Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 47
PÉTUR Ormslev, leikmaöur með Fortuna DUsseldorf í V-Þýskalandi, varð fyrir slæmum meiöslum í gær- kvöldi. Á 41. mín. leiksins rennitaklaði Mick Waish Pét- ur mjög gróflega og rak takkana á skóm sínum harkalega í nára Póturs. Hlaust af því stór skuröur á nárann, og vakti það mikla athygli íslensku blaöamann- anna að Walsh skyldi ekki einu sinni fá aö skoöa gula spjaldiö hjá dómaranum. Sá svartklæddi dæmdi aö visu aukaspyrnu, en kom aö- vífandi og ætlaöi aö skipa Pétri aö rísa strax á fætur. Þá leiö nokkur stund áöur en sjúkraþjálfari tslenska liösins fékk leyfi dómarans til að koma inn á völlinn og huga aö Pótri. Pétur var síöan borinn út af vellinum og ekiö í skyndi á sjúkrahús þar sem hann var saumaöur. Seinna kom í Ijós aö meiöslin voru ekki eins al- varleg og fyrst var taliö, en Pétur var á sjúkrahúsinu í nótt. Leikurinn sýnd- ur a laugardag BJARNI Felixson, íþrótta- fréttamaöur sjónvarpsins, sagöi í samtali viö Mbl. í gær að hann stefndi að því að sýna landsleik íslands og ír- lands í íþróttaþættinum á laugardag, en þess má geta aö leiknum var sjónvarpaö beint í gær um allt írland. Engu aö síöur mættu 25.000 á völlinn, og greinilega var áhugi á leiknum mjög mikill á írlandi. tökur íranna Frá Guömundi Guömundssyni, blaöamanni Morgunblaösins í Dublin. MÓTTÖKUR þær sem ís- lenska landsliöiö fékk hér í írlandi voru í einu oröi sagt frábærar. Liðið ásamt for- ráðamönnum þess býr á fín- asta hóteli t Dublin, og hægt er að segja aö írarnir hafi borið íslendinga á höndum sér meöan á dvölinni hefur staðiö. Borgarstjórnin í Dub- lin hélt fararstjórum islend- inganna veislu og voru þeir síöan allir leystir út meö gjöfum. Slakur dómari DÓMARI leiksins, Rion frá Luxemborg, þótti standa sig mjög illa og missti hann öll tök á leiknum. Varö þaö til þess aö mikil harka færöist í leikinn af beggja hálfu. Sér- staklega var skrýtiö aö hann skyldi ekki sýna Mick Walsh gula spjaldiö er hann braut gróflega á Pétri Ormslev í fyrri hálfleik. ísland tapaði 0—2 í gífurlegum baráttuleik Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982 Frá (.uðmundi (luðjónssyni blaðamanni Morgunblað.siiuw í Dublin á írlandi. ÍSLENSKA landsliöiö í knattspyrnu tapaöi 0—2 ffyrir ír- um í stórkostlegum baráttuleik á Landsdown Road í Dublin í gærdag er þjóðirnar mættust í 7. riöli Evrópu- keppninnar. Var þetta einhver mesti baráttuleikur sem undirritaður hefur séð fyrr og síöar. írarnir mættu til leiks með þann greinilega ásetning að vanmeta ekki ísland heldur að knésetja liðið strax í byrjun leiksins með geysiföstum leik sem oft jaðraði við að vera mjög grófur. í upphafi virtust íslensku leikmennirnir slegnir út af laginu, en síöan tóku þeir sig á, og svöruðu írunum í sömu mynt og veittu þeim mikla mótstöðu. Sigur írska liðsins var sanngjarn, liöiö skoraði tvö falleg mörk, og fékk allmiklu fleiri færi en ísland. írska liðið lék auk þess mjög vel á köflum einkum í síðari hálfleiknum, en þá sýndi íslenska liðið einnig sýna bestu spretti, þannig að úr varð hörkuspennandi hasarleikur. Mikil harka og taugaspenna í fyrri hálfleiknum: Þaö var greinilegt á leik íslenska liðsins í upphafi aö leikmenn voru nokkuö taugaspenntir. Strax á fyrstu mínútu leiksins fengu írar tvær hornspyrnur og skapaðist hætta viö íslenska markiö en varn- armönnum tókst aö bægja hætt- unni frá. irar sóttu meira fyrstu 10 af velli og fluttur í sjúkrahús. Fram aö þeim tíma haföi hann leikiö mjög vel á miöjunni og vont aö missa hann útaf. Bestu kaflarnir í síðari hálfleik: í síöari hálfleiknum léku bæöi liöin mun betur en í þeim fyrri. Sér í lagi voru írsku leikmennirnir góö- ir. Strax á upphafsmínútu hálf- leiksins björguöu íslendingar á línu. En leikmenn íslenska liösins Liðin: íslenska liöiö sýndi mikinn dugnaö í leiknum. Allir leikmenn börðust vel og gáfu ekkert eftir. En þaö kom niöur á gæöum knatt- spyrnunnar í leiknum hversu harö- ur hann var. Þorsteinn Bjarnason átti mjög góöan leik í markinu og varöi nokkrum sinnum meistara- lega vel. Bakveröirnir þeir Viöar Halldórsson og Örn Óskarsson voru óhemju duglegir sívinnandi allan leikinn og baráttuvilji þeirra var ódrepandi. Þeir Sævar og Marteinn léku mjög vel báöir tveir, en mjög mikiö mæddi á þeim. Skil- uöu þeir hlutverkum sínum óaö- finnanlega. Arnór haföi mikla yfir- ferö á vellinum og sýndi aö venju snilldartakta. Pétur Pétursson kom mjög vel frá síðari hálfleiknum, en hvarf nokkuð í þeim fyrri. Þeir Lár- us Guömundsson og Atli Eövalds- son áttu báöir góöa spretti i leikn- um. Þess má geta a besti samleik- ur íslenska liösins og sóknir mynd- uöust í kringum þá Lárus, Arnór og Pótur. Gunnar Gíslason baröist vel í leiknum og sama má segja um Ragnar Margeirsson sem kom inn á fyrir Pétur Ormslev. Bestu leikmenn írska liösins voru Liam Brady og Mark Lawren- son. Þeir voru yfirburöamenn á vellinum. Sér í lagi Brady, sending- ar hans voru svo nákvæmar aö un- un var aö horfa á þær. 88/þr- • Atli Eövaldsson gnæfir hér yfir Kevin Moran, varnarmanninn sterka frá Manchester United, í leiknum í gær, og skallar að marki. Símamynd AP. Arnórs fór rétt framhjá. Tveimur mínútum síöar léku þeir Whealan og Stapleton í gegn um íslensku vörnina á glæsilegan hátt en Þorsteinn bjargaöi meistaralega með góöu úthlauþi og hirti boltann af tánum á Stapleton. Á 25. mínútu var Atli bókaöur. markiö. Þar kom Sævar Jónsson á fullri ferö náöi aö skalla boltann en á utanveröa stöngina og framhjá. Þarna skall hurö nærri hælum, viö írska markið. Og þaö bætti síöan gráu ofan á svart aö mínútu síöar náöu írar aö skora annað mark sitt í leiknum. Fyrirliöi iranna, Tony Grealish, fékk góöa stungusendingu og komst á auöan sjó inn í vítateig og skoraði meö föstu skoti í bláhorn marksins niöri. Á 80. mínútu var Lárus á góöri leið meö aö komast í gegn en O’Leary braut gróflega á honum á vítateigslínunni. Dæmd var aukaspyrna á irana og litlu munaöi aö ísland fengi þarna víta- spyrnu. Mikil harka var í leiknum þaö sem eftir var. Voru tveir leik- menn bókaðir, þeir Arnór og Wad- dock, en þeim lenti saman eftir aö Waddock haföi brotiö illa á Arnóri. Pétur Pétursson framkvæmdi aukaspyrnuna mjög vel og fast skot hans hafnaði alveg út viö stöngina. Varö írski markvöröurinn aö taka á honum stóra sínum til aö verja skotið. • Lárus Guömundsson á hér skot aö marki íranna í gær en eki rataði knötturinn í netiö frekar en í öðrum skottilraunum íslendinga. Til varnar eru David O’Leary, Tony Grealish, fyrirliöi liösins, og Kevin Moran. Símamynd AP. mínúturnar og á 6. mínútu átti Tony Grealish hörkuskot sem sleikti þverslánna og fór yfir. Þegar fyrstu tíu mínútur leiksins voru liðnar komst íslenska liöiö meira inn í leikinn og fóru leikmenn aö taka hraustlega á móti hinum höröu írum. Það varö til þess aö mlkil harka og barátta færöist í leikinn. islensku leikmönnunum tókst aö verjast vel og þaö var ekki fyrr en 10 mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks sem Irum tókst loks aö skora mark. Mick Robinson gaf góöan stungubolta inn á Frank Stapleton sem var skrefi á undan Sævari Jónssyni í boltann. Stapleton brunaöi í gegn og rétt innan víta- teigslínu skaut hann þrumuskoti og skoraöi glæsilega. Skot þetta var óverjandi fyrir Þorstein Bjarna- son markvörð íslenska liösins. Á 41. mínútu leiksins var brotiö mjög gróflega á Pétri Ormslev og varö hann aö yfirgefa völlinn. Þaö var Mick Walsh sem braut á Pótri og fékk hann ekki einu sinni gula spjaldiö fyrir hjá mjög slökum dómara leiksins. Pótur var borinn voru ekkert aö gefa eftir og náöu góöum leikköflum í síöari hálfleik og léku þá mun betur saman en í þeim fyrri. Réöi þar mestu um aö Pétur Pétursson var færöur aftar á völlinn og komst meira inn í leik- inn. Á 18. mínútu átti Arnór Guö- johnssen þrumuskot; sitt besta í leiknum aö irska markinu. Skot Besta marktækifæri íslenska liösins: Á 72. mínútu leiksins munaöi mjög litlu aö íslenska liöinu tækist aö jafna leikinn. Pétur Pétursson tók hornspyrnu og gaf vel fyrir markið. Þar ætlaöi O'Leary aö skalla frá en tókst ekki betur til en svo aö boltinn fór beint fyrir írska „Okkur tókst það sem vió ætluðum okkur“ - sagði Mike Robinson Ronnie Whealan: — Við erum ánægðir með sig- urinn, þetta var haröur og fjörug- ur leikur. íslenska liöiö er gott og baráttuglatt og ég gæti trúað því aö þaö eigi eftir aö ná í nokkur stig í riölinum. Mike Robinson: — Okkur tókst það sem viö ætluðum okkur. Viö náöum tveimur stigum, en viö áttum von á erfiðum leik og sú varö raunin. Við lékum vel, viö börðumst vel allan leikinn og sköpuðum okkur mörg tækifæri. íslenska liöið er aö mörgu leyti gott, en sigur okkar var samt sanngjarn. Pétur meiddist illa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.