunnunni. Búið að salta í 4.100 tunnur á Seyðisfirði „SÍLD var söltuð í 320 tunn- ur í dag en síldin var veidd í nót út af Borgarfirði eystri. Hér er um að ræða af- bragðsgóða síld — um 80% stórsíld," sagði Hreiðar Valtýsson hjá Norðursíld í samtali við Mbl. Alls hafði síld verið söltuð í 4100 tunnur á Seyðisfirði á þriðjudag. „Nokkuð veiddist af síld hér í firðinum, en hún er mun smærri. Um 60 manns vinna við síldarsöltun hér og á einum degi hefur mest verið saltað í 600 tunnur,“ sagði Hreiðar Valtýsson. Morjfunblaöið/Kjartan Aðalsteinsson. Og æskan lætur ekki sitt eftir liggja, Erla Dögg Ragnarsdóttir 13 ára i söltuninni. þær gáfu sér tíma til að líta upp frá söltuninni og brosa til Ijósmyndarans, f.v. Vibba, Stund milli stríða Auda og Hafdís. Á kafi i síldinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.