Morgunblaðið - 14.10.1982, Side 44

Morgunblaðið - 14.10.1982, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTOBER 1982 ást er.. ... ad akynja ad barnid er hluti af ykkur hádum. TM Rag U S Pal Off —all rights reserved • 198? Los Angetes Times Syndécate llann er orAinn raddlaus, læknir? Kitlhvaó þykir mér þessi einkenni- kg? HÖGNI HREKKVlSI „ HANN LflGpt blÖGLEóA'" Það þarf að draga saman seglin í eyðslu og flottskap „HvaA kemur til að þjóðin, þetta vel upp alda og menntaða fólk sem hér býr, skilur ekki, hvilikt fjöregg iðnaðurinn er, og að hverskonar framleiðsla er algjör undirstaða velmegunar og hagsældar? I'etta skilst kannski ekki fyrr en einhverntíma seinna, þegar barnabörnin okkar fara að glíma við þessa geigvænlegu skuldaspúpu, sem nútíðin er að færa framtíðinni að gjöf.“ Gunnar Gunnarson, Syðra- Vallholti, skrifar: „Kæri Velvakandi! Mig langar til að senda þér þennan smápistil minn til birt- ingar. Ég var að fletta Mbl. frá 29. f.m. og segir þar að kjördæmamál- ið sé erfiðast, og haft eftir nefnd- armanni í stjórnarskrárnefnd. Mér skilst að nefndin sú sé með elstu nefndum á landi hér, erfitt að koma endahnútnum á, og standi hnífurinn í kúnni, þar sem er kjördæmamálið og kosninga- rétturinn. Það er ekki gott, hve margir tclja sig> búa við skertan kosn- ingarétt. Lausnin á þeim mikla vanda og því hróplega ranglæti, að því að talið er, er of einföld til að fólk sjái hana. Stundum er það svo, að einföldustu hlutirnir leyn- ast eins og flísin í eigin auga, en ávirðingar annarra eru öllum Ijós- ar. Lausnin á þessu vandamáli er einfaldlega sú, að hver sá, sem tel- ur sig búa við skertan kosninga- rétt, flytur út í það kjördæmi þar sem hann telur kjósendur hafa meiri atkvæðisrétt. Hver sá sem þannig leysti málið slægi raunar tvær flugur í högginu, því auk þess að efla sinn eigin kosninga- rétt, haslaði hann sér völl úti í einhverri hinna dreifðu byggða, kæmi þar til starfa með öðru landsbyggðarfólki, sem öðrum fremur vinnur að frumvinnslu og undirstöðu velmegunarþjóðfélags á Islandi. Hið mikla þjóðfélagslega vanda- mál á Islandi er ckki skcrtur kosn- ingaréttur þéttbýlisbúa, heldur sú staðreynd, að við höfum sett um of á heyin. Framleiðslan, sem allt stendur undir, er einskis metin af of mörgum, og þúsundir manna, sem lifa á framleiðslunni beint og óbeint, jafnvel við hin ómerki- legustu störf undir ýmislegum þjónustuheitum, þurfa að skipta um svið. Snúa sér að þjóðnýtum störfum, einhverju sem gefur þjóðarbúinu — hefja raunsæ framleiðslustörf, því auður og velsæld þjóða og einstaklinga kemur ekki nema frá framleiðslu í einhverri mynd. Það er verið að fara aftan að hlutunum, þegar „þjóðarkökunni" er skipt eins og gert hefur verið. Það þarf að taka upp þá reglu, að allir þeir sem vinna að framleiðslu beint, hvort heldur það er við landbúnað, sjávarútveg eða iðnað, hverskonar framleiðslu, fái rétt- mæt laun fyrir vinnu sína. Það, sem þá er eftir, verður til skipta fyrir þjónustuaðalinn, kaupmenn, milliliði og spekúlanta, víxlara og slíka. Það er mikil höfuðnauðsyn að þessir hópar verði ekki of stórir og fjölmennir, því það er framleiðsl- an í landinu sem stendur undir öllum launagreiðslum, hvort held- ur sein það er kaupmaðurinn, bankamaðurinn, forstjórinn, sjó- maðurinn eða bóndinn, sem fær launin. Ekki skyldi gleyma iðnað- armanninum, því í honum er framtíð þjóðarinnar fólgin. Án stóraukins iðnaðar, bæði til fram- leiðslu vöru til útflutnings og eins til að nota í landinu sjálfu, verður þetta þjóðfélag vanmáttugt og fá- tækt. Gegn því ber að vinna markvisst, með því að stórauka margskonar iðnaðarframleiðslu vítt og breitt um landið, og gera hana samkeppnisfæra við erlend- an iðnað. Það verður ekki gert með öðru móti en að stöðva þessa gegn- darlausu verðbólgu sem vaðið hef- ur hér uppi. Verðbólgan má ekki vera meiri en í viðskipta- löndunum, þá mun ekki verða vandi að selja þá framleiðslu sem við þurfum að selja til útlanda, hvort sem það eru landbúnaðar- vörur, fiskur eða inaðarvarningur af ýmsu tagi. Nú eru fataverksmiðjurnar að draga saman seglin og jafnvel ein- hverjar að fara upp fyrir, heyrir maður i fréttum. Uppsagnir eru miklar í greininni, og þeir sem eft- ir sitja, fara jafnvel út í fatainn- flutning. Það kvað gefa nokkuð gott í aðra hönd, að sagt er. Hvers vegna fara þá ekki allir að flytja inn fatnað og hverskonar varning? Það er sagt að framleiðslan beri sig ekki, það þurfi alltaf að vera að gefa með henni, bjarga málunum og þessháttar. Því þá ekki að hætta þessari óarðbæru framleiðslu. Það er til nóg af ódýrum vörum í útlandinu. Flytjum þær inn og neytum þeirra. Við gætum þá gengið í fín- um fötum, unnið á skrifstofum, verið við verzlun og siglingar og sólað okkur á sólarströndum. Og peningana okkar getum við lagt í banka, þar sem við þurfum ekki Iengur að standa undir þessari óarðbæru framleiðslu, s.s. við landbúnað og fiskveiðar, sem er á hvínandi hausnum, að sagt er. Merkilegt í allri hinni gírugu lagasetningu, að ekki skuli vera búið að banna með lagavaldi þenn- an veikburða iðnað, sem fátækir menn uppi á íslandi hafa verið að dunda við, nauðandi um lán og styrki til að halda þessari vesöld gangandi, þegar hægt er að fá inn- fluttar iðnaðarvörur á mun hag- stæðara verði. Hvað kemur til að þjóðin, þetta vel upp alda og menntaða fólk sem hér býr, skilur ekki, hvílíkt fjör- egg iðnaðurinn er, og að hverskon- ar framleiðsla er algjör undir- staða velmegunar og hagsældar? Þetta skilst kannski ekki fyrr en einhverntíma seinna, þegar bamabörnin okkar fara að glíma við þessa geigvænlegu skuldasúpu, sem nútíðin er að færa framtíð- inni að gjöf. Það hlýtur öllum að vera ljóst, að það er ekki endalaust hægt að auka skuldirnar. Einhvern tíma segir púkinn á fjósbitanum: Hingað, og ekki lengra. Nú á ég orðið allt — allt — og þig líka. Þá verða ekki tekin lán. Þá verður að fara að borga, og það verður ekki gert með öðru en vöru sem við verðum að framleiða sjálf og koma í verð í erlendum gjaldeyri. Ætli það væri ekki skynsamlegast fyrir okkur eyjarskeggja að snúa sem fyrst við blaðinu. Hefja fram- leiðsluna til þess vegs sem henni ber, minnugir þess, að þurfi að borga með henni, þá er það ein- göngu vegna þess, að það er búið að taka of mikið af henni. Það þarf að draga saman seglin í eyðslu og flottskap. Stöðva ónauðsynlega fjárfestingu, eins og byggingu Seðiabankahúss, og ým- islegt fleira, tryggja gengi gjald- miðilsins og stöðva verðþensluna, sem er að tröllríða þjóðfélaginu í dag. Þá þarf að tryggja rétt lands- byggðarinnar á Alþingi, fækka þingmönnum, og draga úr ónauð- synlegum ríkisumsvifum, og síð- ast en ekki síst, að lofa einstakl- ingsframtakinu að njóta sín, því það er frá hinum sterku einstakl- ingum í atvinnurekstrinum sem mestu og beztu þjóðartekjurnar koma. Það má vissulega gæta þess, að sökkva sér ekki í sósíalíska meðal- mennsku, þar sem enginn má skara fram úr, og hverjum þeim sem sýnir dirfsku og þor, er hegnt, sem hann væri að sölsa undir sig annarra lifibrauð." ÉÉilK r' • ^ mSif •< ^fi/ ■ — • * i „Það er verið að fara aftan að hlutunum, þegar „þjóðarkökunni“ er skipt eíns og gert hefur verið. Það þarf að taka upp þá reglu, að allir þeir sem vinna að framleiðslu beint, hvort heldur það er við landbúnað, sjávarútveg, iðnað eða hverskonar framleiðslu, fái réttmæt laun fyrir vinnu sína. Það scm þá er eftir, verður til skipta fyrir þjónustuaðalinn, kaupmenn, milliliði og spekúlanta: víxlara og slíka.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.